Morgunblaðið - 23.07.2005, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
F
ÁIR íslenskir tónlist-
armenn hafa átt jafn-
langan og farsælan feril
og Pálmi Gunnarsson.
Um helgina fagnar
Pálmi 40 ára tónlistarafmæli sínu á
Vopnafirði, í bænum þar sem hann
er fæddur og uppalinn og fór fyrst að
gutla á hljóðfæri.
„Í raun má segja að ég sé byrjaður
13 eða 14 ára. Þá er ég kominn í
bítlaband á síldarárunum á Vopna-
firði. Það var allt iðandi í tónlist þar
á þessum tíma,“ segir Pálmi, spurð-
ur um fyrstu skrefin. „Ég var 14 ára,
1964, þegar ég eignaðist fyrsta al-
vöru rafmagnshljóðfærið og var þá
kominn á fullt í tónlistinni.“
Refirnir á Laugum
Fyrsta alvöru hljómsveit Pálma
var bandið Foxes sem til varð í Hér-
aðsskólanum á Laugum.
„Ferillinn spannst þannig að eftir
Laugar kom stutt tímabil þar sem ég
spilaði ekkert. Þá var ég að flækjast
um allan heim, reyndar með vini
mínum úr Foxes, en þegar ég kom til
baka fór ég í hljómsveit austur á
fjörðum og var að spila á síldarár-
unum á Seyðisfirði og Hornafirði,“
heldur Pálmi áfram sögunni.
Skólun Magnúsar
Ingimarssonar
Þegar Pálmi var 19 ára hreppti
hann lausa stöðu í hljómsveit Magn-
úsar Ingimarssonar, nokkuð sem
Pálmi vill meina að hafi skipt sköp-
um fyrir tónlistarferil hans: „Það
losnaði staða bassaleikara og söngv-
ara hjá Magnúsi heitnum, sem var á
þeim tíma einn af okkar fremstu
hljómsveitarstjórum. Ég sótti um
bréflega og mér var vippað til
Reykjavíkur í prufu og fékk síðan
starfið. Ég komst inn fyrir náð og
miskunn, því ég lét í það skína að ég
væri góður bassaleikari en ég hafði
ekki snert á því hljóðfæri neitt að
ráði, nema bara rétt til að pikka upp
nokkur lög.
Magnús sá nú fljótt að ég hafði
kannski ekki sagt honum alveg rétt
og satt til, en hann áttaði sig líklega
á því að það væri auðvelt að gera úr
mér bassaleikara og að ég gæti hald-
ið lagi. Hann réð mig því á þeim for-
sendum að ég æfði mig eins og vit-
firringur og stæðist kröfurnar sem
hann, sem hljómsveitarstjóri, gerði
til sinna manna.
Magnús ól mig svolítið upp. Hann
tuktaði mig til sem tónlistarmann og
gerði kröfu um að ég nýtti þessa
hæfileika sem ég hafði, og gerði það
eins og maður. Hann kenndi mér án
þess að ég tæki eftir því og var alltaf
að troða í mig tónlist og þekkingu
sem hefur nýst mér síðan.“ Pálmi
þakkar Magnúsi árangur sinn í tón-
list að miklu leyti: „Hæfileikarnir
nýtast manni ekki nema maður fái
einhverja svona þjálfun til viðbótar.
Magnús var maður sem skrifaði út
fyrir sitt fólk og setti menn í alveg
ógurlega erfið verkefni. Það var æft
á hverjum einasta degi.“
Jafnvígur á kontrabassa
og rafbassa
Pálmi lærði um skeið við Tónlist-
arskóla Reykjavíkur hjá Einari B.
Waage kontrabassaleikara. „Ég náði
mér í nokkur stig þar, en mátti ekki
mikið vera að því að sinna klass-
íkinni,“ segir Pálmi. „Það voru aðrir
hlutir að taka tímann frá manni, en
ég hafði rosalega gott af náminu og
fór á þessum tíma að spila djass á
fullu með Guðmundi heitnum Ing-
ólfssyni. Með því var ég að djöflast í
poppinu og spilaði allskonar tónlist.
Ég var t.d. að spila á kontrabassa í
þjóðlagatónlist og starfaði mikið við
upptökur á allskonar tónlist. Það var
töluvert af bassaleikurum þá, en
ekki endilega margir sem voru jafn-
vígir á kontrabassa og rafbassa eins
og ég.“
Júdas súperstjarna
Pálma skaut fyrst upp á stjörnu-
himininn snemma á 8. áratugnum:
„Ég tók þátt í uppsetningu á Jesus
Christ Superstar hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, og lék þar eitt af aðal-
hlutverkunum: Júdas. Bæði fékk
stykkið gríðarlega góða dóma á
þessum tíma og ég þótti standa mig
vel. Þetta var ægilega skemmtilegur
kapítuli. Söngleikurinn varð ræki-
legur smellur og ég varð í raun
þekktur á einni nóttu.“
Mannakorn slá í gegn
Baldur Már Arngrímsson lék með
Pálma í söngleiknum en það var
gegnum vinskap þeirra að ferill
Pálma með Mannakornum hófst.
Fyrstu upptökurnar með þeirri
hljómsveit komu Pálma á framfæri
sem tónlistarmanni: „Fyrsta platan,
Mannakorn, varð gríðarlega vinsæl.
Svo komu þær hver á fætur annarri
Tónlist | Ferill Pálma Gunnarssonar í brennidepli á Vopnafirði um helgina
Tíminn
flýgur hratt
Morgunblaðið/Kristján
Pálmi Gunnarsson með fyrsta bassann sinn, Höfner bítlabassa. Bassinn var týndur í fjölda ára en fannst uppi á
háalofti í húsi á Hornafirði upp úr 1990 og þá var hálsinn brotinn. Maður sem fann bassann komst að því að Pálmi
hefði átt þennan dýrgrip og færði honum bassann að nýju. Pálmi sagði það hafa verið ánægjulegt að fá hljóðfærið
aftur í hendur. Hann lét gera við bassann og geymir hann uppi á vegg í stofunni heima.
Liðin eru fjörutíu ár frá því Pálmi Gunnarsson
steig fyrstu skrefin á farsælum tónlistarferli.
Ásgeir Ingvarsson ræddi við hann af því tilefni.
Sýnd kl. 8 B.i 16 ára
kl. 10.40
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i 16 ÁRA
H.L. MBL -H.L. MBL- . .
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.
Sýnd kl 6, 8 og 10 B.i 16 ÁRA
Sýnd kl. 8 B.i 14 ÁRA Sýnd kl. 2 og 4
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
K&F XFM
H.L. - MBL.
Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre
Kemur magnaðasta hrollvekja ársins!
Fór beint á toppinn í USA
Byggt á sannri sögu
I N N R Á S I N E R H A F I N !
T O M C R U I S E
MYND EFTIR Steven spielberg
Sýnd kl. 5.45
-Blaðið-S.V, MBL
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.Ö.H, DV
-Ó.H.T, RÁS 2
-Þ.Þ. FBL
-Blaðið
T.V. kvikmyndir.is
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
Sýnd kl. 5.45 B.i 14 ára
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20
Þorir þú í bíó?
Frá framleiðanda
Texas Chainsaw Massacre
Kemur magnaðasta hrollvekja ársins!
Fór beint á toppinn í USA
Sýnd kl. 4 og 10.20 B.i 16 ára
Byggt á sannri sögu
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 13.30
Sími 564 0000
i l l. .
kl. 3, 5.30 og 8
Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 10.30
SKEMMTILEGASTA
STÓRMYND SUMARSINS.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það
fangarnir gegn
vörðunum!
SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það fangarnir
gegn vörðunum!
. .
Þorir þú í bíó?
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 2 og 4
SÍÐUS
TU SÝ
NING
AR
Sýnd kl. 2 og 10.20 B.i 10 ÁRA
TILBOÐ400 KR.