Morgunblaðið - 23.07.2005, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 7
FRÉTTIR
HÉR Á landi eru yfir 90 manns við
vinnu í sumar á vegum Nordjobb, at-
vinnumiðlunar ungs fólks á Norður-
löndum. „Nordjobbararnir“ svoköll-
uðu vinna aðallega við garðvinnu af
einhverju tagi, ferðaþjónustu, á elli-
heimilum eða á sveitabæjum víðs-
vegar um landið. Unga fólkið vinnur
í 2–4 mánuði á tímabilinu maí – sept-
ember og fær laun samkvæmt samn-
ingi og borga af þeim skatt sam-
kvæmt íslenskum reglum. Í ár eru
Svíar í yfirgnæfandi meirihluta,
Finnarnir koma þar fast á eftir og þá
Norðmenn og Danir.
Í ár sóttu 150 íslensk ungmenni
um Nordjobb og fengu 50 þeirra
vinnu, langflest í Danmörku, eða á
fjórða tug. Í sumar hefur Nordjobb,
atvinnumiðlun ungs fólks á Norður-
löndunum, útvegað 700 norrænum
ungmennum vinnu.
Starfrækt í 20. sinn
Nordjobb er starfrækt í tuttug-
asta sinn í ár og hafa yfir 15.000 ung-
menni fengið vinnu í gegnum verk-
efnið síðan það hóf starfsemi sína
árið 1985. Í ár fjölgaði umsóknum
um 12% frá árinu á undan en um-
sóknir í ár eru yfir 8.000 á öllum
Norðurlöndunum.
Allir á aldrinum 18–28 ára geta
sótt um Nordjobb og eru umsækj-
endur með ólíkan feril, menntun og
reynslu.
Heimasíðu Nordjobb er að finna á
slóðinni www.nordjobb.net og er þar
að finna upplýsingar á öllum Norð-
urlandatungumálunum.
Yfir 90 í
vinnu fyrir
Nordjobb
á Íslandi
STEFNT er að því að þátttakendur í
Íslandsbanka-Reykjavíkurmaraþoni
þann 20. ágúst næstkomandi verði
fleiri en 4.000 talsins, að sögn Hjör-
dísar Guðmundsdóttur kynning-
arstjóra. Í fyrra voru þátttakendur
um 3.800 í öllum flokkum Reykjavík-
urmaraþons, það er 3 km skemmti-
skokki, 10 km hlaupi, 21 km hálf-
maraþoni og 42 km maraþonhlaupi.
Í fyrra var boðið upp á 7 km hlaup,
sem ekki verður í boði í ár.
Erlendir þátttakendur eru þegar
farnir að skrá sig til Reykjavík-
urmaraþonsins. Þeir eru venjulega
fyrstir til að skrá þátttöku, en Ís-
lendingar með seinni skipunum, að
sögn Hjördísar. „Við reynum nú
fyrst og fremst að ná til 10 km
hlaupara og fá þá til þátttöku,“ sagði
Hjördís. „Þeir sem ætla að hlaupa
hálft eða heilt maraþon hafa flestir
þegar ákveðið það, enda þurfa slík
hlaup talsverðan undirbúning. Mað-
ur ákveður ekki núna að hlaupa heilt
maraþon 20. ágúst, nema maður sé í
því betra formi.“
Hjördís sagði mikinn áhuga á
hlaupum endurspeglast í hlaupahóp-
um sem starfi um allt land. Þar sé
fjöldi fólks sem eigi að geta hlaupið
10 km, með hæfilegum undirbúningi,
og því standi vonir til að hægt verði
að auka mjög þátttöku í þeim flokki
Reykjavíkurmaraþonsins. Í vor var
stofnaður sérstakur undirbúnings-
hópur fyrir 10 km hlaupið. Fólki var
og er boðið að taka þar þátt án end-
urgjalds. Það nýtur leiðsagnar þjálf-
ara, sem Íslandsbanki – styrktarað-
ili Reykjavíkurmaraþons – kostar og
félagsskapar annarra hlaupara.
„Þar er ótrúleg vakning í gangi.
Við erum með um 400 þátttakendur
skráða í hópinn. Fólk úti á landi og
erlendis getur einnig verið með og
fengið sendar æfingaáætlanir,“
sagði Hjördís. Æfingarnar eru tvisv-
ar í viku, á þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 17.30, og hittist hópurinn
við tjaldstæðin í Laugardal. Venju-
lega mæta 100–150 manns í hvert
skipti. Boðið er
upp á hópa fyrir
byrjendur og
lengra komna.
Hjördís sagði
fjölda þátttak-
enda hafa haldist
nokkuð stöðugan,
þrátt fyrir sum-
arleyfi og sum-
arannir. „Það
langar marga að
hlaupa og dreymir um að komast 10
km skammlaust. Það sést best á því
hve margir hafa skráð sig í und-
irbúningshópinn og ætla að mæta í
Lækjargötu 20. ágúst.“
Auk allra þeirra sem taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu telur Hjör-
dís að hátt í 100 íslenskir hlauparar
hlaupi reglulega maraþonhlaup er-
lendis, þótt þeir taki ekki þátt í
hlaupinu í Reykjavík. Hjördís taldi
að tímasetning Reykjavík-
urmaraþonsins, undir lok sumars,
réði nokkru um það. Sumarið væri
dýrmætur tími hér á landi og margir
vildu heldur verja vetrinum en
sumrinu í undirbúning. „Við höfum
mikinn áhuga á að fá þetta fólk til að
hlaupa hér einnig,“ sagði Hjördís.
Aðstandendur Reykjavík-
urmaraþonsins óska eftir því að fólk
hvetji keppendur til dáða. Í fyrra
fóru margir út á götur, sumir með
hljóðfæri og spiluðu og sungu fyrir
hlauparana. Hjördís vildi nota tæki-
færið til að hvetja þá, sem ekki sjá
sér fært að hlaupa, til að vera við
hlaupaleiðina í Reykjavíkurmara-
þoni og hvetja hlauparana til dáða
með spili og söng.
Íslandsbanka-Reykjavíkurmaraþonið 20. ágúst næstkomandi
Stefnt að yfir 4.000 manna þátttöku
Hjördís
Guðmundsdóttir
TENGLAR
.....................................................
www.marathon.is
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar