Morgunblaðið - 23.07.2005, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Létt og skemmtileg rómantísk gamanmynd með Óskarsverðlaunaleikkonunni, Kim Basinger
og hinum kynþokkafulla John Corbett úr “Sex and the City þáttunum.”
tt til r tí r r l l i i, i i r
i f ll r tt r t it tt .
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd með ensku tali.
THE PERFECT MAN kl. 12 - 2.30 - 4.30 - 6.30 - 8.30 - 10.30
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 12 - 2.30 - 4.30 - 6.30
ELVIS HAS LEFT THE BUILDING kl. 4.30 - 8.30 - 10.30
WHO´S YOUR DADDY kl. 6.30 - 8.30 - 10.30 B.i. 14 ára.
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2.30
með ensku tali
B.i. 16 ára.
B.i. 16 ára.
B.i.14
B.i. 12
B.i. 12
-KVIKMYNDIR.IS
-KVIKMYNDIR.IS
KRINGLAN
DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 b.i. 12
Madagascar enskt tal kl. 6 - 8 og 10
Elvis has left the building kl. 8 og 10
Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12
Voksne Mennesker kl. 5.45
-S.V. Mbl.
-Steinunn/
Blaðið
Sýnd bæði
með íslensku
og ensku tali.
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
-S.V. Mbl.
-Steinunn/
Blaðið
MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM
JENNIFER CONNELLY
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR FRÁ
MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR
FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
SUMAR RÁÐGÁTUR BORGAR SIG
EKKI AÐ UPPLÝSA
SUMA RÁÐGÁTUR BORGAR
SIG EKKI AÐ UPPLÝSA
HÁDEGISBÍÓ 400 KR. MIÐAVERÐ Á A
-KVIKMYNDIR.IS
„MÉR FINNST svo skemmtilegt
þegar nafnið kemur í útvarpinu.
Það er eins og þulurinn sé að fara
að flytja lagið sjálfur,“ svarar Ró-
bert Örn Hjálmtýsson þegar blaða-
maður spyr hann hvers vegna í
ósköpunum bandið hans heitir Ég,
og bætir við: „Þetta er ekki tungu-
brjótur heldur heilabrjótur.“
Ég er hljómsveit fimm manna:
þeirra Arnars Inga Hreiðarssonar
(Bassaaddi), Baldurs Sívertsen
Bjarnasonar (Gíbaldur), Arnar Eld-
járn (Gítörn), Andra Geirs Árnason-
ar (Trommandri) og loks Róberts
Arnar (Söngbert). Í desember 2002
gaf bandið út diskinn Skemmtileg
lög og er nýja platan, Plata ársins,
því önnur plata þeirra félaga.
Inntur eftir innblástri og efn-
istökum disksins hafði Róbert þetta
að segja: „Diskurinn er að mestu
um frekju bankanna. Þetta eru
frekustu fyrirtæki og algjörlega úr
takti við raunveruleikann. Svo er
fjallað um stjórnmál á fótbolta-
máli.“
Stjórnmál á fótboltamáli? – Hváir
blaðamaður: „Já, t.d. er lag þarna
sem heitir Evrópukeppnin, sem lýs-
ir fótboltaleik en um leið þjóðum
Evrópu. Til að mynda er dæmisaga,
þegar Bandaríkjamenn ætluðu í
stríð í Írak. Þá sögðu þeir: „Þið
megið ákveða hvort við förum í
Írak“. Svo vildi Evrópa ekki stríð,
en samt létu Bandaríkin vaða.
Bandaríkin eru nefnilega alltaf
dómarinn, ekki aðeins í Evr-
ópukeppninni heldur líka í Heims-
bikarkeppninni.“
„Já, þetta er djúpt,“ segir blaða-
maður. „Nei, þetta er ekki djúpt.
Þetta er grunnt, því það skilja þetta
allir. Stjórnmál eru líka vörn, sókn
og miðja. Og núna er Evrópa komin
inn í stríð – af hverju?“
En þó háspekileg merking liggi
að baki viðfangsefni laganna er þó
yfirbragðið ekki þungt: „Þetta er
partíplata,“ segir Róbert. „Hún er
hönnuð þannig og hefði í raun átt að
heita Partíplata ársins.“
Viðtökurnar við plötunni segir
Róbert hafa verið frábærar og mikil
stemmning fyrir útgáfunni. Þannig
hafi fyrirframpantanir farið fram úr
björtustu vonum, en inntur eftir því
hverjar björtustu vonir hafi verið
vill Róbert fátt segja.
Ég-liðsmenn eiga góðan bakhjarl
en útgefandi Plötu ársins er hið
nýja útgáfufyrirtæki Samskeytin-
inn Records, og er þetta fyrsta út-
gáfan sem þaðan kemur. Í stjórn
fyrirtækisins situr fótboltahetjan
Eiður Smári Guðjohnsen en á þess-
ari stundu er óvíst um frekari út-
gáfur.
Ég mun fagna útgáfu disksins á
Gauki á Stöng í kvöld og verður að-
gangseyrir 500 kr., en veitingar
verða á boðstólum. Einnig verða fé-
lagarnir á hátíðinni Ein með öllu á
Akureyri um verslunarmannahelg-
ina. Platan er loks komin verslanir
og kostar 2.000 krónur.
Róbert bætir að lokum við að
hann vilji gjarnan að ÍTR hafi við
hann samband, enda er tónlistin á
plötunni hönnuð fyrir alla.
Pólitík á fótboltamáli – og partý!
Morgunblaðið/Þorkell
Ég: Örn Eldjárn, Andri Geir Árnason, Arnar Ingi Hreiðarsson og Róbert
Örn Hjálmtýsson. Á myndina vantar Baldur Sívertsen Bjarnason, en hann
var staddur á Kópaskeri.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Tónlist | Hljómsveitin Ég sendir frá sér Plötu ársins
LEIKARINN James Doohan, sem
lék vélstjórann Scotty í Star Trek-
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum,
er látinn, 85 ára að aldri. Dán-
armeinið var lungnabólga og Alz-
heimersjúkdómurinn.
Ösku leikarans verður skotið út í
geim. Lík leikarans verður brennt
og mun henni síðan verða komið fyr-
ir í eldflauginni Falcon 1, sem skotið
verður á loft frá herstöð flughersins
í Vandenberg í Kaliforníuríki. Aska
Johns Meredyths Lucas, eins hand-
ritshöfunda Star Trek-þáttanna,
sem lést árið 2002 verður einnig um
borð.
Það er fyrirtækið Space Service
Inc. sem sér um útförina en að sögn
umboðsmanns Doohans hafði hann
rætt við eiginkonu sína um að hann
vildi láta skjóta ösku sinni út í geim.
Fólk folk@mbl.is