Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 6
en uppgröftur á svæðinu hefur staðið yfir undanfarin ár og hafa fundist um 20 beinagrindur á svæðinu, þar á meðal stór og mikil bein sem gætu verið bein Egils, þótt það sé ekki víst. Þess má þó geta að í Eglu er sagt frá því að undir altaris- staðnum í kirkjunni hafi fundist mannabein, sem „voru miklu meiri en annarra manna bein“ og segir sagan að menn hafi þóst vita að þar væru bein Egils. Veggur finnst norðanmegin Byock segir að að öðru leyti gangi rannsóknir og uppgröftur vel og í sumar hafi strúktúr kirkjunnar verið skoðaður sér- STÓR gröf hefur fundist í kirkju- stæðinu við Hrísbrú í Mosfellsdal og er hugsanlegt að um gröf Eg- ils Skallagrímssonar sé að ræða. Gröfin var undir gólfi kórsins í kirkjunni og í henni hafa fundist leifar af timbri. Jesse Byock, sem stýrir upp- greftrinum við Hrísbrú, segir ljóst að timburleifarnar séu úr líkkistu sem þar hafi legið og miðað við stærð grafarinnar sé líkkistan sú stærsta sem fundist hafi á svæðinu. Ýmislegt bendir til þess að þetta hafi verið gröf Egils, þó að vitaskuld sé ekki hægt að full- yrða það. Fyrir það fyrsta er talið að gröfin sé frá því í kringum árið 1000 og ef rétt reynist fer sú tímasetning ágætlega saman við frásögn Egilssögu. Þar er talað um að Egill hafi verið færður úr haugi við Tjaldanes og að kirkj- unni, sem var að öllum líkindum byggð skömmu eftir að Íslend- ingar tóku kristni. Stór kista Í öðru lagi benda allar lýsingar Egilssögu til þess að Egill hafi verið mun hærri en flestir sam- tímamenn sínir og er hann meðal annars sagður „vel í vexti og hverjum manni hærri“. Miðað við stærð grafarinnar er talið að lík- kistan hafi verið meira en tveggja metra löng. Byock er þó ekki tilbúinn að fullyrða að þarna hafi Egill legið. „Maður getur aldrei sagt,“ segir hann og bendir á að ekki sé hægt að segja að allt sem stend- ur í Egilssögu sé rétt. Þegar grafarstæðið fannst kom í ljós að grafin hafði verið hola í moldina sem lá yfir gröfinni. Byock segist ekki vita af hverju holan hafi verið grafin en líklegt sé að einhver hafi viljað komast að líkkistunni. Holan var hins vegar það lítil að ekki hefði verið hægt að ná kistunni upp um hana. Egill færður eftir andlát sitt Í Egilssögu er sagt frá því að Egill Skallagrímsson hafi eytt síðustu æviárum sínum í Mos- fellsdal en talið er að hann hafi látist um árið 990. Hann var fyrst um sinn heygður í Tjalda- nesi en Þórdís, bróðurdóttir hans, lét síðar flytja hann að kirkjunni í Mosfelli, sem Grímur Svertingsson, maður hennar, lét reisa. Engin bein fundust í grafar- stæðinu, sem fannst fyrir helgi, staklega. Þá hafi verið unnið að því að grafa upp veggstæði sem fannst norðanmegin við kirkjuna. Hugmyndir eru uppi um að gera líkan að kirkjunni í fullri stærð og segir Byock að arki- tektar og fleiri muni koma að þeirri vinnu. „Það er samt bara hugmynd,“ segir hann. Þegar Byock er síðan að lokum spurður þeirrar spurningar sem Íslendingar allir vilja vita svarið við, nefnilega hvar silfur Egils sé niðurkomið, svarar hann hlæj- andi: „Ég er með það í vas- anum!“ Hann viðurkennir þó fljótt að silfrið sé enn ófundið og að senni- lega sé lítil von til að það finnist. Gröf Egils Skallagríms- sonar fundin? Stór gröf fannst við fornleifaupp- gröft undir gólfi kórsins í kirkju- stæðinu við Hrísbrú í Mosfellsdal Morgunblaðið/Þorkell Hópur ungmenna vinnur við að grafa upp veggstæði skammt frá kirkjunni. Kirkjustæðið við Hrísbrú. Fremst á myndinni má sjá gröfina þar sem hugs- anlegt er talið að Egill hafi verið grafinn. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is 6 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bjóðum frábært tilboð til Costa del Sol í ágúst. Njóttu lífsins á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga í sólinni. Þú bókar og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú býrð Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Costa del Sol 24. eða 31. ágúst frá kr. 29.990 Síðustu sætin Verð kr. 29.990 í viku Verð kr. 39.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 24. og 31. ágúst í 1 eða 2 vikur. Verð kr. 39.990 í viku Verð kr. 49.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 24. og 31. ágúst í 1 eða 2 vikur. Munið Mastercard ferðaávísunina LAUGAVEGUR verður lokaður fyrir bílaumferð frá Snorrabraut að Bar- ónsstíg í þrjá mánuði frá 8. ágúst og fram til 7. nóvember. Þór Gunnarsson, starfsmaður framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar, segir að endurnýja eigi holræsalagn- ir, vatnslagnir og síma og rafmagn eftir þörfum. „Þetta er gríðarlega mikil vinna enda þarf að rífa allt upp þarna,“ segir Þór en bætir við að ákvörðun um tímasetningu hafi verið tekin í samráði við verslunareigendur og aðra hagmunaaðila á svæðinu. Þór segir að gangandi vegfarendur ættu eftir sem áður að komast leiðar sinnar þótt auðvitað verði þeir fyrir truflunum vegna vinnunnar. „Það verða settar göngubrýr og gönguleið- ir merktar en auðvitað truflast allt þarna meðan á vinnu stendur,“ segir Þór. Andlitslyfting Ásgeir Bolli Kristinsson, kaupmað- ur á Laugavegi, er ánægður með fyr- irhugaðar framkvæmdir þótt hann viti að þetta verði erfitt. Ásgeir er forstjóri og annar eigenda NTC sem á m.a. verslunina Sautján. „Við vitum að þetta verður erfitt meðan á því stendur en hlökkum mikið til að fá þessa andlitslyftingu,“ segir Ásgeir og bætir við að með nýjum bílastæð- um á Stjörnubíósreitnum skapist ný verslunartækifæri. „Fyrir okkur hefði verið betra að ráðist hefði verið í framkvæmdirnar í janúar en þá er erfiðara að vinna þetta og tekur lengri tíma. Við vonum auðvitað að verktakinn reyni að gera þetta eins hratt og vel og hægt er,“ segir Ás- geir. Tímabund- in lokun á Laugavegi Morgunblaðið/Sverrir Laugavegur verður lokaður í 3 mán- uði frá Snorrabraut að Barónsstíg. SVEITARFÉLÖGUM á landinu mun fækka um 46 ef sameining sveitarfélaga verður samþykkt í öll- um sveitarfélögunum þegar kosið verður í haust, og gætu sveitar- félögin á landinu því orðið 47 í kjöl- far kosninganna. Gengið verður til atkvæða 8. október nk., en utankjörstaðarat- kvæðagreiðsla hefst laugardaginn 13. ágúst hjá sýslumönnum, sendi- ráðum, fastanefndum hjá alþjóða- stofnunum og ræðismönnum Ís- lands, að því er fram kemur í tilkynningu frá félagsmálaráðu- neytinu. Í dag eru sveitarfélögin 101 tals- ins, en þegar er búið að samþykkja sameiningartillögur í 12 sveitar- félögum, sem taka munu gildi í maí á næsta ári. Þá verða sveitarfélögin 92, en ef allar sameiningartillög- urnar 16 sem kosið verður um í haust í alls 62 sveitarfélögum verða samþykktar gætu sveitarfélögin á landinu orðið 47 í kjölfar sveitar- stjórnarkosninganna næsta vor. Stærsta sameiningin fyrir norðan Meðal þess sem verður kosið um er sameining Hafnarfjarðarkaup- staðar og Vatnsleysustrandar- hrepps. Einnig verður kosið um sameiningu Reykjanesbæjar, Sand- gerðisbæjar og Garðs. Stærsta sameiningin gæti þó orðið á Norð- urlandi þar sem kosið verður um sameiningu Siglufjarðarkaupstaðar, Akureyrarkaupstaðar, Ólafsfjarðar- bæjar, Dalvíkurbyggðar, Arnarnes- hrepps, Eyjafjarðarsveitar, Hörgár- byggðar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps. Kosið verður um sameiningu í 62 sveitarfélögum 8. október Sveitarfélögum gæti fækkað um 46 LÖGREGLAN í Kópavogi rannsak- ar nú hver gæti hafa reynt að lokka drengi út úr Smáralind með lof- orðum um sælgæti. Aðferðin sem notuð var fólst í því að karlmaður hringdi í símanúmer í símasjálfsala í Smáralindinni á föstudag og beið þess að einhver nálægur svaraði af tilviljun. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar skellti maðurinn alltaf á ef einhver fullorðinn svaraði en þegar börn svöruðu fór hann að tala við þau og reyna að lokka þau út fyrir. Fjórir 10 ára drengir reyndust hafa verið nálægt símanum þegar maðurinn hringdi og tóku upp tólið til að aðgæta hver væri á línunni. Hóf þá maðurinn að reyna að fá þá út fyrir en enginn þeirra lét þó til leiðast. Lögreglan hefur verið að tala við foreldra og börn til að upplýsa mál- ið. Reyndi að lokka börn út úr Smáralind  Meira á mbl.is/itarefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.