Morgunblaðið - 23.07.2005, Page 19
Belgískar vöf
Nýlega bættist við enn einn ljúffengur réttur í kaffiteríu Perlunnar.
Bragðið á gómsætum nýbökuðum belgískum vöff lum í kaffiteríunni
á 4. hæð. Næg ókeypis bílastæði!
BELGÍSKAR VÖFFLUR
Veitingahúsið Perlan - S: 562 0200 - perlan@perlan.is - www.perlan.is
Hr
in
gb
ro
t
Flatey | Hann var íbygginn og
kankvís hann Hilmar Þór
Hönnuson þar sem hann sat við
verslunarborðið sitt framan við
hús ömmu og afa í Flatey á
Breiðafirði um sl. helgi. Hilmar
Þór raðar sínum söluvarningi
smekklega á borðið þegar flóa-
báturinn Baldur er að leggjast
að bryggju svo að allt verði nú
klárt þegar ferðamaðurinn
gengur þar fram hjá. Til sölu
hjá Hilmari er ýmislegt úr sjón-
um og fjörunni. Margskonar
skeljar, kuðungar, hrúð-
urkarlar, litríkir fjörusteinar,
hvalbein, selskinn og lunda-
goggar sem útlendingarnir eru
mjög spenntir fyrir. Kvaðst
Hilmar vera búinn að selja fyrir
tvo þúsundkalla en hann hefði
ekki fengið nema nokkrar grá-
sleppur (100 krónu peninga)
ennþá. Fannst Hilmari grá-
sleppupeningarnir auðheyrilega
miklu merkilegri en bréfpening-
arnir.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Útlendingar vilja lundagogga
Sölumennska
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
VESTMANNAEYJAR
EFTIR SIGURSVEIN ÞÓRÐARSON
BLAÐAMANN
Það er um fátt annað talað í Eyjum
þessa dagana en komandi Þjóðhátíð. Und-
irbúningur er í fullum gangi og gengur vel að
vanda enda sömu menn ár eftir ár sem
standa í þessu. Þannig er þetta komið í fast-
ar skorður og klikkar ekki, nema veðrið setji
strik í reikninginn. Miðað við langtímaspár
nú þurfa þeir ekki að hafa áhyggjur af því.
Menn spá mikið í veðrið, hvernig það er,
hvernig það hefur verið og hvernig það muni
verða. Svoleiðis hefur það alltaf verið í Vest-
mannaeyjum. Sumarið hefur verið gott í
Eyjum en það var betra í fyrra, í minning-
unni alla vega. Reyndar er alltaf gott veður í
Eyjum og eins og einn góður maður sagði.
Það er alltaf logn í Eyjum, það fer bara mis-
munandi hratt yfir.
Verkefnið Pompei norðursins er líklega
ein albesta hugmynd sem komið hefur upp í
Eyjum á undanförnum árum til að reyna að
lífga upp á ferðamannaiðnað bæjarins. Strax
við fyrstu skóflustungu vakti verkefnið mikla
athygli og hefur nú þegar dregið fjölda fólks
til Eyja. Hluti af fyrsta húsinu er komið í ljós
og bíður fólk spennt eftir framhaldinu.
En Þjóðhátíðin er það sem máli skiptir í
Eyjum þessa dagana. Nú fara Eyjamenn að
viðra hústjöldin, verið er að hlaða í brenn-
una, skátar undirbúa flugeldasýninguna og
gítarleikarar bæjarins pikka upp nýja
Þjóðhátíðarlagið og rifja þau gömlu upp.
Þjóðhátíð og ferðamennska byggjast á
góðum samgöngum sem hafa verið mál mál-
anna í Eyjum undanfarin misseri. Þar hafa
orðið framfarir með fleiri ferðum Herjólfs
sem nú eru nú að minnsta kosti þrettán á
viku. Þrátt fyrir það annar skipið ekki flutn-
ingum þegar mest er og mun baráttan fyrir
bættum samgöngum halda áfram.
Hinn þátturinn í samgöngum Vest-
mannaeyja, flugið hefur líka verið upp á við
undanfarið. Á þriðjudaginn fékk Flugfélag
Vestmannaeyja nýja flugvél og Landsflug
tók í notkun nýja og öflugri flugvél á leiðinni
Reykjavík-Vestmannaeyjar. FV flýgur á
Bakkaflugvöll í Landeyjum sem er fjórði
fjölmennasti flugvöllur landsins með yfir
20.000 farþega á ári.
Sendiherra Indlands,Mahesh Sachadeo,heimsótti Akureyri
í vikunni. Hann skoðaði
sig um í bænum ásamt
Girish Hirlekar lækni og
ræðismanni Indlands á
Akureyri og í lok heim-
sóknarinnar var boðið til
móttöku í Galleríi
félags Eyfirðinga. Með
þeim á myndinni eru
Anna Gunnarsdóttir ræð-
ismannsfrú og Svein-
björg Hallgrímsdóttir en
þær stöllur reka galleríið
saman og hafa nýlega
flutt starfsemina um set,
úr Listagilinu í Brekku-
götuna.
„Svartfugl og Hvítspóa“ í
Brekkugötu. Þangað
komu samlandar sendi-
herrans og fleiri gestir
og áttu saman góða
stund. Hér taka sendi-
herrann og ræðismað-
urinn á móti Andra
Teitssyni, fram-
kvæmdastjóra Kaup-
Morgunblaðið/Kristján
Sendiherra í heimsókn
Sigrún Haraldsdóttirtekur sér far meðvindinum og skoð-
ar heiminn:
Með vindinum ég vildi fá
vítt um grund að líða.
Beygja fífu, blása í strá,
blístra nótu stríða.
Bæra syfjuð blöð á grein,
blárri klukku dilla.
Fægja klappir, flengja stein,
flík á snúru trylla.
Rugla hári á hefðarmey
húfu af kolli svifta.
Bera af túni bóndans hey,
bleiku tjaldi lyfta.
Hendast frjáls um himininn
heima skoða víða.
Staldra ögn við stólinn þinn
strjúka vangann fríða.
Flýgur með
vindinum
pebl@mbl.is
Kelduhverfi | Kelduneshreppur stendur
fyrir tónleikum í Skúlagarði næstkomandi
sunnudag klukkan 15 í minningu Árna
Björnssonar, tónskálds frá Lóni, og systur
hans, Bjargar, organista og kórstjóra.
Tónleikarnir eru aldarminning Árna.
Lúðrasveit Þingeyinga heldur tón-
leikana og henni til liðsinnis verður lúðra-
sveit frá Eistlandi, alls 55 hljóðfæraleik-
arar. Þá koma fram Karlakórinn Hreimur
og Kirkjukór Garðskirkju og hljóðfæra-
leikararnir Andrew Cauthery, Halli Caut-
hery, Gunnar Cauthery og Aldár Rácz.
Fleira verður um að vera í Kelduhverfi
um helgina, að því er fram kemur á heima-
síðu hreppsins. Jökulsárhlaup verður hald-
ið í annað sinn. Þátttaka er góð og koma
hlauparar víða af að landinu.
Minningar-
tónleikar um
Árna Björns-
son
Grundarfjörður | Golfklúbburinn Vestarr í
Grundarfirði og KB banki hafa gert með sér
þriggja ára samstarfssamning. KB banki
mun greiða klúbbnum fasta árlega upphæð
og að auki styðja sérstaklega eitt opið mót á
ári. KB banki hefur gert sams konar sam-
komulag við Golfklúbbinn Mostra Stykkis-
hólmi og inniheldur þessi samningur ákvæði
um stuðning við árlegt mót sem klúbbarnir
standa sameiginlega að.
Ásgeir Ragnarsson, formaður golf-
klúbbsins Vestra, og Kjartan Pálsson, úti-
bússtjóri KB banka, undirrituðu samning-
inn. Ásgeir kveðst ákaflega ánægður með
þennan stuðning KB banka við starfsemi
klúbbsins sem stöðugt fari vaxandi. Á þessu
ári verður Golfklúbburinn Vestarr 10 ára og
eru félagar í honum orðnir rúmlega 100.
Golfvöllur klúbbsins er á Bárarvelli, við
austanverðan Grundarfjörð.
Vestarr fær
stuðning í
þrjú ár
♦♦♦
Auðhumla flutt | Framkvæmdaráð hefur
samþykkt tillögu um flutning á listaverkinu
Auðhumlu frá lóð Norðurmjólkur í Kaup-
vangsgil. Verkið er í eigu Norðurmjólkur og
mun vera það áfram en stjórn Norðurmjólk-
ur hefur samþykkt að verkið verði flutt í
Kaupvangsgilið fyrir ofan Myndlistarskól-
ann. Kostnaður við flutning og niðursetn-
ingu verður greiddur af Akureyrarbæ en
hann er áætlaður um 600 þúsund krónur.
Staðsetning og fyrirkomulag hefur hlotið
staðfestingu í skipulagi fyrir svæðið.
♦♦♦
mbl.is
ókeypis
smáauglýsingar