Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 15 ERLENT Suðurvangur - Hf. Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu glæsilegt einbýli á tveimur hæðum, 232,9 fermetrar ásamt 20,2 fermetra sólstofu og 32,4 fermetra bílskúr, samtals um 285,5 fermetrar. Húsið er vel staðsett í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Eignin hefur öll verið endurnýjuð á mjög smekklegan hátt, til að mynda innréttingar, baðherbergi, gólfefni og fleira. Lýsing eignar: Góð forstofa með skáp. Gott hol. Rúmgott og fallegt nýstandsett eldhús. Björt stofa og rúmgóð borðstofa, útgangur út í garð frá stofu og sólskála. Stórt herbergi (húsbónda). Gestasnyrting nýstandsett með sturtuklefa. Gott þvotta- herbergi með skápum, sérútgangur í bakgarð, geymsla inn af. Frá holi er gengið upp stiga, gluggi á stigapalli. Þar er hol. Tvö mjög rúmgóð barnaherbergi með fallegum kvistgluggum. Úr öðru barnaherberginu er gengið upp á risloft. Stórt fallegt baðherbergi með hornbaðkari sem í er nudd, sturtuklefa, fallegum innréttingum og flísum á gólfi og veggjum. Rúmgott svefnherbergi með fataherbergi innaf. Stórt fjölskyldurými með útgangi á svalir með fallegu útsýni. Gólfefni er parket og flísar. Vönduð fullbúin eign á þessum frábæra stað. Glæsilegur garður með afgirtum pöllum og heitum potti. PETER Jennings, hinn kunni, bandaríski fréttamaður, lést í fyrradag, 67 ára að aldri. Var hann hjá ABC-sjónvarpsstöðinni í meira en 40 ár og miðlaði á þeim fréttum af öllum helstu heimsviðburðum, allt frá Víetnamstríðinu til innrás- arinnar í Írak. Sem fréttaþulur og fréttaskýr- andi naut Jennings mikillar hylli en hann stýrði helsta kvöldfréttatíma ABC í meira en 20 ár, „World News Tonight“. Þótti hann ein- staklega geðugur maður og með frábært fréttaskyn. David Westin, forstjóri ABC-News, sagði í gær, að seint yrði gert of mikið úr fram- lagi Jennings til bandarískrar blaðamennsku. Jennings stýrði sínum síðasta fréttatíma 5. apríl síðastliðinn en þá skýrði hann frá því, að hann væri með lungnakrabbamein og þyrfti að einbeita sér að glímunni við þann vágest. „Hann vissi, að það var á bratt- ann að sækja en hann tókst á við erfiðleikana af miklu hugrekki og vonaði vissulega, að hann yrði einn af þeim heppnu. Sú von hans brást, því miður,“ sagði Westin. Jennings var reykingamaður lengi en lagði tóbakið á hilluna 1988. Hann féll þó aftur eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001 og viðurkenndi, að þá hefði spennan og þreytan orðið honum um megn að þessu leyti. Peter Jennings fæddist í Toronto í Kanada 29. júlí 1938 og kynntist fréttamennskunni fljótlega af föður sínum, sem var kunnur útvarps- og sjónvarpsfréttamaður. Settist Jennings að í Bandaríkjunum og hann var ekki nema 26 ára er hann varð helsti kvöldfréttaþulur ABC 1965. Það gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig enda ekki við nein smá- menni að etja á hinum stöðvunum, þá Walter Cronkite, Chet Huntley og David Brinkley. Áhorfið var ekki nóg og sumir fundu að kan- adísku enskunni hans. Þar fyrir ut- an urðu honum á nokkur mistök vegna ónógrar þekkingar á banda- rísku samfélagi. Hann var því lát- inn hætta þessu starfi 1968 en fékk það verk að koma upp fréttastofu ABC í Beirut, þeirri fyrstu á veg- um bandarískrar sjónvarpsstöðvar í arabaríkjum. Bandarískir áhorfendur tóku hann brátt í sátt og 1975 tók hann við morgunþætti ABC, „A.M. Am- erica“. Þremur árum síðar fór hann að sjá um erlendar fréttir á „World News Tonight“ og tók alveg við fréttatímanum 1983. Jennings hlaut margvíslega viðurkenningu fyrir fréttamennsku sína, meðal annars 16 Emmy-verðlaun. Kynslóðaskipti vestra Allnokkur kynslóðaskipti eru nú að verða á helstu bandarísku sjón- varpsstöðvunum þremur. Peter Jennings er látinn, Tom Brokaw hjá NBC hætti í desember síðast- liðnum og Dan Rather hjá CBS hætti í mars vegna fréttar um her- þjónustutíma George W. Bush for- seta en hún reyndist röng í meg- inatriðum. Peter Jennings hafði alla tíð áhuga á Íslandi og ósjaldan sótti hann samkomur þar sem íslensk málefni voru efst á blaði, íslensk menning eða íslensk fram- leiðsluvara. Kom hann nokkrum sinnum hingað til lands, meðal ann- ars er þeir Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjev funduðu í Höfða í Reykjavík. Jennings lætur eftir sig eigin- konu, Kayce Freed, og tvö börn. Einstaklega geð- ugur og frábær fréttamaður Peter Jennings, hinn kunni frétta- maður hjá ABC, lést á sunnudag Reuters Peter Jennings. Hann var eitt af stóru nöfnunum í bandarísku sjónvarpi. Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is Buenos Aires. AP, AFP. | Bosníu- Serbinn Milan Lukic, sem er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi, var handtek- inn í Buenos Aires í Arg- entínu í gær. Lukic er meðal annars sakaður um að hafa drepið 135 óbreytta borgara í Bosníu á dög- um Bosníustríðsins á síðasta áratug en hann hefur þegar verið dæmdur í 20 ára fangelsi í Serbíu fyrir stríðsglæpi. Hefur hann farið huldu höfði frá því seint á síðasta áratug. Lukic var liðsmaður al- ræmdra sveita, sem rændi óbreyttum borgurum, múslím- um, sem síðan voru pyntaðir og teknir af lífi. Lukic er annar Serbinn, sak- aður um stríðsglæpi, sem hand- tekinn er í Argentínu á þessu ári. Í maí var Nebojsa Minic handtekinn í borginni Mendoza en hann er sakaður um glæpi í Kosovo. Enn er leitað þeirra, sem taldir eru bera mesta ábyrgð á stríðsglæpunum í Bosníustríðinu, þeirra Radov- ans Karadzics, fyrrverandi leið- toga Bosníu-Serba, og Ratkos Mladics, hershöfðingja þeirra. Milan Luk- ic hand- tekinn í Argentínu Milan Lukic

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.