Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 11
FRÉTTIR
„VIÐ VÆRUM ánægðar ef við værum raunveru-
lega með þau laun sem nefnd voru í skrifum
blaðsins,“ segja Helga Friðriksdóttir og Anna
Auðbergsdóttir og vísa þar til þeirra launatalna
sem hafðar voru eftir Sigurlaugu Gröndal, þjón-
ustufulltrúa hjá Eflingu stéttarfélagi í umfjöllun
um manneklu á hjúkrunarheimilum borgarinnar í
blaðinu í gær.
Helga og Anna starfa báðar við umönnun á
Hrafnistu og segja raunveruleikann allt annan en
birst hafi í fyrrnefndum tölum frá Eflingu.
147 þúsund kr. heildarlaun
á mánuði með vaktaálagi
„Við þekkjum hreinlega ekki þessar tölur,“
sagði Anna og bætti við að sér þyki miður að
þetta séu þær upplýsingar sem almenningur fái
og telji þá mögulega í ljósi þessa að launakjörin
séu skárri en þau í reynd eru. Sögðust þær í sam-
tali við blaðamann vilja upplýsa hver raunveru-
leikinn væri til þess að fólk skildi hvaða launatöl-
ur verið væri að tala um. Máli sínu til stuðnings
sýndu þær blaðamanni þrjá launaseðla júnímán-
aðar þriggja kvenna sem vinna við umönnun á
sjúkradeild á Hrafnistu. Þar sést að rúmlega tví-
tug starfskona sem er með tæplega 5 ára starfs-
reynslu og lokið hefur öllum starfstengdum nám-
skeiðum sem Efling býður upp á er með 111.388
kr. í grunnlaun samkvæmt dagtaxta fyrir fullt
starf. Með vaktaálagi, þar sem hún vinnur aðra
hverja helgi, er hún samtals með 147.409 kr. á
mánuði og fær útborgað 104.760 kr. Starfskona
sem er eldri en 45 ára og með rúmlega 27 ára
starfsreynslu og hefur lokið öllum starfstengdum
námskeiðum er með 131.210 kr. í grunnlaun sam-
kvæmt dagtaxta. Með vaktaálagi er hún samtals
með 156.023 kr. á mánuði og fær útborgað 108.045
kr. Samstarfskona þeirra sem er með tæplega 8
ára starfsreynslu og hefur lokið tveggja ára fram-
haldsnámi sem félagsliði er með 135.175 kr. í
grunnlaun samkvæmt dagtaxta. Með vaktaálagi
er hún samtals með 155.826 kr. og fær útborgað
106.548 kr.
Grunnlaunin skammarlega lág
Að mati Helgu og Önnu má öllum vera ljóst að
grunnlaunin eru skammarlega lág og ekki enda-
laust hægt að vísa til þess að fólk geti tekið auka-
vaktir til að hífa upp launin. „Við getum ekki
„VIÐ VONUM að þetta sé nú bara tímabundið
ástand sem rekja má til þeirrar miklu þenslu sem
ríkir í samfélaginu nú,“ segir Jón Kristjánsson,
heilbrigðisráðherra, þegar
leitað var viðbragða hjá hon-
um vegna frétta um mikla
manneklu á hjúkrunarheim-
ilum borgarinnar.
Spurður hvort núverandi
ástand geti hugsanlega haft
einhver áhrif á áætlanir ráðu-
neytisins um byggingu nýrra
hjúkrunarheimila segist Jón
ekki sjá að núverandi ástand
þurfi að setja strik í reikning-
inn og minnir á að nokkuð sé í byggingu þeirra
nýju heimila sem fyrirhuguð eru á næstu árum,
þ.e. byggingu hjúkrunarheimilis í Sogamýri og
vesturbæ. Spurður hvort hann hafi áhyggjur af
því að erfitt verði að manna stöður á þeim heim-
ilum segir Jón það einfaldlega verkefni sem tak-
ast þurfi á við þegar þar að komi. „Ég held að
það sé engin ástæða til að örvænta yfir þessu
núna,“ segir Jón.
Aðspurður hvort grípa þurfi til aðgerða til að
ná þeim biðlistum niður sem hlaðist hafa upp á
undanförnum vikum, m.a. vegna þess að nokkur
hjúkrunarheimili borgarinnar hafa stöðvað allar
innlagnir vegna manneklu, svarar Jón: „Við er-
um náttúrlega með biðlista, sérstaklega á höf-
uðborgarsvæðinu, og þeir mega illa við því að
lengjast. En ég ítreka það að ég vona að menn
ráði fram úr þessum vanda þannig að það þurfi
ekki að vera nema tímabundið ástand. Það er
erfitt að grípa til aðgerða nema fá fólk í vinnu.“ Í
umræðunni að undanförnu hefur margsinnis ver-
ið bent á að lágum launum í umönnunarstörfum
er fyrst og fremst um að kenna varðandi það
hversu erfiðlega gengur að manna stöður. Að-
spurður segir Jón þetta vandamál almennt, bæði
hjá ríki og sveitarfélögum, ekki síst þegar mikil
spenna sé á vinnumarkaði og víða yfirborganir.
„En ég sé ekki að það verði tekið á þessu nema í
kjarasamningum. Það er ljóst að daggjöld þess-
ara stofnana hafa tekið mið af kjarasamningum
og erfitt að sjá að þau geti tekið mið af öðru.“
„Engin ástæða til
að örvænta“
Jón Kristjánsson
„Þekkjum hreinlega
ekki þessar launatölur“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
endalaust tekið að okkur aukavaktir, því þá eigum
við aldrei frí. Okkur finnst einnig að það eigi að
vera hægt að sjá fyrir sér með þeim launum sem
fást fyrir fulla vinnu á einum vinnustað,“ segir
Anna og segir margar samstarfskonur þeirra
Helgu taka allar aukavaktir sem bjóðast og marg-
ar sjái sig tilneydda til að vinna aðra vinnu með til
þess eins að ná endum saman. Sjálfar segjast þær
neyðast til að lifa mjög spart til þess að reka
heimili sín með aðeins rúmlega 100 þúsund krón-
ur útborgað um hver mánaðamót og geti t.d. ekki
leyft sér að reka bíl á núverandi launum.
„Það er ekki góð tilfinning að vinna baki brotnu
og vita að maður getur varla séð fyrir sér og sín-
um.“ Aðspurðar segja þær margar samstarfskon-
ur þeirra að undanförnu hafa horfið til annarra
starfa þar sem hærri laun séu í boði. Sökum þessa
sé mikil mannekla á Hrafnistu og það fasta starfs-
fólk sem eftir sé neyðist til að taka aukavaktir til
þess að redda málum. Segjast þær finna fyrir
mikilli pressu um að taka að sér aukavaktir og
höfðað sé til samvisku þeirra. „Í næstu viku lítur
t.d. allt út fyrir að það verði ekkert starfsfólk til
þess að manna vaktirnar og þá neyðist maður til
að hlaupa undir bagga. Við erum jú að vinna með
fólk og það er ekki hægt að skilja það bjarg-
arlaust eftir í rúmum sínum,“ segir Helga.
LÍNUR virðast lítið farnar að skýr-
ast fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokks
fyrir borgarstjórnarkosningarnar
næsta vor, þrátt fyrir að ákveðið
hafi verið að prófkjörið fari fram
4.-5. nóvember, en líklegt er að mál-
ið verði eitthvað ljósara eftir fund
fulltrúaráðs flokksins á mánudag.
Enn sem komið er er Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, sem skipaði annað
sæti lista flokksins í síðustu borg-
arstjórnarkosningum, og verið hef-
ur oddviti sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn, einn um að gefa kost á sér
í fyrsta sætið.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sem
skipaði þriðja sætið á listanum í síð-
ustu kosningum, segist ekki hafa
tekið ákvörðun um hvort hún gefi
kost á sér. Tímabilið sem sé að líða
hafi verið afar gefandi, en enn sé
langt í prófkjör og því liggi ekki á
að taka ákvörðun um framhaldið.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borg-
arfulltrúi, sem skipaði fjórða sætið í
síðustu kosningum, hefur þegar til-
kynnt að hún gefi kost á sér í annað
sæti á framboðslistanum í prófkjör-
inu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, sem
skipaði fimmta sætið á listanum í
síðustu kosningum, segir enn of
snemmt að gefa upp áform sín fyrir
prófkjörið. Æskilegt sé að baráttan
verði stutt en snörp. Þó muni ekki
líða á löngu þar til hann upplýsi um
ákvörðun sína.
Kjartan Magnússon borgar-
fulltrúi, sem var í sjötta sæti í síð-
ustu kosningum, sagðist búinn að
taka ákvörðun um að gefa kost á
sér í eitthvert efstu sætanna, en
sagði of snemmt að segja til um eft-
ir hvaða sæti hann muni sækjast.
Varaborgarfulltrúar
hugsa sér til hreyfings
Nokkuð er síðan Gísli Marteinn
Baldursson varaborgarfulltrúi
ákvað að gefa kost á sér í sæti of-
arlega á lista í prófkjörinu í haust,
en hann hefur enn ekki gefið upp á
hvaða sæti hann muni stefna. Í
samtali við Morgunblaðið í gær
sagðist Gísli munu tilkynna um þá
ákvörðun á næstu dögum. „Ég er
búinn að taka mér sumarið í að fara
yfir málið með vinum, fjölskyldu og
stuðningsmönnum. Ákvörðun hefur
verið að mótast út frá þeim sam-
tölum og þeim vilja sem ég skynja á
fólkinu í kringum mig.“
Jórunn Frímannsdóttir vara-
borgarfulltrúi sagðist ætla að gefa
kost á sér og að hún stefndi á eitt af
sex efstu sætunum en hafi ekki tek-
ið ákvörðun um nákvæmlega hvaða
sæti hún stefni á.
Tveir af núverandi varaborgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, þær
Alda Sigurðardóttir og Margrét
Einarsdóttir, hafa þegar lýst því yf-
ir að þær gefi ekki kost á sér áfram.
Kristján Guðmundsson varaborgar-
fulltrúi sagðist í gær ekki hafa gert
upp hug sinn varðandi það hvort
hann gæfi kost á sér í prófkjörinu.
Nægur tími til stefnu
Júlíus Vífill Ingvarsson, lögmað-
ur og fyrrverandi borgarfulltrúi,
hefur lýst því yfir að hann gefi kost
á sér í forystusæti. Í samtali við
Morgunblaðið í gær sagði hann
talsverðan tíma til stefnu. „Ég hef
verið að ræða við sjálfstæðismenn
hér í Reykjavík og hlusta eftir
þeirra skoðun í þessu máli, en ég er
ekki ennþá tilbúinn til að gefa það
upp hvaða sæti það er sem ég ætla
að sækjast eftir.“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
varaformaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna, skipaði 19. sætið
á lista sjálfstæðismanna í síðustu
borgarstjórnarkosningum. Hún
segir það „líklegra en ekki“ að hún
gefi kost á sér í prófkjörinu, en hún
svari því ekki afdráttarlaust að
sinni.
Ekki náðist í Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra sem skipaði
fyrsta sætið á borgarstjórnarlista
Sjálfstæðisflokks í síðustu kosning-
um, en hann sagði í samtali við
Morgunblaðið hinn 19. júlí síðastlið-
inn að hann hefði ekki áform um að
gefa kost á sér í prófkjörinu.
Línurnar taldar skýrast eftir helgina
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
RANNSÓKNARNEFND flugslysa
(RNF) hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að mistök flugmanns hafi
orðið til þess að nauðlenda þurfti
tveggja sæta þyrlu sem notuð var við
flugkennslu um miðjan mars 2004. Í
þyrlunni var flugkennari ásamt nem-
anda sem var að æfa nauðlendingar.
Fram kemur í skýrslu RNF vegna
málsins að kennarinn hafi ákveðið að
láta nemann æfa aðflug til nauðlend-
ingar á ójöfnum lendingarstað, og
hafi því dregið úr krafti og látið nem-
ann velja stað til að lenda, þó ekki
hafi átt að lenda vélinni við æfinguna
sjálfa.
Þegar þyrlan var komin í nokk-
urra tuga metra hæð yfir jörðu tók
hins vegar kennarinn ákvörðun um
að velja betri stað og tók stjórnina,
og dró úr fallhraða með því að reisa
nef þyrlunnar. Við það rakst stél-
bóma þyrlunnar í mosabarð með
þeim afleiðingum að stélskrúfan
hætti að snúast. Flugkennarinn
ákvað þegar að nauðlenda, og sluppu
bæði hann og neminn ómeiddir.
Þyrlan skemmdist nokkuð, en ekk-
ert kom fram við rannsókn sem benti
til bilunar í stjórntækjum eða
hreyfli.
Nauðlent
vegna mis-
taka flug-
kennara
FRAMKVÆMDASVIÐ
Reykjavíkurborgar mun kanna
styttingu á flugbrautum á
Reykjavíkurflugvelli og hugs-
anleg ný flugvallarstæði í sam-
vinnu við stýrihóp um heildar-
skipulag Vatnsmýrarinnar, en
borgarráð samþykkti í gær ein-
róma að fela framkvæmdasviði
þetta verkefni.
Haft verður samráð við flug-
rekstraraðila, flugmálastjórn
og samgönguráðuneyti, auk ná-
grannasveitafélaga þar sem
staðsetning flugvallar hefur
bein áhrif. Borgarráð fagnaði
áhuga flugrekstraraðila og
samgönguráðherra á því að
kanna hugmyndir um styttingu
flugbrauta og kanna önnur
flugvallarstæði sem geti þjónað
innanlandsflugi. Að loknu
frummati verði vænlegustu
kostirnir metnir nánar, frumtil-
laga gerð um legu flugbrauta,
skipulag flugvallarsvæðis, fyr-
irkomulag vegtenginga og
áætlun gerð um stofnkostnað.
Kanna
styttingu
flugbrauta
VESTNORRÆNA ráðið hvetur rík-
isstjórnir Vestur-Norðurlanda til
þess að tryggja flugsamgöngur milli
Narsarsuaq og Reykjavíkur, en nú-
verandi samningur þar að lútandi
rennur út um áramótin.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem ráðið sendi frá sér að loknum
ársfundi sínum sem haldinn var á
Ísafirði í vikunni. Ennfremur er
hvatt til þess að samningur um sam-
göngurnar verði gerður til fleiri ára.
Vestnorræna ráðið
Flugsam-
göngur verði
tryggðar
ANNA Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sóltúns, hjúkrunarheimilis fyrir aldraða, segir að vel hafi
gengið að manna í stöður á hjúkrunarheimilinu. „Við erum vel sett. Það hefur gengið mjög vel að
manna frá því við opnuðum heimilið fyrir fjórum árum. Það er engin breyting á því í haust.“
Hún segir að Sóltún hafi náð því að vera eftirsóttur vinnustaður. „Við höfum lagt okkur fram um að
byggja upp starfsmannavænt umhverfi og tökum mið af því í allri okkar uppsetningu; í hönnun bygg-
ingarinnar, hugmyndafræðinni sem við störfum eftir og þátttöku starfsmanna í að móta starfið.“
Hún segir að á Sóltúni sé til að mynda starfað eftir vaktaáætlun, sem geri starfsmönnum kleift að
stjórna sínum vinnutíma. Slíkt kerfi henti konum mjög vel, en þær séu meirihluti starfsmanna. Aðspurð
segir hún að launin séu í samræmi við kjarasamninga, en fólk með mikla reynslu og menntun beri
meira úr bítum. „Við erum fyllilega samkeppnisfær á þessum markaði.“
Vel gengur að manna í stöður