Morgunblaðið - 09.08.2005, Síða 19

Morgunblaðið - 09.08.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 19 MINNSTAÐUR LANDIÐ Skagafjörður | Í sumar hefur verið boðið upp á fjölbreyttan tónlistar- flutning á Hólum í Hjaltadal og verða alls haldnir 14 tónleikar í sumar. Flestir hafa verið í Hóla- dómkirkju að lokinni messu en einnig hafa verið þrennir kvöld- tónleikar í Auðunnarstofu. Þarna hafa ýmsir listmenn komið fram, bæði einstaklingar og kórar. Um næstu helgi verður hin svokallað Hólahátíð og verður þá að vanda mikið um að vera á Hólum. Sunnu- daginn 21. ágúst verður Kamm- erkór Skagafjarðar með tónleika og það verða lokin á þessari tónleika- dagskrá sem hófst um miðjan júní. Að sögn Jóns Aðalsteins Bald- vinssonar, vígslubiskups á Hólum, eru það Hólanefnd og Guðbrands- stofnun sem standa fyrir þessu tón- leikahaldi. Nýtur Hólanefnd styrks frá Þjóðkirkjunni en Guðbrands- stofnun fær framlag af fjárlögum til að standa straum af kostnaði. Tón- leikarnir eru liður í að halda uppi menningarhaldi á Hólastað. Hafa þeir yfirleitt verið vel sóttir og hef- ur þetta framtak vakið athygli og mælst vel fyrir. Málþing um náttúrusiðfræði Eins og áður sagði verður Hólahátíð um næstu helgi. Heið- ursgestur verður frú Vigdís Finn- bogadóttir og flytur hún hátíð- arræðu á sunnudaginn að lokinni hátíðarguðsþjónustu þar sem séra Pétur Þórarinsson í Laufási mun predika. Hátíðin hefst raunar á föstudags- kvöldi með málþingi um nátt- úrusiðfræði. Á laugardegi verður svokölluð pílagrímaganga til Hóla. Lagt verður upp frá Atlastöðum í Svarfaðardal og gengið yfir Helj- ardalsheiði og einnig verður gengið frá Flugumýri í Skagafirði til Hóla. Þá verður gengið frá Hólum í svo- kallaða Gvendarskál sem er í fjall- inu ofan Hólastaðar þar sem verður sungin messa. Fjölbreyttur tónlist- arflutningur verður á Hólum í tengslum við hátíðina þar sem bæði innlent og erlent tónlistarfólk mun koma fram. Fjölbreyttur tónlistarflutningur allar helgar á Hólum Ljósmynd/Örn Þórarinsson Eftir góða stund Jón Aðalsteinn vígslubiskup á Hólum, Ellen Kristjáns- dóttir og KK að loknum tónleikum systkinanna í Hóladómkirkju. Hólahá- tíð næstu helgi Eftir Örn Þórarinsson Árnessýsla | Það er fátt sem kýr kunna betur að meta en kjarnmikið græn- fóður og kætast kýrhjörtun þegar þeim býðst að japla á fóðurkáli. Á bænum Dalbæ í Hreppum bauð bóndinn kúm sínum upp á fóðurkál til að hressa upp á tilveruna. Þó er mikilvægt að beita lítilli rafmagnsgirðingu eða ragbeit, til að kýrnar vaði hreinlega ekki hömlulaust í kálið, því þá fá þær illt í magann auk þess sem gott kjarnfóður fer til spillis. Grænfóðrið spratt mun seinna í ár heldur en í fyrra í uppsveitum Árnes- sýslu. Þó tók það afar vel við sér þegar fór að væta og hlýna. Þykir það hið besta fóður fyrir mjólkurkýr. Maulað á fóðurkálinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.