Morgunblaðið - 27.05.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.05.2005, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÁGÚST Ólafur Ágústsson, nýkjör- inn varaformaður Samfylkingar- innar, mótmælir eindregið þeim ásökunum sem hann hefur verið borinn um óeðlileg vinnubrögð í að- draganda og framkvæmd varaformannskosningarinnar á ný- afstöðnum landsfundi. „Þetta eru rakalausar dylgjur og alveg fáránlegar ásakanir. Kosn- ingabarátta mín var heiðarleg. Framkvæmd kosninganna var bæði lögleg, eðlileg og hefðbundin. Þetta hafa formaður kjörstjórnar, kjör- stjórnin sjálf, framkvæmdastjóri flokksins, starfsfólk flokksins á staðnum sem og formaður flokksins öll staðfest,“ sagði Ágúst Ólafur í samtali við Morgunblaðið í gær. Lofaði hvorki pítsum né bjór – Málsmetandi menn innan Sam- fylkingarinnar hafa samt ýjað að því að ekki hafi allt verið með felldu. Annar mótframbjóðandi þinn, Lúðvík Bergvinsson alþingis- maður, sagði í samtali við Morg- unblaðið að „heilu bílfarmarnir af krökkum“ hafi streymt á fundar- stað. Mörður Árnason alþingismað- ur sá ástæðu til að spyrjast fyrir um það á fundinum hvort greiða mætti atkvæði fyrir aðra en sjálfa sig? „Ungir jafnaðarmenn áttu lands- fundarfulltrúa eins og önnur aðild- arfélög Samfylkingarinnar. Það þurfti að tilkynna um landsfundar- fulltrúa með átta daga fyrirvara. Það gerðu Ungir jafnaðarmenn. Önnur aðildarfélög gerðu slíkt hið sama. Það er ekki hægt að amast við þátttöku ungs fólks á landsfundi Samfylkingarinnar. Hún á að vera gleðiefni. Allt tal um rútuferðir er hins vegar helber uppspuni. Það var ekki ein einasta rúta þarna, hvorki á vegum Ungra jafnaðar- manna eða á mínum vegum, og ekki lofaði ég neinum pítsum eða bjór fyrir atkvæði eins fullyrt hefur ver- ið í vissum fjölmiðlum,“ sagði Ágúst Ólafur. Honum þykir mjög leiðin- legt hvernig talað er niður til ungs fólks í þessari umræðu. „Fólk varð að sýna skilríki til að fá kjörgögn og að sjálfsögðu að vera á staðnum. Þetta staðfesta all- ir sem komu að framkvæmd kosn- inganna og þar á meðal kjörstjórn- in sem hefur látið frá sér fara sérstaka yfirlýsingu um að fram- kvæmd kosninganna hafi verið eðli- leg og lögmæt,“ sagði Ágúst Ólafur. „Einhver ónefndur þingmaður á að hafa sagt að flokknum væri stjórn- að af konum og börnum eins og heima hjá sér! Mér finnst viðhorfið sem endurspeglast í þeim orðum með ólíkindum gagnvart konum og ungu fólki. Það á að vera ánægju- efni að ungt fólk sýndi landsfundi Samfylkingarinnar áhuga. Ungt fólk var mjög áberandi bæði í að- draganda landsfundarins og á fund- inum, t.d. við undirbúning lands- fundarins og í málefnavinnunni. Þetta er eins og köld vatnsgusa yfir allt það góða fólk sem hefur ekki gert neitt annað en að taka þátt í landsfundi Samfylkingarinnar líkt og aðrir landsfundarfulltrúar.“ Stuðningur ungra og eldri Ágúst Ólafur segist hafa fengið áskorun frá Ungum jafnaðarmönn- um á sínum tíma um að bjóða sig fram í embætti varaformanns. Hann hafi tekið henni. Það sé enda í verkahring Ungra jafnaðarmanna að hvetja og styðja ungt fólk til frekari verkefna. Aðspurður segir Ágúst að Andrés Jónsson, formað- ur Ungra jafnaðarmanna, hafi stutt sig í kosningabaráttunni, rétt eins og margir aðrir. „Ég hafði stuðning ungliðahreyf- ingarinnar og fyrir hann er ég afar þakklátur. Ég naut þó ekki síður stuðnings utan af landi og frá eldri borgurum. Ég hefði aldrei farið í þessa kosningabaráttu, einungis með stuðning ungliðahreyfingar- innar. Það má ekki gleyma því að ég tilkynnti framboð mitt með meira en mánaðar fyrirvara og ég nýtti þann tíma til að tala við flokksmenn um allt land, kynna mig og mín sjónarmið,“ segir Ágúst Ólafur. – Það er fullyrt að greidd hafi verið landsfundargjöld fyrir ýmist 270 eða 286 ungliða í einu lagi, leyst út kjörgögn og þau notuð óháð því hvort viðkomandi hafi setið fundinn eða ekki? „Nokkur aðildarfélög greiddu gjöldin fyrir sína fulltrúa, og það gerðu Ungir jafnaðarmenn einnig. Það er ekkert óeðlilegt við að aðild- arfélög greiði fyrir og styrki sína fulltrúa til að mæta á landsfund, það hefur verið gert á fyrri lands- fundum. Mér vitanlega voru ekki leyst út gögn fyrir fólk, kosið mörg- um sinnum eða eitthvað óeðlilegt hvað það varðar. Kjörstjórn hefur staðfest það.“ – En Ingvar Sverrisson, fram- kvæmdastjóri flokksins, staðfesti í samtali við Blaðið síðastliðinn mánudag að einhver brögð hafi ver- ið að því að fólk hafi reynt að kjósa fyrir aðra? „Hann hefur þvert á móti ítrekað í fjölmiðlum að kosningin hafi verið eðlileg og hefur sagt að fólk hafi ekki komist upp með að kjósa fyrir aðra hafi einhverjir reynt það. Það er fráleitt að halda því fram að ég eða einhverjir á mínum vegum hafi reynt það. Ég vísa því algjörlega á bug,“ segir Ágúst Ólafur. Umræða á villigötum – Í varaformannskosningunum voru 893 á kjörskrá og 839 kusu. Það var langmesta þátttaka í einni kosningu á landsfundinum. Í kosn- ingu um ritara flokksins eru 894 á kjörskrá og 507 greiða atkvæði. Færri greiddu atkvæði í öðrum kosningum. Er þetta eðlilegt? „Þetta sýnir að þátttakan minnk- aði eftir því sem leið á helgina. Varaformannskjörið kom beint í kjölfar tilkynningar um nýjan for- mann Samfylkingarinnar. Húsið var troðfullt, enda gríðarlegur áhugi og spenna um hver myndi verða nýr formaður. Það var einnig talsverð spenna í varaformanns- kjörinu og fólk hafði áhuga á því. Fólk hefur bent mér á að eftir vara- formannskjörið, sem var klukkan eitt eftir hádegi á laugardag, hafi margir farið í mat og aðrir að horfa á úrslitaleik í fótbolta sem var klukkan tvö. Það eru því eðlilegar skýringar á þessum mun. Þátttak- an var mest í fyrstu kosningunni og minnst í þeirri síðustu.“ – Í varaformannskosningunni var 94% þátttaka, en það hefur verið vefengt að svo margir hafi verið á staðnum? „Þetta sýnir vel á hvers konar villigötum umræðan er og hvað gagnrýnendur eru sjálfum sér ósamkvæmir. Fyrst er því haldið fram að heilu bílfarmarnir af krökkum hefðu verið þarna á mín- um vegum. Næst er því svo haldið fram að engir ungliðar hafi verið á staðnum og að einhverjir hafi kosið fyrir þá!“ segir Ágúst Ólafur. – Hvers konar vegarnesti er það fyrir þig, sem nýjan varaformann Samfylkingarinnar, að fá gagnrýni sem þessa úr þínum eigin röðum? „Auðvitað er ömurlegt að sitja undir þessu, sérstaklega vegna þess að þetta á sér ekki nokkra stoð í raunveruleikanum. En ég vona að nú geti flokksmenn sameinað krafta sína, Samfylkingunni til heilla.“ Aðspurður segist Ágúst Ólafur ekki sjá ástæðu til að skipa nefnd til að skoða eða láta fara fram rann- sókn á þessum ásökunum og fram- kvæmd kosninganna. Hann vísar í yfirlýsingu kjörstjórnar landsfund- arins um að framkvæmdin hafi ver- ið eðlileg. En er kjörstjórn í að- stöðu til að gefa yfirlýsingar um gagnrýni á framkvæmd kosninga undir hennar eigin stjórn? „Það er kjörstjórnar að úrskurða um lögmæti kosninga og fara yfir framkvæmdina. Það er tilgangur hennar. Hún hefur gert það og hef- ur komist að þeirri niðurstöðu að kosningin hafi verið lögmæt, eðlileg og í samræmi við reglur flokksins.“ Ágúst Ólafur kveðst aðspurður ekki ætla að grípa til neinna sér- stakra aðgerða vegna þessa máls. Hann segist ekki hafa gert neitt til að rýra traust fólks á sér. „Það er erfitt að sitja undir þessu því þetta eru ekkert nema gróusögur og dylgjur og fáránlegar ásakanir. Ég hef ekkert gert af mér.“ – En kanntu skýringu á því hvers vegna gróusögurnar og dylgjurnar komust á kreik? „Ég veit ekki hvaða hvatir eru þarna að baki. Það er mér óskilj- anlegt.“ Kosningarnar voru löglegar Ágúst Ólafur segist aðspurður ekki vilja trúa að gagnrýnin sé angi af fylkingamyndun vegna for- mannskjörsins, eða sé runnin und- an rifjum mótframbjóðenda og seg- ir að það þjóni a.m.k. engum tilgangi að velta því fyrir sér. „Mér finnst fyrir mestu að fram sé komin staðfesting af hálfu kjör- stjórnar um að kosningar á lands- fundinum hafi verið löglegar, eðli- legar og með hefðbundnum hætti. Ég hef greint frá mínum sjónarmið- um, sem eru staðfest af þar til bær- um aðilum, kjörstjórn, fram- kvæmdastjóra, formanni framkvæmdastjórnar og formanni flokksins. Núna þurfum við öll að snúa bökum saman og vinna að því sameiginlega markmiði okkar að koma Samfylkingunni í ríkis- stjórn.“ Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, svarar gagnrýni á varaformannskjör Rakalausar dylgjur og fárán- legar ásakanir Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar: „Kjörstjórn landsfundar Sam- fylkingarinnar áréttar, að gefnu tilefni, að kosningar í öll embætti á landsfundi Samfylkingarinnar dagana 20.–22. maí síðastliðinn voru lögmætar og í samræmi við reglur flokksins. Framkvæmd kosninganna var með eðlilegum og hefðbundnum hætti á lands- fundinum. Á kjörfundinum höfðu einungis kosningarétt landsfundarfulltrúar, sem tilnefndir voru af aðildar- félögum Samfylkingarinnar um land allt. Framkvæmdastjóri Sam- fylkingarinnar hefur einnig stað- fest að afhending kjörgagna og kosningaeftirlit við kjör í emb- ættin hafi verið með eðlilegum hætti á landsfundinum.“ Gísli Ó. Valdimarsson, form. Þyrí Halla Steingrímsdóttir Guðmundur Haraldsson. Yfirlýsing frá kjörstjórn landsfundar Morgunblaðið/Golli „Ég hef ekkert gert af mér,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður og varaformaður Samfylkingarinnar, um ásakanir á hendur honum. LETTNESKI togarinn Gídeon sem sökk á Flæmingjagrunni í fyrradag er í eigu Bergvins Hrann- ars Jónssonar útgerðarstjóra ásamt fleirum og telur hann að eigendur séu tryggðir fyrir skað- anum. Fimmtán manna áhöfn var um borð, þar af þrír Íslendingar, og voru þeir teknir um borð í rækju- frystitogarann Pétur Jónsson RE og síðan fluttir til Nýfundnalands með kanadíska eftirlitsskipinu Jean Charcot. „Á þessu stigi er alveg óráðið hvar sjópróf fara fram. Ég var bú- inn að fá stóran karfakvóta frá Evrópusambandinu (ESB), 2.500 tonna byrjunarkvóta. Það átti að vera verkefni skipsins út árið að ná honum en það var í sinni fyrstu veiðiferð,“ sagði Bergvin. Hann sagði að eldur hefði komið upp í vélarrúmi skipsins en vissi ekki nánar af völdum hvers eða hvar í rúminu hefði kviknað. „Þeir gerðu sitt besta til að slökkva hann með því að loka vélarrúminu og setja halogen slökkvikerfi í gang. Einhverjum tímum seinna taka þeir eftir því að mikill sjór er kom- inn í vélarrúmið og áttu ekki um annað að velja en yfirgefa skipið.“ Sigldi skipið frá Hafnarfirði 10. maí eftir að hafa legið þar við land- festar í tvo mánuði. Áður hafði skipið legið við hafnfirskar bryggj- ur vel á annað ár. Hét þá Olga og var í eigu og gert út af félaginu Eystrasalti ehf. uns það var selt á uppboði fyrir hafnargjöldum í nóv- ember 2003. Útgerðarstjóri togarans sem sökk á Flæmingjagrunni í fyrradag telur tryggingar í lagi Ljósmynd/Eyjólfur Bjarnason Gídeon sést fyrir miðri mynd úr Pétri Jónssyni RE. Stóra skipið er skemmtiferðaskipið Queen Mary Elisabeth. Óráðið hvar sjó- próf fara fram
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.