Morgunblaðið - 09.08.2005, Qupperneq 16
Akureyri | Hundurinn er besti
vinur mannsins stendur ein-
hvers staðar. Greinilegt er að
vel fer á með stráksa sem var
á Ráðhústorgi nýlega og hund-
inum, sem ef til vill er hans.
Þeir voru ósköp þolinmóðir þar
sem þeir biðu á torginu en eft-
ir hverju er ekki vitað. Von-
andi einhverju skemmtilegu og
vonandi var biðin ekki löng
heldur.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Snjalli vinur kæri!
Vinir
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
GRUNDARFJÖRÐUR
EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON
FRÉTTARITARA
Sumarhátíðir á landsbyggðinni eru afar
mikilvægar fyrir íbúa byggðarlaganna auka
á samkennd þeirra og bræðralag. Í Grund-
arfirði hefur slík sumarhátíð nú verið haldin
árlega frá 1997 og skipað sér fastan sess síð-
ustu helgina í júlí eða helgina fyrir versl-
unarmannahelgi. Grundfirðingar kunna að
skemmta sér og gestum sínum og þegar
veðurblíðan leggst á sveif með skipuleggj-
endum hátíðar geta menn ekki annað en
glaðst við. Síðustu tvö árin hefur skapast
einskonar karnivalstemning þegar
þorpsbúar ganga fylktu liði frá hverfa-
veislum niður á hafnarsvæðið, skreyttir í
samræmi við hverfalitina gulir, rauðir,
grænir og bláir og skemmta sér fram á nótt.
Fiskkvóta þekkja Grundfirðingar vel,
þrátt fyrir að kvótakerfið hafi verið ýmsum
erfitt hefur útgerðaraðilum í Grundarfirði
tekist að laga starfsemi sína að því og á
þann hátt byggt upp öflugt og stöðugt at-
vinnulíf. Lífæðin liggur um höfnina og þar
gleðjast menn dag hvern sem mikill afli
berst á land. Þótt þar sé aðallega kvóta-
fiskur á ferð er einnig að finna sjávarfang
sem enn er utan kvóta því Grundfirðingar
hafa einnig leitað á ný mið í uppbyggingu
atvinnulífs. Í Grundarfirði eru nú starf-
ræktar tvær vinnslur sem fara ótroðnar
slóðir. Sægarpur ehf. vinnur beitukóng og
Reykofninn ehf. stundar vinnslu á sæbjúg-
um, bæði til útflutnings. 4 bátar með tólf
sjómönnum veiða á Breiðafirði, þessum
vinnslum til aðfanga. Í landi starfar annar
eins hópur við úrvinnslu. Einn daginn lönd-
uðu þessir bátar 17 tonnum samtals á
Grundarfirði, öllum utan kvóta.
Húsnæðisekla er nú að verða eitt helsta
vandamálið í Grundarfirði. Þeir sem hingað
vilja flytja geta það ekki nema þá að flytja
húsið með sér. Bæjarstjórinn hefur af þessu
miklar áhyggjur og hefur verið að reyna að
fá byggingarverktaka til að byggja húsnæði
í kippum en ekki haft erindi sem erfiði.
Nokkur hús eru þó í smíðum eða á teikni-
borðinu svo lausn á brýnasta vanda er í
sjónmáli en dugar þó skammt. Lausar lóðir
eru til staðar og verið er að deiliskipuleggja
nýtt byggingarsvæði í vestanverðum bæn-
um svo um lóðaskort er ekki að ræða.
Spurning hvort Eiður Smári hafi vitað af
öllum þessum ódýru lóðum hér í Grund-
arfirði þegar hann sótti um í Kópavogi.
Súðavík á föstudagskvöld,
en þar fluttu þau íslensk
þjóðlög sem féllu vel í
kramið hjá áhorfendum.
Einnig mættu hátt í 200
manns á kvöldvöku undir
stjórn Hermanns Gunn-
arssonar, sem bar yfir-
skriftina „Það var lagið á
Hið árlega lista-sumar í Súðavíkheppnaðist von-
um framar, ef marka má
fréttaflutning Bæjarins
besta á Ísafirði. Hátt í þrjú
þúsund manns heimsóttu
listahátíðina þar sem
fram komu listamenn eins
og Ragnheiður Gröndal,
Ellen Kristjánsdóttir,
hljómsveitin Buff og Her-
mann Gunnarsson. Voru
allir viðburðir afar vel
sóttir og segist Pálína
Vagnsdóttir, skipuleggj-
andi listasumarsins, vera
afar sátt við viðtökurnar í
samtali við fréttavefmiðil
Bæjarins besta,
www.bb.is.
Þá var m.a. fullsetið á
tónleikum systkinanna
Ragnheiðar og Hauks
Gröndal í íþróttahúsinu í
vestfirska vísu“ í íþrótta-
húsinu í Súðavík á laug-
ardag. Sungu Vestfirð-
ingar þar saman við
undirleik hljómsveit-
arinnar Buff sem leikur
undir í þáttunum „Það var
lagið“ sem slegið hafa í
gegn á Stöð 2.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Brekkusöngur á listasumri í Súðavík.
Vel heppnað listasumar í Súðavík
Rúnar Kristjánssoná Skagaströndheyrði af fiski-
deginum mikla á Dalvík.
Hann veiddi upp úr sjálf-
um sér:
Dalvíkingar fjörs með fín
færi í hafi djúpu,
buðu öllum inn til sín
upp á fiskisúpu.
Opnuðu hús sín upp á gátt,
enginn þurfti lykla,
fullkomnuðu á frægan hátt
fiskidaginn mikla!
Síðan bættist hringhenda
í aflann:
Margir ama víkja úr vist,
vaxta framagæði.
Flétta saman líf og list
líkt og gamankvæði.
Og loks rýnir Rúnar í net
samfélagsins:
Samfélagsmyndin er réttlætis
rýr,
ráðamenn augunum loka.
Buddunnar lífæð í brjáluðum
gír,
bankarnir þrútnir af hroka!
Af fiskideginum
pebl@mbl.is
HERFERÐARSTARFSFÓLK Amnesty
International, sem kynnt hefur Amnesty
International á götum úti í Reykjavík í
sumar, mun kynna starf Amnesty Inter-
national á Akureyri og Egilsstöðum vikuna
8.–12. ágúst og bjóða fólki að ganga til liðs
við samtökin.
Samtökin hvetja Akureyringa og Egils-
staðabúa til að taka vel á móti þeim.
Amnesty International er alþjóðleg
hreyfing fólks sem berst fyrir mannrétt-
indum. Innan raða samtakanna er nú rúm-
lega ein og hálf milljón félaga í yfir 140
löndum. Eru þeir úr öllum stéttum og hafa
ólíkar stjórnmálaskoðanir og trúarbrögð.
Það sem sameinar félaga í Amnesty er ein-
lægur vilji til að skapa heim þar sem allir
njóta mannréttinda.
Amnesty Int-
ernational á
Akureyri og
Egilsstöðum
Selfoss | Framkvæmdum við endurnýjun
á frystihúss Sláturfélags Suðurlands er að
ljúka, en þær hafa kostað 60–70 milljónir
króna að sögn Guðmundar Svavarssonar,
framleiðslustjóra SS. Hann segir þetta
bæta verulega aðstöðu í húsinu, frysting
verði hraðari og frystigeymslur hafi verið
stækkaðar. Þá minnki orkukostnaður með
nýjum búnaði.
Þak hússins var endurnýjað, en það var
að verða ónýtt. Jafnframt var þakið hækk-
að, sem eykur rúmmál hússins um 20%, en
aðrar breytingar innanhúss auka nýtingu
þess enn meira.
Nýjar frysti-
geymslur
á Selfossi
♦♦♦
Suðurland | Ný heimasíða vegna kosninga
um sameiningu Ölfuss og Flóa hefur verið
opnuð. Það er samstarfsnefnd sveitarfé-
laganna í Ölfusi og Flóa sem sendur fyrir
heimasíðunni, en hún er vistuð á vefsvæði
verkefnisins Sunnan3 – rafrænt samfélag –
www.sunnan3.is. Á heimasíðunni má nálg-
ast allar gagnlegar upplýsingar um sam-
einingarferlið, t.d. fundargerðir samstarfs-
nefndar og fulltrúa í nefndinni, og senda
þeim tölvupóst eða fyrirspurn. Þá má finna
á síðunni upplýsingar um vinnuhópa og þá
málaflokka sem þeir hafa til umfjöllunar
auk tenginga við sveitarfélögin og aðra
hagsmunaaðila.
Vefsíða vegna
sameiningar
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
♦♦♦