Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF ÞEGAR gengið var inn í salinn á Hótel Glym brá fyrir vit blaðamanns dásamlegum ávaxta- og kryddilmi. Salurinn sjálfur var skreyttur með kertum, skrautlegum dúkum og rósablöðum og sígaunatónlist ómaði um hann allan. Fyrir mig var borinn ástardrykkur Tatönju og sígaunate- kaka, hvorttveggja var ljúffengt en ekki skal fullyrt um áhrif eða gagn- semi ástardrykkjarins. Um sextíu manns voru saman komin þarna til að hlusta á og sjá Zhenu sígaunakonu. Zhena er fín- gerð og myndarleg kona um þrítugt sem geislar af orku og hamingju. Te- boðið hófst á því að hún sagði sögu sína sem er í stuttu máli þessi: Árið 1999 var hún fátækur listamaður með nýfæddan son sinn sem var veikur. Hún þurfti að finna leið til að nálgast fé og einn daginn fékk hún svarið, að nota arfleið sína til að framleiða sígaunate. Hún gerði sínar eigin teblöndur og seldi te úr tevagni en svo fór hún að hugsa stærra, lærði hvernig te er framleitt og fann sína eigin innflytjendur. Zhena vill færa fólki hamingju í gegnum tein og hún trúir því staðfastlega að peningar komi í kjölfar hug- sjóna. Eftir þessa sögustund komu nokkrar ungar stúlkur og sýndu magadans en Zhena sjálf er mjög fær í magadansi og segir að í gegnum hann komist konur í snertingu við kvenleikann og verði öruggari með líkama sinn. Dansmeyjarnar fengu alla til liðs við sig og kenndu gestum nokkur vel valin maga- dans- spor. Gyðjur í briminu Eftir skipulagða dagskrá náði ég að króa Zhenu af í ein- um hornsófanum og byrjaði á að spyrja hana hvernig henni hefði fundist teboðið fara fram. „Ynd- islega. Allir eru hlýir og opnir, teið hefur þann eiginleika að fólk slakar á og verð- ur vinalegra.“ Hún er búin að vera á Íslandi í fjóra daga en henni finnst hún hafa ver- ið lengur því að dagur og nótt renna saman í eitt í sumarbirtunni. „Ísland er svo miklu meira en ég vænti að það yrði, náttúran og fólkið er svo óspillt, allir eru vinalegir og mér hef- ur alls staðar verið vel tekið. Ég er þegar byrjuð að hugsa um hvenær ég get komið aftur og þá með fjöl- skyldunni.“ Í stuttri dvöl sinni á landinu hefur Zhena aðallega verið að hitta fólk og ræða tein og hugmyndafræðina á bak við þau. Henni finnst Íslend- ingar jákvæðir og bjartsýnir og Ís- lenskar konur mjög sterkar og sjálf- stæðar. Auk fyrirlestra og teboða ferðaðist hún aðeins um landið og fór meðal annars á Snæfellsnesið þar sem hún komst í snertingu við gyðj- urnar í brimöldunni. Réttlátar viðskiptaaðferðir Zhena er ættuð frá Úkraínu. Afi hennar og amma voru sirkus- sígaunar þar en fluttu til Ameríku árið 1949 og bjuggu í Kaliforníu ein- mitt þar sem Zhena býr í dag. Zhena stofnaði fyrirtæki sitt „Zhena’s Gypsy Tea“ árið 2000. Það hefur stækkað hratt síðan og sölutölur fara hækkandi dag frá degi. Zhena seg- ir að hún sé ekki að selja te heldur góð- vilja. Teið hennar er hundrað prósent líf- rænt og við- skiptaaðferðirnar með það hafa „fair trade“-stimpilinn sem er vottun á réttlátum við- skiptaaðferðum. „Við pössum að það séu góð lífsskilyrði fyrir fólkið sem vinnur fyrir okkur. Við gætum þess að verðið á teinu verði ekki of lágt svo þeir sem rækta það geti lifað al- mennilegu lífi. Fyrir hvert kíló af tei sem við seljum fer ein evra inn á banka- reikning sem fer beint í félagsaðstoð til þess svæðis þar sem teið er ræktað. Fólkið þar kýs svo um í hvað peningarnir renna en það er alltaf eitt- hvað sem getur veitt þeim betra líf. Það geta öll fyrirtæki stundað þessa viðskipaaðferð. Þetta þýðir aðeins minni hagnað í vasann en samt er þetta í raun og veru hagn- aður til lengri tíma þegar litið er á heiminn í heild. Það er alltof mikið af fólki sem lætur græðgina ráða,“ segir hún. Nýjasta afurð Zhenu er skartgripalína sem er að koma á markað. „Skartgripirnir munu styrkja heimili fyrir ungar HIV- smitaðar konur í Kathmandu í Nepal sem voru seldar í þrælkun sem ung börn.“ Teboð um allan bæ Teboðin hennar Zhenu eru mjög vinsæl í Bandaríkjunum um þessar mundir. Þá hittast konur og drekka te í skrautlegu umhverfi, dansa magadans og tala saman. Eftir þetta góða spjall við Zhenu slapp hún frá mér og fór að tala við tegestina en ég fékk þá til mín Sig- rúnu Völu Valgeirsdóttur sem stóð fyrir heimsókn Zhenu hingað og er eigandi Feng Shui-hússins á Frakka- stíg. Sigrún féll algjörlega fyrir sígaunatei Zhenu, hún fór út seinasta vetur og hitti hana í New York og var þá þessi Íslandsferð ákveðin. Hún hóf að flytja teið inn fyrir ári og er hægt að kaupa það víða á Ís- landi. „Tetískan er komin til lands- ins, það eiga eftir að vera teboð um allan bæ í vetur. Svo er heimspekin og menningin á bak við tein svo frá- bær, þau bæta heiminn og mann sjálfan,“ segir Sigrún að lokum. Eftir að hafa þakkað þeim báðum fyrir spjallið hélt ég heim á leið full af hamingju eftir að hafa drukkið nokkra bolla af töfratei.  TEBOÐ | Sígaunadrottningin Zhena kynnti te fyrir Íslendingum Selur góðvilja og vill bæta heiminn Zhenu finnst Íslendingar jákvæðir og bjartsýnir og konurnar hér mjög sterkar og sjálfstæðar. Hún er sjálf afkomandi sirkussígauna frá Úkraínu. Sigrún Vala Valgeirsdóttir stóð fyrir heimsókn Zhenu hingað til lands. Hér heldur hún á ástardrykk Tatönju sem borinn var fram í teboðinu. Sunnudag nokkurn fór fram óvenjulegt teboð á Hótel Glym í Hvalfirði. Þangað var komin sígauna- drottningin Zhena Musyka til að kynna tein sín og hugmyndafræðina á bak við þau. Ingveldur Geirsdóttir fór í boðið, spjallaði við Zhenu og drakk hugsjónate. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Verð frá 94.900 kr. 10.000 kr. inneign fylgir hverri fartölvu Opið mán. - fös. 8-18, lau. 10-17 og sun. 13-17 Sími 515 5170 • www.oddi.is Gerðu gott með góðri Verslun Odda • Borgartúni 29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.