Morgunblaðið - 09.08.2005, Side 12

Morgunblaðið - 09.08.2005, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 12.000 tonn af þorski í byggða- kvóta o.fl. INGÓLFUR Andrésson var í óðaönn að beita línu fyrir línu- bátinn Skúla ST sem rær frá Drangsnesi. Sonur Ingólfs, Haraldur Vignir, var að róa á Skúla ST tímabundið en venjulega er Haraldur með Unni ST. Ingólfur sagði að venjulega væri róið með 16–20 bala. Hann beitti norsku sandsíli og sagði ýsuna ginnkeyptari fyr- ir norska sílinu en síld eða smokkfiski. Auk þess væri þokkalegt verð á þessari beitu. Góð ýsuveiði hefur ver- ið í Steingrímsfirði und- anfarið. Ingólfur er fæddur og upp- alinn á Drangsnesi. Hann var um árabil bóndi á Bæ I og stundaði einnig sjóinn. Nú er Ingólfur fluttur suður en heimahagarnir toga sterkt í hann. NÝR bátur, Kóni II. SH 52, kom til hafn- ar í Ólafsvík á föstudag. Kóni II. er smíð- aður í Seiglu í Reykjavík og er tuttugasta nýsmíði fyrirtækisins. Báturinn er 14,47 tonn að stærð, 11,93 metra langur og breiddin er 3,3 metrar, ganghraði er 27 sjómílur og vélin er 650 hestafla Volvo. Eigendur bátsins eru þau hjónin Vöggur Ingvason og Ingveldur Björg- vinsdóttir. Er báturinn útbúinn beitning- arvél af gerðinni Mustad og rúmar rúm- lega 12.000 króka á 10 rekkum. Mikill fjöldi fólks tók á móti bátnum er hann kom til hafnar í Ólafsvík. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Kóni II hefur nú verið afhentur eigendum sínum í Ólafsvík. Nýr bátur til Ólafsvíkur Morgunblaðið/Alfons Eigendur Kóna II SH, hjónin Vöggur Ingvason og Ingveldur Björgvinsdóttir. Ýsan sólgin í sandsíli Morgunblaðið/Þorkell ÚR VERINU Úr verinu á morgun BOLVÍKINGURINN og leikarinn þjóðkunni Pálmi Gestsson keypti á síðasta ári húsið að Miðstræti 3 í Bolungarvík. Húsið, sem á sér afar merka sögu, er líklega elsta húsið í Bolungarvík. Pálmi fæddist í því en lengst af bjuggu þar afi hans og amma í móðurætt, þau Sigurgeir Sigurðsson, skipstjóri og útgerð- armaður, og kona hans Margrét Guðfinnsdóttir. Pálmi ætlar sér að koma húsinu í upprunalegt horf og sl. vetur var unnið að undirbúningi viðgerð- arinnar með húsafriðunarnefnd og arkitektum. Hann var í óðaönn að koma fyrir drenlögnum umhverfis húsið, ásamt pípara staðarins Haf- þóri Gunnarssyni, er fréttaritari kom við í Miðstrætinu. Fjölbreyttir möguleikar Segir Pálmi áform sín með húsið vera fyrst og fremst þau að koma því í sitt fyrra horf með það að að- almarkmiði að varðveita sögu þess, hann eigi margar góðar minningar frá bernskuárum sínum í þessu húsi. „Ég fæddist þarna í hornherberg- inu,“ segir Pálmi, og bendir stoltur á efri hæðina. Auk þess segist hann sjá tækifæri til að nýta húsið t.d. fyr- ir kollega sína og annað listafólk sem gæti dvalist í húsinu til að vinna að verkum sínum eða til hvíldar. „Nú eru nýir tímar í atvinnumálum og hér gæti verið tækifæri í ferðaþjón- ustu fyrir þá sem vilja njóta rór og friðar í fögru umhverfi. Mér er þessi staður afar kær og ég vil veg Bolungarvíkur sem mestan í framtíðinni enda lagði þessi umgjörð grunn að mínu lífi. Því vil ég geta lagt eitthvað af mörkum til að greiða það til baka,“ segir Pálmi um leið og hann fer að bisa við drenið og gefur þannig pent til kynna að hann hafi ekki meiri tíma til spjalls að sinni. Pálmi Gestsson gerir upp sögufrægt hús Eftir Gunnar Hallsson Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Vinir Það verður að passa þessa iðnaðarmenn, sagði Pálmi um leið og hann stillti sér upp til myndatöku framan við húsið sitt í Miðstræti 3 ásamt Haf- þóri Gunnarssyni pípara. BALDUR Þórhallsson segir að Sól- veig Pétursdóttir hafi, sem formaður allsherjarnefndar, vissulega komið að þeirri vinnu að auka rétt samkyn- hneigðra, á sínum tíma. Þá hafi hún sem dómsmálaráðherra staðið að lítils háttar lagfæringum á lögunum um staðfesta samvist. „En hún vildi ekki heimila frumættleiðingar samkyn- hneigðra og kom í veg fyrir að það mál næði fram að ganga í þinginu. Lendingin varð því sú að heimila sam- kynhneigðum stjúpættleiðingar. Það er engan veginn nægilegt að mínu mati,“ segir hann. Baldur skrifaði um þessi mál á vef- ritinu sellan.is fyrir helgi en Sólveig Pétursdóttir vísaði gagnrýni hans á bug í Morgunblaðinu í gær. Baldur segist standa við hvert einasta orð í greininni. „Hverja sögu ber að segja eins og hún er,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Hann kveðst ekki hafa ætlað að slá pólitískar keilur eins og Sólveig haldi fram. „Ég er einfaldlega að óska eftir því að samkynhneigðir njóti sömu grundvallarmannréttinda og aðrir. Það er ódýr leið að ætla að tengja mig við einhvern stjórnmálaflokk eða blanda mínum fræðistörfum inn í þetta. Það kemur málunum ekki við. Þetta er einfald- lega krafa um að ég og aðrir sam- kynhneigðir í þjóðfélaginu njóti sömu mannréttinda og aðrir.“ Hann segir að svo virðist þó vera sem Sólveig sé að breyta um afstöðu til frumættleiðingar samkynhneigðra. „Það er sérstaklega ánægjulegt í ljósi þess að það eru ekkert nema fordóm- ar sem standa gegn því að samkyn- hneigðir fái að ættleiða börn. For- dómar eru engin málefnaleg rök.“ Ósanngjörn staða Baldur segir að margir samkyn- hneigðir upplifi sig sem annars flokks þegna í samfélaginu vegna þess að þeir njóta ekki sömu lagalega réttinda og gagnkynhneigðir. „Mörgum finnst þetta ekki bara erfið staða heldur líka afskaplega ósanngjörn. Þegar fólk tekur það mikilvæga skref að koma út úr skápnum missir það á einum vet- fangi grundvallarmannréttindi. Sam- kvæmt íslensku stjórnarskránni og fjölda mannréttindasáttmála hafa all- ir einstaklingar ákveðin grundvallar- mannréttindi, burtséð frá kynhneigð. Og stjórnvöld í hvaða landi sem er geta ekki úthlutað mannréttindum eftir eigin geðþótta. Þess vegna er svo mikilvægt að Alþingi viðurkenni þetta grundvallarsjónarmið og láti samkyn- hneigða njóta sömu lagalegu réttinda og gagnkynhneigða.“ Baldur segir að mörg mikilvæg skref hafi verið stigin í átt til aukinna réttinda samkynhneigðra. Þar megi m.a. nefna lög um staðfesta samvist, lög sem banna mismunum á grund- velli kynhneigðar og lög um stjúpætt- leiðingar samkynhneigðra. Enn vanti þó heilmikið upp á að þeir njóti sömu réttinda og gagnkynhneigðir. „Sam- kynhneigðir sætta sig ekki lengur við að vera skammtað mannréttindum úr hnefa. Við viljum full mannréttindi; nú er lag að ganga alla leið. Ég held að það sé klárlega meirihluti á þinginu til að ganga alla leið.“ Stendur við hvert einasta orð Baldur Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.