Morgunblaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ THE ISLAND kl. 5.45 - 8.30 - 10 og 11.20 B.i. 16 ára DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 B.i. 12 ára Madagascar m/ensku.tali kl. 6 - 8 og 11.20 Batman Begins kl. 6 og 8.30 B.i. 12 ára     KRINGLAN HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ KÆMIST AÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ VÆRIR AFRIT AF EINHVERJUM ÖÐRUM? Magnaður framtíðartryllir þar sem hraðinn og spennan ræður ríkjum. Frá hinum eina sanna Michael Bay (“Armageddon”, “The Rock”). -S.V. Mbl.  -Steinunn/ Blaðið  SUMAR RÁÐGÁTUR BORGAR SIG EKKI AÐ UPPLÝSA með ensku tali EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. RÁS 2 THE ISLAND kl. 12 - 3 - 5.30 - 8.30 - 11.15 B.i. 16 ára THE PERFECT MAN kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10 MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 12 - 2.30 - 4.30 - 6.30 BATMAN BEGINS kl. 8.30 - 11.15 B.i. 12 ára -Steinunn/ Blaðið -S.V. Mbl.  -KVIKMYNDIR.IS  Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. HÁDEGISBÍÓ 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLA      LAGIÐ „Like a Rolling Stone“ eftir Bob Dylan varð í efsta sæti yfir þau lög, kvikmyndir, sjónvarpsþætti og bækur sem frægir tónlistarmenn og leikarar telja að hafi breytt heiminum. Þetta kemur fram í könnun sem listamenn á borð við Paul McCartney, Noel Gallagher, Patti Smith, Robert Downey Jr., Keith Richards, Edward Norton, Juliette Lewis, Brian Wilson og Lou Reed tóku þátt í fyrir tímaritið Uncut í tilefni af 100. tölublaði þess. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. „Það kom mér í gegnum unglings- árin,“ segir söngkonan Patti Smith um vinningslagið. Lagið „Heartbreak Hotel“ sem Elvis Presley gerði vinsælt árið 1965 lenti í öðru sæti. Paul McCartney setti lagið í fyrsta sæti. „Það er vegna þess hvernig hann syngur það, eins og hann sé að syngja frá dýpsta helvíti,“ sagði McCartney um lagið. „Hvernig hann mótar hend- ingar og notar bergmálið, það er allt svo fallegt. Tónlist- arlega séð er lagið fullkomið,“ bætti McCartney við. Kvikmyndin A Clockwork Orange eftir leikstjórann Stanley Kubrick var sú kvikmynd sem komst hæst á list- anum, en hún hafnaði í fimmta sæti. Fyrstu tvær mynd- irnar um Guðföðurinn höfnuðu saman í sjötta sæti. Sjón- varpsþátturinn The Prisoner var sá þáttur sem komst hæst á listanum, en hann hafnaði í tíunda sæti. On the Road eftir Jack Kerouac var sú bók sem komst efst á listann, en hún hafnaði í nítjánda sæti. „Þessi listi hefur kostað mikla vinnu,“ segir Allan Jon- es, ritstjóri Uncut. „En það er gaman að íhuga hvaða kvikmyndir hafa haft meiri menningarleg áhrif en til dæmis David Bowie, enda hefur það verið efni í margar umræður. Við stöndum hins vegar uppi með Bob Dylan sem mikilvægasta listræna fyrirbæri síðustu fimm ára- tuga, en ég er hins vegar viss um að margir eru því ósammála,“ segir Jones. Dylan breytti heiminum 10 efstu sætin á lista Uncut: 1. Bob Dylan – „Like a Rolling Stone“ 2. Elvis Presley – „Heartbreak Hotel“ 3. Bítlarnir – „She Loves You“ 4. Rolling Stones – „(I Can’t Get No) Satisfaction“ 5. A Clockwork Orange eftir Stanley Kubrick 6. Guðfaðirinn I og II eftir Francis Ford Coppola 7. David Bowie – The Rise and Fall of Ziggy Stardust 8. Taxi Driver eftir Martin Scorsese 9. Sex Pistols – Never Mind The Bollocks Here’s the Sex Pistols 10. The Prisoner Bob Dylan HIN íslenska múm hefur verið fengin til að leika í heild sinni fyrstu plötu sveitarinnar, Yester- day was Dramatic – Today is Ok í hinu fræga leikhúsi Barbican í London. Tónleikarnir fara fram 17. ágúst næstkomandi en platan mun aukinheldur verða endurútgefin af útgáfufyrirtækinu Morr Music í október. „Þetta er sem sagt hluti af eins- konar tveggja mánaða hátíð sem kallast Don’t Look Back og verður haldin víðsvegar um London,“ segir Örvar Smárason Þóreyjarson, með- limur múm. „Ýmsar hljómsveitir munu þá leika eina klassíska plötu úr sínum „katalóg“ og það er eiginlega þess vegna sem held ég að þetta sé svo- lítill misskilningur að við séum höfð með. Við erum ennþá of miklir krakkar til að eiga klassíska plötu. Þetta er samt mjög spennandi því við höfum eiginlega aldrei spilað þessa plötu í gegn, hvað þá mörg lög af henni á tónleikum.“ Tónleikarnir í Barbican skiptast í tvennt og mun hin bandaríska Cat Power leika eina af sínum plötum fyrir hlé og múm eftir hlé. múm í Barbican Múm er Örvar Þóreyjarson Smárason, Kristín Valtýsdóttir og Gunnar Tynes. Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.