Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristján Guð-mundsson fædd- ist á Akranesi 7. ágúst 1929. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudag- inn 29. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru þau Guðmund- ur Þórarinsson, f. 11.5. 1893, d. 28.9. 1986, og Þórhildur Kristjánsdóttir, f. 3.8. 1898, d. 17.10. 1966. Systur Krist- jáns eru Lydia, f. 17.10, 1920, d. maí 1993, Jensína, f. 9.11. 1925, og Hrefna, f. 3.1. 1928. Kristján kvæntist í ágústmán- uði árið 1951 Önnu Friðleifsdótt- ur, f. 29.10. 1931, d. 8.5. 2000, þau skildu árið 1967. Þau eiga fjóra syni: 1) Friðleifur, f. 31.1. 1953, maki Borghildur Jónsdóttir, f. 6.3. 1953. Börn þeirra eru: a) Anna Guðný, f. 8.10. 1975, maki Sigur- björn J. Þórmundsson, f. 17.4. 1965, börn þeirra Ísidór Freyr, f. 8.5. 1998, og Karen Ýr, f. 15.1. 2002. b) Guðmundur Þór, f. 29.11. 1980. 2) Guðmundur Þór, f. 26.3. 1955, d. 30.7. 1978. 3) Daði, f. 8.2. 1959, maki Brynja Harðardóttir, f. 23.3. 1964, börn þeirra eru Ragn- heiður Rún, f. 2.6. 1990, Steinunn María, f. 30.5. 1992, og Kristján Orri, f. 21.8. 1997. 4) Víðir, f. 17.1. 1964, maki Sirpa Marita Must- onen, f. 25.12. 1966. Börn Víðis eru Sunna Rós, f. 11.6. 1981, Jóhanna Björk, f. 17.12. 1992, Ynja Sól, f. 13.7. 1997, Ulva Lydia, f. 20.7. 1998, og Ýmir Eldur, f. 7.1. 2004. Kristján kvæntist Guðrúnu Danelíusdóttur og áttu þau 16 ára sambúð að baki er hann lést. Guð- rún á átta uppkomin börn. Kristján fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur átta ára að aldri. Hann lauk námi frá Versl- unarskóla Íslands og starfaði sem tollvörður í tæp 20 ár. Þá fór Kristján í siglingar og var á Foss- unum í nokkur ár. Síðustu starfs- árin var hann verkstjóri hjá Hita- veitu Reykjavíkur. Kristján verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Í dag verður jarðsettur eiginmað- ur móður minnar Kristján Guð- mundsson eða Kiddi eins og hann var kallaður. Kiddi kom mér fyrir sjónir sem hæglátur, barngóður og ljúfur maður. Kynni mín af honum hófust þegar hann og móðir mín Guðrún Danelíusdóttir hófu búskap fyrir nokkrum árum. Hann var sögu- maður góður enda víða komið sem vélstjóri á millilandaskipum. Tónlist- armaður var hann og ég man hvað hann kom mér á óvart þegar hann settist við píanóið heima hjá mér og spilaði djass eins og fagmaður. Hann gerði sjálfur lítið úr þessu, enda kannaðist hann ekki við að vera hljóðfæraleikari, sem hann þó var. Börnum mínum og reyndar okkur öllum reyndist hann vel og hafði mik- inn áhuga á því sem börnin voru að gera og hvernig þeim vegnaði bæði í leik og námi. En nú er komið að leið- arlokum eftir stutta glímu við illvíg- an sjúkdóm og við kveðjum góðan dreng og þökkum fyrir þann tíma sem hann var með okkur. Ég veit að söknuður mömmu er mikill enda voru þau miklir vinir en við stöndum við bakið á henni á þessum erfiða tíma. Sonum hans og fjölskyldum þeirra sendi ég samúðarkveðjur. Þetta fallega ljóð eftir vin minn Kristin Kristjánsson geri ég að mín- um lokaorðum og megi góður guð geyma ljúfan dreng: Þýtur í þekju, þungt stynur nóttin. Þeysir dauðinn um lífvana hjarn. Hann veit að allt er búið, það veit þetta sofandi barn. KRISTJÁN GUÐMUNDSSON ✝ Gunnar Jó-hannsson fædd- ist á Iðu í Biskups- tungum 18. ágúst 1920. Hann lést á elliheimilinu Garðvangi í Garðin- um 31. júlí síðastlið- inn. Foreldrar Gunnars voru Jó- hann Kristinn Guð- mundsson bóndi á Iðu, f. 25. septem- ber 1889, d. 9. mars 1928, og kona hans Bríet Þórólfsdóttir, f. 5. október 1891, d. 28. febrúar 1970. Systkini Gunnars eru: Ámundi, látinn, Ingólfur, d. 20. júní sl., Sigurlaug og Unnur, lát- in. Eftir að faðir þeirra lést, að- eins 39 ára að aldri, kom á heim- ilið Loftur Bjarnason frá Glóru í Gnúpverjahreppi, f. 12. septem- ber 1891, d. 19. september 1969 og var hann ekkjunni og börn- unum stoð og stytta. Loftur bjó á Iðu til dauðadags. Hinn 2. ágúst 1945 kvæntist Gunnar Valgerði Baldvinsdóttur, f. á Hópi í Grindavík 17. október 1920, d. 28. janúar 1991. Foreldrar Valgerðar voru Baldvin Jóns- son bóndi og útgerð- armaður á Hópi og Loftsína Guðrún Pálsdóttir húsfreyja. Gunnar og Valgerð- ur hófu sinn búskap á Baldursgötu 6 í Keflavík hjá foreldr- um Valgerðar. Einn- ig bjuggu þau á Sunnubraut 7 og Sunnubraut 4 í Keflavík, bæði tví- býlishús sem Gunnar byggði sjálfur. Þau bjuggu að lokum á Blikabraut 10 í sama bæ. Börn Gunnar og Val- gerðar eru: 1) Hildur, maki Vil- hjálmur Skarphéðinsson. Börn þeirra eru Erla Björk og Baldvin Rúnar. 2) Jóhann, maki Anna María Aðalsteinsdóttir. Börn þeirra eru Aðalsteinn og Gerður Beta. 3) Guðmundur, sambýlis- kona Gróa Hávarðardóttir. Dæt- ur Guðmundar eru Linda María, Guðný Birna og Sveindís Svana. 4) Guðrún Bríet, maki Sigurþór Kristjánsson d. 15. september 1996. Synir þeirra eru Gunnar Rúnar og Brynjar. 5) Kolbrún, Elsku pabbi, við rifjum upp margar minningar nú þegar þú ert kominn til mömmu og Badda bróður. Flestar tengjast þær ferðum sem farnar voru austur á Iðu þar sem þú ólst upp. Ferðir í hvítum Taunus station á ómalbikuðum og rykugum vegum. Flestar helgar að sumri til var farið austur í Biskupstungurnar, þegar við vorum litlar stelpur og mesta sportið var að fá að liggja til skiptis í skottinu á stationinum, eitthvað sem gengi ekki á vegum landsins í dag. Tilgangur ferðaranna var að fara í bústaðinn sem byrjað var að byggja þegar við vorum 5 og 6 ára gamlar. Hafðir mikla þú ánægju af þessum ferðum, og þótti gott að komast í sveit- GUNNAR JÓHANNSSON ÞAU óvæntu tíðindi urðu í opn- um flokki Evrópukeppni landsliða, sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð, að liðið sem sigraði var ekki frá A- Evrópu. Þó að hollenska liðið hafi haft á að skipa fyrrverandi Rússa og fyrrverandi Bosníumanni var sigur þess sætur ef ekki bara fyrir þá sök að með því var rofin sú hefð að land úr austri bæri sigur úr být- um. Gamla brýnið Jan Timman (2625) tefldi á fjórða borði og sýndi gamalkunna takta, hann vann þrjár skákir og gerði fjögur jafntefli. Hróksmaðurinn baráttuglaði Ivan Sokolov (2691) telfdi einnig af miklu öryggi á öðru borði en hann vann tvær skákir og gerði sex jafntefli. Þessi örugga og trausta tafl- mennska þeirra félaga sem og ann- arra í liði Hollands tryggði því verð- skuldaðan sigur en alls fékk liðið 15 stig af 18 mögulegum. Lokastaða efstu liða varð annars þessi: 1. Holland 15 stig af 18 mögu- legum ( 22 vinninga) 2. Ísrael 14 stig (23½ v.) 3. Frakkland 13 stig (21½ v.) 4. Grikkland 13 stig ( 21½ v.) 5. Úkraína 12 stig (23½ v.) Franska liðið fékk bronsið í keppninni þar eð við nánari stigaút- reikninga stóð það betur að vígi en gríska liðið. Alls tóku 40 þjóðir þátt í keppn- inni og lenti íslenska liðið í 30. sæti með 7 stig og 16½ vinning en fyr- irfram mátti búast að það myndi lenda í 27. sæti. Hannes Hlífar Stef- ánsson og Stefán Kristjánsson hækka á skákstigum fyrir frammi- stöðu sína á meðan Bragi Þorfinns- son og Arnar E. Gunnarsson lækka á skákstigum. Að öðru leyti varð frammistaða þeirra eftirfarandi: 1. borð: Hannes Hlífar Stefáns- son (2579) 5 vinninga af 9 mögu- legum 2. borð: Stefán Kristjánsson (2459) 4½ v. 3. borð: Bragi Þorfinnsson (2448) 3½ v. 4. borð: Arnar E. Gunnarsson (2438) 3½ v. Hannes tapaði fyrir Viktor Kortsnoj (2613) en lagði að velli stórmeistarana Vladimir Georgiev (2532) og Miguel Illescas (2624). Skákin gegn þeim síðarnefnda varð eftirfarandi. Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson (2579) Svart: Miguel Illescas (2624) 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Da4+ Óvenjulegur leikur sem var skynsamlegt gegn spænska byrj- unarsérfræðingnum. 7. …c6 8. Da3 O-O 9. Bg5 Dc7 10. Bd3 c5 11. Re2 b6 12. O-O e6 13. dxc5 bxc5 Upp er komin staða sem virðist í jafnvægi en Hannesi líkar betur en andstæðingi í stöðum þar sem þarf að leika litlum leikjum er bæta stöðuna hægt og sígandi. Sjá stöðumynd1. 14. Hab1 Rd7 15. Bb5 Bb7 16. f3 Re5 17. Rg3 c4 18. Be7 a6 19. Ba4 Rd3 20. Bd6 Dc8 21. Bc2 Hd8 Það virðist sem svartur hafi virka stöðu en með næsta leik hvíts virð- ist hann vinna peð án þess að svart- ur fái nægar bætur fyrir. Sjá stöðumynd 2. 22. Bxd3!? cxd3 23. Hfd1 e5? Hér hefði 23. …Bc6! verið skarp- ari leikur til að svara 24. Hxd3 með 24. …Bb5. Eftir textaleikinn nær svartur ekki að fá viðunandi bætur fyrir peðið fyrir utan að hann lokar löngu skálínunni sem svartreiti biskupinn hans réð yfir og veikir d5 reitinn í stöðu sinni. 24. Hxd3 Dc4 25. Hdd1 Bc6 26. Rf1! Da4 27. Re3 h5 28. c4 Hd7 29. Rd5 Had8 30. Be7 He8 31. Bb4 a5 32. Bc5 Dxc4 Hvítur tókst að nýta sér veilurn- ar í svörtu stöðunni og með þessum leik leyfir svartur hvítum að vinna skiptamun. Sjá stöðumynd 3. 33. Re7+ Hexe7 34. Bxe7 Hxd1+ 35. Hxd1 De2 36. Ha1! Svartur hefur ekki nægar bætur fyrir peðið og vann Hannes skákina tuttugu leikjum síðar. 36. …f5 37. Dd6 De3+ 38. Kh1 Dc3 39. Hd1 Kh7 40. exf5 gxf5 41. Dc5 Dxc5 42. Bxc5 Bb5 43. Kg1 Bc4 44. a3 a4 45. Hd6 Kg8 46. Hd7 Bh6 47. Kf2 Bc1 48. Ha7 Bb3 49. He7 Bb2 50. Kg3 Bd5 51. Ha7 Bb3 52. Kh4 e4 53. Kxh5 e3 54. Kg6 Kh8 55. Hh7+ Kg8 56. Hb7 Kh8 57. Hb8+ og svartur gafst upp. Í kvennaflokki tóku 26 lið þátt og varð pólska liðið hlutskarpast með 15 stig en Georgía varð í öðru sæti með 14 stig og það rússneska í því þriðja með 12 stig. Íslenska liðið í kvennaflokki lenti í 25. sæti en fyr- irfram mátti búast að það lenti í 23. sæti. Allar íslensku konurnar tapa skákstigum vegna keppninnar en frammistaða þeirra varð eftirfar- andi: 1. borð: Lenka Ptácníková (2204) 2 vinningar 2. borð: Guðlaug Þorsteinsdóttir (2132) 2 v. 3. borð: Lilja Grétarsdóttir (2046) 1 v. 4. borð: Sigurlaug Friðþjófsdótt- ir (1963) 2 v. Skáklandnámið á Grænlandi heldur áfram Skákfélagið Hrókurinn stendur að skákhátíð á Grænlandi dagana 9.–15. ágúst í samvinnu við Flug- félag Íslands, Barnaheill á Ísland og fleiri aðila. Skákhátíðin verður í Tasiilag á austurströnd Grænlands og verður hápunktur hennar Græn- landsmótið 2005 sem fram fer helgina 13. og 14. ágúst, alþjóðlegt atskákmót þar sem stórmeistarar, áhugamenn og börn frá Íslandi og Grænlandi tefla. Flugfélag Íslands býður skákáhugamönnum gott til- boð í tilefni hátíðarinnar en fyrir kr. 29.900 býðst flug til Kulusuk og þyrluferð þaðan til Tasiilag. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Hróksins, www.hrokurinn.is, og hjá Kristian Guttesen í síma 6984 222. Holland og Pólland sigurvegarar á EM SKÁK Gautaborg í Svíþjóð EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA 2005 31. júlí – 7. ágúst 2005 HELGI ÁSS GRÉTARSSON daggi@internet.is Frá viðureign Íslands og Rússlands á EM. Stöðumynd 3. Stöðumynd 2.Stöðumynd 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.