Morgunblaðið - 22.06.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Hvítar buxur og bolir
ÚTSALA - ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður Nú:
40—60% afsláttur
Ótrúlega lágt verð
Hettupeysa 6.500 3.900
Jakkapeysa 6.100 3.700
Peysusett 8.600 4.900
Peysa m/v-hálsmáli 6.900 3.900
Ermalaus toppur 3.800 2.300
Siffonbolur m/perlum 6.600 3.300
Blúndutoppur 2.600 1.600
Vafinn toppur 2.500 1.500
Röndóttur bolur 3.300 2.000
Stutterma skyrta 3.300 2.000
Síð skyrta 6.200 3.800
Teinóttur jakki 6.200 1.900
Kjóll m/blúndu 7.100 3.900
Pils 3.500 1.900
Dömubuxur 5.200 2.900
Gallabuxur 4.800 2.900
Kvartbuxur 5.700 2.900
Og margt, margt fleira
á kr. 500 og 990
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið 10:00 – 18:00
HEIÐARÁS 14 - ÁRBÆR
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI
1700 - 1800
REISULEGT OG MIKIÐ ENDURNÝJAÐ EINBÝLI
Á TVEIMUR HÆÐUM MEÐ INNBYGGÐUM BÍL-
SKÚR OG SÉRÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ.
Nánari lýsing: Komið er inn í flísalagt anddyri
með skápum og gestasnyrtingu. Opið rými
sem notað er sem fjölskylduherbergi.
Skrifstofa/herbergi. Hjónaherbergi með sér
baðherbergi og utangengt á s-v svalir. opið
eldhús með viðarinnréttingu. Stofa og
borðstofa rúmgóð með góðri lofthæð, miklir gluggar, gott útsýni og
utangengt á s-v svalir. Gólfefni parket og flísar. Bílskúr góður.
Á neðri hæð: Þvottahús með innréttingu. Baðherbergi með sturtu. Þrjú
rúmgóð svefnherbergi. Einnig er á jarðhæð snotur 2ja herb. íbúð með sér
inngangi. Gólfefni eru flísar og parket á öllu nema epoxi á þvottahúsi.
(möguleiki á annarri íbúð á jarðhæð.)
Vel staðsett hús í góðu standi og garður í rækt, gott útsýni. Aðkoma
hellulögð og upphituð með tveimur bílastæðum.
Sölumenn Akkurat taka á móti áhugasömum milli kl: 1700 og 1800.
Sími 594 5000 - Fax 594 5001
Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar
Græns framboðs, vill beint flug á ný
milli Íslands og Kanada og nefnir
sérstaklega Winnipeg í því sam-
bandi.
Steingrímur var ásamt eiginkonu
sinni, Bergnýju Marvinsdóttur, í
Manitoba í Kanada á dögunum. Þau
fóru um Íslendingabyggðir í fylk-
inu og heimsóttu kanadísk-
íslenskar stofnanir. Þau voru gestir
í hádegisverðarboði Lögbergs-
Heimskringlu í tilefni upphafs söfn-
unarátaks blaðsins og lagði Stein-
grímur áherslu á mikilvægi blaðs-
ins í erindi sínu.
Í hátíðarræðu sinni í Winnipeg
17. júní kom Steingrímur víða við.
Hann þakkaði móttökur og sagðist
ætíð hafa verið hlýtt til Kanada.
Margt gott hefði verið gert til að
styrkja böndin og á sumum sviðum,
eins og til dæmis í samgöngu-
málum, mætti gera betur. Í því sam-
bandi nefndi hann sérstaklega
beint flug milli Íslands og Kanada.
Það væri verðugt verkefni fyrir
alla sem hlut ættu að máli, jafnt
stjórnmálamenn sem viðskipta-
menn, og beint flug milli Íslands og
Winnipeg yrði honum sem fyrrver-
andi samgönguráðherra mjög að
skapi.
Morgunblaðið/Steinþór
Steingrímur J. Sigfússon flytur há-
tíðarræðu sína í Winnipeg.
Vill beint flug til Winnipeg
FÉLAG háskólakennara og Félag
prófessora í Háskóla Íslands
harma óvönduð skrif í vefriti fjár-
málaráðuneytisins 9. júní sl. um
fjárveitingar til Háskóla Íslands,
að því er segir í fréttatilkynningu
frá félögunum. Í vefritinu segi
meðal annars að ekki verði dregn-
ar þær ályktanir af nýlegri stjórn-
sýsluúttekt Ríkisendurskoðunar að
Háskóli Íslands búi við fjársvelti
og að fjárveitingar til hans séu
langt undir því sem tíðkist meðal
sambærilegra háskóla í nágranna-
löndunum.
„Í vefriti ráðuneytisins kemur
fram að Háskóli Íslands hafi að
jafnaði haldið sig innan fjárheim-
ilda, dæminu er stillt þannig upp
að það sýni að nægu fjármagni sé
varið til starfsemi hans – þó vissu-
lega sé það minna en sambærilegir
háskólar fái í nágrannalöndunum,“
segir meðal annars í tilkynning-
unni.
Þar segir að ráðuneytið réttlæti
lægri fjárveitingu til Háskóla Ís-
lands en til sambærilegra háskóla
meðal annars með því að skólinn
þurfi ekki að greiða leigu fyrir það
húsnæði sem hann nýti til kennslu
og rannsókna.
„Þess er látið ógetið að Háskóli
Íslands notar hluta af rekstrar-
fjármunum sínum til byggingar
húsnæðis til kennslu og rann-
sókna.“
Þá segir í tilkynningunni að
greinilega komi fram í skýrslu
Ríkisendurskoðunar að á undan-
förnum árum hafi Háskóli Íslands
mætt knöppum fjárveitingum með
stórauknu vinnuálagi á fastráðna
starfsmenn. „Fjöldi fastra kennara
hefur nánast haldist óbreyttur
undanfarin ár þrátt fyrir gríðar-
lega fjölgun nemenda. Í stað þess
að fjölga föstum kennurum hefur
verið brugðið á það ráð að fjölga
illa launuðum stundakennurum og
er nú svo komið að þeir sinna um
47% allrar kennslu við skólann.“
Segir að í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar sé alvarlega varað við þeim
afleiðingum sem viðbrögð af þessu
tagi hafi, sé þeim beitt til lengdar.
Telja fjárveitingar til
HÍ hafa minnkað
„Fjármálaráðuneytið virðist
túlka það svo að þar sem Háskóli
Íslands hafi tekist að halda rekstri
sínum innan fjárheimilda hafi hann
úr nægu fjármagni að spila, þann-
ig virðist ráðuneytið hvetja rík-
isstofnanir til að sanna fjárþörf
sína með því að fara fram úr fjár-
veitingum – þó það geti tæplega
verið ætlunin,“ segir einnig í til-
kynningunni. Þar kemur ennfrem-
ur fram að sé tillit tekið til fjölg-
unar nemenda og launaþróunar á
þessu sama tímabili hafa fjárveit-
ingar til Háskóla Íslands minnkað
verulega en ekki aukist um 65%
eins og skilja megi af vefriti ráðu-
neytisins.
„Félag háskólakennara og Félag
prófessora taka undir ábendingar
Ríkisendurskoðunar og ítreka að
nauðsynlegt er að gera Háskóla
Íslands kleift að hverfa af þeirri
braut sem farin hefur verið. Ef
vísinda- og fræðastarf í landinu á
ekki að bíða alvarlegan hnekki
verður skólinn að fá auknar fjár-
veitingar til að standa straum af
starfsemi sinni og uppbyggingu.“
Segjast harma óvönduð
skrif um fjárveitingar til HÍ
Á framhaldsaðalfundi Meina-
tæknafélags Íslands nýlega
voru samþykktar lagabreyt-
ingar þess efnis að nafni fé-
lagsins skyldi breytt úr
Meinatæknafélag Íslands –
skammstafað MTÍ í Félag líf-
eindafræinga – skammstafað
FL.
Í þessum lagabreytingum
er einnig ákvæði þess efnis
að: Félag lífeindafræðinga
tekur yfir öll réttindi og
skuldbindingar Meinatækna-
félags Íslands og heldur
sömu kennitölu.
Ný lög um lífeindafræðinga
voru samþykkt á Alþingi 26.
apríl 2005.
Á sama tíma er nám líf-
eindafræðinga að færast frá
Tækniháskólanum – nú Há-
skólanum í Reykjavík – og
yfir til Háskóla Íslands þann-
ig að þeir sem héðan í frá
hyggjast stunda nám í líf-
eindafræði verða í Háskóla
Íslands, en þeir sem þegar
eru í námi ljúka því frá Há-
skólanum í Reykjavík.
Hugmyndina að nafninu líf-
eindafræðingur átti Jónína
Jóhannsdóttir lífeindafræð-
ingur og var henni færður
þakklætisvottur á aðalfund-
inum. Hún sagði hugmyndina
hafa komið upp í tengslum
við stofnun á fyrirtækinu Líf-
eind, segir í frétt frá félag-
inu.
Meinatækn-
ar verða
lífeinda-
fræðingar
AÐALFUNDUR Hjartaverndar
sem haldinn var nýlega lýsir ein-
dregnum stuðningi við tillögu sem
fram kom á síðasta Alþingi flutt af
Siv Friðleifsdóttur alþingismanni og
fleirum um reykleysi á börum og
veitingastöðum á Íslandi.
„Hins vegar náði tillagan ekki að
verða rædd á Alþingi og hvetur því
aðalfundur Hjartaverndar til að
þetta eða svipað frumvarp verði end-
urflutt sem fyrst á næsta Alþingi.
Reynsla annarra þjóða af slíkri sam-
þykkt hefur verið farsæl og bendir
til að slík ráðagerð minnki heildar-
magn reykts tóbaks um allt að
fimmtung. Búast má því við að það
hafi verulega heilsubætandi áhrif
bæði vegna minni beinna og óbeinna
reykinga.
Aðalfundur Hjartaverndar lýsir
áhyggjum af því að Ísland sem hefur
verið framarlega í baráttunni gegn
reykingum sé að dragast verulega
aftur úr ýmsum öðrum Evrópuþjóð-
um í þessu sambandi. Nú þegar hafa
Írar, Norðmenn og Svíar tekið slíkt
upp og fleiri Evrópuþjóðir hafa sam-
þykkt að það gangi í gildi á næst-
unni,“ segir m.a. í ályktuninni.
Styðja að veitinga-
hús verði reyklaus
RAUÐI kross Íslands og Sjóvá Al-
mennar tryggingar hf. hafa skrifað
undir samstarfssamning um vá-
tryggingaviðskipti sem felur meðal
annars í sér að Sjóvá tryggir
sjúkrabíla Rauða krossins og sendi-
fulltrúa við hjálparstörf erlendis á
vegum félagsins. Jafnframt mun
Sjóvá styrkja starfsemi Rauða
krossins á næstu árum.
Á myndinni má sjá er Þorgils
Óttar Mathiesen, forstjóri Sjóvár,
og Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins,
skrifuðu undir samkomulag þessa
efnis.
Ljósmynd/Þórir Guðmundsson
Sjóvá tryggir og styður RKÍ