Morgunblaðið - 22.06.2005, Side 29

Morgunblaðið - 22.06.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 29 MINNINGAR Látin er í Vest- mannaeyjum frænka mín Arndís Egilson, Addý, eins og hún var oftast kölluð. Hún hafði átt við nokkurt heilsuleysi að stríða undanfarin ár, en hafði náð sér nokk- uð vel er hún veiktist skyndilega af illvígum sjúkdómi nú í apríllok. Hann dró hana til ótímabærs dauða á örfá- um vikum. Sextíu og þrjú ár finnst manni ekki hár aldur og er hún eig- inmanni sínum Kjartani og stórri fjölskyldu þeirra harmdauði. Börn þeirra öll eru níu og sameiginlega eru barnabörnin orðin 21. Ég þekkti Addý best þegar við vorum telpur en móðir hennar, Val- borg, og faðir minn, Agnar, voru systkini en þau eru bæði látin eins og systkini þeirra öll. Addý bjó með fjöl- skyldu sinni á Reynimel 47 og hjá þeim bjó um tíma amma okkar Elín Stephensen sem þá var orðin veik, og annaðist Valborg móður sína þar til hún fór á elliheimili og síðar á sjúkra- hús. Í næsta húsi bjó Ragnar í Smára ásamt fjölskyldu sinni og garðarnir lágu saman en börn hans og Addý og yngri bróðir hennar voru leikfélagar. Man ég eftir að hafa fengið eitt sinn að fljóta með í skemmtiferð í sumar- hús Ragnars við Álftavatn. Addý var strax sem barn og síðar einnig sem ung stúlka og kona mjög lagleg. Hún var glaðlynd og hafði góða kímnigáfu og persónutöfra og mikið og fjörugt ímyndunarafl. Þeg- ar við vorum litlar telpur voru útlönd fjarskalega langt í burtu og stafaði frá þeim ævintýraljóma. Vöruúrval var fábreytt hér á landi á sjötta ára- tugnum og frá þremur frænkum sem við áttum og bjuggu í Danmörku með fjölskyldum sínum, móðursystrum hennar og föðursystrum mínum, bár- ust oft fallegar og framandlegar gjaf- ir. Árið 1951 var von á Evu frænku okkar í heimsókn til Íslands, í fyrsta sinn í 35 ár eftir að hún fór til Dan- merkur ung stúlka. Það stóð mikið til í fjölskyldunni við að undirbúa mót- töku hennar og hlógum við Addý síð- ar að því hvað við vönduðum okkur mikið við að sýna þessari góðu frænku frá útlandinu að við værum fyrirmyndarstúlkur. Mæður okkar vissu ekki hvaðan á þær stóð veðrið. Þessi heimsókn Evu varð þó ekki skemmtiferð því miður þar sem móð- ir hennar lést daginn áður en hún kom. Nokkrum árum síðar kom Stef- án sonur Evu og vann hér sem skóla- strákur að sumarlagi og þá fórum við frændsystkinin öll saman í skemmti- leg ferðalög til að sýna honum fóstur- landið. Við Addý sóttum jafnan af- mælisboð hver hjá annarri og hittumst í fjölskylduboðum og í heimsóknum á heimili hver annarr- ar. Eftir að við stálpuðumst höfðum við minna samband og bjuggum á víxl erlendis um nokkurra ára skeið, hún í Bandaríkjunum og ég síðar í Englandi. Síðan bjó Addý í Vest- mannaeyjum en ég í Reykjavík. Við höfum þó alltaf haldið sambandi og fylgst hvor með annarri. Nú er Addý látin, langt um aldur fram. Hún skilur eftir sig stóran hóp barna og barnabarna og þeim og fjöl- skyldum þeirra, Kjartani eiginmanni hennar og bræðrum hennar votta ég innilega samúð með kveðjum frá okkur systkinunum úr Skólastræti og fjölskyldum okkar. Blessuð sé minning Arndísar Egil- son. Guðrún Agnarsdóttir. Stundum verður vinskapur svo ná- inn og kær að kostir og gallar skipta ARNDÍS EGILSON ✝ Arndís Egilsonfæddist í Reykja- vík 3. apríl 1942. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Vestmanna- eyja 14. júní síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 21. júní. ekki máli. Vinskapur- inn og væntumþykjan verður skilyrðislaus. Þannig var vinskapur okkar Arndísar. Ég kveð því með miklum söknuði kæra vinkonu. Jafnvel þótt ég hafi þekkt Arndísi betur en flesta aðra þá átta ég mig á því nú að henni er ekki auðvelt að lýsa í fáum orðum. Arndís var flókinn persónu- leiki. Ég var 15 ára þeg- ar leiðir okkar lágu fyrst saman en hún orð- in 26 ára, átti þá þegar orðið fjögur börn og búin að reyna sitthvað í líf- inu. Þá strax, við fyrstu kynni, áttaði ég mig á því að þarna fór áhugaverð manneskja. Hvernig hún talaði til mín, sýndi mér skilning og hjálpaði mér á allan hátt, varð til þess að ég fékk mikið dálæti á þessari fallegu konu, sem þá þegar hafði reynt svo margt og gat miðlað mörgu. Þetta var spennandi kona sem hafði búið í útlöndum og kynnti mig fyrir ýmsum framandi hlutum. Þegar okkar kynni hófust hafði hún reynt meira en margur gerir á heilli ævi. Mér fannst spennandi hvernig hún talaði um- búðalaust við okkur unglingana og vann strax trúnað okkar. Þetta var einmitt eitt af höfuðeinkennum hennar, að eiga auðvelt með að stofna til samskipta við unglinga og sér yngra fólk. Hún bókstaflega lað- aði að sér unglinga og umsvifalaust voru þeir orðnir nánir trúnaðarvinir hennar. Mín börn urðu síðan, eins og ég, góðir vinir hennar og dætur mín- ar sérstakir trúnaðarvinir. Mikið gat Arndís verið orðheppin og fyndin. Gefandi og fádæma skemmtileg, þegar sá gállinn var á henni. Engin sagði frá á skemmti- legri hátt, og sögurnar kryddaðar enskuslettum og óborganlegum húmor. Hún var botnlaus þekkingar- brunnur þegar kom að kvikmyndum og kvikmyndaleikurum. Oft hringdi ég í hana þegar ég sat fyrir framan sjónvarpið og þurfti að fá upplýsing- ar um hver hefði leikið á móti þessum í þessari eða hinni bíómyndinni eða með hverjum þessi eða hin leikkonan hafi átt fyrsta barnið. Þessu svaraði hún hikstalaust á stundinni. Oft sát- um við, hún í Vestmannaeyjum og ég í Reykjavík, í símanum talandi við hvor aðra yfir heilli bíómynd og hún miðlaði mér margs konar fróðleik um leikarana í leiðinni, bæði um fyrri af- rek þeirra og ekki síður um einka- hagi. Hvað hún gat verið orðheppin og skemmtileg. Greiðvikni hennar og hjálpsemi, gagnvart þeim sem ná- lægt henni stóðu, voru engin tak- mörk sett. Alltaf svo skemmtilegt að leita til hennar því það fylgdi því allt- af einhhver óútskýranleg og gefandi hlýja, einhver löngun til að gefa og hjálpa. Á mörgum sviðum hafði hún skarpa sýn á hluti og var fljót að skilja kjarnann frá hisminu. Hún var ekkert að skafa utan af hlutunum ef svo bar undir, en alltaf fann maður að á bak við voru miklar og djúpar til- finningar. Rík samúð með þeim sem minna máttu sín var alltaf til staðar. Það var kannski sterkasta persónu- einkenni hennar hversu mikil tilfinn- ingamanneskja hún var og oft vék skynsemin fyrir tilfinningum. Það varð síðan til þess að ekki fetaði mín kæra vinkona alltaf hinn mjóa veg og ekki var alltaf farið auðveldustu leið- ina. Það má kannski segja að hún hafi í mörgu verið sjálfri sér verst. Framan af ævi lifði hún stormasömu lífi og sást ekki alltaf fyrir þegar fjöl- mörg tækifæri buðust glæsilegri og skemmtilegri ungri stúlku. Um 1970 kynntist Arndís Kjartani Bergsteinssyni, eftirlifandi eigin- manni sínum. Það er til marks um persónutöfra Arndísar að á þriðja degi frá því að þau Kjartan sáust fyrst biður hann um hönd hennar og á tólfta degi ganga þau í hjónaband. Þrátt fyrir mikinn flýti reyndist sá ráðahagur vel. Kjartan reyndist Arndísi framúrskarandi vel og var klettur í veikindum hennar seinni ár- in. Nú þegar ég kveð kæra vinkonu, þá votta ég Kjartani og börnum, mína dýpstu samúð. Ásta Fanney Reynisdóttir. Elsku besta Addý. Í minningunni verðurðu alltaf langskemmtilegasta fullorðna manneskjan. Alltaf með svo skemmtilega brandara, sögur, spurningar og svör. Eina manneskj- an sem nennti að tala við okkur syst- urnar um hunda. Miðlaðir okkur þeirri reynslu sem þú hafðir af hundahaldi og hún var mikil. Ég man svo vel eftir því þegar þú varst hjá okkur á Rauðalæk með Kassí. Þú gafst henni „harfí“, eins og þú kall- aðir harðfisk, í verðlaun fyrir hlýðni og sagðir okkur að harðfiskur væri eitt af því besta sem hundar fengju. Seinna þegar við svo eignuðumst okkar hund þá gáfum við honum reglulega „harfí“. Þegar þú varst fyrir austan hjá okkur þá varstu í mjög góðu formi og leist mjög vel út, en það gerðirðu að vísu oftast því þér var mjög umhugað um útlitið og spurðir okkur reglulega hvernig okkur fyndist hárgreiðslan, fötin og svo framvegis. Þannig vil ég muna eftir þér, því að ég trúi því að það hafi verið hin raunverulega Addý, útitekin í gönguskóm með hundana þína, ekki veik og máttvana eins og undir lokin. Ég er alveg viss um það að ég mun aldrei á lífsleiðinni kynnast neinni eins og þér, þú varst algjörlega „one of a kind“. Nú erum við systurnar búnar að fá okkur sinn hvolpinn hvor og erum strax byrjaðar að lauma að þeim smábitum af „harfí“, en þó að mamma okkar sem var besta vin- kona þín deili ekki með okkur hunda- áhuganum þá vitum við að þú gerðir það og það nægir okkur. Ég mun sakna þín mikið og er inni- lega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þín vinkona, Birta. Elsku Addý. Mikið á ég eftir að sakna þess að fá ekki að heyra í þér eða hitta þig. Mikið á ég eftir að sakna þess að geta ekki komið til þín í heimsókn og talað við þig um allt það skemmtilega sem þú hafðir að segja. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki hringt og leitað ráðlegg- inga þegar eitthvað bjátaði á. Nú get ég ekki lengur hringt í þig og fengið leiðbeiningar í sambandi við hunda, en á því sviði varstu einstök. En minningarnar um þig eru yndislegar og þú munt alltaf eiga stað í mínu hjarta. Elsku besta vinkona, þín er sárt saknað. Hlín Júlíusdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, SIGURÐUR SIGURÐSSON kaupmaður, versluninni Hamborg, lést á sjúkrahúsi í Rimini, Ítalíu, mánudaginn 13. júní síðastliðinn. Útförin verður auglýst síðar. Jóna Kjartansdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Kjartan Guðjónsson, Hrafnhildur Einarsdóttir, Björn Jónsson, Kjartan Bergsson, Lene Fejrö, Bergur H. Bergsson, Anna Maria Gregersen, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, HANNA R. HERSVEINSDÓTTIR, Blásölum 24, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 18. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtu- daginn 23. júní kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Þóra Guðmundsdóttir, Ævar Ragnar Kvaran, Árný Þorsteinsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Margrét Þorsteinsdóttir, Jón Sigurgrímsson og dætrasynir. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, MARGRÉT ÞÓRDÍS EGILSDÓTTIR glerlistakona, Kambaseli 21, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 19. júní. Útförin verður auglýst síðar. Óskar Smári Haraldsson, Haraldur Helgi Óskarsson, Anna Fanney Gunnarsdóttir, Brynjar Þór Óskarsson, Magdalena Hilmisdóttir, Oddur Jarl Haraldsson. Hjartkær eiginmaður minn, fósturfaðir, faðir, bróðir og afi, ANTON ÓFEIGUR ANTONSSON, útskurðarmeistari, (Tony trélist) Munkaþverárstræti 11, Akureyri, lést 18. júní á lyflækningadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Jarðsungið verður mánudaginn 27. júní kl. 13.30 frá Hvítasunnukirkjunni á Akureyri. Fyrir hönd aðstandenda, Hanna Rúna Jóhannsdóttir. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, HALLDÓR H. ÞORVARÐARSON, Flúðabakka 4, Blönduósi, andaðist á sjúkrahúsi Blönduóss miðviku- daginn 1. júlí sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2 á Sjúkrahúsinu á Blönduósi fyrir frábæra umönnun. Ívar Snorri Halldórsson, Jóhanna K. Atladóttir, Vilhjálmur H. Þorvarðarson, Dagbjört Henný Ívarsdóttir, Rakel Ýr Ívarsdóttir, Gyða Dögg Jónsdóttir, Ingibjörg Aldís Jónsdóttir. Móðir okkar, AÐALBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR (Lalla), Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, er látin. Jarðarförin verður frá Fossvogskirkju mánuda- ginn 27. júní kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Blindrafélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Birgir Thor Helgason, Ásgeir Bolli Kristinsson, Sybil Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.