Morgunblaðið - 02.03.2005, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
DÖNSK HÚSGAGNAHÖNNUN
Ef þú hefur áhuga á danskri húsgagnahönnun í hæsta gæðaflokki,
skoðaðu þá heimasíðu okkar á www.soeborg-moebler.dk og fáðu
nánari upplýsingar eða bæklinga og tilboð frá fyrirtæki okkar.
Næst þegar þú ert í Kaupmannahöfn, ertu velkomin/n að heimsækja
okkur í sýningarsal okkar (800 m2), sem er í aðeins 6 km fjarlægð
frá miðbænum.
A/S Søborg Møbelfabrik, Gladsaxevej 400, 2860 Søborg,
sími +45 39 69 42 22, www.soeborg-moebler.dk
Opnunartímar: mánudag-þriðjudag 8.30-16.30, föstudag 8.30-15
BYRJUNARLAUN meinatækna,
sem eru í dag um 139 þúsund krón-
ur á mánuði, verða 1. maí á næsta
ári 200 þúsund krónur. Byrjunar-
laun hjúkrunarfræðinga, sem í dag
eru um 168 þúsund krónur, verða að
lágmarki 200 þúsund 1. maí á næsta
ári. Þetta eru dæmi um launabreyt-
ingar sem fylgja nýjum kjarasamn-
ingi ríkisins við 24 félög BHM.
Með samningnum er búin til ein
samræmd launatafla fyrir félögin
öll. Nýja taflan tekur ekki gildi fyrr
en 1. maí 2006, en lægstu mánaðar-
laun samkvæmt henni eru 200 þús-
und krónur.
Eðli málsins samkvæmt er nokk-
uð mismunandi hvað lægstu laun fé-
lagsmanna BHM hækka mikið, en
það ræðst af eldri launatöflum. Þeir
sem fá mest út úr samningnum eru
þroskaþjálfar, geislafræðingar,
meinatæknar, hjúkrunarfræðingar
og fréttamenn, en þetta eru þær
starfsstéttir sem hafa verið með
lægstu launatöflurnar. Byrjunar-
laun meinatækna voru í kringum
139 þúsund krónur á mánuði. Byrj-
unarlaun geislafræðinga voru um
150 þúsund, byrjunarlaun þroska-
þjálfa voru um 158 þúsund og byrj-
unarlaun hjúkrunarfræðinga um
168 þúsund. Öll hækka þessi laun
upp í 200 þúsund krónur 1. maí
2006. Hækkunin fram að þeim tíma
er mismunandi, en hækkun fyrsta
árið, þ.e. við undirritun og um
næstu áramót, er nálægt 8%.
Einn samningur innan
hverrar stofnunar
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður
Félags hjúkrunarfræðinga, segir að
þó að lágmarkslaunin séu ákveðin
200 þúsund krónur á mánuði í launa-
töflu sé ekki endilega víst að þau
verði nákvæmlega sú tala 1. maí
2006. Eftir sé að gera stofnana-
samninga og lágmarkslaun hjúkrun-
arfræðinga ráðist af því hvernig
þeir komi út við þessa röðun. Lág-
markslaun hjúkrunarfræðinga
hækki því um a.m.k. 17% á rúmlega
einu ári.
Meginástæðan fyrir því að nýja
launataflan kemur ekki til fram-
kvæmda fyrr en 1. maí 2006 er sú að
fyrir þann tíma á að vera búið að
ljúka gerð stofnanasamninga, en í
þeim samningum verður m.a. geng-
ið frá röðun einstakra hópa innan
hverrar stofnunar.
Gert er ráð fyrir að gerður verði
einn samningur innan hverrar
stofnunar en fram að þessu heftur
hver stétt verið með sérstofnana-
samning. Það eru t.d. 14 mismun-
andi stofnanasamningar á Landspít-
alanum.
Halldóra Friðjónsdóttir, formað-
ur BHM, segir að það sé mikið verk-
efni að ljúka þessum stofnanasamn-
ingum, en hún hefur trú á að það
takist á réttum tíma. Samið hafi ver-
ið um að ríkið komi með fjármagn
sem svaraði tæplega 4% kostnaðar-
hækkunar til að greiða fyrir röðun í
launatöfluna. 2,6% komi til viðbótar
inn í stofnanaþátt samninganna í
maí 2007. Þetta sé gert til að jafna
milli stéttanna þar sem þær standi
mjög misjafnlega að vígi í dag. Hún
segir að við röðun starfa verði m.a.
horft til menntunar, mikilvægis
starfa og fleiri þátta.
Halldóra sagði að samningurinn
gerði ráð fyrir að hvert félag fengi
ekki minna en 15% hækkun. Það
þýddi hins vegar ekki að allir fé-
lagsmenn fengju 15% hækkun.
Fjármálaráðuneytið metur hins
vegar að kostnaður af samningnum
verði tæplega 20% á samningstím-
anum.
Forsenda að samningurinn
verði samþykktur af öllum
Í yfirlýsingu fjármálaráðuneytis-
ins um samninginn kemur fram að
það sé ávinningur fyrir ríkið að ná
fram einföldun á launakerfinu.
„Þess ber að geta að af hálfu ríkisins
er það forsenda fyrir gerð þessa
samnings að hann verði samþykktur
af öllum BHM-félögunum sem um
ræðir,“ segir í yfirlýsingu ráðuneyt-
isins.
Halldóra segist ekki líta svo að öll
samningavinnan ónýtist ef eitt félag
felli samninginn. Hún segist vona að
samningurinn verði samþykktur.
Þetta sé ágætur samningur þó að
ekki hafi allar kröfur náðst fram.
Hún segist binda sérstakar vonir við
að með samningnum takist að vinna
á launamun kynjanna.
Lágmarkslaun meinatækna
hækka um 60 þúsund kr.
Morgunblaðið/Golli
Innihald nýgerðra BHM-samninga var kynnt og samþykkt á fundi forystu- og trúnaðarmanna 24 félaga á Grand
hóteli í gær. Samningurinn verður nú lagður fyrir félagsmenn í atkvæðagreiðslu.
Byrjunarlaun
BHM-félaga
verða 200
þúsund krónur
1. maí 2006
!
!
!
!
!
"#$!
"%$!
"% !
"&'!
((!
$!
!
'!
#!
Samningur sjúkra-
þjálfara við TR
Ekki sett
þak á
greiðslur
NÝR samningur Tryggingastofnunar
og sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara
um gjaldskrá felur ekki í sér þak á
greiðslur, en samninganefnd Trygg-
ingastofnunar hafði gert kröfu um
það. Ákveðið var hins vegar að aðilar
myndu skoða sameiginlega þróun út-
gjalda í sérstakri samstarfsnefnd.
Kristján Ragnarsson, formaður
Félags sjálfstætt starfandi sjúkra-
þjálfara, sagði að þörf fyrir þjónustu
sjúkraþjálfara væri stöðugt að
aukast. Ástæður fyrir þessu væru
ýmsar. „Ein ástæðan er aldursþróun
þjóðarinnar. Íslendingum yfir fimm-
tugt mun fjölga um 11% fram til 2008,
en Íslendingum undir fimmtugt mun
fjölga um 0,3%. Reynslan sýnir að
eldri aldurshóparnir þurfa meira á
okkar þjónustu að halda. Síðan eru
spítalarnir sífellt að útskrifa fólk fyrr.
Ennfremur er öryrkjum stöðugt að
fjölga. Ef sett hefði verið heildarþak á
greiðslur TR hefði gjaldskrá okkar
rýrnað jafnt og þétt og það gátum við
ekki sætt okkur við,“ sagði Kristján.
Gjaldskrá sjúkraþjálfara hækkar
samkvæmt samningnum í takt við
samning sérfræðilækna við TR.
Samningurinn er til marsloka 2008.
Heilbrigðisráðherra hefur vald til
að ákveða með reglugerð hvort kostn-
aðarskiptingu milli TR og sjúklinga
verður breytt, en henni var síðast
breytt í hitteðfyrra. Ekki liggur fyrir
hvort reglugerðinni verður breytt.
Póstmannafélagið
Byrjunarlaun
fara úr
91 þúsundi
í 106 þúsund
BYRJUNARLAUN bréfbera hjá Ís-
landspósti hækka með nýjum kjara-
samningi Póstmannafélags Íslands
og Íslandspósts úr 91 þúsund krón-
um á mánuði í 106 þúsund krónur.
Samningurinn, sem gildir til ársloka
2007, nær til um 1.100 félagsmanna
Póstmannafélagsins.
Þuríður Einarsdóttir, formaður
Póstmannafélagsins, segir að í
samningnum hafi verið lögð áhersla
á að hækka laun þeirra lægst laun-
uðu. Lægstu taxtarnir hækki um
26%, en meðalhækkun launa sé hins
vegar um 21% á samningstímanum.
Upphafshækkun á þessu ári er
4,25%, 3,0% frá 1. janúar 2006 og
2,5% frá 1. janúar 2007.
Hafa ekki fengið
hækkun í 14 mánuði
Þuríður segir að hafa verði í huga
að félagsmenn í Póstmannafélaginu
hafi ekki fengið hækkun síðan í jan-
úar 2004 og því sé eðlilegt að taxta-
hækkunin sé eitthvað hærri en félag-
anna sem sömdu snemma á síðasta
ári.
Þuríður segir að í samningnum sé
launatöflu breytt að hluta og einnig
sé nokkuð um tilfærslur í flokkum.
Breytingar á lífeyrissjóðsgreiðslum
séu eins og í þeim samningum sem
nýlega hafa verið undirritaðir. Hún
segist vera þeirrar skoðunar að ekki
hafi verið lengra komist í þessum
viðræðum. Samningurinn sé í meg-
inatriðum í samræmi við þá samn-
inga sem gerðir hafi verið á almenn-
um markaði.
Þuríður segir að meðallaun póst-
manna séu 120–125 þúsund krónur á
mánuði. Um 40% félagsmanna séu
bréfberar en þeir sé lægst launaðir.
Samninganefndir SFR og ríkisins
áttu fund í gær. Jens Andrésson, for-
maður SFR, segir að á fundinum hafi
verið tekist á um útfærslur í launa-
töflu. Niðurstaða sé ekki fengin en
hann vonast eftir að takist að ljúka
samningum sem fyrst. Nýr fundur
hefur verið boðaður í dag.
PERSÓNUVERND hefur
ritað VISA Ísland bréf og
óskað skýringa á því hvað fór
úrskeiðis við útsendingu
greiðsluseðla til hluta við-
skiptavina fyrirtækisins um
nýliðin mánaðamót. Ekki var
um færsluyfirlit að ræða,
heldur seðil sem sýnir upp-
hæð greiðslukortaskuldar
sem gjaldfellur í byrjun
mars. Greiðsluseðlar allra
viðskiptavina með sama heimilisfang
voru í einhverjum tilvikum sendir ein-
um viðskiptavini með það heimilis-
fang. Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri
Persónuverndar, sagði að þessi mis-
tök verði væntanlega athug-
uð í tengslum við heildarat-
hugun á öryggi vinnuferla
hjá greiðslukortafyrirtækj-
unum. Sú athugun hófst fyr-
ir nokkru og tengist ekki sér-
stökum öryggisbresti af
neinu tagi, að sögn Sigrúnar.
„Þegar stofnunin [Per-
sónuvernd] varð til breyttist
hlutverk hennar og hún fékk
víðtækara eftirlitshlutverk,“
sagði Sigrún. „Við höfum verið mjög
virk í öryggisúttektum. Greiðslu-
kortafyrirtækin urðu fyrir valinu
vegna þess hvað þau eru með um-
fangsmikla vinnslu.“
Persónuvernd leitar skýr-
inga á mistökum VISA
Sigrún
Jóhannesdóttir
♦♦♦
LÖGREGLAN á Hvolsvelli hafði í
síðustu viku afskipti af fimm
mönnum frá Portúgal sem starfa
við byggingarvinnu á Rangárvöll-
um, en þeir gátu ekki gert fyllilega
grein fyrir sér á Selfossi þar sem
lögregla stöðvaði þá í bíl, að því er
fram kemur í dagbók lögreglunn-
ar. Farið var með þá á vinnustað-
inn á Rangárvöllum þar sem þeir
framvísuðu persónuskilríkjum.
Haft var samband við Útlend-
ingastofnun og Vinnumálastofnun
vegna mannanna en þeir eru hér á
vegum verktakafyrirtækis á höf-
uðborgarsvæðinu í gegnum er-
lenda vinnumiðlun og eru „löglegir
hér í landinu og mega stunda sína
vinnu“, að því er segir í dagbók-
inni.
Gátu ekki gert fyllilega
grein fyrir sér