Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Discovery lendir í dag NASA, bandaríska geimvís- indastofnunin, ákvað í gær að fresta lendingu geimferjunnar Discovery um einn dag slæms veðurs á Kanaveralhöfða. Áð- ur hafði lendingunni verið frestað um nokkrar klukku- stundir af sömu sökum. Discovery á að lenda í Kennedy-geimstöðinni á Flór- ída en ef það reynist ekki unnt getur hún lent í Kaliforníu eða Nýju Mexíkó. Á ýmsu hefur gengið hjá áhöfninni í ferðinni og einkum vegna ótta við, að ferjan hefði orðið fyrir skemmdum af ein- angrunarefni, sem féll af elds- neytistanki í flugtaki. Hjá NASA er fullyrt, að ekkert sé að óttast í þeim efnum en sagt er, að þetta allt og tafirnar á heimkomu sé farið að taka dá- lítið á taugarnar hjá áhöfn- inni. Banna fiður og fugla HVATT hefur verið til þess innan Evrópusambandsins, að allur innflutningur á fiðri og lifandi fugli frá Rússlandi og Kasakastan verði bannaður. Er það vegna þess, að fugla- flensa hefur komið upp í báð- um löndunum. Eru þau nú komin á bannlista með níu As- íuríkjum en þaðan er allur inn- flutningur fuglakyns bann- aður. Rússland og Kasakstan flytja hins vegar engar fugla- afurðir út nema ef vera skyldi fiður. Sprakk fyrir mistök LÖGREGLAN í Istanbul í Tyrklandi sagði í gær, að sprenging, sem varð í fjöl- býlishúsi í borginni í fyrradag, hefði stafað af sprengju, sem sprungið hefði fyrir mistök í höndum tveggja manna. Týndu þeir lífi og sex aðrir særðust. Talið er, að menn- irnir hafi verið að koma sprengjunni saman þegar hún sprakk og gefur lögreglan í skyn, að þeir hafi haft einhver tengsl við Kúrdíska verka- mannaflokkinn, sem lengi hef- ur barist fyrir sjálfstæði Kúrda í Austur-Tyrklandi. Al- Qaeda-hryðjuverkasamtökin og vinstrisinnaðir öfgamenn hafa hins vegar einnig staðið fyrir sprengjutilræðum í Ist- anbul. Vildu kjarnavopn JOSE Sarney, fyrrverandi for- seti Brasilíu, hefur upplýst, að herfor- ingjastjórn- in, sem stjórnaði landinu í tvo áratugi, hafi reynt að koma sér upp kjarna- vopnum. Segir hann, að við þetta hafi verið hætt þegar lýðræð- islega kjörin stjórn tók við völdum í landinu 1985. Herforingjastjórnin, sem réð ríkjum í Brasilíu frá 1964 til 1985, var lengi grunuð um þetta en þetta í fyrsta sinn sem á því fæst staðfesting. Segir Sarney, sem tók við af herfor- ingjunum, að herinn hafi verið búinn að grafa mikla gryfju í ríkinu Para vegna hugs- anlegra kjarnorkutilrauna en hann skipaði svo fyrir, að hún skyldi fyllt. Talsmaður Brasilíustjórnar vildi ekkert um málið segja. Jose Sarney LÖGREGLA og lögfræðingar í Bret- landi kanna nú grundvöll þess að hægt verði að kæra íslamska öfga- menn, sem boða hatur og ofbeldi, fyr- ir landráð. BBC greindi frá því í gær að yfirmaður hryðjuverkavarna hjá breska ríkissaksóknaraembættinu myndi á næstu dögum halda fundi um málið með fulltrúum frá Scotland Yard. Búist er við því að þrír menn verði einkum til skoðunar í þessum efnum, þeir Omar Bakri Mohammed, sýr- lenskur klerkur og leiðtogi hópsins al-Muhajiroun, sem hefur bækistöð í London; Abu Uzair, sem tengist al- Muhajiroun, og Abu Izzadeen, tals- maður hópsins al-Ghurabaa. Óljóst hvort næg sönnunar- gögn séu fyrir hendi Talsmaður saksóknaraembætt- isins sagði í samtali við BBC að óljóst væri á þessu stigi málsins hvort næg sönnunargögn væru fyrir hendi til að hægt yrði að leggja fram umræddar ákærur gegn mönnunum. Embætt- ismenn myndu fara yfir það sem haft hefur verið eftir þeim í prent- og ljós- vakamiðlum auk þess sem ræður og predikanir sem þeir hafa haldið yrðu skoðaðar. Þær ákærur sem koma til greina í málinu snúa að landráðum og því að hvetja aðra til að fremja landráð. Réttarhöld vegna ásakana um landráð hafa ekki verið haldin í Bretlandi frá því árið 1940. Carlile lávarður, sem fer fyrir end- urskoðun á hryðjuverkalöggjöf landsins fyrir hönd stjórnvalda, sagði í samtali við BBC, að það kæmi sér á óvart ef kært yrði fyrir landráð nú. „Ég efast um að það sé til lögmaður á lífi og starfandi sem hefur tekið nokkurn þátt í máli þar sem landráð koma við sögu,“ sagði Carlile og bætti því við að landráð ættu yfirleitt við þegar um stríð milli þjóða væri að ræða. Carlile sagði að í tilfellunum sem um ræðir væri hægt að nota nú- gildandi lög sem varða það að ráða aðra eða hvetja þá til að fremja morð. Sagði að hryðjuverkin mundu „vekja fólk af værum blundi“ Þremenningarnir sem eru nú til sérstakrar skoðunar, hafa allir kom- ist í fréttir fyrir ummæli sín sem benda til stuðnings við hryðjuverka- hópa. Haft var eftir Omar Bakri Mo- hammed að hann myndi ekki láta lög- reglu vita ef hann vissi af því að múslímskir hryðjuverkamenn hygð- ust gera árásir í Bretlandi. Þegar sjálfsmorðsárásirnar voru gerðar í London 7. júlí sagði Abu Izzadeen í viðtali við fréttastofu BBC2, að þær væru „aðgerðir stríðsmanna“ og myndu knýja fólk til að „vakna af værum blundi“. Abu Uzair sagði, einnig í samtali við BBC2, að árás- irnar í Bandaríkjunum 11. september 2001 hefðu verið „stórkostlegar“. Uzair sagði líka að múslímar hefðu áður talið að í Bretlandi ríkti eins- konar „sátt um öryggi“ sem þýddi að þeir gripu ekki til ofbeldis þar, enda væri þeim ekki ógnað þar. „[En] við lifum ekki lengur í friði við ykkur, sem þýðir að sú sátt sem ríkti um ör- yggi, er ekki lengur til,“ sagði hann. Þrír grunaðir sprengjumenn ákærðir fyrir morðtilraun Þrír af mönnunum fjórum sem taldir eru hafa reynt að fremja sprengjuárásir í lestum og stræt- isvagni í London 21. júlí, komu í gær fyrir rétt. Þeir Muktar Said Ibrahim, 27 ára, Ramzi Mohammed, 23 ára, og Yassin Hassan Omar, 24 ára, eru ákærðir fyrir morðtilraun, samsæri um að fremja morð, að hafa haft und- ir höndum eða að hafa búið til sprengiefni, og samsæri um að nota sprengiefni. Gæsluvarðhald yfir þre- menningunum hefur verið framlengt til 14. nóvember og eiga þeir yfir höfði sér ævilangt fangelsi verði þeir sakfelldir. Þegar ákærurnar voru lesnar mönnunum við dóminn í gær játuðu þeir hvorki né neituðu sök. Fjórði meinti sprengjumaðurinn, sem er ýmist þekktur undir nafninu Osman Hussain eða Hamdi Issac, er enn í haldi í Róm þar sem hann var handtekinn, en bresk stjórnvöld hafa farið fram á framsal hans. Gætu verið ákærðir fyrir landráð AP Lögregla leitar í bílum fyrir utan dómshúsið þar sem mennirnir, sem grunaðir eru um að hafa reynt að gera árásir 21. júlí í London, komu fyrir rétt í gær. Omar Bakri Mohammed GÍFURLEGUR sandstormur lagðist yfir Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær og var skyggnið ekki nema nokkrir metrar. Olli sandkófið mörgu fólki öndunarerfiðleikum, einkum öldnu og sjúku, og var mikill erill á sjúkrahúsum borgarinnar af þeim sökum. Blaðasalarnir, með grímu fyrir vitum, létu ástandið þó ekki aftra sér en hins vegar var fyrirhuguðum fundi í stjórnarskrárnefnd þingsins aflýst. Stefnt er að því, að drög að nýrri stjórnarskrá liggi fyrir 15. ágúst en enn er deilt um fjölmörg mikilvæg mál. Kæfandi rykmökk- ur yfir Bagdad AP Tókýó. AP, AFP. | Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, boðaði í gær til nýrra kosninga en þá hafði efri deild þingsins fellt tillögu hans um einkavæðingu póstþjónustunnar í landinu. Var það eitt af megin- stefnumálum hans er hann tók við embætti fyrir fjórum árum. Koizumi hafði lagt allt undir í þeirri fyrirætlan sinni að skipta upp póstþjónustunni, sem er um leið í raun stærsti banki í heimi, og batt hann vonir við, að salan myndi verða til að hleypa nýju lífi í japanskt efna- hagslíf. Þegar til kom hlupu hins vegar 30 flokksbræður hans undan merkjum og var tillagan felld með 125 atkvæðum gegn 108. Einn ráðherra ríkisstjórnarinnar sagði af sér eftir ákvörðun Koizumis um að boða til kosninga en margir óttast, að stjórnarflokkurinn, Frjáls- lyndi demókrataflokkurinn, muni ekki ríða feitum hesti frá þeim. Sumir japanskir fjölmiðlar full- yrða, að Koizumi ætli sér að koma í veg fyrir, að liðhlauparnir fái að bjóða sig fram í kosningunum, sem verða 11. september, en hann hafði margsagt, að hann liti á atkvæða- greiðslu um sölu póstsins sem traustsyfirlýsingu sinna eigin flokksmanna við sig. Í Japan er pósturinn jafnframt banki og situr hann uppi með gífurlegt fé. Vill Koizumi brjóta stofnunina upp í fjórar deildir, þar á meðal banka, í því skyni að auka samkeppnina. Einkavæðingin myndi hins vegar vafalaust hafa í för með sér mikla fækkun starfsmanna en þeir eru nú 270.000 og eru sagðir geta ráðið miklu um atkvæði einnar milljónar manna. Hafa þeir löngum stutt Frjálslynda demókrataflokkinn en búast má við, að nú verði annað uppi á teningnum. Helsti stjórnarandstöðuflokkur- inn, Demókrataflokkurinn, hefur verið að sækja í sig veðrið í síðustu kosningum og leiðtogi hans, Kats- uya Okada, segist bjartsýnn á að fella stjórn Koizumis í kosningunum í næsta mánuði. Eins og á stendur boðar þessi ólga í japönskum stjórn- málum þó ekkert gott fyrir umbæt- ur í efnahagslífinu, sem flestir telja löngu tímabærar. Koizumi boðar til nýrra þingkosninga í Japan Tillaga hans um að einkavæða póst- þjónustuna felld í efri deild þingsins AP Koizumi, forsætisráðherra Japans, er hann skýrði frá því á blaðamanna- fundi, að hann hefði boðað til kosninga 11. september næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.