Morgunblaðið - 09.08.2005, Side 11

Morgunblaðið - 09.08.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 11 FRÉTTIR UMSVIF Loftorku ehf. í Borgarnesi hafa aukist mikið á síðustu misser- um, en fyrirtækið keypti fyrr á þessu ári Mjólkursamlagshúsið í Borgar- nesi og er þar að auki að stækka ein- ingaverksmiðju fyrirtækisins við Engjaás. Í Mjólkursamlagshúsinu verða m.a. framleiddar svokallaðar kúluplötur, en Loftorka er með einkaleyfi á framleiðslunni. Andrés Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Loftorku, segir að það sé gaman að reka fyrirtæki í bygg- ingariðnaði nú um stundir því eftir- spurnin eftir framleiðslunni sé mikil. Hann segir að því hafi verið nauðsyn- legt fyrir fyrirtækið að fara út í stækkun þrátt fyrir að hann geri sér vel grein fyrir að ekki verði alltaf jafn mikið að gera og er í dag. „Þessi fjárfesting er nauðsynleg til að við getum áfram sinnt stærri verk- efnum. Kröfur um hraða og magn eru orðnar miklar og við verðum að geta afhent vöruna með skömmum fyrir- vara og í miklu magni,“ sagði Andrés. Um 160 manns starfa hjá Loft- orku, þar af um 40 erlendir starfs- menn. Andrés sagði að erfitt væri að fá nægilega margt fólk til starfa. Ástandið væri búið að vera slæmt en væri án efa enn verra ef verktakar sem vinna við stóriðju- og virkjana- framkvæmdir hefðu ekki ráðið til sín erlent starfsfólk. Mjólkursamlagshúsið hefur gengið kaupum og sölum Mjólkursamlagshúsið hefur geng- ið kaupum og sölum síðustu árin. Húsið var upphaflega reist undir starfsemi Mjólkursamlags Borgfirð- inga, en eftir að það var lagt niður hefur nýting hússins verið slök. Eftir lokun samlagsins voru matvæla- og drykkjarvörufyrirtæki með starf- semi í húsinu í nokkur ár. Um tíma var áformað að setja þar upp kjúk- lingasláturhús, en hætt var við það. Það var síðan fyrirtækið Hólasel ehf. sem er í eigu Andrésar Konráðsson- ar, sem keypti húsið á uppboði af KB- banka. Mjólkursamlagshúsið er handan við Ólafsvíkurveginn gegnt iðnaðar- lóð Loftorku. Hluti hússins (um 700 fm) er í eigu Landflutninga – Sam- skipa sem nýta það sem vörudreif- ingarstöð og verður svo áfram, en að- albyggingin, um 4.200 fermetrar og 3.500 fm kjallari fara undir starfsemi Loftorku. Andrés sagði að Loftorka myndi flytja skrifstofur fyrirtækisins í Mjólkursamlagshúsið í þessum mán- uði. Þar yrði einnig hefðbundin ein- ingaframleiðsla, en stór hluti hús- næðisins færi undir framleiðslu á svokölluðum kúluplötum. Andrés sagði að kúluplötur væru hollensk uppfinning sem Loftorka hefði fengið einkaleyfi til að nota á Íslandi. Leyfið gildir í sex ár. „Það eru settar plastkúlur í steypueiningarnar sem gerir það að verkum að eigin þyngd fullsteyptrar plötu verður 30–35% léttari en venju- leg staðsteypt plata. Þetta þýðir að plöturnar spanna mun stærri höf en áður og hægt er að vera með minna af bitum og súlum í byggingunni. Þetta léttir líka bygginguna í heild sinni. Kúluplötur henta mjög vel í stórum skrifstofubyggingum. Þetta hefur fengið góðar viðtökur og ég held að við séum búnir að tryggja okkur sölu á um 95.000 fm af þessum plötum á næstu 2–3 árum.“ Undanfarnar vikur hefur verið unnið að stækkun ein- ingaverksmiðju fyrirtækisins við Engjaás í Borgarnesi. Nú þegar er búið að reisa súlur við gafl, botnker og undirstöður. Fyrirhugað er að í nýja húsinu verði starfrækt hefðbundin eininga- framleiðsla ásamt framleiðslu for- steyptra undirstaðna og sökkla. Þeg- ar húsið verður tekið í gagnið mun framleiðslugeta fyrirtækisins stór- aukast. Flatarmál hússins er um 3.000 fermetrar. Loftorka hef- ur starfsemi í Mjólkursam- lagshúsinu Undanfarnar vikur hefur verið unnið að stækkun einingaverksmiðju Loftorku við Engjaás í Borgarnesi. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Mývatnssveit | Það þarf trausta bíla ef aka á í Loðmundarfirði. Það þekkja þeir bræður Sigurður Snæbjörn, 12 ára, og Magnús Snæþór, 6 ára, synir Stefáns Smára Magnússonar og Sig- ríðar Þórstínu Sigurðardóttur sem reka ferðaþjónustu í Stakkahlíð yfir sumarmánuðina. Þeir bræður smíð- uðu sér þennan eðalkassabíl og nýttu til þess efnivið af rekafjöru Loð- mundarfjarðar, plasttunnu og fisk- körfu. Reyndar er Sigurður Snæbjörn verðlaunaður bílahönnuður úr kassa- bílakeppni á Seyðisfirði, en þar á fjöl- skyldan annað heimili sitt. Nú styttist í að skólinn kalli og þeir bræður fái um annað að hugsa en kassabíla og að þjóna ferðamönnum. Margir gera sér sumarferð í fjörð- inn þeirra gangandi eða akandi því þar er mikil náttúrufegurð. Gott er þá þreyttum ferðalang að eiga vísan náttstað, mat eða annan viðurgjörn- ing í Stakkahlíð áður en áfram er haldið um undraveröld á Víknaslóð. Traustur vagn í Loðmundarfirði Ljósmynd/BFH FARÞEGUM um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 11% í júlí miðað við sama tíma í fyrra. Fjölgaði farþegum úr rétt tæpum 236 þúsund árið 2004 í rúmlega 261 þúsund farþega nú sam- kvæmt upplýsingum Flug- stöðvarinnar. Nemur fjölgun farþega til og frá Íslandi rúmum 8% milli ára og farþegum sem milli- lenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið hefur fjölgað um tæp 26%. Alls hef- ur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um 10% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr tæplega 946 þúsund farþeg- um í tæpa 1.041 þúsund far- þega. Mikil fjölgun farþega um Leifsstöð BRESKA flugfélagið British Airways er ekki með öllu óvant því að koma að flugrekstri hér á landi en félagið átti lággjaldaflugfélagið Go, sem flaug frá Íslandi til Stansted árið 2000. Eins og greint var frá fyrir skömmu mun British Airways hefja áætlunarflug milli Íslands og Bret- lands í mars á næsta ári og fljúga fimm sinnum í viku milli Keflavíkur- flugvallar og Gatwick-flugvallar, sem er skammt frá London. Ferðir lággjaldaflugfélagsins Go voru vinsælar meðan á þeim stóð og mikið nýttar af bæði Íslendingum og Bretum. Go flaug fjórum sinnum í viku milli Keflavíkurflugvallar og Stansted frá því í maí 2000 fram í september sama ár og frá mars fram í september árið 2001. Hins vegar varð ekki framhald á þessum ferðum árið 2002 og í yfirlýsingu frá félaginu vegna málsins kom fram að ferðunum hefði verið hætt vegna kostnaðar á Keflavíkurflugvelli. British Airways seldi Go til stjórn- enda og stofnfjárfesta árið 2001 og ár- ið síðar keypti EasyJet félagið og í kjölfarið sameinuðust félögin tvö. British Airways ekki ókunnugt ís- lenskum flugrekstri Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.