Morgunblaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR
ÁSKIRKJA: Engin messa þar sem starfs-
fólk Áskirkju er í sumarleyfi. Sóknarbörn-
um er bent á að sækja til Laugarnes-
skirkju, en sóknarprestur hennar sr.
Bjarni Karlsson og annað starfsfólk gegn-
ir þjónustu á meðan á sumarleyfi stendur.
Fyrsta guðsþjónusta eftir sumarleyfi verð-
ur í Áskirkju sunnudaginn 28. ágúst kl.
11. Sjá auglýsingu Laugarneskirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Guðmundur Sigurðsson. Mola-
sopi eftir messu. Sr. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar. Organisti
Guðný Einarsdóttir. Sönghópur úr Dóm-
kórnum syngur.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Ástríður Haraldsdóttir. Samskot
í verkefnið „blátt áfram“. Sr. Petrína Mjöll
Jóhannesdóttir.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari, en auk hans koma nokkrir
messuþjónar að messunni, sem lesa ritn-
ingarorð, aðstoða við útdeilingu sakra-
mentisins o.fl. Organisti Douglas A.
Brotchie. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Söfnunarfé þennan
dag rennur til Samhjálpar. Kaffisopi í
safnaðarsal eftir messu. Sumarkvöld við
orgelið kl. 20. Nigel Potts frá Nýja-Sjá-
landi leikur.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.Organisti
er Magnús Ragnarsson.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LAND-
SPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS: Hring-
braut: Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Bragi
Skúlason. Organisti Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Vegna sumarleyfa verður ekki
messað í Langholtskirkju í júlímánuði. Sr
Pálmi Matthíasson þjónar Langholts-
prestakalli á meðan. Sóknarbörnum er
bent á að sækja helgihald í Bústaðakirkju
eða öðrum nágrannakirkjum.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks er bent á guðsþjónustur í ná-
grannakirkjum.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Ævar Kjart-
ansson guðfræðingur og útvarpsmaður
prédikar. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
safnaðarsöng. Organisti Reynir Jónas-
son. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar
fyrir altari. Kirkjukaffi eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund kl.
11. Ritningalestur, bæn og altarisganga.
Umsjón sr. Sigurður Grétar Helgason.
ÁRBÆJARKIRKJA: Árbæjarkirkja. Guðs-
þjónusta kl. 11. Börn borin til skírnar. Sig-
urður Þorbergsson leikur á básúnu. Fé-
lagar úr kirkjukórnum leiða söng undir
stjórn Krisztínu Kalló Szklenár organista.
Kaffisopi að stundinni lokinni. Prestarnir
SAFNKIRKJAN Í ÁRBÆ: Guðsþjónusta
nk. sunnudag kl. 14. Almennur safnaðar-
söngur. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Kristinn Á. Friðfinnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messur falla niður í
júlímánuði vegna viðgerða. Kyrrðarstundir
eru alla miðvikudaga kl. 12 í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa í kapellu
kl. 20. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
annast bæði um söng og prestsþjónustu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónustur
falla niður vegna sumarleyfa.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju
syngur.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða sálmasöng. Við minnum
á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl.
18 (sjá einnig á www.hjallakirkja.is).
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
verður ekki guðsþjónusta á sunnudag.
Næsta guðsþjónusta verður að loknu
sumarleyfi sunnudaginn 7. ágúst. Kirkjan
er opin á messutímum og frá þriðjudegi til
föstudags kl. 11–14. Á þeim tímum er
kirkjuvörður við og getur veitt upplýsingar.
LINDAKIRKJA í Kópavogi: Sameiginleg
guðsþjónusta Linda- og Digranessafnaða
í Digraneskirkju kl. 20.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma
sunnudag kl. 20 með mikilli lofgjörð og
fyrirbænum. Ágúst Valgarð Ólafsson pré-
dikar en hann er á leið til Bandaríkjanna.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund miðvikudaga kl. 20. Biblíufræðsla
allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM
105,5.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 20 samkoma,
umsjón Miriam Óskarsdóttir.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a:
Samkoma kl. 20. Helga R. Ármannsdóttir
talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu. Þriðjudaginn 26. júlí
bænastund kl. 20.30.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma í
kvöld kl. 20. „Er sumar í sálinni?“ Ræðu-
maður Elísabet Haraldsdóttir. Kaffiveit-
ingar eftir samkomuna.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðum. Jón Þór Eyjólfsson. Mikil
lofgjörð. Hægt er að hlusta á beina út-
sendingu á útvarp Lindin, fm 102,9.
Bænastund á miðvikudagskvöldum kl.
20. Morgunbænastundir falla niður í júlí,
hefjast aftur 4. ágúst. filadelfia@gospel-
.is www.gospel.is
Gospeltónleikar: Í Kirkjulækjarkoti verða
nemendur og kennarar Gospelmótsins
með tónleika kl. 20.
KROSSINN: Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Sakramentisguðsþjónusta kl. 9 ár-
degis á ensku, og kl. 12 á íslensku. Trú-
boðshjónin, herra og frú Williams, verða
ræðumenn.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.
Alla virka daga: Messa kl. 18.
„Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu-
stund er haldin í Kristskirkju á hverju
fimmtudagskvöldi að messu lokinni, þ.e.
frá kl. 18.30 til 19.15.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.
Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30.
Virka daga: Messa kl. 18.30 „Ár altaris-
sakramentisins“: Tilbeiðslustund á
mánudögum frá kl. 19 til 20.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30 Alla virka daga: Messa
kl. 18.30 „Ár altarissakramentisins“: Til-
beiðslustund á hverjum degi kl. 17.15.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík, Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11. „Ár alt-
arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á
hverjum föstudegi kl. 17 og messa kl. 18.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður: Kåre Kaspersen.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut
2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Gavin
Anthony.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11.
STAFKIRKJAN í Vestmannaeyjum:
Messa í stafkirkjunni kl. 11 árdegis í stað
messu í Landakirkju. Þetta er kirkjudagur
stafkirkjunnar, en hún var vígð fyrir fimm
árum og hefur kirkjudagur hennar síðan
verið síðasti sunnudagur fyrir þjóðhátíð.
Messan er engu að síður á vegum Of-
anleitissóknar. Kór Landakirkju syngur.
Organisti er Guðmundur H. Guðjónsson,
hringjari Höskuldur Kárason og meðhjálp-
ari Sigurfinnur Sigurfinnsson. Sr. Kristján
Björnsson þjónar fyrir altari og prédikar.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11, morgunsöngur. Prestur: Sr. Gunn-
þór Þ. Ingason, sóknarprestur. Organisti:
Bjartur Logi Guðnason. Félagar úr Kór
Hafnarfjarðarkirkju leiða söng.
Lesari: Jón S. Norðkvist. Meðhjálpari: Ing-
ólfur H. Ámundason.
GARÐAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl.
20.30. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 20
og frá Hleinum kl. 20.10 og til baka að
messu lokinni. Félagar úr kór Vídalíns-
kirkju leiða sönginn. Organisti Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir. Sr. Friðrik J. Hjart-
ar þjónar. Njótum kirkjugöngunnar í kvöld-
kyrrðinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Samverustund
verður sunnudag kl. 13. á púttvellinum
við Mánagötu. Prestur Sigfús B. Ingva-
son, organisti Jón Bjarnason, Bylgja Dís
Gunnarsdóttir leiðir söng. Hið árleg kirkju-
mót verður haldið að samverustund lok-
inni. Kaffiveitingar í boði Keflavíkursóknar
í Kirkjulundi. Allir aldurshópar velkomnir.
BORGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Unnur Sigurðardóttir syngur einsöng.
Organisti Steinunn Árnadóttir. Sóknar-
prestur
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Kl. 20.30 kvöld-
messa á léttu nótunum. Umsjón með tón-
list hafa Þorsteinn Haukur Þorsteinsson
og Lilja Kjartansdóttir. Sóknarprestur.
UNAÐSDALSKIRKJA: Kl. 14 messa.
Prestur er sr. Magnús Erlingsson.
HÓLADÓMKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Arn-
aldur Bárðarson prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Glerárprestakalls leiðir söng.
Organisti Hjörtur Steinbergsson.
AKUREYRARKIRKJA: Sumartónleikar kl.
17. Sigurður Flosason, saxófónn og
Gunnar Gunnarsson, orgel. Guðsþjónusta
kl. 20.30: Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar
úr kór Akureyrarkirkju syngja. Sigurður
Flosason og Gunnar Gunnarsson leika á
saxófón og orgel. Organisti Björn Steinar
Sólbergsson. Þriðjudagur 26. júlí: Morg-
unsöngur kl. 9.
GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl.
20.30, prestur sr. Arnaldur Bárðarson.
Karlakór Akureyrar Geysir ásamt Kross-
bandinu, þeim Snorra, Röggu og Kristjáni,
leiðir söng. Kaffisopi í safnaðarsal.
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta á
Grenilundi kl. 16.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa kl. 17. Í
messunni verður flutt tónlist frá sumar-
tónleikum helgarinnar. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa og altarisganga
kl. 11. Síra Úlfar Guðmundsson, prófast-
ur, prédikar og þjónar fyrir altari í sum-
arleyfi sóknarprests, sem verður fjarver-
andi til 9. ágúst. Léttur hádegisverður
framreiddur í safnaðarheimilinu eftir
messuna. Evangelísk-lúthersk morguntíð
sungin þriðjudaga til föstudaga kl. 10.
Kaffisopi á eftir. Foreldramorgnar á hverj-
um miðvikudegi kl. 10 í lofti safnaðar-
heimilis.
Sr. Gunnar Björnsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur: Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir.
ÞINGVALLAKIRKJA: Göngumessa 24. júlí
kl. 14 í samvinnu við Fornbílaklúbb Ís-
lands. Messan hefst fyrir framan Hótel
Valhöll. Gengið verður um Lögberg og í
nokkrum áföngum til kirkju þar sem
messan endar. Organisti Guðmundur Vil-
hjálmsson, prestur Kristján Valur Ingólfs-
son.
REYKHÓLAPRESTAKALL: Kveðjumessa
sóknarprests, séra Braga Benediktsson-
ar, verður í Reykhólakirkju sunnudaginn
24. júlí kl. 14. Einnig verður helgistund í
Barmahlíð sama dag kl. 15.
SÓLHEIMAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Ingólfur Guðmundsson annast guðs-
þjónustuna. Organisti Þóra Marteinsdótt-
ir.
GÁSAR: Útiguðsþjónusta verður á hinu
forna kirkjustæði á Gásum sunnudaginn
24. júlí kl. 13. Kirkjukór Möðruvallaklaust-
ursprestakalls syngur.
Sr. Gylfi Jónsson leikur á harmónikku.
Kaffiveitingar í boði Gásafélagsins. Sókn-
arprestur.
HÓLAR Í HJALTADAL: Messa kl. 11 prest-
ur sr. Arnaldur Bárðarson, forsöngvari Örn
Viðar Birgisson tenor, organisti Arnór Vil-
bergsson. Tónleikar kl. 14 Guðrún Gunn-
arsdóttir og valgeir Skagfjörð.
Guðspjall dagsins: Hinn
rangláti ráðsmaður.
(Lk. 16.)
Morgunblaðið/Ómar
Guðsþjónusta í
Sólheimakirkju
KIRKJA á Sólheimum var
vígð 3. júlí síðastliðinn.
Sunnudaginn 24. júlí verður
guðsþjónusta á Sólheimum og
hefst hún kl. 14. Sr. Ingólfur
Guðmundsson mun annast
guðsþjónustuna. Organisti
verður Þóra Marteinsdóttir.
Á Sólheimum er gestkvæmt
um helgar. Gestir eru þar
velkomnir, bæði í kaffihúsinu
„Grænu könnunni“, trjágarð-
inum nýja. Þá er líka gott að
koma til guðsþjónustu, kynn-
ast nýju kirkjunni og eiga
helga stund.
Messa
í Borgarvirki
Á SUNNUDAG, 24. júlí, verð-
ur hin árlega messa í Borg-
arvirki í Húnaþingi vestra.
Messan tengist lokum hinnar
mögnuðu Unglistahátíðar
sem hófst sl. miðvikudag.
Prestur verður sr. Sigurður
Grétar Sigurðsson á
Hvammstanga. Tónlist annast
Helgi Ólafsson organisti auk
þess sem kórfélagar leiða al-
mennan söng. Undanfarin ár
hefur verið messa í Borg-
arvirki og hefur messan notið
vinsælda. Heimamenn jafnt
sem ferðafólk er velkomið til
þátttöku og tilvalið að taka
með sér nesti til að snæða
„messukaffi“ að athöfn lok-
inni. Klæðist eftir veðri.
Sóknarprestur.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sólheimar í Grímsnesi.
FRÉTTIR
WORLD Class og Laugar bjóða í tvö-
falda afmælisveislu í tilefni 20 ára
afmælis líkamsræktarstöðvarinnar í
dag, laugardaginn 23. júlí.
Á milli klukkan 14 og 16 verður
opið hús í Laugum við Laugardags-
laug. Margvísleg skemmtun verður í
boði og má nefna Fjölskyldu-
skemmtun í Lauga-garðinum með
fjölbreyttum leiktækjum, m.a. Ferr-
ari-rafmagnsbílum. Jónsi í Svörtum
fötum tekur lagið og Birta og Bárð-
ur koma fram. Dansstúdíó World
Class sýnir dans og verður opinn
danstími fyrir alla frá kl. 14.30 til
15.30. Slegið verður upp getrauna-
leik og verður hægt að vinna árskort
í heilsurækt í Laugum.
Ýmsar veitingar verða í boði um
allt svæðið, s.s. pylsur, íspinnar,
drykkir og alls kyns sælgæti.
Frítt verður í Laugardagslaugina
í tilefni dagsins.
Í kvöld verður slegið upp risaballi
með Sálinni í Skautahöllinni sem
stendur frá kl. 23 til kl. 3 og eru allir
sem hafa náð 18 ára aldri velkomnir
á meðan húsrúm leyfir.
Tvöföld afmæl-
ishátíð í
Laugardal
ÚTIMARKAÐURINN verður opn-
aður í Mosfellsdal í dag, laugardag.
Markaðurinn er við gróðrarstöðina
Mosskóga og er nú haldinn sjötta
sumarið í röð. Á markaðnum mun
sem fyrr kenna ýmissa grasa. Fjöl-
breytt grænmeti er til sölu sem og
annað góðgæti.
Að markaðnum, sem opinn er frá
kl. 12-17 á laugardögum, standa
Mosskógar, Dalsgarður, Túnfótur
og Heiðarbær.
Markaðurinn í Mosfellsdal verður
opnaður á morgun og verður opinn
á laugardögum fram á haust.
Markaður í
Mosfellsdal
MAGNÚS Björn Ólafsson, nemandi
í stjórnmálafræði og heimspeki við
Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn
ritstjóri Stúdentablaðsins og tekur
við af Helgu Arnardóttur. Stjórn
Stúdentaráðs HÍ ræður í starfið og
sóttu alls sjö um það.
Magnús var í ritstjórn Stúd-
entablaðsins síðasta vetur og hafði
skrifað talsvert fyrir blaðið áður.
Hann er 23 ára og hefur starfað
sem blaðamaður á Blaðinu að und-
anförnu og var m.a. upplýsinga-
fulltrúi Framadaga síðasta vetur.
Stúdentablaðið er gefið út sjö til
átta sinnum yfir veturinn og und-
anfarin tvö ár hefur blaðinu verið
dreift með Fréttablaðinu. Búist er
við að fyrsta tölublað nýs ritstjóra
komi út í byrjun september.
Nýr ritstjóri
Stúdentablaðsins
BENEDIKT S. Lafleur syndir í dag,
laugardag, þreksund sem er liður í
æfingu hans fyrir sund sem hann
nefnir Reykjavíkursund og hefur
verið að þróa að undanförnu. Að
þessu sinni syndir Benedikt aðeins
hluta leiðarinnar, en þó alls rúmlega
5 km, frá Bakkavör á Seltjarnarnesi
inn í botn Fossvogsins. Benedikt
syndir í fylgd með Björgunarsveit-
inni Ársæli, leggur af stað um hálf-
eitt og stefnir að því að vera kominn
inn í botn um þrjú til hálffjögur.
Þreksund í
sjónum