Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristín Sigurð-ardóttir fæddist
á Hjalteyri við Eyja-
fjörð 24. mars 1927.
Hún lést á St. Jóseps-
spítala 3. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sigurð-
ur G. Jónsson og
Jakobína G.K. Frið-
riksdóttir. Systkini
Kristínar eru, í ald-
ursröð: Ingibjörg,
Friðrik látinn, Ólafía
látin, Jón látinn,
Haraldur, Pétur lát-
inn, Sólborg og Ragnar.
Kristín giftist 10. maí 1946 Jó-
hannesi Sigfússyni, f. 6. febrúar
1923, d. 7. ágúst 2000. Börn þeirra
eru: Sigríður V., maki Stefán Bald-
ursson, látinn, Sig-
fús, maki Guðbjörg
Árnadóttir, Sigur-
laug J., maki Sigurð-
ur Þ. Karlsson. Sig-
urður G., látinn,
Sigþór Ö., maki Gísl-
ína G. Hinriksdóttir,
og Sigrún Ó., maki
Ólafur Kr. Sigurðs-
son. Barnabörnin
eru 18 og barna-
barnabörnin eru 13.
Kristín helgaði sig
lengst af heimilis-
störfum en vann
einnig í Penslaverksmiðjunni í
Hafnarfirði.
Útför Kristínar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku vinkona mín og tengda-
móðir. Hvíldin og friðurinn er kom-
inn eftir erfið veikindi. Minningar
streyma og tárin renna. Mig langar
að þakka þér fyrir alla þá elsku sem
þú gafst okkur og börnum okkar
sem við búum að alla tíð.
Ég minnist þess þegar ég kom í
fyrsta sinn á heimili þitt á Álfa-
skeiði 70 aðeins 17 ára gömul, bæði
feimin og óframfærin, þú tókst mér
opnum örmum með góðvild og elsku
sem hefur staðið alla tíð síðan. Þú
varst sú myndarlegasta húsmóðir
sem ég hef kynnst, alltaf ofhlaðin
borð af kræsingum, en matur og
bakkelsi var þitt fag.
Hjalteyrin var þér mikils virði og
var yndislegt að þú gast eytt nokkr-
um árum í Friðrikshúsi er þið
systkinin keyptuð það sem sumar-
hús. Þar varst þú á heimavelli og
var alltaf sól og hiti í kringum þig
þar og sögur frá æskuárunum
streymdu frá þér. Sumarbústað
byggðum við saman ásamt foreldr-
um mínum í Borgarfirði og skírðum
Álfabarð. Það voru sérstaklega
ánægjulegar samverustundir sem
við áttum þar og ekki síst börnum
mínum, sem nutu mikillar samveru
með þér en þau sakna þín sárt.
Þú hafðir mikla ánægju af trjá-
rækt og var mikið plantað af alls
konar tegundum sem eru orðin
myndarleg tré í dag rétt eins og
fjölskyldan þín sem þú ræktaðir og
elskaðir og saknar þín sárt. En nú
er komið að leiðarlokum. Hvíl í friði
elsku Kristín mín og takk fyrir allt.
Guðbjörg Árnadóttir.
Elsku Kristín mín.
Nú ertu farin, farin í verkjalaus-
an heim til þeirra Jóhannesar og
Sigga þíns.
Þú varst alveg hreint einstök
kona á allan hátt, þolinmóð, róleg
og góð að upplagi.
Þær voru ófáar ferðirnar sem þið
komuð til okkar á Hjalteyri og ég
alveg hreint elskaði matseldina
þína.
Við höfðum dálæti á mörgu því
sama og þar á meðal eyrinni fögru,
Hjalteyri. Við fjölskyldan komum
einnig oft í heimsókn til ykkar á
Álfaskeiðið og þá var aldeilis fjör á
bænum og gestrisnin engu lík og
þið hjónin alveg einstaklega sam-
rýnd. Einhvern veginn urðu pönnu-
kökur að besta veislumat þegar þú
komst þar nærri. Það sama má
segja um fólk, þú hafðir einstakt lag
á börnum, enda dáðu þau þig öll.
Það var þó aldrei látunum fyrir að
fara hjá þér heldur, enda hlýddu
börn þér oftast umbúðalaust ef þú
settir upp ákveðna svipinn með
hrukkunni á milli augnanna.
Það var erfitt að horfa upp á þig
veikjast, en mikið fannst mér gott
að geta fengið að kveðja þig. Ég er
ekki mikið fyrir að flagga tilfinn-
ingum mínum en elsku Krilla mín,
mikið elska ég þig og sakna þín.
Þegar við hittumst á ný verður
gaman að geta glatt þig með brönd-
urum og vonandi nýturðu þín á
himnum með vinum og fjölskyldu.
Þinn tengdasonur,
Sigurður Karlsson.
Elsku amma mín. Nú ertu farin
og sorgin skellur á okkur af miklum
krafti.
Tómarúmið sem þú skilur eftir er
vanfyllt, því þú sýndir öllum svo
innilega ástúð og hlýju. Það er
ógleymanlegt hvað okkur systkinin
hlakkaði til að fara til ykkar afa og
eins að fá ykkur í heimsókn til okk-
ar á Hjalteyri, sem ávallt var þér
svo hjartfólgin.
Ég man vel hlýtt faðmlag ykkar
sem var ávallt svo innilegt. Og ég
minnist þess líka hvað börn löð-
uðust að þér, sem er engin furða,
því hver kemur betur auga á það
sem gott er en barn? Þú hafðir
ávallt meiri áhyggjur af heilsu og
hag annarra og gleymdir því að þú
varst sjálf veikust allra. Hugrekki
þitt og barátta við þennan illvíga
sjúkdóm mun aldrei úr minni okkar
fara. Brosið þitt bjarta og innilegan
hlátur þinn mun ég geyma í hjarta
mínu að eilífu.
Elsku amma mín, ég held nú
samt að þú hafir verið hvíldinni feg-
in, því ég veit að þín bíða hlýlegar
móttökur hjá afa og Sigga, sem þú
hafðir saknað svo sárt. Ég elska
þig, amma mín, að eilífu og minn-
ingin um fallega og góða konu með
stórt hjarta mun ylja mér um
hjartarætur meðan ég sjálfur dreg
andann.
Elsku amma mín, ég sakna þín
sárt, sæl að sinni, þinn
Karl.
Elsku amma, frá því að ég man
eftir mér var alltaf jafngaman að
hitta þig. Alltaf var tekið á móti
manni með kossum og faðmlögum
og alltaf var kvatt aftur á sama
hátt. Það er því með miklum sökn-
uði og sorg sem ég og mín litla fjöl-
skylda kveðjum þig í dag.
Aldrei gleymi ég því þegar við
komum til þín í Álfaskeiði í vor.
Þann dag kom þinn mikli dugnaður
og staðfesta vel í ljós. Þrátt fyrir
allt sem á undan var gengið
stökkstu til og bakaðir pönnukökur,
börnunum okkar til mikillar
ánægju. Mín síðasta minning um
þig, elsku amma, er því full af hlýju
og ást eins og allar hinar. Ég hef
aldrei talað um það en alltaf þegar
þú tókst utan um mig, hvort sem
það var þegar ég var lítill drengur
eða nú hin síðari ár, þá var alltaf
eitthvað himneskt við snertinguna.
Þú ert því á heimleið núna og þar
bíða þín margir sem þú hefur sakn-
að.
Jóhannes Bjarki Sigurðsson.
Elsku hjartans amma mín, mikið
er sárt að missa þig.
Aldrei á lífsleiðinni mun nokkur
kona jafnast á við þig og þitt hjarta-
lag. Þú varst einstök mannvera,
hjartahlý, góð, hugrökk, dugleg og
falleg.
Ég man þegar þið systurnar stig-
uð dans í Friðrikshúsi og hlóguð og
töluðuð um gamla tíma. Þú ljómaðir
í gegnum ævina, hafðir einhverja
glóð í augum og varst með svo ynd-
islega nærveru.
Þú hefur átt einstaka ævi sem
ekki hefur gengið áfallalaust fyrir
sig. Þú hefur mætt öllum áföllum
með einstakri hugprýði og jafnaðar-
geði og unnið sigur. Í þetta eina
sinn gastu ekki barist lengur og
fékkst að lokum langþráða hvíld.
Mikið held ég að það verði miklir
fagnaðarfundir á himnum þegar þið
afi hittist á ný, þið voruð svo náin.
Nú geta Stebbi og Pétur frændi
strítt þér og sagt þér brandara.
Siggi getur sagt þér sögur og borð-
að með þér rækjusalat og þið Olla
getið stigið dansinn á ný, glaðar.
Vonandi hefurðu það gott núna
amma mín.
Þú varst alltaf svo falleg, vel til
höfð og ég man alltaf hvað ég leit
upp til þín og var stolt af því að þú
værir hún amma mín.
Brosið þitt, augun, krullurnar og
hláturinn eru í huga mínum er ég
hugsa um sögurnar sem þú sagðir
mér, um það hvað gerist ef börn
borða ekki matinn sinn, þegar þú
varst lítil og fékkst rauða eplið í
jólagjöf, sagan um huldustelpuna í
móanum og það þegar afi brann á
ilinni. Flestum sögum fylgdi siða-
boðskapur um þakklæti, virðingu
eða hjálpsemi eða einhverja aðra
dyggð sem komst svo vel til skila
frá þér og við reyndum að tileinka
okkur.
Þú varst alla tíð svo stolt af börn-
unum þínum og fjölskyldum þeirra
og lagðir þig fram um að fylgjast
með hverjum einasta. Þú ólst upp
yndisleg börn sem ávallt munu búa
að því forskoti sem þú, með þinni
ást og umhyggju, gafst þeim.
Ást ykkar afa var mikil og allir
sem litu ykkur augum sáu hamingj-
una.
Það er sárt fyrir okkur sem eftir
sitjum að halda áfram án þín og
einhvern vegin er ekkert sem und-
irbýr okkur undir svona mikinn
missi.
Ég mun alltaf elska þig og minn-
ast þín.
Þín ömmustelpa, Kristín.
Kristín Sigurðardóttir.
Elsku amma Stína, þakka þér
fyrir allt og Guð gefi þér frið.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Sonja Dögg Sigfúsdóttir.
Kristín, kær vinkona mín er látin
eftir frekar stutt en erfið veikindi
sem hún tókst á við af miklu æðru-
leysi.
Hún hafði góða nærveru, var
hæglát og hlý en sömuleiðis var
skopskynið í besta lagi. Hlógum við
oft mikið saman, sérstaklega í
gönguferðum okkar, þegar við vor-
um ekki alveg sammála hvaða leið
ætti að fara og önnur þóttist rata
betur en hin.
Það var gott að koma á fallegt og
rausnarlegt heimili hennar, þær
stundir gleymast ei.
Það er margs að minnast frá
þeim liðnu árum en læt hér staðar
numið.
Ég kveð heiðurskonuna Kristínu
vinkonu mína með virðingu og
þakklæti fyrir allt og allt.
Öllum börnunum hennar og öðr-
um aðstandendum sendi ég mína
dýpstu samúð vegna fráfalls hennar
og bið þeim allrar Guðs blessunar.
Jakobína E. Björnsdóttir.
KRISTÍN
SIGURÐARDÓTTIR
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON
fyrrverandi útgerðarmaður
frá Árgerði, Árskógssandi,
til heimilis á Dalbæ, Dalvík,
verður jarðsunginn frá Stærri-Árskógskirkju
föstudaginn 12. ágúst kl. 14.00.
Synir, tengdadætur, afa- og langafabörn.
Útför elskulegs föður okkar,
ÓSKARS SIGURÐAR GUÐJÓNSSONAR,
Hjallavegi 21,
Reykjavík,
fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 10. ágúst nk.
kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Gunnar Óskarsson,
Eyjólfur R. Óskarsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
BERTU BERGSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki dval-
arheimilisins Höfða, Akranesi, fyrir góða og hlý-
lega umönnun.
Kristján Leó Pálsson,
Kolbrún Kristjánsdóttir, John Haagensen,
Svanhildur Kristjánsdóttir, Ellert Ingvarsson
og ömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
FINNBJARGAR ÁSTU HELGADÓTTUR,
Karfavogi 50,
Reykjavík.
Steinunn Jóna Sveinsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
LÁRUS SIGURÐSSON
kaupmaður,
Arnarhrauni 19,
Hafnarfirði,
lést laugardaginn 6. ágúst.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
12. ágúst kl. 13.00.
Guðlaug Hansdóttir,
Oddný Lárusdóttir,
Hanna Björk Lárusdóttir, Lúðvík Geirsson,
Lárus Lúðvíksson,
Brynjar Hans Lúðvíksson,
Guðlaugur Lúðvíksson.
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista