Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 45
DAGBÓK
Ferðafélagið Útivist heldur upp á 30 áraafmæli sitt í Básum í Þórsmörk ámorgun. Félagið stendur árlega fyrirfjölda viðburða, allt frá stuttum kvöld-
göngum upp í nokkurra daga ferðir um óbyggðir
landsins. Þátttakendur verða æ fleiri og skipta
orðið þúsundum.
– Hefur félagið breyst mikið í gegnum tíðina?
„Já, það hefur stækkað verulega og ferðir og
ferðatilhögun breyst mikið. Við höfum borið
gæfu til að aðlagast breyttum aðstæðum. Fleiri
horfa til okkar en áður. Það er einnig merki um
breyttan tíðaranda, að stunda útivist er einfald-
lega orðið hluti af lífi fólks.
Fyrir um tíu árum undirgengumst við tölu-
verðar breytingar og gerðum jeppamennsku
hluta af okkar starfi. Við ákváðum að ekki skipti
máli hvernig menn ferðuðust heldur fyrst og
fremst að þeir ferðuðust saman og gerðu það
með svipuðum hætti. Á síðustu árum hefur því
verið starfrækt jeppadeild innan félagsins, þar
sem þátttakendur ferðast á eigin jeppum og
flétta saman akstri um hálendið og styttri göngu-
ferðum.
Við tókum einnig upp á því að ganga rösklega
um Reykjavík, í klukkutíma tvö kvöld í viku. Eitt
kvöld í viku er síðan farið á eitthvert fjall. Kvöld-
göngurnar eru ókeypis, ekki þarf að skrá sig og
allir geta komið. Annað sem við gerðum var að
búa til nýja nokkurra daga gönguleið. Við völdum
okkur Skaftárhrepp sem þemasvæði og bjuggum
til gönguleiðina Sveinstind-Skælinga sem er
þriggja nátta ferð. Við tókum sömuleiðis upp
trússferðir, sem þykir eðlilegt í dag en var ný-
breytni á þessum tíma. Þá er farangur fluttur
fyrir fólk á milli náttstaða. Þetta opnaði nýjar
víddir, fleiri gátu farið og ekki þurfti jafn-
viðamikinn búnað. Menn gátu þá líka gert betur
við sig og ferðin varð meira frí og ánægja en ekki
harðræði og streð.“
– Hvað hefur verið vinsælast hjá ykkur?
„Af einstökum gönguferðum ber næturgangan
yfir Fimmvörðuháls um Jónsmessu höfuð og
herðar yfir aðra atburði. Jónsmessuferðin er í
raun nokkurs konar árshátíð þar sem um þrjú
hundruð manns taka þátt. Þá er glaumur og
gleði, eins og reyndar alltaf hjá okkur. Ein af
grunnreglunum okkar er að brosa og ferðast til
ánægju. Við tökum okkur ekki of hátíðlega.“
– Hvernig ætlið þið að halda upp á afmælið?
„Við bjóðum alla sem vilja fagna með okkur
velkomna í veislu í Básum. Eins og í klassískum
og góðum afmælum verður boðið upp á kaffi og
kökur og það klukkan fjögur. Í tilefni afmælisins
verður líka ókeypis að tjalda hjá okkur á tjald-
stæðinu um helgina. Allir eru velkomnir.“
Afmæli | Ferðafélagið Útivist heldur upp á 30 ára afmæli sitt á morgun
Kökur og afmæliskaffi í Básum
Árni Jóhannsson er
formaður Útivistar.
Hann hefur verið í
stjórn félagsins í ára-
tug og formaður þess
síðustu fjögur ár. Árni
er viðskiptafræðingur
frá Háskólanum í Ála-
borg og starfar hjá
Samtökum iðnaðarins.
Hann er fæddur og upp-
alinn í Reykjavík, er
giftur Theódóru Þór-
arinsdóttur og á fjögur börn. Árni rekur ferða-
áhuga sinn til unglingsáranna þegar hann var
skáti og stundaði útilegur og gönguferðir á
Hellisheiði. Eftir að hann kynntist Útivist hef-
ur félagið átt hug hans allan.
Stóru orðin.
Norður
♠D863
♥8753 V/Allir
♦DG65
♣9
Vestur Austur
♠G74 ♠10952
♥KG10964 ♥2
♦Á4 ♦K109872
♣42 ♣53
Suður
♠ÁK
♥ÁD
♦3
♣ÁKDG10876
Vestur Norður Austur Suður
2 hjörtu Pass Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Það er svolítið eins og að vinna í
happdrætti að fá góð spil. Þess vegna
skulum við ekki dæma suður of hart
fyrir stökkið í sex lauf – hann er að
slá um sig og bjóða heiminum birg-
inn.
En suður á eftir að standa við stóru
orðin. Hvernig á að ná í tólf slagi með
trompi út?
Án sagna hefði verið best að eiga
slaginn í borði og svína í hjartanu. En
nú kemur það ekki til greina og besti
möguleiki sagnhafa er að spila lauf-
unum til enda. Og taka svo ÁK í
spaða þegar því verki er lokið. Þetta
er líkleg endastaða:
Norður
♠D
♥ –
♦DG
♣ –
Vestur Austur
♠ – ♠ –
♥KG ♥2
♦Á ♦K10
♣ – ♣ –
Suður
♠ –
♥ÁD
♦3
♣ –
Suður spilar tígli og fær sendingu
upp í ÁD í hjarta í lokin.
E.s. Segjum að vestur hafi losað sig
við tígulás. Þá tekur suður á hjartaás
(til að ná hjartanu af austri) og spilar
tígli.
Margar aðrar stöður gætu mynd-
ast, en sagnhafi ætti alltaf að hafa
betur ef vestur á tígulás og austur
kónginn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. Bb5
d6 5. d4 exd4 6. Rxd4 Bd7 7. Bxc6
bxc6 8. 0-0 Be7 9. Df3 0-0 10. h3 c5
11. Rf5 Bxf5 12. Dxf5 c6 13. e5 g6 14.
Df3 dxe5 15. Dxc6 Db6 16. Dxb6
axb6 17. He1 Rd7 18. Bh6 Hfe8 19.
Had1 Hed8 20. Rd5 Bf8 21. Bg5
Hdc8 22. a3 Kg7 23. Re3 Ha7 24.
Rc4 f6
Staðan kom upp í áskorendaflokki
Skákþings Íslands sem lauk fyrir
skömmu í Háskólanum í Reykjavík.
Tómas Björnsson (2.227) hafði hvítt
gegn Haraldi Baldurssyni (2.033).
25. Hxd7+! Hxd7 26. Rxb6 Hb7 27.
Rxc8 fxg5 28. b3 hvítur er nú í senn
peði yfir og með betra tafl. 28. ...Hd7
29. Rb6 Hd2 30. Hc1 e4 31. Rc4 Hd4
32. Kf1 Kf7 33. a4 Ke6 34. Ke2 Hd7
35. Ha1 Bg7 36. Hd1 Hf7 37. Hd6+
Ke7 38. Hc6 Hf5 39. Hc7+ Kf8 40.
a5 Bd4 41. Re3 Hf6 42. Ha7 Bxe3
43. Kxe3 h5 44. a6 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Til borgarstjórnar
Reykjavíkur
ÉG vil þakka fyrir breytingar sem
unnar voru í sumar við Hlemm og
ofanverðan Laugaveg. Þar var stað-
ið vel að verki, allt er orðið miklu fal-
legra og betra, á ekki lengri tíma.
(Sennilega úrvalsverktakar og
-hönnuðir).
Ég vil einnig koma á framfæri
spurningar til Bjarkar Vilhelms-
dóttur, stjórnarformanns Strætós
bs.: Hvað á það að þýða að loka
karlaklósettinu á Hlemmi? Þetta
kemur sér mjög illa, svo ekki sé
meira sagt. Svar óskast.
Björn J. Óskarsson,
Laugavegi 149.
Vantar salernisaðstöðu
ÉG var að versla í Bernhöftsbakaríi
í Bergstaðastræti. Mjög gott bakarí
og þar er líka aðstaða til að fá sér
kaffi og með því og hægt er að kíkja í
dagblað jafnframt því sem maður
verslar.
Svo bar svo við að ég þurfti að
komast á salerni og bað stúlkuna að
leyfa mér að skreppa í 2 mínútur.
Stúlkan varð vandræðaleg og þurfti
að spyrja yfirmann sinn um leyfi.
Hún kom aftur og sagði því miður,
við lánum ekki aðgang að salerni.
Ég spyr: Er þetta leyfilegt? Þurfa
ekki allir að hafa salernisaðstöðu
sem selja veitingar?
Ólafur Þór Friðriksson.
Góð þjónusta hjá Esso
ÉG vil koma á framfæri þakklæti til
Kjartans hjá Esso við Stóragerði
sem aðstoðaði mig. Ég bý í nágrenni
stöðvarinnar og sá að einhver hafði
ætlað að stela dekkjum undan bíln-
um mínum og lágu rærnar við hlið
bílsins. Fór ég með rærnar til Kjart-
ans og bað hann að athuga þetta fyr-
ir mig sem hann gerði og festi hann
fyrir mig dekkið og fór yfir hin dekk-
in. Vil ég þakka fyrir þessa góðu
þjónustu hjá Esso.
Björg Randversdóttir.
Lausaganga hunda
í Heiðmörkinni
ÉG var á göngu í Heiðmörkinni sl.
mánudag og á móti mér komu tveir
stórir schäeferhundar. Hljóp annar
þeirra að mér og var það frekar ógn-
vekjandi. Með hundana voru tvær
stúlkur og þóttust þær ekki vita að
það væri bannað að hafa hunda lausa
í Heiðmörkinni. Ég kem reglulega í
Heiðmörkina og hef lent í þessu
áður og finnst mér þetta vera að
aukast. Vil ég benda hundaeigend-
um á að lausaganga hunda í Heið-
mörkinni er stranglega bönnuð.
Samúel Gústafsson.
Dísarfuglinn Rómeó
er týndur
DÍSARFUGLINN Rómeó týndist
frá Langholtsvegi 51 föstudaginn 19.
ágúst sl. Hann er grár með appels-
ínugular kinnar. Kærastan varð eft-
ir. Þeir sem hafa orðið hans varir
hafi samband í síma 692 1695 eða
661 3616.
Snotra er enn týnd
SNOTRA
týndist frá
Logafold í
Grafarvogi
13. ágúst sl.
Hún er inni-
kisa og óvön
því að vera
úti. Hún er hvít með svörtum dílum,
vel merkt, bæði í eyra og á hálsól.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um
hana vinsamlegast hafið samband í
síma 820 2033.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hlutavelta | Þessar ungu dugmiklu dömur úr Ólafsvík, þær Þórhildur, Sigur-
björg Metta, Valgerður og Line, héldu flóamarkað til styrktar barnadeild Hrings-
ins við innganginn á versluninni Kassanum. Voru stelpurnar með gott úrval af
vörum sem þær höfðu safnað sjálfar og fengið gefins hjá vinum og ættingjum.
Verðinu var stillt í hóf hjá þeim og mátti fá góðar vörur frá 5 kr. upp í 500 kr. Voru
þær ánægðar að söludegi loknum og seldu fyrir 8.600 kr., sem verða afhentar
barnadeild Hringsins.
Morgunblaðið/Alfons
Hlutavelta | Þessir duglegu 11 ára drengir, Kolbjörn Björgvinsson og Alexander
Freyr Sveinsson, efndu til hlutaveltu við Glæsibæ til styrktar BUGL. Ágóðinn var
2.200 kr.