Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 20

Morgunblaðið - 02.03.2005, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÁRIÐ 1809 var svo sem ekkert merk- isár í sögu bókmenntanna. Eigi að síður voru þá í heiminn bornir þeir tveir menn, Edgar Allan Poe í Banda- ríkjunum og Nikolaj Gogol í Úkraínu, sem báðir áttu eftir að láta að sér kveða, hvor í sínu landi, og verða nafn fyrir augliti heimsins, annar í austri, hinn í vestri. Báðir urðu skammlífir. Og báðir enduðu ævi sína í ömurlegri sálarkreppu. Eigi að síður tókst þeim að færa út landamerki hins við- urkennda bókmenntaheims sem fram að því hafði að mestu takmarkast við Vestur-Evrópu með Frakkland sem þungamiðju. Edgar Allan Poe kom með uppskriftina að sakamálasög- unni. Nikolaj Gogol innleiddi þá fjar- stæðukenndu veruleikafirring sem alla tíð síðan hefur verið að skjóta upp kollinum í bókmenntum Vest- urlanda; oftar en ekki smeygt sér inn í aðrar stefnur, hvort sem þær hafa verið kenndar við rómantík eða raunsæi, og jafnan falið í sér einhvers konar dulbúna ádeilu. Gogol fluttist ungur til Pétursborgar, kynntist borgarlífinu þar í sínum fjölbreytileg- ustu myndum og mótaðist þar sem rithöfundur. Fyrstu verk hans hrepptu herfilega útreið af hendi gagnrýnenda. Síðar komst hann und- ir verndarvæng Púshkins. Meðmæli frá þvílíkum andans manni dugðu honum síðan til brautargengis. Smá- sögurnar fimm, sem teknar hafa ver- ið upp í bók þessa undir heitinu Pét- ursborgarsögur, eru heppileg og kærkomin kynning á þessum sér- kennilega höfundi. Sem höfuðstaður var Pétursborg aðsetur æðstu embættismanna og hershöfðingja. Staða einstaklings í þessu gróna keisaraveldi réðst ann- ars vegar af ætt hans og uppruna en hins vegar af nafnbót þeirri og ein- kennisbúningi þeim sem hann bar. Axlaskúfarnir viðhafnarmiklu eru títtnefndir í sögunum. Fjöldi lágt settra starfsmanna stóð undir hita og þunga skriffinnskunnar en bar skarð- an hlut frá borði. Draumar þeirra, hvers og eins, stóðu augljóslega til þess að komast lítið eitt hærra. En það var hægara sagt en gert í ríki þar sem allt var í föstum skorðum sam- kvæmt lögum og venju, stéttaskipt- ing og metorð síst undanskilin. Þótt hvergi sé auðvelt að gera upp á milli þessara Pétursborgarsagna mundi Kápan, sem Geir Kristjánsson þýddi, vera þeirra áhrifaríkust. Sögu- heitið er lýsandi. Góð yfirhöfn gegndi því hlutverki að auka eigandanum sjálfstraust í borg þar sem útlitið skipti svo miklu máli. Söguhetjan hugðist auka vegsemd sína en ganga um leið til atlögu við frost norðurhjar- ans, en fór halloka eins og við mátti búast. Því sögur Gogols enda ekki vel. Eða eins og segir svo gagnort í sög- unni Andlitsmyndin: »Lífið er öm- urlegt.« Ömurlegt – ef til vill er það lykilorðið. Þar sem hvaðeina snýst um auð og metorð sem flestir sækjast eftir en aðeins fáum hlotnast verður baráttan fyrir skammskárra lífi ekki aðeins vonlaus heldur beinlínis fárán- leg. Maður missir að lokum vonina. Í sárabætur gefst honum skopskynið. Að geta séð hið grátbroslega í eymd- inni – það má kalla líkn með þraut. Gogol var svo snemma á ferð að hann er jafnan metinn sem braut- ryðjandinn fremur en fyrirmyndin. Sitthvað má að þessum sögum hans finna ef út í það er farið. Nevskij prospekt er langdregin úr hófi svo dæmi sé tekið, Dagbók vitfirrings laus í reipunum. Gogol skapar mann- gerðir fremur en persónur, hvers- dagslegar aðstæður og viðbrögð söguhetjanna andspænis þeim frem- ur en hann kafi ofan í djúp tilfinninga- lífsins. Skáldsagan var einfaldlega ekki orðin það þróaða form sem hún síðar varð. Allt um það er hugkvæmni skáldsins hafin yfir alla allan vafa, eða með öðrum orðum – yfir alla með- almennsku hverju nafni sem hún nefnist. Formáli Árna Bergmanns er góður svo langt sem hann nær. Árni fer nokkrum orðum um þá pólitísku und- iröldu sem greina má í verkum skáldsins, svo og mótsagnirnar í skrifum hans og skoðunum, telur »að Gogol hafi umfram aðra rithöfunda verið ótrúlega langt frá því að skilja það sem hann hafði sjálfur skrifað«, eins og hann kemst að orði. Vafalaust má segja svo um fleiri. Tímar Edgars Allan Poe og Gogols eru svo löngu liðnir að við vitum ekki hvernig heim- urinn kom þeim fyrir sjónir. Allt, sem við vitum, er það sem við getum lesið út úr verkum þeirra. Sjálfum leið þeim verr en orð fá lýst! BÆKUR Smásögur eftir Nikolaj Gogol. 257 bls. Hávallaút- gáfan, 2004 Pétursborgarsögur Erlendur Jónsson OPEN source (opnar heimildir/ uppsprettur), dansverk Helenu Jónsdóttur, var frumflutt í Borg- arleikhúsinu sunnudagskvöldið síð- astliðið. Sýningin, sem tók rúma klukkustund í flutningi, er blanda myndmáls, ljóðmyndar, tónlistar, danslistar og leiklistar. Hún byggist m.a. á fyrirlestri sem vakti athygli höfundar. Fyrirlesturinn fjallaði um hugmyndavinnu höfunda, hugmynd- astuld og hvernig hugmyndir verða til. Helena spinnur ,,Open source“ í kringum þennan fyrirlestur en broti úr honum var varpað á tjald upp- sviðs. Þegar áhorfendur gengu í salinn var verkið þegar hafið. Dansararnir gengu inn á sviðið hver á fætur öðr- um klæddir jakkafötum sem þeir af- klæddust og gengu frá í snyrtilega hrúgu. Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona sat á gólfi sviðsins með skriffæri og bók og skráði hug- myndir, þar til hún hóf að spinna út frá setningunni ,,open source; open source, sour, open sausage“. Næst gerðist það að leiðbeiningar frá ár- um áður um hjálp í viðlögum birtust á tjaldinu og dansararnir sýni- kenndu á meðan. Sýnt var og rann- sakað hvernig hvassviðri í veð- urfréttum ríkisútvarpsins fanga hugann og hafa áhrif á mannssálina og eins morgunleikfimi rík- isútvarpsins. Farið var í orðaleiki með setningar, þær krufðar og út- koman rituð á jakkaklædd bök dansaranna. Hugmyndirnar sem framleiddar voru á sviðinu voru lík- amnaðar af dönsurunum. Dans- ararnir andvörpuðu og mynduðu kór stuna og andvarpa. Ættfræði var rakin og ættartengsl manna könnuð rétt eins og tengsl milli hugmynda. Verkið var bæði pedagógískt og gáfumannalegt. Það var leiðbein- andi um hvernig hugmyndir verða til. Það var einskonar námskeið í því að vera skapandi. Dansinn, text- inn og myndbandið fór þokkalega saman. Þó var eins og dansinn færi halloka þegar líða tók á verkið, yrði einskonar bakgrunnur við upplestur leikarans. Dansgerðin var ekkert sérlega frumleg. Hún byggðist á snúningum og leiðandi höfuðhreyf- ingum með tilheyrandi flæði í handahreyfingum. Verkið hefði mátt hafa meiri hugmyndalega breidd og var lopinn teygður óþarf- lega. Það hélt ekki vel athygli þar sem umfjöllunarefnið var end- urtekið sí og æ með mismunandi tjáningu og texta. Lítið samspil var milli myndasýningar og dansgerðar. Mikil vinna liggur að baki verksins og verkið er ekki slæmt. Það átti ágætis spretti þegar umfjöllunar- efnið náði að fanga athyglina. Næsta sýning er fimmtudaginn 3. mars. Ferðalag hugmynda LISTDANS Íslenski dansflokkurinn Höfundur: Helena Jónsdóttir. Tónlist: Skúli Sverrisson. Leikmynd og búningar: Filippia Elísdóttir. Myndband: Dodda Maggí. Textaumsjón: Þorvaldur Þor- steinsson. Lýsing: Kári Gíslason. Dramaturg: Steinunn Knútsdóttir. Leik- tækni: Kári Halldór. Ballettmeistari: Jó- hann Freyr Björgvinsson. Dansarar og leikendur: Sigrún Edda Björnsdótti, Yaniv Cohen, Steve Lorenz, Hjördís Lilja Örn- ólfsdóttir, Aðalheiður Halldórsdóttir, Phil- ip Bergman, Guðrún Óskarsdóttir. Borg- arleikhúsið, sunnudaginn 27. febrúar 2005. Open Source Morgunblaðið/Jim Smart „Verkið hefði mátt hafa meiri hugmyndalega breidd og var lopinn teygður óþarflega,“ segir Lilja Ívarsdóttir meðal annars í umsögn um Open Source. Lilja Ívarsdóttir Í FYRRADAG hurfu hundrað millj- ónir króna í reiðufé sjónum manna á Akureyri við mjög leynilegar kring- umstæður. „Peningar, easy comes – easy goes – þeir eru farnir að sinna öðr- um erindum, kaupa íbúðir eða gera eitthvað annað,“ segir Hannes Sig- urðsson, forstöðumaður Listasafns- ins á Akureyri, um fjármunina horfnu, en í raun og sann voru þeir hluti sýningar safnsins á verkum eft- ir íransættaða listamanninn Ashkan Sahihi. Listamaðurinn sýndi þennan harla óvenjulega „sýningargrip“, ásamt ljósmyndum og fleiri verkum sem í heild mynduðu innsetningu í safninu. En hvað varð um pen- ingana, Hannes, hvers vegna voru þeir látnir hverfa áður en sýningin er búin? „Það var gert af öryggis- ástæðum, en það er listrænt element í því líka. Öryggisráðstafanir hér á sýningunni hafa verið gríðarlegar. Það var skipt um allt öryggiskerfi í safninu, það voru settir nýir lásar í allar hurðir, steinklumpar fyrir allar dyr til að varna mönnum innbrots, og mýmargt annað sem ég var sett- ur inn í – og mýmargt annað sem ég var ekki uppfræddur um. Þegar sýn- ingin var opnuð afhentu allir starfs- menn safnsins Securitas lykla sína, en það fyrirtæki tók yfir rekstur safnsins meðan peningarnir voru hér. Við fengum ekkert að vita um öryggiskóðann, og fengum ekki að vera á safninu nema þegar opið var.“ Hefði aldrei gerst í stórborgum Hannes segir að verið geti að fólk hafi hreinlega ekki trúað því að á sýningunni væri um alvöru peninga að ræða, og margir hafi, þrátt fyrir að átta sig á því, ekki gert sér raun- verulega grein fyrir því hversu mikl- ir fjármunir þetta voru. „Ég held að fólk hafi ekki gert sér almennilega grein fyrir því hversu djarft þetta var. Það hefði aldrei gerst í London eða New York að svona miklir peningar væru settir á einn stað til sýnis. Þetta hefur verið reynt – en aldrei áður gert í lista- heiminum. Hluti af öryggisráðstöf- ununum var sá að við myndum láta peningana hverfa einn góðan veð- urdag, rétt fyrir sýningarlok. Ástæðan var einfaldlega sú að gefa fólki ekki tækifæri til að láta til skar- ar skríða á síðustu stundu. Við erum vön að auglýsa fyrir sýningalok, að nú séu síðustu forvöð. Það hefði get- að kveikt í einhverjum að hrökkva eða stökkva að heyra auglýst að sýn- ingu á þessum miklu fjármunum væri að ljúka. Menn hafa kannski verið að hugsa sig um – komin síð- asta sýningarvika og síðasta tæki- færi að nálgast peningana. Allt var þetta úthugsað og ákveðið fyrir löngu.“ Peningarnir voru fjarlægðir leyni- lega á mánudag, og í gær var til- kynnt að þeir væru farnir. „Það komu hingað öryggisfulltrúar og töldu alla peningana á mánudag, áð- ur en þeir laumuðust með þá í eld- traustar geymslur. Sýning heldur að sjálfsögðu áfram, en án peninganna, til 6. mars, eins og til stóð. Pening- arnir eru horfnir, en tíbetski munka- söngurinn, ljósmyndirnar, sjúkra- rúmin og önnur verk eru þarna ennþá, auk stöplanna sem pening- arnir voru á – minnisvarði um það hversu erfitt er að henda reiður á þeim.“ Engir grunsamlega áhugasamir Hannes segir ekkert hafa bent til óvenju tíðra ferða einstakra gesta á sýninguna – eða að grunur hafi vaknað um að einhverjir ásældust peningana. Hann hafi þó ekki vitað um allt sem gerðist, þar sem jafnvel honum hafi ekki verið kunnugt um ýmsan leynilegan öryggisútbúnað. „En maður veit jú aldrei. Menn hafa ráðist inn í sjoppur fyrir nokkra þús- undkalla, en þarna voru, eins og sagt er á götumáli, kúl hundrað, og allur er varinn góður. Ég er dauðfeginn því að búið sé að frelsa safnið frá því að vera öryggishólf.“ Hannes segir að viðbrögð sýning- argesta við peningunum hafi verið á ýmsa lund. „Þetta hefur spannað allan skal- ann – sumir hrista hausinn og spyrja: „Er þetta nú list?“ Vantrúin hefur líka sést hér – margir efast um að þetta hafi verið raunverulegir peningar og talið þetta plat – bara ystu búntin ekta. Framsýnt fólk sér þetta auðvitað sem hvínandi snilld, sem snertir á öllum sviðum mann- legs samfélags til listarinnar sjálfr- ar. Það vakna ýmsar samfélagslegar spurningar um peningahyggju og peningavímu, jafnvel anti kapítal- isma – ekki síst í tengslum við mynd- ir á sýningunni af fólki í vímu. Fólk verður líka hreinlega orðlaus – eitt hundrað milljónir slaga hátt í það sem venjulegur íslenskur meðaljón vinnur sér inn á heilli mannsævi, en tölurnar sem við heyrum í fréttum dagsdaglega eru svo gígantískar, að við erum hætt að meðtaka þær. Í þeim samanburði hljóma hundrað milljónir hjákátlegar, þótt það taki okkur mannsævina að vinna fyrir þeim.“ Myndlist | Hundrað milljónir króna skyndilega horfnar af sýningu á Listasafninu á Akureyri Allt úthugsað og löngu skipulagt begga@mbl.is Allir peningarnir úr sýningunni Stríðsmenn hjartans í Listasafninu á Ak- ureyri eru horfnir, eitt hundrað milljónir króna, og viðfangsefni ljósmynd- arans, Ashkans Sahihis, starir nú inn í galtóma peningakassana. Morgunblaðið/Kristján

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.