Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UMBREYTA ÚRANI Á NÝ Vestræn ríki eru ósátt við þá ákvörðun Írana að hefja á ný um- breytingu úrans. Segja þau að við það hafi skapast „alvarlegt hættuástand“ og kalla eftir samhentum aðgerðum gegn Írönum. Vilja Bandaríkjamenn draga þá fyrir öryggisráð sameinuðu þjóðanna og beita refsiaðgerðum gegn þeim. Óttast menn að Íranar stefni að framleiðslu kjarnavopna, en þeir hafa staðfastlega neitað því og segjast eingöngu sækjast eftir því að nota kjarnorkuna til framleiðslu raf- magns. Boðað til kosninga í Japan Forsætisráðherra Japans boðaði í gær til nýrra kosninga en þá hafði efri deild þingsins fellt tillögu hans um einkavæðingu póstþjónustunnar í landinu. Var það eitt af meginstefnu- málum hans er hann tók við embætti fyrir fjórum árum. Meiri áhrif á karla en konur Sex hundruð þúsund króna launa- þak Fæðingarorlofssjóðs hefur áhrif á orlofsgreiðslur mun fleiri karla en kvenna skv. upplýsingum á vef Tryggingastofnunar. Þakið hefur haft áhrif á 4% umsækjenda. Nýr búnaðarlagasamningur Ríkissjóður mun greiða 3 milljarða króna á árunum 2006–2010 vegna ráðgjafarþjónustu, búfjárræktar og þróunarverkefna samkvæmt nýjum búnaðarlagasamningi ríkisins og Bændasamtakanna. Samningurinn tekur gildi um næstu áramót og mun stærstur hluti fjárins, rúmlega 1,2 milljarðar, fara til leiðbeiningaþjón- ustu. Kögun lýkur við Link 16 Kögun hefur lokið umfangsmikilli vinnu við hugbúnaðarkerfi fyrir Bandaríkjaher og hyggst afhenda það í lok mánaðarins. Tilkoma kerf- isins getur þýtt að fleiri heræfingar verði haldnar á Íslandi í framtíðinni. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Forystugrein 22 Úr verinu 12 Viðhorf 24 Viðskipti 13 Bréf 25 Erlent 14/15 Minningar 26/29 Akureyri 17 Dagbók 32 Höfuðborgin 17 Víkverji 32 Austurland 18 Velvakandi 33 Suðurnes 17 Staður og stund 33 Landið 19 Menning 35/36 Daglegt líf 20 Ljósvakamiðlar 42 Listir 21 Veður 43 Umræðan 24/25 Staksteinar 43 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %           &         '() * +,,,                   ÁRLEG hreingerning stendur nú yfir í Laugardalslaug en í gær hófust iðnaðarmenn og starfsmenn laug- arinnar handa við að hreinsa laugina og dytta að ýmsu smálegu. Stefán G. Kjartansson, forstöðumaður Laug- ardalslaugar, segir að allt vatn sé tekið úr lauginni á meðan hreinsun stendur yfir en 2.600 rúmmetrar af vatni eru í gömlu lauginni og svipað magn í nýju innilauginni. Það fari hins vegar eftir veðri og vindum hvernig verkinu muni miða áfram. „Við höfum verið að gera við steypuskemmdir og mála en einnig hafa bakkarnir í barnalauginni verið klæddir að nýju,“ segir Stefán en stefnt er á að ljúka framkvæmdum á föstudaginn og opna laugina aftur næstkomandi laugardag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Árleg hreingerning í Laugardalslaug STÖLLURNAR Anna Fríða Björg- vinsdóttir og Ásthildur Helgadóttir hafa nú látið af störfum fyrir forsæt- isráðuneytið en þær hafa starfað þar við góðan orðstír í þrjátíu og þrjú ár. Ásthildur segir þær hafa hafið störf á sama tíma og því gengið gegnum súrt og sætt saman í starf- inu. Þær unnu fyrir átta forsætisráð- herra en sá fyrsti var Ólafur Jó- hannesson. Í kaffisamsæti, sem haldið var þeim vinkonum til heið- urs, benti Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra á að þær hefðu verið lengur starfandi í stjórnarráðinu en hann verið á þingi og væri hann þó með lengstan starfsaldur þar. „Þetta var góður vinnustaður og ég hlakkaði alltaf til að fara í vinn- una,“ segir Ásthildur. Hún segir sér- staklega gott andrúmsloft ríkja í stjórnarráðinu. Mjög gott hafi verið að vinna fyrir ráðherrana alla, sama úr hvaða flokki þeir hafi komið. „Það var alltaf annar blær með nýjum ráðherra, en þetta small alltaf sam- an.“ Unnu fyrir átta forsætis- ráðherra Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon Anna Fríða Björgvinsdóttir (t.v.) og Ásthildur Helgadóttir ásamt Hall- dóri Ásgrímssyni forsætisráðherra. PILTURINN sem lést í vélhjóla- slysi nálægt Reykhólum fyrir ofan Miðhúsabrekku, skömmu eftir mið- nætti aðfaranótt sunnudags, hét Máni Magnússon. Hann var til heim- ilis í Lækjarhjalla 14 í Kópavogi. Máni var fæddur 2. nóvember 1988 og var því 16 ára þegar hann lést. Lést eftir vélhjólaslys HANNES Þórður Hafstein, forseti Eft- irlitsstofnunar EFTA (ESA) og fyrrverandi sendiherra, lést á gjörgæsludeild Land- spítala – háskóla- sjúkrahúss sunnudag- inn 7. ágúst. Hannes fæddist í Reykjavík 14. október 1938, son- ur Ásgerðar Sigurð- ardóttur Hafstein, húsfreyju, og Sigurð- ar Tryggva Hafstein, skrifstofustjóra. Hannes giftist Ragn- heiði Valdimarsdóttur og eiga þau fjögur uppkomin börn. Hannes lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1965. Hann starfaði lengst af í utanríkisþjón- ustunni og hóf störf í sendiráði Ís- lands í Stokkhólmi árið 1965. Hann starfaði eftir það sem varafasta- fulltrúi í Brussel og sem skrifstofu- stjóri í ráðuneytinu en var skipaður sendiherra árið 1981. Árið 1983 varð hann sendiherra gagnvart al- þjóðastofnunum í Genf og jafn- framt ýmsum Afríkuríkjum. Hannes tók við starfi ráðuneytisstjóra árið 1987. Þegar samninga- viðræður hófust milli EFTA og Evrópusam- bandsins sem leiddu til EES-samningsins var hann aðalsamninga- maður Íslands og helg- aði hann sig því starfi eingöngu frá 1990. Hann tók við starfi sendiherra gagnvart Evrópusambandinu í Brussel, í Belgíu, Lúx- emborg og Liechten- stein árið 1991 og lagði þar m.a. grunn að aðild Íslands að Schengen-samningnum. Árið 1997 var Hannes skipaður í Fram- kvæmdastjórn ESA. Hann varð síðar forseti stofnunarinnar og gegndi því starfi til dauðadags. Hannes hlaut fjöldamargar við- urkenningar fyrir störf sín m.a. stórriddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu og heiðursmerki frá breskum, spænskum, finnskum, þýskum, norskum, sænskum, ítölskum og belgískum stjórnvöld- um. Andlát HANNES ÞÓRÐUR HAFSTEIN BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson og Róbert Wessman, forstjóri Acta- vis, hafa ráðist í fasteignaþróunar- verkefni á Suðaustur-Spáni. Áforma þeir að reisa þar hágæðahótel auk 2.500 íbúða og íbúðarhúsa sem ætluð eru fjáðum Evrópubúum sem vilja eiga sér annað heimili á veðursælum stað. Burðarás leggur til fimmtung hlutafjárins Áætluð fjárþörf er um 9,5 millj- arðar íslenskra króna og er eigið fé nærri þriðjungur. Tryggðu þeir félagar kaup á nærri 2 milljónum fermetra lands í upphafi árs á svokölluðu Murcia-svæði á Spáni og Burðarás hefur lagt til fimmtung hlutafjár á móti Björgólfi og Róberti í eignarhaldsfélagið AB Capital, sem mun annast verkefnið. Þá lána Íslandsbanki, Straumur Fjárfestingarbanki og Landsbanki Íslands fé til verkefnisins. Verkefnið er kallað La Primavera og segir í tilkynningu að um sé að ræða eitt metnaðarfyllsta verkefni sinnar tegundar á Spáni og þó víðar væri leitað. Murcia þyki einstaklega fallegur staður í nágrenni við ferða- mannastaðinn La Manga. Landið verði skipulagt með ferðaþjónustu í huga en auk hótel- og íbúðabygginga verði byggðir golfvellir og útivistar- svæði auk íþrótta- og afþreyingar- staða. Unnið verður í nánu samstarfi við yfirvöld og sérfræðinga á Spáni en mikil eftirspurn er sögð á Spáni eftir stórum fasteignaþróunarverkefnum við sjávarsíðuna. Nýlegt mat frá lög- giltu spænsku verðmatsfyrirtæki bendir til þess að markaðsverðmæti landsins sé nú þegar orðið tvöfalt kaupverð þess. Um tvö ár tekur að hanna og teikna mannvirki staðarins en hraði uppbyggingarinnar ræðst af mati sérfræðinga á hvernig há- marka megi arðsemi fjárfestingar- innar. Kaupa stórt orlofshúsaland á Spáni og undirbúa byggingu hágæðahótela fyrir fjáða Evrópubúa Áætluð fjárþörf er 9,5 milljarðar OG fjarskipti hf., sem samanstend- ur af fjarskiptafélaginu Og Voda- fone annars vegar og fjölmiðlunum 365 ljósvaka- og prentmiðlum hins vegar, stefnir á að tvöfalda umsvif sín á næstu 18–24 mánuðum. Að sögn forstjóra félagsins, Ei- ríks S. Jóhannssonar, er markmið- ið að það verði gert bæði með innri vexti og kaupum á nýjum fyrir- tækjum. Dreifikerfi og útsending- ar sjónvarps og útvarps verður flutt í aðgreint félag. Hagnaður af Og fjarskiptum nam 321 milljón króna á fyrri helmingi ársins. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam tæplega 1,5 milljörðum en þar af voru 70% frá fjarskiptahluta fé- lagsins og 30% frá fjölmiðlunum, sem eru m.a. Stöð 2 og Fréttablað- ið. Tekjur á tímabilinu námu alls 7 milljörðum og var rúmur helm- ingur frá fjarskiptum. Mest aukn- ing tekna frá fyrra ári var af prentmiðlum, eða 49%. Stefna á tvöföld- un umsvifanna  Mikil | 13 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.