Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Þri. 9/8: Lasagne m. tveimur
salötum og hýðishrísgrjónum.
Mið. 10/8: Indverskur pottréttur
m. tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Fim. 11/8: Fylltar paprikur með
góðu salati, m. tveimur salötum
og hýðishrísgrjónum.
Fös. 12/8: Thailenskur pottréttur
m. vorrúllum, m. tveimur salötum
og hýðishrísgrjónum.
Helgin: Ítalskar kræsingar
m. tveimur salötum og
hýðishrísgrjónum.
Verðhrun
Síðustu útsöludagar
Gerið frábær kaup
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Síðustu dagar útsölunnar
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
undirföt
ÚTSALA
25-75%
afsláttur
Steiking án feiti
• Heilsupönnur
• Grillpönnur
• Wok-pönnur
• Pönnukökupönnur
• Pottar í úrvali
af ferköntuðum
pönnum og
grillpönnum
Keramik- og títanhúð sem
flagnar ekki af 20%
afsláttur
Tilvalin
brúðkaupsgjöf
Smiðjuvegi 11, gul gata, Kóp., sími 568 2770. Opið 9-12 og 13-17.
Ú
T
S
A
L
A
Opið virka daga frá kl. 11-18
Lokað á laugardögum í ágúst
30%
aukaafsláttur
30% afsláttur
af undirfötum og sundfötum
2 fyrir 1
af eldri vörum
Bankastræti 9, sími 511 1135
www.paulshark.is - paulshark.it
Útsala - útsala
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30.
Sími 588 4477
Til sýnis í kvöld
þriðjudag milli kl. 19 og 22
Glæsileg 4ra-5 herb. íbúð á 3ju hæð (efstu) í
vönduðu litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin er fullbúin á
vandaðan hátt. Þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Rúmgott eldhús og stofa með útgengi á suður-
svalir. Vandað flísalagt baðherbergi með baðkari
og sturtuklefa. Stutt í skóla og alla þjónustu,
læknamiðstöð o.fl. Parket. Íbúðin er laus fljót-
lega. Verð 25,9 m.
Guðrún Árný og Jens á bjöllu.
Lautasmári 22 - Opið hús í kvöld
STAÐAN í þjóðarbúskapnum um
þessar mundir minnir um margt á
stöðuna á haustmánuðum 1999.
Líkt og þá, hefur húsnæðisverð
hækkað umtalsvert, skuldir heim-
ila og fyrirtækja hafa aukist hratt
og verðbólga fer vaxandi. Við-
skiptahallinn stefnir í 12% af
vergri landsframleiðslu og ytra
ójafnvægi þjóðarbúsins eykst
hratt. Þetta segir í nýrri grein-
argerð frá hagdeild ASÍ, sem spáir
brotlendingu og kallar eftir auknu
aðhaldi opinberra aðila.
Þjóðarbúið er sagt hafa brotlent
í kjölfar þenslu og verðbólgu eftir
1999 og líkur leiddar að því að
brotlending sé einnig í uppsiglingu
nú. „Það hefur legið fyrir að stór-
iðjuframkvæmdirnar myndu valda
aukinni þenslu í efnahagslífinu,
með þeim afleiðingum að verðlag
og laun hækka umfram það sem
gerist í viðskiptalöndunum og
hækka þannig raungengi krónunn-
ar. Það hefur einnig verið fyr-
irsjáanlegt að Seðlabankinn myndi
hækka stýrivexti til þess að sporna
gegn aukinni þenslu og það myndi
jafnframt styrkja krónuna enn
frekar og hækka raungengið,“ seg-
ir í greinargerðinni.
Hækkun raungengisins er þó
sögð á kostnað annarra atvinnu-
greina. Innstreymi fjármagns og
notkun takmarkaðs vinnuafls og
fjármagns við framkvæmdirnar
þrengi að öðrum atvinnugreinum,
sérstaklega útflutnings- og sam-
keppnisgreinum.
Tekur langan tíma
að jafna sig
„Vandinn felst í því að raun-
gengið hækkar tímabundið en þó
nægilega lengi til þess að skaða
útflutnings- og samkeppnisgrein-
ar. Þegar raungengið lækkar á ný,
hefur grundvöllur þeirra veikst
svo mikið að það tekur þær langan
tíma að jafna sig. Jafnframt er
hætta á því að gengissveiflurnar
verði ýktar vegna óstöðugra vænt-
inga sem gætu leitt til snarprar
lækkunar á krónunni undir lok
framkvæmdanna.“
Hagdeild ASÍ bendir á nauðsyn
þess að ríkissjóður beiti aðhaldi í
ríkisfjármálum og skeri niður
framkvæmdir til þess að draga úr
áhrifum af hækkun raungengisins.
Þannig megi draga úr óæskilegum
áhrifum stór-
iðjufram-
kvæmdanna á
aðrar greinar.
„Á síðustu
fimm árum
hafa rekstrar-
gjöld [hins op-
inbera] vaxið að meðaltali um 9% á
ári og á síðasta ári jukust þau um
7%. Bendir allt til þess að vöxtur
útgjaldanna verði með svipuðum
hætti í ár. Þessar tölur benda því
ekki til aukins aðhalds í opinber-
um fjármálum.“
Frestun brotlendingar
Bent er á að gert sé ráð fyrir
tekjuafgangi ríkissjóðs á þessu ári
sem jafngildi 1,6% af vergri lands-
framleiðslu. „Í ljósi reynslunnar
frá síðustu uppsveiflu er þetta
engan veginn nægjanlegt aðhald.
Þá var tekjuafgangurinn 2,6% af
vergri landsframleiðslu 1999 og
2000 og dugði það ekki til að
sporna við ofþenslu. Hagvöxtur fór
þá mest í 5,7% árið 2000. Í ár gera
spár ráð fyrir því að hagvöxturinn
verði umtalsvert meiri eða ríflega
6%. Í þessum samanburði er því
boðaður tekjuafgangur í ár allt of
lítill.“
ASÍ telur að ríkisstjórnin hafi
ekki axlað ábyrgð á hagstjórninni
og því líti út fyrir að þjóðarbúið
muni lenda harkalega við lok stór-
iðjuframkvæmda. Skammt dugi að
framlengja góðærið með því að
ráðast í frekari stóriðjufram-
kvæmdir. Það muni aðeins fresta
brotlendingunni og veikja stöðu
samkeppnis- og útflutningsgrein-
anna enn frekar.
Alþýðusambandið
spáir brotlendingu
Morgunblaðið/Steinunn