Morgunblaðið - 04.07.2005, Síða 20

Morgunblaðið - 04.07.2005, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. OF LANGT GENGIÐ Kínverjar ganga allt of langt íviðbrögðum sínum þegarhingað kemur fólk frá Taív- an, jafnvel þótt um háttsetta stjórnmálamenn þar sé að ræða. Í Morgunblaðinu á laugardag var frá því sagt að kínversk sendinefnd hefði verið komin á fund í heil- brigðisráðuneytinu á föstudags- morgun þegar hringing barst frá sendiráði Kína. Sendinefndin var komin til að kynna sér öldrunarmál og skipulagningu endurhæfingar hér. Til stóð að sendinefndin færi í heimsókn á heilsugæzlustöð og hjúkrunarheimili og hitti aldraða að máli. Um leið og hringt var úr sendi- ráðinu stóðu sendinefndarmenn upp og hurfu á braut. Ástæðan fyrir þessu uppnámi Kínverja mun vera sú að varafor- seti Taívans hefur verið hér á ferð. Þessi viðbrögð einkennast bæði af móðursýki og hræsni. Kínverjar á Taívan eiga mikil viðskipti við Kínverja á meginlandinu. Raunar fara gífurleg viðskipti fram á milli meginlandsins og fólks á Taívan. Þessi viðskipti hafa verið stunduð áratugum saman. Taívanbúar eru umfangsmiklir fjárfestar í atvinnu- lífi og viðskiptum á meginlandi Kína. Það er auðvitað hræsni af hálfu Pekingstjórnarinnar að leyfa slík viðskipti og hafa umborið þau svo lengi sem raun ber vitni um en setja allt á annan endann ef ein- staklingar frá Taívan koma í heim- sókn til Íslands. Hvað á þetta að þýða? Pólitísk samskipti okkar Íslend- inga og Kínverja hafa verið góð ef undan eru skildar uppákomur af þessu tagi þegar hingað kemur fólk frá Taívan. Auðvitað kemur ekki til greina að við bönnum fólki frá Taívan að koma hingað og það á ekkert síður við um stjórnmála- menn þaðan en annað fólk. Peking- stjórnin ræður því ekki við hverja Íslendingar tala. Það er tímabært að Kínverjar taki slíkum heimsóknum af meiri rósemd en þeir hafa gert. Við Ís- lendingar höfum viðurkennt Pek- ingstjórnina og tókum upp stjórn- málasamband við Kína fyrir meira en 30 árum. Okkur er ljóst að Pek- ingstjórnin lítur á Taívan sem hluta af Kína og okkur er líka ljóst að stór hluti íbúa Taívans lítur málið sömu augum, þótt þeir séu and- stæðingar Pekingstjórnarinnar. Kína er að breytast og framfarir í landinu eru gífurlegar. Þegar fram líða stundir eru mestar líkur á að deilur um stöðu Taívans innan hins kínverska ríkis leysist af sjálfu sér eftir því sem velmegun eykst í Kína og stjórnarfarið þróast smátt og smátt til meira frjálsræðis en ríkt hefur frá valdatöku Maós á sínum tíma. Aðskilnaðarsinnum hefur að vísu vaxið fiskur um hrygg á Taívan en líkurnar á því að Taívan verði sjálf- stætt ríki eru litlar. Kínverjar eiga að sýna meiri ró- semi vegna þessara mála en þeir hafa gert. Viðbrögð þeirra verka mjög ankannalega á okkur Íslend- inga svo að ekki sé meira sagt. FRAMTÍÐ Í NÝJU LANDI Aðlögun er lykilatriði þess að inn-flytjendum líði vel í nýju landi. Snar þáttur í þeirri aðlögun er ís- lenskunám og fyrir þá sem yngri eru skólaganga. Anh-Dao Tran mennt- unarfræðingur er verkefnisstjóri rannsóknar á áhrifaþáttum í mennt- un asískra nemenda á Íslandi og verkefnis, sem ber yfirskriftina „Framtíð í nýju landi“. Rannsókn hennar nær til 60 ungmenna, sem fædd eru í Víetnam, á aldrinum 16 til 25 ára, og í viðtali eftir Önnu Gunn- hildi Ólafsdóttur í Morgunblaðinu í gær segir hún að þau skili sér að grunnskólagöngu lokinni mun verr inn í framhaldsskóla en jafnaldrar þeirra af íslenskum uppruna. „Aðal- ástæðurnar virðast vera lítil þekking á valmöguleikum innan framhalds- skólakerfisins, brotakennd íslensku- kunnátta og þrýstingur á að ung- mennin afli tekna til eigin þarfa og fjölskyldna sinna,“ segir hún. Það þarf vart að undirstrika hversu mikilvægt það er að ungir innflytjendur finni að þeir eigi sam- leið með jafnöldrum sínum í nýju landi. Aðeins einn fjórði hluti ung- mennanna í rannsóknarhópi Anh- Dao stundar nám í framhaldsskóla. „Öll tóku þau fram í samtali við mig að námið reyndist þeim erfitt,“ segir hún. „Þau gætu illa haldið í við jafn- aldra sína í bóknáminu og byggju við félagslega einangrun í skólanum.“ Anh-Dao veltir því fyrir sér í við- talinu hvort ekki megi samtvinna ís- lenskunám og til dæmis nám í iðn- greinum, sem marga innflytjendur dreymi um að leggja fyrir sig. Einnig geti krafa um meðmæli frá vinnu- veitanda í viðkomandi iðn gert nem- anda, sem er af erlendu bergi brot- inn, erfitt fyrir því að hann hafi ekki sömu tengsl og nemandi, sem er af íslensku bergi brotinn. Hún bendir á að í framhaldsskólanáminu felist ekki aðeins ávinningur fyrir ung- mennin sjálf og samfélagið í heild heldur einnig til framtíðar því menntunin auðveldi ungmennunum að styðja sín eigin börn til mennta. Þessi ábending er mjög þörf því að samfélagi þar sem margir menning- arhópar koma saman stafar mest hætta af því að ákveðinn hópur fest- ist kynslóð eftir kynslóð í fari, sem hann kemst ekki upp úr, og verði ut- anveltu. Ábending Anh-Dao um að ekki sé nóg að skylda útlendinga til að læra íslensku, það verði að koma til móts við þarfir þeirra og aðstæður og gæta þess að kenna lifandi tungu- mál, sem gagnist við störf og daglegt líf, er þörf. Á Íslandi á að ríkja jafn réttur til náms. Hér eiga einnig að ríkja aðstæður, sem tryggja að allir geti nýtt sér þann rétt og innflytj- endum framtíð í nýju landi. Í myndið ykkur hvernig það er að klæðast 200 kg geimbúningi og vinna fínvinnu við að opna eldsneytistank á gervi- hnetti. Og ímyndið ykkur síðan að vinnuaðstæðurnar séu svo einstakar að úti í svörtu tóminu blikar móðir jörð eins og blár handbolti. Margra ára undirbún- ingsvinna lá að baki þessari stund hjá dr. Kathy Sullivan sem varð fyrsta bandaríska konan til að ganga í geimnum árið 1984. Aðeins nokkrum mánuðum fyrr fór Svetlana Savitskaya, fyrst kvenna í heiminum, í geimgöngu á geimflauginni Soyuz T12/ Salyut 7. Og hinu má heldur ekki gleyma að 8.500 manns, þar af fjölmargir gríðarlega hæfir, sótt- ust eftir vinnunni sem dr. Sullivan fékk hjá Geimvís- indastofnun Banda- ríkjanna, NASA. Kathy Sullivan er réttnefndur könn- uður og sat stjórn- arfund hins virta og 101 árs gamla Explorers Club sem haldinn var hér á landi til að fagna stofnun Íslands- deildar klúbbsins um síðustu helgi. Um er að ræða sam- félag vísinda- og leiðangursmanna um víða veröld og hafa þekktir könnuðir á borð við Neil Arms- trong og Vilhjálm Stefánsson verið félagar í klúbbnum, og var sá síðarnefndi formaður um skeið. Formaður Íslandsdeildar klúbbsins er Haraldur Örn Ólafsson pólfari og sjötindafari. Kathy Sullivan er jarð- og haf- fræðingur að mennt og hefur tví- vegis komið til Íslands síðustu 30 árin eða svo. Hún var mjög ánægð með boðið hingað til lands og móttökurnar sem hún fékk. „Loftslagið hér er kalt en hjartalag Íslendinga er hlýtt,“ segir hún. Námurnar stinga í augun Það sem sló hana þó á ferð hennar um Suðurlandið um síð- ustu helgi var hversu víða jarð- rask hafði átt sér stað í alfara- leið. Hún nefnir til dæmis jarðvegsnám í Ingólfsfjalli sem blasir við allra augum. „Þetta minnir mig á aðra einstaka staði í heiminum, s.s. kóralrif og fisk- veiðar við þau. Gróðinn er skjót- fenginn og framkvæmdum fylgir einatt atvinna og hagvöxtur en það gerist æ ofan í æ að sókn manna í auðlindina fer yfir strik- ið og þá er haldið á næsta kór- alrif.“ Hún grípur til samlíkingar og líkir náttúru Íslands við kór- alrif „og nú er kóralrifið veikt og því líður ekki vel,“ segir hún. „Ísland er svo einstakur staður á jörðinni að ég vona að Íslend- ingar muni sýna meiri skynsemi og þolinmæði en margir aðrir.“ Sullivan er forstöðumaður vís- inda- og iðnsafnsins COSI í Ohio og þegar hún hafði lokið erind- um vegna Explo- rers Club tók hún næstu daga í að viða að sér efni fyr- ir safnið sem gegnir margvíslegu fræðsluhlutverki fyrir 900 þúsund nemendur á öllum aldri árlega. Eld- fjallafræði, haffræði og vetnisfræði eru meðal þeirra greina sem hún hafði hug á að skoða hér- lendis í þessu skyni. Komst í gegnum 8.500 manna síu hjá NASA Víkjum sögunni aftur til ársins 1977. NASA auglýsti þá eftir sérfræðingum til að skipuleggja leiðangur sem hleypt var af stokkunum fáeinum árum síðar þegar geimflauginni Challenger var skotið á loft. Umsækjendur voru 8.500 talsins og Sullivan þar á meðal. 35 voru valdir úr stóra hópnum og enn komst Sullivan áfram og fór í þjálfun og störf hjá NASA. „Fyrsta geimflugið mitt var í október 1984 og fól í sér ýmis rann- sóknaverkefni, þar á meðal eitt á sviði verkfræði sem fólst í því að fylla eldsneytistank gervihnattar á sporbraut um jörðu.“ Þetta hafði aldrei verið gert áður og um mikið vandaverk var að ræða, sérstaklega þar sem hnötturinn var á sínum tíma ekki hannaður fyrir endurfyll- ingar, hvað þá með það í huga að hann yrði einhvern tíma opnaður aftur í geimnum eins og Sullivan átti nú að gera með sérsmíð- uðum tækjum. „Spurningin var: Gátum við opnað tankinn og sett eldsneyti á hann? Menn höfðu nefnilega skipt um skoðun varð- andi þann þátt að það ætti aldrei að opna tankinn aftur. Þetta var því ekki eins og að fara með bíl- inn á bensínstöð,“ segir hún. Hún hafði átt þátt í að hanna verkfærin sem nota átti við verkið og nú var komið að því að reyna búnaðinn. Hún var með- vituð um að ef einn dropi af ban- eitruðu eldsneytinu slettist geimbúninginn hennar og hú færi óvart með hann smitað inn í flaugina gætu afleiðing arnar orðið þær að öll áhöfn Challenger yrði lífshættuleg veik. Eftir vandlegan undirb ing hóf hún geimgönguna ás félaga sínum íklædd heldur klunnalegum geimbúningnu sem hún segir að sé í raun e og geimflaug í líkamsstærð, tókst farsællega að leysa þa erfiða verk sem henni var fa Geimgangan var ógleymanle eins og nærri má geta. „Það ekki auðvelt að vinna í geim ingi því hann hefur eigin hr ingar svo að segja og maður að læra að hreyfa sig upp á Þetta reynir mjög á líkaman frá öxlum og niður úr. Hins ar er afar sérstakt að vera u geimflaugarinnar og horfa á jörðina án þess að þurfa að út um glugga flaugarinnar.“ Vissara að ljúka verkefn rétt til að fá það næsta „Við verkefni af þessu tag þarf maður að vera mjög á v bergi og bera sig fagmannle að. En á hinn bóginn er ma staddur á þessum rosalega s og ef maður á eitt andartak lögu til njóta stundarinnar þ fríkar maður nærri því út! S snýr maður sér strax að vinnunni. Ég er stundum sp hvernig sé hægt yfirhöfuð h að einbeita sér að vinnu úti geimnum en málið er að ef m ur vill fá annað verkefni síð meir er vissara að ljúka því fyrsta rétt. Þetta eru stór v efni sem maður hefur sjálfu sótt um að fá að leysa fyrir og maður verður að uppfylla kröfurnar.“ Svo fór að Sullivan fékk a verkefni árið 1990 á geimfla inni Discovery við að gera v Hubble-sjónaukann en rétt en hún fór út úr geimflaugin til að fara í geimgönguna sj tókst að gefa tölvuskipun fr jörðu og leysa málið. Þriðja verkefnið fékk hún síðan ári 1992 á geimflauginni Atlant það fól ekki í sér geimgöngu Sullivan fór því í þrjú geimf og eina geimgöngu á átta ár Þess verður að geta að hún þekkir til Bjarna Tryggvaso Dr. Kathy Sullivan, geimfari og könnuður í Explorer „Í geimnum þarf a sig fagmannlega a Dr. Kathy Sullivan geimfari varð önnur konan í heiminum til að ganga í geimnum og sagði Örlygi Steini Sigurjónssyni frá ferli sínum í heimsókn sinni til landsins á dögunum. Kathy Sullivan ásamt áhafnarmeðlim af Challenger í október 198 höndum við gervihnöttinn. Kathy Sullivan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.