Morgunblaðið - 23.07.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 11
FRÉTTIR
ÚR VERINU
EYRARBERG GK 60 var sjósettur á Akranesi í gær
að viðstöddu nokkru fjölmenni og bar ekki á öðru
en að báturinn bæri sig vel í spegilsléttum sjónum í
blíðviðrinu í Akraneshöfninni.
Fyrirtækið Spútnikbátar hafa alfarið séð um
byggingu bátsins og að sögn Ingólfs Árnasonar,
stjórnarformanns fyrirtækisins, hefur hann verið í
um tvo mánuði í smíðum. Þetta er fyrsti báturinn
sem fyrirtækið byggir en fyrirtækið var stofnað á
grunni fyrirtækisins Knörr, sem starfaði lengi á
Akranesi.
Eyrarberg er 15 tonn á þyngd og að auki eru
tveir aðrir bátar nú í smíðum hjá fyrirtækinu.
Stefnt er að því að þeir verði tilbúnir fyrir sjáv-
arútvegssýninguna í september.
Alls vinna tíu starfsmenn hjá Spútnikbátum, þar
af fimm Pólverjar en launakjör þeirra hafa verið
nokkuð til umræðu að undanförnu. Ingólfur sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að hann gleddist yf-
ir þeim áfanga að sjósetja bátinn eftir umræðu und-
anfarinna daga. „Þetta er glæsilegur bátur og al-
gerlega sér á parti,“ segir Ingólfur. Eyrarbergið var sjósett í Akraneshöfn síðdegis í gær.
Spútnikbátar
sjósetja sinn
fyrsta bát VÍSBENDINGAR eru um munlægri tíðni dauðsfalla í hörpudisk-
sstofninum á Breiðafirði miðað
við undanfarin ár, samkvæmt ný-
legum rannsóknum Hafrann-
sóknastofnunar á svæðinu.
Frá þessu er greint í Fiski-
fréttum, sem komu út í gær, og
staðfestir Hrafnkell Eiríksson,
fiskifræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, að ýmislegt bendi til
þess að dánartíðni í stofninum sé
að lækka. Hann segir að í nýlegri
sýnatöku hafi þetta komið fram
en í október næstkomandi verði
gerðar ítarlegar stofnrannsóknir
á svæðinu og þá ætti að koma
betur í ljós hvort stofninn sé að
taka við sér.
„Við urðum varir við það í síð-
ustu stofnmælingu í október 2004
að hrun stofnsins var búið og það
var kominn upp einhver jafn-
staða,“ segir Hrafnkell og bætir
við að þá hafi ýmislegt bent til
aukinnar nýliðunar í stofninum.
„Það virðist eitthvað vera að
ganga eftir miðað við sýni sem
tekin hafa verið á þessu ári,“ seg-
ir Hrafnkell.
Hörpudisksstofninn tók að
hrynja upp úr árinu 2000 og
þurfti að hætta veiðum á honum
árið 2003. Hrafnkell segir að sýk-
ingarannsóknir á Keldum hafi
leitt í ljós að líklegt sé að sýk-
ingar hafi verið snar þáttur í
hruni stofnsins. Þá hafi einnig
komið í ljós að hitastig sjávar sé
eitthvað lægra í ár en undanfarin
ár, en þegar hörpudisksstofninn
var hvað stærstur árið 1980 var
hitastig sjávar tiltölulega lágt.
Nánari athuganir verða gerðar á
þessu í október.
Starfsmenn Hafrannsókna-
stofnunar fara að jafnaði 5–6
sinnum á ári í reglubundnar sýna-
tökur á hörpudiski á tveimur
svæðum á Breiðafirði.
Hörpudiskur á Breiða-
firði að taka við sér?
VEÐURGUÐIRNIR leika við íbúa
höfuðborgarsvæðisins þessa dag-
ana. Margir hafa nýtt sér góð-
viðrið til framkvæmda á húsum
sínum, t.d. til að mála eða hellu-
leggja.
Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins fóru á stúfana og
hittu m.a. Óttar Överby, húseig-
anda við Skólavörðustíg, sem var
að mála í mestu makindum. Hann
sagðist vera nýbúinn að mála
húsið að utan blátt ásamt íbúum
á neðri hæð hússins. Nú væri ver-
ið að mála glugga og hurðir á
húsinu sem er 100 ára gamalt.
Óttar sagði að ekki yrði farið í
neinar stórframkvæmdir á húsinu
í ár. „Þetta er eiginlega til bráða-
birgða. Það þarf að skipta um
járn á þessu öllu saman,“ sagði
Óttar og bætti því við að húsið
hefði verið löngu komið á tíma.
Það hefði verið ansi snjáð að sjá
enda síðast málað fyrir um tveim-
ur áratugum. „Þetta er orðinn al-
gjör draumur miðað við hvernig
þetta var,“ sagði Óttar.
Á Öldugötu voru þeir Hrafnkell
Sighvatsson og Jón Elmar Óm-
arsson, sem starfa hjá garðyrkju-
fyrirtækinu Garðyrkjumanninum,
að ganga frá eftir að hafa hellu-
lagt og gert snyrtilegt í kringum
viðkomandi lóð. Kváðust þeir
vera ánægðir með að vinna úti í
veðurblíðunni. Aðspurðir sögðu
þeir verkið vera langt á veg kom-
ið.
Ekki þurfa þeir að færa verk-
færi og annan búnað langa leið
því næsta verkefni er á lóðinni
við hliðina, að sögn Hrafnkells.
Spáð góðu áfram
Georg Steindórsson, málari hjá
Alhliðamálun, var að sparsla í
sprungur fyrir utan hlið gamla
Borgarbókasafnsins í Þingholts-
stræti þegar blaðamann og ljós-
myndara bar að garði. Verið er
að taka húsið í gegn að utan og
sagði Georg að stefnt væri að því
að ljúka verkinu í vikunni enda
spáin góð.
Viðrar
vel til
fram-
kvæmda
Morgunblaðið/ÞÖK
Georg Steindórsson sparslaði upp í múrskemmdir við Þingholtsstræti.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hrafnkell og Jón Elmar vinna við að helluleggja og taka garða í gegn.
Morgunblaðið/Eyþór
Óttar Överby sagði að tími væri
kominn á að hressa upp á 100 ára
gamalt húsið við Skólavörðustíg.
„VIÐ vonum að ráðstefnan opni
augu ráðamanna fyrir mikilvægi
vandans og setji þrýsting á þá um að
komið verði á fót kennslustöðu í fag-
inu hérlendis,“ segir Dagbjörg Sig-
urðardóttir, barna- og unglingageð-
læknir, en árleg
Evrópuráðstefna sér-
fræðinga í barna- og
unglingageðlækningum
verður haldin í fyrsta
sinn í Reykjavík dagana
9.–11. september nk.
Ráðstefnan er haldin á
vegum Samtaka evr-
ópskra sérfræðilækna í
barna- og unglingageð-
lækningum (UEMS) í
samstarfi við Félag ís-
lenskra barna- og ung-
lingageðlækna og
Læknafélag Íslands.
Að sögn Dagbjargar
er fundarstaður ráð-
stefnunnar engin tilvilj-
un því UEMS velur að
halda fundi sína í þeim löndum þar
sem þróunin í barna- og unglinga-
geðlækningum hefur verið hvað
hægust. Þannig vonast menn til
þess að heimsókn sérfræðinga í
barna- og unglingageðlækningum
frá þrjátíu og þremur Evrópulönd-
um og fundur samtakanna hér á
landi verði til þess að styrkja fram-
tíð sérgreinarinnar hérlendis.
Að sögn Dagbjargar er markmið
EUMS-ráðstefnunnar að stuðla að
samræmingaraðgerðum í barna- og
unglingageðlækningum í kennslu
læknanema innan læknadeildar Há-
skóla Íslands við aðrar læknadeildir
í Evrópu. Segir hún Ísland enn eina
landið í Evrópu sem hefur ekki skip-
að í prófessorsstöðu í barna- og ung-
lingageðlækningum þrátt fyrir
ítrekuð tilmæli frá EUMS og fleiri
aðilum síðastliðin ár um að skipað
verði í prófessorsstöðu í sérgrein-
inni við læknadeild HÍ hið fyrsta.
Stöndum mjög vel faglega
„Faglega stöndum við framarlega
í greininni hérlendis,
erum með gott starfs-
fólk og stundaðar eru
heilmiklar rannsóknir
á þessu sviði. Hins
vegar höfum við
áhyggjur af ramman-
um í kringum fagið
og skort á prófessors-
stöðu í greininni við
læknadeild HÍ til
þess að tryggja form-
legt nám. En það er
nokkurt áhyggjuefni
hve fáir eru í sérnámi
í þessu fagi til þess að
viðhalda stéttinni til
framtíðar, ekki síst
þarf sem um er að
ræða vaxandi vanda-
mál. Við viljum því opna augu
stjórnvalda og annarra um mikil-
vægi þess að vel sé utan um þessi
mál haldið og að þetta verði sjálf-
stæð sérgrein,“ segir Dagbjörg og
bendir á að eins og staðan sé í dag
séu barna- og unglingageðlækning-
ar undir stjórn annarrar sérgreinar,
þ.e. fullorðinsgeðlækninga, sem sé
bagalegt þar sem hagsmunir þess-
ara tveggja greina fari ekki alltaf
saman.
Í tengslum við ráðstefnuna verður
námstefna um alþjóðlegar rann-
sóknir í barna- og unglingageðlækn-
ingum og er aðalgestafyrirlesari
námstefnunnar prófessor Thomas
Achenbach frá Bandaríkjunum.
Evrópuráðstefna sérfræðinga í
barna- og unglingageðlækningum
Vantar prófessors-
stöðu í greininni
Dagbjörg
Sigurðardóttir
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
KAÞÓLSK messa var haldin í
starfsmannaþorpi Fjarðaáls við
Reyðarfjörð í vikunni. Séra Patrick,
kaþólskur prestur á Akureyri, sá um
messuhald sem fór fram bæði á
pólsku og ensku.
Yfir fjörutíu manns mættu til
messunnar en langstærstur hlutinn
var pólskumælandi. Stefnt er að því
að koma á reglulegum messum á
sunnudögum í starfsmannaþorpinu.
Þá er von á fjórum munkum í heim-
sókn í þorpið í byrjun ágúst. Þeir eru
frá Slóvakíu en eru nú í Reykjavík að
læra íslensku.
Munkarnir ætla síðan að ferðast
um landið og hyggjast koma upp
munkaklaustri á Austurlandi til að
þjóna svæðinu, þ.m.t. starfsmanna-
þorpi Fjarðaáls.
Séra Patrick mess-
aði á Reyðarfirði