Morgunblaðið - 22.06.2005, Page 32

Morgunblaðið - 22.06.2005, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar 569 1100 Störf hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar Umhverfissvið Reykjavíkurborgar er eitt af sjö fagsviðum borgarinnar. Helstu verkefni Umhverfissviðs eru eftirfarandi: heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit, náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykjavíkur, Staðardagskrá 21 og stefnumótunar- og þróunarverkefni á sviði umhverfis- og samgöngumála. Um 170 starfsmenn starfa hjá Umhverfissviði árið um kring að fjölbreyttum verkefnum á sviði umhverfismála. Á sumrin margfaldast sú tala þegar ungir Reykvíkingar njóta sumarsins við að snyrta og fegra borgina. Vegna breytinga eru nú auglýst til umsóknar þrjú laus störf hjá Umhverfissviði. Tvö af þessum störfum eru ný störf. Sérfræðingur í umhverf- is- og samgöngumálum Umhverfissvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða sérfræðing í um- hverfis- og samgöngumálum. Starfs- maðurinn mun starfa í stoðdeild um Staðardagskrá 21, stefnumótun og þróun en næsti yfirmaður verður fram- kvæmdastjóri Staðardagskrár 21 fyrir Reykjavíkurborg . Starfið felst í umsjón með verkefnum á sviði umhverfis- og samgöngumála. Starfs- og ábyrgðarsvið  Starfa með stýrihópi um mótun um- hverfis - og samgöngustefnu fyrir Reykjavíkurborg.  Umsjón með öðrum þróunarverk- efnum á sviði umhverfis- og sam- göngumála.  Umsjón verkefna á sviði umferðar- fræðslu.  Umsjón með verkefnum vegna ár- legrar samgönguviku. Menntunar- og hæfniskröfur  Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem landfræði, umhverfisverk- fræði eða sambærilegt.  Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagn- ing í starfi.  Samstarfshæfni; vera lipur í mann- legum samskiptum og eiga auðvelt með að tjá sig í töluðu og rituðu máli.  Hæfileiki til að vinna að fjölbreytt- um verkefnum í krefjandi starfsum- hverfi.  Þekking og reynsla á sviði sam- göngumála æskileg Nánari upplýsingar veita Hjalti J. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Staðar- dagskrár 21, og Örn Sigurðsson, skrif- stofustjóri, hjá Umhverfissviði Reykja- víkurborgar frá kl. 9-16 í síma 563 2700. Starfsmaður Náttúru- skóla Reykjavíkur Umhverfissvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða starfsmann til þriggja ára fyrir Náttúruskóla Reykja- víkur. Náttúruskóli Reykjavíkur er þróunarverkefni og er markmið skól- ans að efla umhverfis- og náttúru- fræðimennt í leik- og grunnskólum Reykjavíkur. Starfsmaðurinn mun starfa í stoðdeild um Staðardagskrá 21 við stefnumótun og þróun, næsti yfir- maður verður framkvæmdastjóri Stað- ardagskrár 21 fyrir Reykjavíkurborg. Helstu samstarfsaðilar um Náttúru- skóla Reykjavíkur eru Menntasvið og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Landvernd og Skógræktarfélag Reykja- víkur. Starfs- og ábyrgðarsvið Umsjón með verkefnum Náttúruskól- ans m.a. að:  Koma á samstarfi þeirra aðila sem hafa sérþekkingu á umhverfismál- um og eru með tilboð um umhverf- ismenntun nemenda.  Byggja upp netverk þessara aðila í þeim tilgangi að þróa og styrkja framlag þeirra til umhverfismennt- unar í grunnskólum Reykjavíkur.  Setja upp tilboð um fræðslu sem er aðgengileg fyrir ólíka aldurshópa í grunnskólum, tilboð sem stuðla að útikennslu og auðvelda kennurum að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í námskrá. Menntunar- og hæfniskröfur  Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði náttúru- eða um- hverfisfræða  Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagn- ing í starfi.  Samstarfshæfni; vera lipur í mann- legum samskiptum og eiga auðvelt með að tjá sig í töluðu og rituðu máli.  Hæfileiki til að vinna að fjölbreytt- um verkefnum í krefjandi starfsum- hverfi.  Reynsla á sviði kennslu og umhverf- ismála æskileg. Nánari upplýsingar veita Hjalti J. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Staðar- dagskrár 21, og Ellý Katrín Guð- mundsdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- sviðs Reykjavíkurborgar, frá kl. 9-16 í síma 563 2700. Heilbrigðisfulltrúi Umhverfissvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða heilbrigðisfulltrúa til starfa hjá Heilbrigðiseftirliti og vöktun. Starfsemi Heilbrigðiseftirlits og vökt- unar skiptist niður í þrjár deildir; Holl- ustuhætti, Matvælaeftirlit og Mengun- arvarnir auk þess sem hundaeftirlit fellur þar undir. Auglýst er eftir starfs- manni er myndi hefja störf á Hollustu- háttadeild en næsti yfirmaður verður deildarstjóri þeirrar deildar. Starfs- og ábyrgðarsvið  Reglubundið heilbrigðiseftirlit með fyrirtækjum sem eru undir eftirliti Hollustuháttadeildar.  Skráning og skýrslugerð.  Sinna kvörtunum og annast fræðslu.  Sinna öðrum verkefnum samkvæmt gildandi starfslýsingu fyrir heil- brigðisfulltrúa. Menntunar- og hæfniskröfur  Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- vísinda, raunvísinda, verkfræði eða öðru sambærilegu.  Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagn- ing í starfi.  Samstarfshæfni; vera lipur í mann- legum samskiptum og eiga auðvelt með að tjá sig í töluðu og rituðu máli.  Hæfileiki til að vinna að fjölbreytt- um verkefnum í krefjandi starfsum- hverfi.  Réttindi til að mega starfa sem heil- brigðisfulltrúi æskileg. Nánari upplýsingar veita Örn Sigurðs- son, skrifstofustjóri, og Rósa Magnús- dóttir, deildarstjóri Hollustuhátta, hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar, frá kl. 9-16 í síma 563 2700. Um allar þessar þrjár stöður fara laun- akjör að kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar. Við ráðningar í störf vilja borgaryfir- völd stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja því það kynið sem er í minni- hluta í viðkomandi starfsgrein að sækja um. Konur og karlar eru því hvött til þess að sækja um störfin. Umsóknir skulu berast til Umhverfis- sviðs Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, 101 Reykjavík, eigi síðar en 1. júlí 2005 merktar: „samgöngumál“, „náttúru- skóli“ eða „heilbrigðisfulltrúi“. Reykjavík 16. júní 2005. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.