Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 25
Við höfum einnig bent á að það verði að losa Ríkisútvarpið undan blóðugum bardaga um auglýsingar og kostun. Annarsvegar vegna þess að sú keppni kemur niður á dag- skránni og þjónustu fyrirtækisins. Takmark auglýsingamiðils er að selja auglýsendum aðgang að til- teknum markhópum og við það mið- ast dagskrárframboð hans og stíll. Svoleiðis vilja Íslendingar ekki hafa Ríkisútvarpið, enda engin ástæða til þar sem tvö fyrirtæki eru nú þegar í þessu kappi. Hinsvegar er eðlilegt að markaðsstöðvarnar fái það sem þeirra er: þokkalegt svigrúm á aug- lýsinga- og kostunarmarkaði. Vilji menn fjölbreytni á ljósvakanum verður að gæta að rekstrargrunni þeirra fyrirtækja sem þar starfa. Við höfum reyndar ekki gengið eins langt og Páll í auglýsingamál- unum heldur talað um ákveðnar tak- markanir, til dæmis í auglýsinga- tíma en þó frekar með reglum um markaðshlutdeild eða hlutfall aug- lýsinga og kostunar af tekjum. Í upphafi væri ágætt mark að hlutfall auglýsinga og kostunar af tekjum RÚV yrði 15–20% eftir svosem fimm ár í stað 25–35% undanfarinn ára- tug. Slíkt helst í hendur við ákvarð- anir um fjáröflun og æskilegast er að um þetta skapist víðtækt sam- komulag. Væri til dæmis fær fjáröflunarleið ef drægi úr auglýsingatekjum RÚV að það fengi á móti gjald af auglýs- ingum á markaðsstöðvunum? Það væru þá nokkurskonar kaup kaups í sátt um framtíðarskipan auglýsinga á ljósvakanum. Tvær leiðir Menn sem fallast á afstöðu Páls geta þó verið á öndverðum meiði um stöðu og hlutverk almannaútvarps. Samfylkingin telur að almannastöð- in RÚV eigi að vera sjálfstætt og öflugt útvarp með breitt framboð dagskrárefnis. Með áherslu á lýð- ræðis- og menningarhlutverkið – en þar á að vera margbreytilegt dag- skrárefni miðað við almennan áhuga. Einnig heyrist sú skoðun að RÚV eigi vissulega að vera í pöblik- brodkasti, en þá bara með efni sem enginn annar vill senda út. Slík dag- skrá yrði hinsvegar brotakennt samsafn minnihlutaefnis án al- mennrar höfðunar – leiðinlegt út- varp. Nýi útvarpsstjórinn hefur að vísu ekki lýst því hvora leiðina hann vill fara. En það er ekki líklegt að sá reyndi fjölmiðlungur ætli sér norður og niður með fyrirtæki sitt. Hvað nú, Þorgerður Katrín? Það er merkilegt að mennta- málaráðherra skuli með skipun Páls Magnússonar taka undir meginvið- horf Samfylkingarinnar og ýmislegs áhugafólks, hagsmunahópa og fræðimanna um framtíðarhlutverk RÚV. Í fyrra flutti ráðherrann frum- varp um RÚV. Stjórnarandstæð- ingar tóku undir sum efnisatriði þess en gagnrýndu önnur vægð- arlaust. Innan Sjálfstæðisflokksins voru einnig deildar meiningar, og í þinglok var frumvarpið sett aftur of- an í tösku ráðherrans. Fersk viðhorf nýskipaðs útvarps- stjóra vekja vonir um að á næsta þingi geti náðst samstaða um ný lög, – lög sem tryggi öflugt og sjálfstætt almannaútvarp til frambúðar á Ís- landi. Nú reynir á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra. ’Fersk viðhorf nýskip-aðs útvarpsstjóra vekja vonir um að á næsta þingi geti náðst sam- staða um ný lög – lög sem tryggi öflugt og sjálfstætt almanna- útvarp til frambúðar á Íslandi.‘ Höfundur er alþingismaður. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 25 UMRÆÐAN Sumarbústaðir Sumarb. Sumarhús í Skorradal Nýbyggður glæsilegur ca 62 fm sumar- bústaður með svefnlofti auk ca 12 fm gestahúss á útsýnisstað í Indriðastaða- landi í Skorradal. Bústaðurinn stendur einn og sér með frábæru útsýni yfir vatnið og náttúruna í kring. Stór ca 100 fm verönd er umhverfis bústaðinn. Glæsilegur og vandaður bústaður, frá- bærlega vel staðsettur. 6774 Sumarhús Úthlíð 801 Selfossi Fallegt ca 41 fm sumarhús auk svefnlofts. Rúmgóð stofa og eldhús og tvö svefnherbergi. Sólpall- ur er við þrjár hliðar hússins. Húsið er fallega staðsett í kjarri vaxinni náttúru með fallegu útsýni yfir Heklu. Sundlaug, golfvöllur og þjónustumiðstöð á staðn- um. Falleg náttúra með mikla útivistar- möguleika. Verð 10,9 millj. 7009 Sumarhús í Skorradal Nýtt glæsilegt 57 fm sumarhús með svefnlofti. Rafmagn og heitur pottur. Einstök staðsetning í kjarri vaxinni nátt- úru með útsýni yfir Skorradalsvatn, Snæfellsjökul og Langjökul. Stutt í sund og veiði. Nýtt innbú fylgir. Verð 15,9 millj. 7007 Sveitasetur Úthlíð 801 Selfoss Stórglæsilegt 63 fm sumarhús með stórri verönd. Húsið skiptist í 3-4 svefnherbergi auk svefn- lofts, stóra stofu og gott baðherbergi. Góð hljóðeinangrun er í veggjum. Raf- magn og hitaveita. Heitur pottur. Bú- staðurinn er mjög vel staðsettur og frá honum er stórfenglegt útsýni. Golfvöllur og sundlaug á staðnum. Tækifæri til að eignast glæsilegt heilsárshús á frábær- um stað. Verð 14,8 millj. 7008 Sumarhús Hraunborg- um í Grímsnesi Nýkominn í sölu fallegur sumarbústaður með svefn- lofti í Hraunborgum. Einstaklega falleg ræktuð lóð sem er um hálfur hektari. Sundlaug á svæðinu og stutt í golfvelli. Verð 7,9 millj. 7038 Grímsnes Hallkelshólar Nýtt og glæsilegt sumarhús með góðri verönd. Húsið stendur á eins hektara eignarlandi. Stór stofa og tvö svefnher- bergi. Húsið skilast án eldhús- og bað- innréttinga sem gefur kaupanda kost á að innrétta eftir eigin smekk. Teikningar á skrifstofu. Steyptur grunnur og hiti í gólfi. Einstaklega vandaður nýr sumar- bústaður á golfsvæðinu í Grímsnesinu. Örstutt í tvo fallega golfvelli og sund- laug. Verð 14,9 millj. 7040 Þingvellir Lerkilundur Fallegt sumarhús í landi Miðfells austan við Þingvallavatn, samtals ca 65 fm, á ca 2500 fm eignarlóð. Um 45 fm sumar- hús sem skiptist í stofu, eldhús, tvö samliggjandi svefnherbergi og baðher- bergi með sturtu. Um 17 fm gestahús með herbergi, gufubaði og snyrtingu. Heitur pottur og útisturta. Einnig er geymsluskúr. Sér borhola er á lóð og rennandi vatn allan ársins hring. Verð 9,9 millj. 7036 Sumarhús Öndverðar- nesi Vorum að fá í sölu þennan fal- lega bústað á þessum vinsæla stað. Bústaðurinn er A-bústaður, skráður 40,8 fm en svo er einnig gott svefnloft. Stutt er í vinsælan golfvöll, sund og þjónustumiðstöð. Verð 8,5 millj. Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. Nú er sumar á FOLD - Vantar sumarhús í sölu strax Skráið sumarbústaðinn hjá okkur! Við höfum á skrá fjölda áhugasamra kaupenda. Áhersla á markaðssetningu og kynningu á sumarbústöðum á netinu og í auglýsingum í Morgunblaðinu. BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Útsala Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 Nýbýlavegi 12, Kópavogi sími 554 4433 Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni ÞAÐ ER stórkostlegt að sjá þann mikla stuðning sem mann- réttindabarátta samkynhneigðra hefur fengið á síðustu dögum í til- efni af Hinsegin dögum. Ráða- menn jafnt sem almenningur flykkjast á götur út og keppast við að lýsa yfir mikilvægi þess að af- nema endanlega þá lagalegu mis- munun sem lesbíur og hommar búa við. Framsóknarflokkurinn, sem leiðir ríkisstjórn landsins, hefur tekið forystu í málinu með Árna Magnússon félagsmálaráð- herra og Siv Friðleifsdóttur þing- mann flokksins í broddi fylkingar. Þingmenn allra annarra flokka, þar á meðal fjöldi þingmanna Sjálfstæðisflokksins auk ungliða- hreyfinga flokksins, hafa einnig talað fyrir fullum mannréttindum til handa lesbíum og hommum. Davíð Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, átti á sínum tíma stóran þátt í því að koma á lögum um staðfesta samvist. Það er gleðilegt að sjá að Sólveig Péturs- dóttir virðist nú styðja mannrétt- indabaráttu samkynhneigðra. Því hlýtur að mega treysta að Sólveig fylgi málinu eftir á þingi í vetur og hafi frumkvæði að því að tryggja samkynhneigðum full mannrétt- indi. Þó er undarlegt að fela sig á bak við einhverjar „lagatæknileg- ar aðferðir“ varðandi ættleiðingar frá löndum sem heimila ekki sam- kynhneigðum að ættleiða börn þaðan. Bretland og Svíþjóð hafa heimilað samkynhneigðum að ættleiða börn frá útlöndum og það hefur ekki á nokkurn hátt tak- markað ættleiðingar gagnkyn- hneigðra frá löndum eins og Kína. Auk þess er ekki heilladrjúgt að réttlæta mismunun hér á landi með tilvísun í takmarkaða virð- ingu kínversku kommúnista- stjórnarinnar fyrir mannréttind- um. Kínverskir kommúnistar eiga ekki að ráða íslenskri mannrétt- indalöggjöf. Ein elsta og íhalds- samasta stofnun sem finna má í vestrænum lýðræðisríkjum, breska lávarðadeildin, hefur heimilað samkynhneigðum fullan rétt til ættleiðinga. Er ekki röðin komin að Alþingi Íslendinga? Baldur Þórhallsson Svar til Sólveigar Höfundur er stjórnmálafræðingur. Í BRÉFI til Morgunblaðsins, sem birtist 6. ágúst síðastliðinn, finnur Björgvin Þorsteinsson að því að ekki skuli leyft að klappa fyrir tónlist í Skálholtskirkju. Réttinn til að klappa rökstyður Björgvin með Biblíutilvitnun, og er það auðvitað gott og gilt. En ég held að þar að auki hafi Íslendingar öðrum fremur heimild til að klappa í kristnum guðshúsum. Allar líkur eru nefni- lega til að þeir hafi samþykkt með lófataki síns tíma að snúast til kristni. Samkvæmt Íslendingabók Ara fróða var það samþykkt á Alþingi, líklega árið 999, að allir menn skyldu kristnir vera og skírn taka. Á þess- um tíma létu menn í ljós samþykki sitt á þingum germanskra þjóða með því að berja saman vopnum sínum eða vopni og skildi, og var það kallað vopnatak. Síðar hættu menn að bera vopn á þingum og létu sér þá nægja að slá saman berum lófunum. Sjálfsagt hefur kristnitaka Íslend- inga verið samþykkt með vopnataki, og þannig hefur eftirlíking þess, lófatakið, sérstakt kristilegt tákn- gildi á Íslandi. Þess vegna eigum við að nota hvert tilefni til að klappa í kirkjum. GUNNAR KARLSSON, prófessor. Lófatak í kirkjum Frá Gunnari Karlssyni Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trú- lega aldrei ná þeim greindarþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyr- irheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum tilvikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra op- inberu stofnana, sem heyra undir sam- keppnislög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á honum. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsyn- legt er að ræða þessi mál með heildar- yfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrverandi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Hair play frá Rakarastofan Klapparstíg Síðumúla 34 - sími 568 6076 Ýmislegt áhugavert fyrir safnara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.