Morgunblaðið - 09.08.2005, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 09.08.2005, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ● ÚRVALSVÍSITALA fimmtán veltu- mestu félaga í Kauphöll Íslands lækkaði um 1,1% í gær og var í lok dags 4.468 stig. Viðskipti með hlutabréf námu tæpum 2,7 millj- örðum króna, þar af voru nær 760 milljóna viðskipti með hlutabréf í Landsbanka Íslands. Jafnframt lækkuðu þau bréf mest í verði, um 2,4% en bréf í Íslandsbanka lækk- uðu um 2,1%. Mest verðlækkun var á hlutabréfum Kögunar, um 0,9%. Lækkun vísitölu ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● VERÐ á hráolíufati, til afhendingar í september, fór í nærri 64 dollara á markaði í New York í gær og hefur ekki verið hærra í seinni tíð. Ástæða hækkunarinnar er rakin til frétta af lokun bandaríska sendiráðsins í Sádí-Arabíu af öryggisástæðum. Auk þess gætir enn óvissu meðal fjár- festa vegna fráfalls Fahds konungs. Olíuverð hækkar enn ● FARÞEGAR sænska lágfargjalda- flugfélagsins Fly Me í júlímánuði voru 62 þúsund samkvæmt sænsku fréttaþjónustunni Direkt. Þar af flugu 17 þúsund farþegar með áætlunarflugi félagsins en 45 þúsund flugu með leiguflugi. Er það aukning um 11,5% á milli ára í áætl- unarflugi en um 352% í leiguflugi. Flutningsgeta félagsins jókst um 56,2% en sætanýting féll um 4,2 prósentustig og er nú 57,3%. Samkvæmt Direkt sækir Fly Me á og eykur markaðshlutdeild sína á milli ára. Farþegum Fly Me fjölgar DEILUR hafa brotist út í stjórn breska flugfélagsins Easyjet, sem FL Group á 11,5% hlut í, vegna skip- unar eftirmanns forstjóra félagsins. Easyjet hefur leitað að nýjum for- stjóra frá í maí sl. þegar forstjórinn Ray Webster tilkynnti að hann hygð- ist segja upp störfum. Colin Day, sem setið hefur í stjórn Easyjet og er fjár- málastjóri hreingerningavörufyrir- tækisins Reckitt Benckiser, var boðið að taka við forstjórastarfinu, að því er segir í vefútgáfu Times, og hafði hann mikinn áhuga á að taka því. Hann er nú hættur við og hefur ákveðið að taka heldur stjórnarsæti í tveimur öðrum fyrirtækjum, WPP og Imper- ial Tobacco. This is money segir Day hafa sagt sig úr stjórn Easyjet fyrir hálfum mánuði þegar honum þótti ljóst að forstjórastóllinn yrði ekki hans og einungis væri verið að rugla í honum. Talsmaður Easyjet segir félagið vera með ýmsa til skoðunar í starf forstjóra, bæði innanhúss og utan. Ekkert liggi á að ráða og það yrði ekki gert fyrr en rétta manneskjan væri fundin. Day er ekki einn um að segja af sér stjórnarsæti hjá Easyjet, það gerði jafnframt Tony Illsley tveimur vikum áður. Sæti þeirra hafa ekki verið fyllt samkvæmt því sem bresku blöðin segja. Ekki er þó hætt við því að Easyjet standi uppi forstjóralaust á næstunni þar sem Ray Webster hef- ur lofað að gegna starfinu þar til nýr forstjóri er fundinn, hverfur hann þó frá í síðasta lagi í nóvember á næsta ári. Easyjet er talið geta staðið frammi fyrir yfirtöku þar sem Jón Ásgeir Jó- hannesson og Kevin Stanford hafi tekið sæti í stjórn FL Group í síðasta mánuði. FL Group á sem fyrr segir 11,5% hlutafjár í félaginu en Stelios Haji-Ioannou, stofnandi Easyjet tók aftur sæti í stjórn félagsins í maí og hefur sagst munu verjast yfirtöku. Hann og systkini hans eiga samtals rúm 40% hlutafjár. Deilur í stjórn Easyjet ● HAGNAÐUR Eimskipafélagsins á fyrri helmingi ársins nam tæplega 357 milljónum króna og jókst um 7% frá sama tímabili á síðasta ári. Þá var hagnaður 333 milljónir. Flutningstekjur á tímabilinu námu 13,8 milljörðum króna en voru í fyrra 11,6 milljarðar. Flutningsgjöld voru 12,4 milljarðar en 10,6 í fyrra. EBITDA-framlegð sem hlutfall af veltu jókst um 2 prósentustig, var 11% nú en 9% í fyrra. Heildareignir í lok júní námu tæp- lega 23 milljörðum króna en voru um áramót 21 milljarður. Eiginfjárhlutfall var 30,4%. Hagnaður Eimskips jókst um 7% OG Vodafone og 365 prent- og ljós- vakamiðlar, sem saman mynda Og fjarskipti, högnuðust um 321 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Til samanburðar var hagnaður af sama tímabil árið áður 222 milljónir króna. Rekstrartekjur Og fjarskipta hf. námu 7.011 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins samanborið við 3.288 m.kr. á sama tímabili í fyrra og jukust um 113% milli tímabila. Sú aukning er að miklu leyti rakin til kaupa Og fjarskipta hf. á 365 ljósvaka- og prentmiðlum á síðasta ári. Af 7 milljarða tekjum komu tæpir 3,8 frá fjarskiptarekstri og 3,3 frá fjölmiðlarekstri, þar af voru 1,9 milljarða tekjur af ljósvakamiðlum og 1,4 milljarðar af prentmiðlum. Tekjuaukning á milli ára er 49% af prentmiðlum, 12,6% af ljósvakamiðl- um og 14,5% af fjarskiptum. Hagnaður félagsins fyrir afskrift- ir og fjármagnsliði, EBITDA, var 1.480 milljónir og jókst um 72% frá sama tímabili í fyrra og nam EBITDA-framlegð félagsins nú 21%. Framlegðin af fjarskipta- rekstri nam 27% og af rekstri fjöl- miðla var 13,7% EBITDA-framlegð. Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Og fjarskipta, segir í tilkynningu frá félaginu að sé miðað við að tekjur 365 ljósvaka- og prentmiðla séu taldar með fyrstu 6 mánuði ársins 2004 þá hafi tekjuvöxtur samstæð- unnar verið um 18% fyrstu 6 mánuði ársins 2005. Hann segir mikinn hraða og þróun hafa einkennt rekst- ur Og fjarskipta hf. á tímabilinu og að á sama tíma hafi samstæðan stað- ist áætlanir sínar og vel það. Dreifikerfi í sérstakt félag Félagið stefnir að því á þriðja árs- fjórðungi að færa hluta af sjón- varpsframleiðslu 365 til Saga Film, sem keypt var í lok júlí, auk þess sem rekstur dreifikerfis og útsend- ingar útvarps- og sjónvarpsefnis verður flutt í aðgreint félag. Hvort um sig sérhæfir sig á sínu sviði og hefur sjálfstæða vaxtarmöguleika en 365 á hlut í fyrirtækjunum. Starf- semi 365 mun eftir þessar breyt- ingar einskorðast við rekstur fjöl- miðla, uppbyggingu þeirra og markaðsþróun. Gert er ráð fyrir að rekstrar- tekjur Og fjarskipta hf. muni nema 14,5 til 14,6 milljörðum króna ár árinu í heild og EBITDA-hagnaður verði á bilinu 3 til 3,1 milljarður. Tvöföldun á næstu 2 árum Félagið stefnir að því að tvöfalda umsvif sín á næstu 18–24 mánuðum. Þegar Morgunblaðið innti Eirík eft- ir því hvernig félagið hygðist gera það svaraði hann: „Eins og fram hefur komið ætlum við okkur að tvö- falda umsvifin bæði með innri vexti og kaupum á nýjum fyrirtækjum. Þetta er markmið sem höfum sett okkur.“ Hann sagði um skiptingu hagn- aðar á milli fjarskipta og fjölmiðla að 70% EBITDA-hagnaðar sé kom- inn frá fjarskiptahlutanum og 30% frá fjölmiðlahlutanum. „Við erum afskaplega ánægð með uppgjörið og sérstaklega þá 49% tekjuaukningu sem var af prent- miðlunum,“ sagði Eiríkur að lokum. Mikil tekjuaukning hjá Og fjarskiptum ● BANDARÍSKI netframleiðandinn Cisco Systems hefur áhuga á að kaupa finnska fjarskiptarisann Nokia. Frá þessu greindi breska blaðið The Business í gær en það mun vera þráðlaust netkerfi Nokia sem Cisco sækist eftir. Talsmenn Nokia, sem ekki leggja það í vana sinn að tjá sig um slíkan orðróm, hafa sagt að ekkert sé til í þessu heldur sé hér um að ræða frétt sem hafi verið skálduð upp vegna orðróms á Netinu. Sérfræðingar sem sænska frétta- þjónustan Direkt hefur haft samband við telja að slík yfirtaka sé ekki lík- leg. Vitað sé að Cisco hafi áhuga á þráðlausum samskiptum, miðað við styrk þeirra á sviði fastra neta, en fremur ótrúlegt að fyrirtækið leggi inn á farsímamarkaðinn. Markaðsvirði Cisco, sem er stærsti framleiðandi netbúnaðar í heimi, er um 123 milljarðar dollarar en markaðsvirði Nokia er um 73 milljarðar dollara. Cisco hefur áhuga á Nokia DANSKA skipafélagið AP Møller-Maersk hefur náð yfirráðum yfir 95,6% af hlutafé í hollenska keppi- nautnum P&O Nedlloyd. Þar með verður til stærsta flutningaskipafélag heims með um 20% markaðs- hlutdeild. Alls bauð AP Møller-Maersk um 2,3 milljarða evra fyrir öll bréf í félaginu, samsvarandi 180 milljörðum króna, og rann tilboðstímabilið út í fyrradag. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og banda- rísk samkeppnisyfirvöld hafa samþykkt kaupin, með skilyrðum, og virðist því fátt standa í vegi fyrir að samruninn verði að veruleika. Samruni skipafélaga í höfn Morgunblaðið/Helgi Þorsteinsson                           !"#   !$   % &'  ( "&' )&  *)&   +, &# &  +#&  $&' )& ( "&'  -."  /(!  /0 !1 .  &#)&  2           ! 0 ( "&'  %0 1&  $34& 15 &&  -  !  &  67.1  8# 1    9:! "& 9.".0 /"0   ;    <;## &#0   &  = && "  &       ! ! ."' >;11  $&' 30 ( "&'  /" ?"# /"&'  <4 4  "#  $% @A>B /3    .       C             C   C        C C C C C  .; &#  ;   . C  C C C C C C C C C C  C C C C C C C C C C C C C C C C D CEF C D C EF C D CEF C D CEF C D CEF D EF D C EF D CEF D  EF D C EF C C C C C C C D EF D  EF C C C C C C C C %. "'    '# & < ") 3 " '# G + /"        C              C C       C C C C C                                                                    =    3 ,H   <% I #&"  !1"'       C    C  C      C C C C C  <%C =.#& ;  0 1 0#&& ?"#  <%C =.#& ; #   & &# <%C !; # 0&  BÍLANAUST hefur keypt allt hlutafé í Hjólbarðahöllinni. Seljend- ur eru Hreinn Vagnsson, Birgir Vagnsson, Gunnar Vagnsson og makar. Birgir hefur verið fram- kvæmdastjóri Hjólbarðahallarinnar árum saman og mun hann áfram stýra félaginu eftir söluna. Kaupin eru sögð í samræmi við stefnu Bílanausts, að vera leiðandi fyrirtæki á sviði bíla- og iðnaðar- vöru. Félagið stefnir að áframhald- andi fjárfestingum í arðbærum fyr- irtækjum í sinni grein. Bílanaust er með 9 verslanir og 135 starfsmenn. Velta félagsins á árinu 2005 er áætluð 2,7 milljarðar króna og 3,2 milljarðar 2006. Hjól- barðahöllin flytur inn hjólbarða og felgur fyrir fólksbíla og jeppa. Kaupir Hjólbarðahöllina 6 'J /K9    E E !</> L M    E E A A  8-M    E E +!M 6 .      E E @A>M LN *&.    E E

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.