Morgunblaðið - 02.03.2005, Qupperneq 4
verra en í Eurovision söngvakeppn-
inni! Taldi hann keppinaut Íslands
frekar vera Austurríki en Tyrkland.
Steingrímur sagðist vera fylgjandi
því almennt að Ísland axlaði ábyrgð
til að taka sæti í öryggisráðinu.
Leggja ætti áherslu á lýðræðislega
uppbyggt svæðis- og alþjóða-
samstarf. Hafði hann þó nokkra fyr-
irvara við mögulega setu Íslands í
ráðinu. Kostnaðurinn skipti máli og
það væri ólíðandi ef smáríkjum væri
gert ókleift að komast inn í örygg-
isráðið. Ráðið mætti ekki verða
„dólgaleikur hákarlanna“. Þá þyrfti
Ísland að eiga málefnalegt erindi inn
í ráðið, sem fullur sómi væri að með
sjálfstæðri og óháðri stefnu. Ísland
mætti ekki fara inn sem „gagnrýn-
islaus taglhnýtingur stórveldanna“.
Þekkjum söguna um froskinn
Jónína dró í efa þær tölur sem
hefðu verið nefndar af Einari Oddi
um að framboðsbaráttan myndi
kosta Íslendinga 800–1.000 milljónir
króna. Það væri í hærri kantinum
miðað við það að sjö starfsmenn
EINAR Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, hafði á
opnum fundi á Hótel Sögu í gær
miklar efasemdir um framboð Ís-
lands til setu í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna 2009–2010. Taldi hann
baráttu Íslands vera vonlausa, mikl-
um fjármunum væri eytt í óþarfa og
möguleikar Íslands væru í mesta lagi
þeir að hljóta fjögur atkvæði Norð-
urlandaþjóðanna, auk okkar eigin at-
kvæðis. Sagði Einar Oddur það vera
skynsamlegra að styðja Tyrki til setu
í öryggisráðinu.
Má ekki verða „dólgaleikur
hákarlanna“
Samtök um vestræna samvinnu og
Varðberg, félag ungs áhugafólks um
vestræna samvinnu, stóðu fyrir fund-
inum. Auk Einars Odds fluttu fram-
sögu þingmennirnir Steingrímur J.
Sigfússon, formaður VG, og Jónína
Bjartmarz, Framsóknarflokknum.
Þau sögðust ekki vera jafnsvartsýn
og Einar Oddur um árangur Íslands.
Steingrímur sagði að ef bara kæmu
atkvæði frá Norðurlöndum yrði þetta
þyrfti til viðbótar í sendiráð Íslands í
New York og 3–4 í utanríkisráðu-
neytinu.
„Ég lít þannig á að draumar ör-
þjóða um að hafa virðingu heimsins
séu eðlilegir en á sama tíma skulum
við átta okkur á því að ekki er sama
hvernig við gerum það. Við þekkjum
öll söguna um litla froskinn, sem
horfði á stóra bolann uppi á hólnum,
hvað hann lét sig dreyma um og
hvernig fór fyrir honum. Það var ekki
góð saga og við skulum ekki láta hana
henda okkur,“ sagði Einar Oddur.
Hann sagði aðstæður allt aðrar í
dag en þegar ákveðið var á vettvangi
Norðurlandaþjóða árið 1998 að
stefna að framboði Íslands. Þá hefðu
menn talið það sjálfkjörið að Íslandi
færi þarna inn ásamt Austurríki.
Sagðist Einar hafa fyrir því vitneskju
að kostnaður Norðmanna við að kom-
ast inn í öryggisráðið hefði verið 2–3
milljarðar króna og allt snúist um
„lobbíisma“ meðal þjóða. Síðan hefði
staðan gjörbreyst þegar Tyrkir
ákváðu að fara inn í ráðið. Vonaðist
hann til þess að ríkisstjórnin og utan-
ríkisþjónustan endurskoðuðu afstöðu
sína í haust. Íslendingar gætu haft
fullan sóma af því að styðja Tyrki.
Eðlilegt væri að skipta um skoðun,
menn reru þegar væri lag til þess. Ís-
land gæti aflað sér sóma og virðingar
með öðrum hætti en sitja í örygg-
isráðinu og þá með því að leggja öðr-
um þjóðum lið í gegnum verkfæri
eins og Þróunarsamvinnustofnunina
og öfluga utanríkisþjónustu.
Jónína Bjartmarz sagði það hafa
legið fyrir að kostnaðurinn við fram-
boðið yrði verulegur og meiri en
stjórnvöld hefðu ráðist í áður í utan-
ríkismálum. Erfitt væri að meta
kostnaðinn og keppnin hefði harðnað
með þátttöku Tyrkja. Minnti Jónína
á að Íslendingar hefðu stóraukið
framlög sín til þróunarmála og frið-
argæslu en væru engu að síður eft-
irbátar annarra þjóða í þeim efnum.
Steingrímur svaraði þeirri spurn-
ingu fundarboðenda játandi að smá-
þjóð eins og Ísland hefði hlutverki að
gegna innan öryggisráðsins. Hann
svaraði því einnig játandi að Ísland
ætti að taka þátt í að greiða atkvæði í
öryggisráðinu um óvinsælar hern-
aðaraðgerðir SÞ í ríkjum sem ógnuðu
heimsfriði. Efnislegur ávinningur af
setu í ráðinu yrði hins vegar enginn
og þannig ætti heldur ekki að hugsa
málið. Ef fullur sómi yrði af þátttök-
unni myndi Íslendingum líða betur.
Morgunblaðið/Golli
Framsögu á opnum fundi SVS og Varðbergs fluttu þingmennirnir Stein-
grímur J. Sigfússon, Einar Oddur Kristjánsson og Jónína Bjartmarz.
„Verra en í
Eurovision“
Einar Oddur Kristjánsson segir Ísland hafa möguleika á 4 atkvæðum í kosningu til Öryggisráðsins
4 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
af glæsilegum
herraskóm frá
Ný sending
Smáralind • Kringlunni
Mikið úrval
Morgunblaðið/Eggert
ÞESSAR ungu vinkonur í Austur-
bæjarskóla tóku því nokkuð rólega
í frímínútum í gær. Líklega hafa
prjónahúfur þeirra komið að góð-
um notum í þeirri gjólu sem ein-
kennt hefur veðrið síðustu daga.
Á spjalli í frímínútum
VEGNA mistaka voru sendir
greiðsluseðlar um mánaðamótin
til þeirra áskrifenda Morgun-
blaðsins sem venjulega hafa ver-
ið í beingreiðslu hjá Sparisjóð-
unum.
Mistökin hafa nú verið leiðrétt
og verða greiðslurnar fram-
kvæmdar í gegnum bankann
eins og áður. Ekki er unnt að
greiða umrædda seðla og því
engin hætta á tvígreiðslu áskrift-
argjalda.
Áskrifendur Morgunblaðsins
eru beðnir velvirðingar á mistök-
unum.
Mistök við útskrift
greiðsluseðla
áskrifenda leiðrétt
veittist maðurinn að honum og beit
hann í vinstri framhandlegg með
þeim afleiðingum að bílstjórinn hlaut
sár og bólgur á handleggnum. Mað-
urinn neitaði reyndar sök og sagði
bitið hafa verið nauðvörn þar sem
ökumaðurinn hefði þrengt svo að
hálsi sínum en á það féllst héraðs-
dómur ekki.
Borgi maðurinn ekki sektina innan
fjögurra vikna er vararefsing 20 daga
fangelsi. Hann var dæmdur til að
borga lækniskostnað bílstjórans og
allan sakarkostnað. Bótakröfu vegna
skemmda á bílnum var vísað frá. Eyj-
ólfur Eyjólfsson fulltrúi sótti málið og
Gylfi Jens Gylfason hdl. var til varn-
ar. Dómari var Ásgeir Magnússon.
ÞRÍTUGUR maður hefur verið
dæmdur til að borga 100.000 krónur í
sekt í ríkissjóð fyrir líkamsárás og
eignaspjöll en hann var sakfelldur
fyrir að slá og sparka í vélarhlíf bif-
reiðar og fyrir að bíta ökumanninn
síðan í handlegginn þegar þeir tókust
á.
Atvikið átti sér stað við gatnamót
Laugavegar og Skólavörðustígs.
Maðurinn stóð á götunni og vildi öku-
maður fá hann til að færa sig með því
að þeyta bílflautuna. Hann brást við
með því að slá í vélarhlíf bifreiðarinn-
ar og sparka í vinstra frambretti og
vinstri framhurð bifreiðarinnar, með
þeim afleiðingum að dældir komu á.
Þegar ökumaður bílsins steig út
Sparkaði í vélarhlíf
og beit í handlegg
FYLGI Framsóknarflokksins mæl-
ist 10% samkvæmt þjóðarpúlsi Gall-
up, tapar hann þremur prósentustig-
um frá síðustu könnun. Hefur
flokkurinn ekki mælst með jafnlítið
fylgi frá því Gallup hóf mælingar sín-
ar árið 1993. Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig rúmum fjórum pró-
sentustigum, Samfylkingin tapar
tæpum tveimur prósentustigum og
VG og frjálslyndir standa í stað frá
síðustu könnun í janúar.
Könnunin tók til tæplega 2.600
manns og var framkvæmd frá 31.
janúar til 27. febrúar. Svarhlutfall
var 62% og eru vikmörk í könnuninni
1-3%.
Samkvæmt niðurstöðunum fengi
Sjálfstæðisflokkurinn 37% ef kosið
væri nú, en fékk 33% í könnuninni í
janúar og 34% í kosningunum fyrir
tveimur árum síðan. Samfylkingin
fengi 32%, en var með 34% í könn-
uninni í janúar og 31% í kosningun-
um. Vinstri grænir fengju 16% sem
er það sama og í könnuninni í janúar
en sjö prósentustigum meira en þeir
fengu í kosningunum þegar þeir
fengu 9%. Frjálslyndir fá 4% eins og
fyrir mánuði en fengu 7% í kosning-
unum og Framsókn fékk 10% eins og
fyrr sagði, en fékk 13% í könnuninni
fyrir mánuði og 18% í kosningunum.
Stuðningur við
ríkisstjórnina vex
Jafnframt kemur fram að stuðn-
ingur við ríkisstjórnina vex um tvö
prósentustig frá síðustu könnun og
er 49%. Rúmlega 17% tóku ekki af-
stöðu eða neituðu að gefa hana upp
og 7% sögðust ekki myndu kjósa eða
skila auðu ef kosið væri nú.
Þjóðarpúls Gallup
Framsókn
mælist með
10% fylgi
NÆRRI 44 þúsund rúmmetrar af
fyllingarefni bættust í Kára-
hnjúkastíflu í síðustu viku og er
það talið góður árangur miðað við
árstíma.
Á vef Kárahnjúkavirkjunar seg-
ir að þennan árangur megi þakka
„fádæma blíðviðri dag eftir dag“.
Vikurnar á undan hafði lítið verið
flutt af efni í stífluna sökum kulda
og trekks. „En vorið kom sem
sagt með fyrra fallinu þarna – í
bili að minnsta kosti,“ segja virkj-
unarmenn við Kárahnjúka.
Borvinna í iðrum jarðar gekk
hins vegar ekki eins vel í síðustu
viku og stíflugerðin. Í aðrennsl-
isgöngunum voru alls boraðir um
160 metrar en venjulega hafa risa-
borarnir annað mun meiru í viku
hverri. Að þessu sinni komu upp
bilanir, viðhaldsvinna og mikil
bergþétting vegna vatnsleka í
göngunum.
Fylltu í stíflu í fádæma blíðviðri