Morgunblaðið - 22.06.2005, Síða 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÍMYNDAÐU ÞÉR HVERNIG LÍFIÐ
VÆRI EF ÞÚ HEFÐIR VÆNGI
ÖMURLEGT! ÉG ÞYRFTI AÐ SOFA Á
MAGANUM
ÉG FÓR LÍKA Á SKÍÐI UM
HELGINA OG DATT ÚR
STÓLALYFTUNNI
GETUR ÞÚ SAGT EITT-
HVAÐ TIL AÐ HUGHREYSTA
MIG EFTIR ÞESSI ÁFÖLL?
GLEÐILEGT
NÝTT ÁR!TÝNDIRÐU
UPPÁHALDS
BOLTANUM
ÞÍNUM!
VEISTU HVAÐ MÉR
FINNST BEST VIÐ
SUMARDAGA...
JAFNVEL EF
SÚ ATHÖFN ER
AÐGERÐARLEYSI
SÉRSTAKLEGA
TIL AÐGERÐAR-
LEYSIS
... ÞEIR ERU SVO GÓÐIR
TIL ATHAFNA!
EN FYRR MÁ
NÚ VERA!ÉG ER HLYNNTUR ÞVÍ AÐ FAGNA
VALENTÍNUSARDEGI...
VERTU
RÓLEGUR
ALVEG
RÓLEGUR
ÆI, LÁTUM
ÞAÐ BARA
VAÐA
EF VIÐ FENGJUM
OKKUR ANNAN KÖTT
ÞÁ VÆRI ÞAÐ TVISVAR
SINNUM MEIRI VINNA
ÞAÐ GÆTI LÍKA
VERIÐ MINNI
VINNA. ÞEIR GÆTU
SKEMMT
HVORÖÐRUM
HVAÐ MEÐ AÐ HÆTTA BARA AÐ
VERA MEÐ KÖTT. VIÐ GETUM
ÖRUGGLEGA FUNDIÐ GOTT HEIMILI
HANDA HARRY
HVAÐ
SAGÐIRÐU
PABBI!
ÞÁ YRÐIR ÞÚ
AÐ FINNA ÞÉR
NÝTT HEIMILI
ERTU ALVEG VISS UM AÐ
TÖLVAN SÉ Í FANGELSINU?
JÁ, ÞETTA
ER EINHVER
TÖLVUSNILLINGUR
SEM SITUR INNI
HVERNIG
FINNUM VIÐ
HANN
ÞAÐ ER
BARA EIN
LEIÐ...
KÓNGULÓARMAÐUR-
INN VERÐUR AÐ
FARA Á STAÐINN
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 22. júní, 173. dagur ársins 2005
Víkverji var á far-aldsfæti um
helgina og umferðin
var sem fyrr gríð-
arleg. Ljóst er að sam-
göngukerfið í höf-
uðborginni hvell-
springur á álags-
tímum. Þannig tók
það hátt í klukkutíma
fyrir Víkverja og hans
fjölskyldu að koma sér
út úr borginni síðdegis
á fimmtudag, daginn
fyrir þjóðhátíðina.
Röðin eftir Vestur-
landsveginum, sem
náði frá Ártúnshöfða
upp í Mosfellsbæ, minnti óþyrmilega
á þjóðhátíðarhöldin árið 1994.
Þegar út á hringveginn er komið
tekur svo sem ekki betra við. Þá er
eins og hefjist hinn íslenski form-
úluakstur þar sem bensínfóturinn
þyngist og ökumenn keppast við að
vera á undan næsta bíl. Framúrakst-
urinn er oft á tíðum glæpsamlegur
þar sem brunað er fram úr heilu
bílalestunum og ekkert spáð í hvort
framundan sé blindhæð eða kröpp
beygja.
Víkverji er eflaust ekki einn um
þá skoðun að umferðin á vegum úti
sé ekkert annað en rússnesk rúll-
etta. Öryggið er jafnvel orðið meira
innan borgarmarka
heldur en á þjóðveg-
unum og er þá langt
gengið.
Sami hraðaksturinn
var í gangi þegar Vík-
verji sneri heim úr
helgarfríinu suður yfir
heiðar á sunnudag.
Harmafregnir um
banaslys helgarinnar
virtust ekki hafa snert
þá pilta sem brunuðu á
ljósbláum BMW-bíl
fram úr Víkverja og
fleiri ökumönnum í
Melasveitinni í Borg-
arfirði. Bíllinn þaut
fram úr lestinni og hugsaði Víkverji
með sér að vonandi myndi löggan
góma þennan ökufant. Þær vonir
rættust undir sunnanverðu Akra-
fjalli þegar lögreglan hafði stöðvað
hraðferð piltanna. Ekki er vitað hver
hraðinn var í radarnum, eða hvort
ökumaðurinn hafi misst leyfið á
staðnum, en hið ótrúlega gerðist eigi
löngu síðar þegar sami BMW-bíll
brunaði fram úr Víkverja og fleirum
þegar ekið var inn í Mosfellsbæ. Þá
var tekið fram úr við vegamótin til
Þingvalla og greinilega lítið spáð í
aðstæður. Svona ökumenn ber að
taka hið snarasta úr umferð áður en
þeir valda dauðaslysum.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Laugarvatn | Um 130 listamenn taka þátt í listahátíðinni Gullkistunni sem
hófst á Laugarvatni 17. júní. Sýningar eru víða um bæinn, í gamla Héraðs-
skólanum, í Menntaskólanum og Íþróttakennaraskólanum. Útiverk eru víða
um bæinn og uppi í hlíðinni fyrir ofan hann.
Um helgina verður ýmislegt í boði fyrir gesti hátíðarinnar. Þar má nefna
málþing um Héraðsskólann sem alþjóðlega listamiðstöð, tónleika með hljóm-
sveitinni Litla-Hraun! og staðarskoðun með Hreini Ragnarssyni kennara á
Laugarvatni. Listahátíðinni lýkur sunnudaginn 3. júlí.
Morgunblaðið/Einar Falur
Listahátíð á Laugarvatni
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Jesús sagði við þá: „Ef þér væruð blindir, væruð þér án sakar. En nú seg-
ist þér vera sjáandi, því varir sök yðar.“ (Jóh. 9, 41.)