Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 35

Morgunblaðið - 09.08.2005, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 35 MENNING Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30, gönguhópur kl. 13.30, púttvöllur kl. 10–16.30. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, böðun, fótaaðgerð, út að pútta með Jónu. Vetrarstarfið hefst fimmtudaginn 1. sept. Ath. búta- saumsmámskeiðin byrja mánudag- inn 3. okt. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, Kl. 9–16.45 hárgreiðslu- stofan opin, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–16 félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi. FEBÁ, Álftanesi | Púttæfingar fyrir eldri borgara verða alla miðviku- daga í ágúst kl. 11–12 á púttvellinum hægra megin við Haukshús. Kaffi og meðlæti að loknum æfingum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur með fararstjóra og farþeg- um í ferð um Eldgjá og Lakagíga verður í dag, þriðjudag kl. 13, í Stangarhyl 4. Miðvikudagur: Göngu– Hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 10. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi–spjall– dagblöðin, hárgreiðsla, frí til 16. ágúst, kl. 10 boccia og pútt, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 ferð í Bónus, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Boccia kl. 9.30. Böðun virka daga fyrir hádegi. Hádegisverður. Dagblöðin liggja frammi til aflestrar. Fótaaðgerðir 588 2320. Hárgreiðsla 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Púttvöllur alltaf opinn. Betri stofa og Listasmiðja 9–16. Gönguhópurinn Sniglarnir 9–10. Bónus 12.40. Bókabíll 14.15–15.30. Hárgreiðslustofa Pamelu 568 3139. Fótaaðgerðarstofa Grétu 897 9801. Snæfellsnesferðin er fimmtudag 18. ágúst. Uppl. í síma 568 3132. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handa- vinna. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, handavinnustofan opin, hár- greiðsla og böðun, félagsvist kl. 14. Skráning stendur yfir í námskeið sími 411 9450. Kirkjustarf Garðasókn | Opið hús í sumar í Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju, á þriðju- dögum, kl. 13 til 16. Við spilum lomb- er, vist og bridge. Röbbum saman og njótum samverunar. Kaffi á könn- unni. Vettvangsferðir mánaðarlega, auglýstar að hverju sinni. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýsingar í síma 895 0169. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs- þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hjallakirkja | Bæna– og kyrrð- arstund er í Hjallakirkju þriðjudaga kl. 18. Laufin falla. Norður ♠ÁK6 ♥32 N/NS ♦Á10962 ♣654 Vestur Austur ♠DG103 ♠97542 ♥ÁD87 ♥G1054 ♦43 ♦G ♣DG2 ♣1097 Suður ♠8 ♥K96 ♦KD875 ♣ÁK83 Suður verður sagnhafi í fimm tíglum eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður -- -- Pass 1 tígull Dobl 2 grönd * Pass 5 tíglar Pass Pass Pass Svar norðurs á tveimur gröndum sýnir góðan tígulstuðning og er um leið áskorun í geim. Þrjú grönd hefði verið létt spil, en suðri er vorkunn að skjóta frekar á fimm tígla með einspil í spaða. Hvað um það. Vestur spilar út spaðadrottningu og spurningin er: Hvernig á að taka ellefu slagi? Sagnhafi veit fyrir víst að vestur á hjartaásinn, svo eini möguleikinn er að fríspila þrettánda laufið án þess að austur komst inn til að spila hjarta í gegnum kónginn. Best er að spila strax litlu laufi úr borði í öðum slag með þeirri áætlun að setja áttuna ef austur fylgir smátt. En austur er vel vakandi og hoppar upp með tíuna. Suður tekur með ás og vest- ur er með á nótunum, því hann lætur drottninguna detta. Þá tekur sagnhafi tvisvar tromp og spilar aftur laufi úr borði. Austur stingur upp níu, sem suður verður að taka og vestur hendir gosanum undir í örvæntingarfullri viðleitni til að byggja upp innkomu á áttu makkers. En suður er með áttuna, svo liturinn er frír og spilið vinnst með yfirslag. Svona á að taka fjóra slagi á þennan lauflit! BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3 e6 5. Rf3 Rbd7 6. a3 Bd6 7. b4 O-O 8. Bb2 De7 9. Dc2 a6 10. Bd3 dxc4 11. Bxc4 e5 12. Ba2 Bc7 13. O-O exd4 14. exd4 Rb6 15. Hae1 Dd6 16. He5 Dd8 17. Hee1 Rbd5 18. Re5 Rxc3 19. Bxc3 Rd5 20. Bd2 Dd6 21. Bb1 g6 22. Dc5 Be6 23. Dxd6 Bxd6 24. Hc1 Had8 25. Hfe1 Hfe8 26. g3 Rc7 27. Rc4 Rb5 28. Rxd6 Hxd6 29. Bf4 Hd7 30. He3 Rxd4 31. h4 f6 32. Hce1 Kf7 33. g4 Hee7 34. g5 Bd5 35. Hxe7+ Hxe7 36. Hxe7+ Kxe7 37. gxf6+ Kxf6 38. Kf1 Rf3 39. h5 gxh5 40. Bxh7 h4 41. Bd3 h3 42. Be2 Kf5 43. Bg3 Staðan kom upp á ofurmóti sem lauk fyrir skömmu í Biel í Sviss. Annar sig- urvegara mótsins, Boris Gelfand (2724), hafði svart gegn Christian Bauer (2641). 43. …Bc4! Snotur leikur sem þvingaði hvítan til að gefast upp þar sem eftir 44. Bxc4 Rd2+ hefur svartur gjörunnið endatafl. Lokastaða mótsins varð þessi: 1.–2. Andrei Volokitin (2671) og Boris Gelfand (2724) 6 vinninga af 10 mögulegum. 3. Yannick Pelletier (2603) 5 v. 4.–5. Hikaru Nakamura (2660) og Christian Bauer (2641) 4½ v. 6. Magnus Carlsen (2528) 4 v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. MYNDSTEF og Landsbanki Ís- lands hyggjast í október veita heiðursverðlaun fyrir afburða framlag til myndlistar eða fram- úrskarandi myndverks eða sýn- ingar, að því er segir í tilkynn- ingu. Stjórn Myndstefs leitar eftir til- nefningum frá stjórnum aðild- arfélaga samtakanna en að auki hafa allir félagsmenn Myndstefs rétt til að tilnefna listamenn til verðlaunanna. Að því er segir í fréttatilkynn- ingunni koma allir myndhöfundar til greina við úthlutun en miðað skal við að verk listamannsins hafi verið birt eða gefið/gefin út um svipað leyti og verðlaunin eru veitt eða á síðustu árum. Nema heiðursverðlaunin 1.000.000 krónum sem forseti Ís- lands afhendir við hátíðlega at- höfn sem fara mun fram í Lista- safni Íslands. Á heimasíðu Myndstefs má finna eyðublað fyrir þá sem koma vilja tilnefningum á framfæri en frest- ur til að skila inn tilnefningum er til loka ágústmánaðar. Myndlist | Myndstef og Landsbankinn boða samstarf Einnar milljónar króna heiðursverðlaun MIKIL hátíðarhöld hafa staðið yfir það sem af er ári vegna þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu H.C. Andersens. Í lok júlí var frumsýnt verkið H.C. Andersen og Jenny Lind í Liselund Slotspark á Mön en höf- undur og leikstjóri verksins er Steffen Sommerstedt. Með aðalhlutverkin fara Íslend- ingarnir Kristján Ingimarsson, sem rithöfundurinn, og Sóla Braga, sem sænski næturgalinn Jenny Lind. Kristján er vel þekktur fyrir lát- bragðsleik og muna eflaust margir eftir honum frá Grímunni í ár, þar sem hann tróð upp með atriði úr verkinu Mike Attack, og Sólu þekkja margir fyrir sópransöng sinn í gegnum árin. Þónokkuð hefur verið fjallað um sýninguna í dönskum blöðum og þar á meðal birtust viðtöl við Sólu og Kristján. Leiksýningin hefst á tónleikum Lind þar sem ævintýraskáldið hrífst mjög af söngkonunni. Í framhaldinu reynir Andersen að ná athygli hennar og inn í sýninguna fléttast síðan brot úr ævintýra- heimi skáldsins og verka hans. Kristján og Sóla í leiksýningu um H.C. Andersen Kristján Ingimarsson og Sóla Braga fara með hlutverk H.C. And- ersens og Jenny Lind í samnefndu verki á Mön. TÓNLIST Hallgrímskirkja ORGELTÓNLEIKAR Verk eftir Bach, Nikulás frá Kraká, Davíð frá Bergamó, Jongen, Borowski og Eben. Zygmunt Strzep orgel. Sunnudaginn 7. ágúst kl. 20. HELDUR færra var sl. sunnudag en oft áður á Sumarkvöldstónleikum við orgelið í Hallgrímskirkju. Án þess að glíma við þá dulsveipuðu gátu hvað ræður aðsókn hverju sinni, má samt óhikað fullyrða að margir orgelunnendur hafi misst af miklu, því bæði túlkun og fjölbreytni verkefnavals voru fyrir ofan með- allag, og hafa þó erlendir flytjendur tónleikaraðarinnar sjaldan reynzt neitt slor. Þó ekki væri það tekið fram, kom Zygmunt [Sigmundur] Strzep líklega fram hér í fyrsta skipti og stóð vel undir fullyrðingu tónleikaskrár um að hann sé meðal beztu organista Póllands um þessar mundir. Þekktustu verkin til viðmiðunar á leikfærni hljómuðu þegar í byrjun. Frómt frá sagt urðu þau ekki bein- línis til að örva væntingar um það sem koma skyldi, því í Tokkötunni góðkunnu og fúgu í d-moll (BWV 565) fannst mér ég heyra enduróm af ýktri rúbatómeðferð Wolfgangs Rübsam og jafnvel viðloðandi tízku- tiktúrum sem að mínum smekk troða flytjandanum fram fyrir verk- ið án þess að gera það intressantara í staðinn. Fyrir utan hvað fúgan varð óskýr á frekar ofkeyrðu hraðavali í Hallgrímsheyrðinni og blés á við- teknar (en kannski úreltar?) venjur um andstæð raddvalsbergmál. Jesu bleibet meine Freude (Slá þú hjart- ans hörpustrengi; orgelumritun Bachs á cantus firmus kórfant- asíunni úr samnefndri kantötu) var álíku rúbatómarki brennd og dró til skaða úr himnesku dansflugi þessa vinsæla stykkis, er Bretar ku m.a.s. nota sem brúðarmars. Né heldur var þar ýkja litríkt raddval í boði. Dæmið snerist þó blessunarlega við eftir það. Að vísu voru sjö stuttir hirðdansar úr safni Jóhannesar frá Lublin (1540; talið eftir „Nicolaus Cracoviensis“) áfram heldur rásulir í tempói. En einhverra hluta vegna þoldu þeir það betur en Bach, og forneskjuleg registrun þeirra var bráðsannfærandi í skýrum leik Strzeps. Sinfónía í D eftir Davide da Bergamo (1791–1863) bauð síðan upp á kátbroslega blöndu af Rossini- stíl og sirkus í oft ískrandi fyndnu raddvali, sem eflaust hefur tórt eftir í lírukassabókmenntum 20. aldar. Fyrri hluta lauk með þétt skrifaðri en samt eldvakurri Sonata Eroica Op. 94 eftir Joseph Jongen (1873– 1953) sem m.a. skartaði pedalkafla er gaf limafráustu steppdönsurum Broadways lítið eftir. Þríþætt postimpressjónísk Sónata pólsk-ameríska tónskáldsins Felix Borowskis (1872–1956) nr. 2 í C var í senn melódísk og stórglæsileg og gæti eins hafa verið hugsuð fyrir vesturheimsk „monster“-orgel – þó að Hallgríms-Klaisið hefði vissulega hvorki þurft að kvarta undan kraft- leysi né litadýrð í hugvitsamlegu raddvali Strzeps. Loks var „Student Songs from Faust“ eftir Petr Eben (f. 1929); tvímælalaust fjörugasta verk tékkneska tónskáldsins sem ég hef heyrt til þessa, enda brá það sér á milli sölsusveiflu, bæjarabjórvalsa, martraðartremma og nærri ofvirkra hergöngulaga í þvílíkum æsku- sprækum darraðardansi að maður stóð nærri á öndinni af hrifningu. Slíkt telst í hæsta máta óvenjulegt þegar lifandi nútímatónskáld er ann- ars vegar – en í leiftrandi virtúósri túlkun pólska organistans virtist það fullkomlega eðlilegt. Ríkarður Ö. Pálsson Pólskt orgelfjör Í BLÖNDUSTÖÐ á Norðvesturlandi hefur Landsvirkjun komið upp sýn- ingu í samstarfi við Íslandsdeild Amnesty International sem opnuð var í byrjun ágúst. Sýningin inniheld- ur ágrip af sögum nokkurra ein- staklinga sem fé- lagar Íslands- deildar Amnesty International hafa átt þátt í að frelsa síðustu 30 árin. Þetta fólk var fang- elsað fyrir þær sakir einar að tjá trú sína eða skoðanir, eða vegna kyns síns og uppruna. Þetta fólk kallar Amnesty International samvisku- fanga. Sýningin verður opin gestum og gangandi alla daga í sumar, kl. 13–17. Eftirfarandi er tilvitnun í sam- viskufangann, Mohamed El Boukili frá Marokkó. „Á dimmustu tímum fangavistar minnar komu orð ykkar og bréf sem dropar af regni, sem lengi hefur verið beðið eftir í endalausri eyðimörk. Frelsi mitt í dag er ávöxtur þols ykk- ar og þreks, vinnu og hugrekkis.“ Sýning Amnesty International „Dropar af regni“ Mohamed El Boukili

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.