Morgunblaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Áfram heldur dagskrá Kirkju-listahátíðar. Í kvöld másegja að hátíðin spanni hér
um bil allar listirnar því haldið
verður í Suðursal Hallgrímskirkju
svokallað kirkjulistaspjall með
kaffihúsastemningu þar sem rætt
verður um tónlist, bókmenntir,
myndlist og kvikmyndir – í þessari
röð.
Umræðum stýra Ævar Kjart-
ansson guðfræðingur og dr. Sig-
urður Árni Þórðarson, og fékk ég
Sigurð til að segja mér frá dag-
skránni: „Það má segja að við fáum
þarna á einu kvöldi umræðu um
fjölmargar víddir Kirkjulistahátíð-
ar með kaffihússsniði,“ sagði Sig-
urður. „Þetta er til viðbótar við tón-
listardagskrána, enda oft ekki
kostur á því eftir tónleika og við-
burði hátíðarinnar að ræða saman.
Í þessu kaffihúsi Kirkjulistahátíðar
gefst tækifæri til að fara yfir málin
og hver þáttur er tekinn fyrir með
óformlegum fyrilestrum: hálf-
gerðum örfyrirlestrum. Það mætti
kalla þetta örþing um ýmsa þætti
kirkjulistarinnar.“
Dagskráin hefst kl. 18 og verður
tæpri klukkustund varið í hvert
efni. Sigurður leggur áherslu á að
sniðið á umræðunum verði afslapp-
að og frjálslegt: „Þarna standa
menn á fætur og fá sér kaffi og tala
saman. Fólk má koma og fara eins
og því sýnist. Þarna verður hópur
af góðu fólki sem kemur með fjöl-
breytileg innlegg en allir sem
þarna koma hafa tækifæri til að
taka þátt í umræðunni og prufa
hugmyndir sínar.“
Fyrst, kl. 18, munu HalldórHauksson og sr. Haukur Ingi
Jónsson hafa umsjón með tónlistar-
umræðu um Matteusarpassíur
Bachs og Kvernos.Terje Kvam og
Trond kverno segja frá verkunum.
Klukkustund síðar hefst umræða
um bókmenntir undir yfirskriftinni
„Hallgrímur og guðspjöllin“ í um-
sjón Margrétar Eggertsdóttur
cand.mag. og dr. Gunnars Krist-
jánssonar guðfræðings.
Klukkan 20 verður fjallað um
myndlistina: „Guðspjöllin séð með
augum myndlistarmanna.“ Þóra
Kristjánsdóttir listfræðingur og dr.
Pétur Pétursson guðfræðingur
hafa umsjón og Rúrí segir frá verk-
um sínum á Kirkjulistahátíð.
Kvikmyndirnar eru síðasta efni
kirkjulistaspjallsins, kl. 21, en rætt
verður um Matteusarguðspjall
Pasolinis og er umsjón í höndum
Oddnýar Sen kvikmyndafræðings
og dr. Arnfríðar Guðmundsdóttur
guðfræðings.
Dagskránni lýkur síðan kl. 22
með sýningu á kvikmynd Pier
Paolo Pasolini, Matteusarguð-
spjalli, frá árinu 1964. og er miða-
verð 500 kr.
Fólk má ekki láta það fæla sig þókirkjulistaspjallið vari lengi:
„Gestir þurfa ekki að koma kl. 6 og
halda áfram til 10,“ segir Sigurður.
„Fólk einfaldlega tekur þátt í því
sem það hefur áhuga á og þarf ekki
að gleypa alla kökuna. Viðburð-
urinn er opinn öllum og menn ættu
ekki að hika við að koma og fá sér
kaffi eða mat – og staldra síðan við
ef umræðurnar vekja áhuga
þeirra.“
Afslappað örþing
um listir og kirkju
’Menn ættu ekki aðhika við að koma og fá
sér kaffi – og staldra
síðan við ef umræðurnar
vekja áhuga þeirra.‘
AF LISTUM
Ásgeir Ingvarsson
Pier Paolo Pasolini
asgeiri@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
www.kringlukrain.is sími 568 0878
Hljómsveitin Sixties
í kvöld
10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 nokkur sæti laus
11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 nokkur sæti laus
12. sýn. sun. 4/9 kl. 16 sæti laus
ÁSKRIFTAR
KORT
GÓÐA SKEMMTUN
Í ALLAN VETUR
FJÓRAR LEIKSÝNINGAR Á 6.900 KR.
4 600 200 / WWW.LEIKFELAG.IS
Kabarett
í Íslensku óperunni
Næstu sýningar
Föstudaginn 26. ágúst kl. 20.00
Laugardaginn 27. ágúst kl. 20.00
Sunnudaginn 28. ágúst - Örfá sæti laus
Föstudaginn 2. september
Laugardaginn 3. september
Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is
Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON
“Söngur Þórunnar
er í einu orði sagt
stórfenglegur...”
SH, Mbl.
REYKJAVÍK DANCE FESTIVAL
NÚTÍMADANSHÁTIÐ 2005
aðeins
þessi eina
sýning!!!!
Reykjavík Dance Festival
hefst formlega 1. - 4. sept.
Kynntu þér dagskrána á:
Kynnir DANSLEIKHÚSIÐ:
WWW.DANCEFESTIVAL.IS
Í þykku andrúmslofti hrasa fjórar persónur um smáatri›i......”four sisters
are living and sucking thick air....thick air....everywhere..”
Höfundar verksins eru Anne Tismer, Margrét Sara Gu›jónsdóttir,
Rahel Savondelli og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Tónsmi›ur er David Kiers.
MIÐAVERÐ: 2000 KR.
PASSI Á ALLAR SÝNINGAR HÁTÍÐARINNAR: 4000 KR.
laugardaginn 27. ágúst
Kl. 20.00 á Nýja sviði borgarleikhúSsins
no, he was white
Nánari upplýsingar á www. kirkjan.is/kirkjulistahatid og í síma 510 1000
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
200520.–28. ÁGÚSTHallgrímskirkju í ReykjavíkÍ KVÖLD:
20.00
-23.30
KIRKJULISTASPJALL
MEÐ KAFFIHÚSASTEMNINGU
SUÐURSALUR HALLGRÍMSKIRKJU
Stutt innlegg, almennar umræður. Umræðum stýra
Ævar Kjartansson og dr. Sigurður Árni Þórðarson.
Dagskráin er fimmþætt:
18.00 • TÓNLIST /
Matteusarpassíur Bachs og Kvernos
Halldór Hauksson og sr. Haukur Ingi Jónasson
19.00 • BÓKMENNTIR /
Hallgrímur og guðspjöllin
Margrét Eggertsdóttir og dr. Gunnar Kristjánsson
20.00 • MYNDLIST /
Guðspjöllin með augum myndlistarmanna
Þóra Kristjánsdóttir og dr. Pétur Pétursson
21.00 • KVIKMYNDIR /
Fjallað um Matteusarguðspjall Pasolinis
Oddný Sen og dr.Arnfríður Guðmundsdóttir
22.00
Matteusarguðspjall
Kvikmynd frá 1964 eftir Pier Paolo Pasolini.
Miðaverð: 500 kr.
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN
ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HEFST Í DAG!
Sala nýrra áskriftarkorta hefst laugardaginn 3. september - Það borgar sig að vera áskrifandi -
Nýja svið / Litla svið
KYNNING LEIKÁRSINS
Leikur, söngur, dans og léttar veigar
Su 11/9 kl 20
Opið hús og allir velkomnir
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON
Stórtónleikar
Fö 2/9 kl 20 – UPPSELT
Fö 2/9 kl 22:30 – UPPSELT
REYKJAVIK DANCE FESTIVAL
Nútímadanshátíð 1.-4. September
Lau 27/8 kl 20 No, he was white - Forsýning
höf: Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Margrét Sara
Guðjónsdóttir, Anne Tismer og Rahel Savoldelli
Videoverk Jared Gradinger
10 verk eftir 14 höfunda
Miðaverð kr 2000
Passi á allar sýningarnar kr 4000
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Lau 27/8 kl 14, Su 28/8 kl 14,
Lau 3/9 kl 14, Su 4/9 kl 14,
Su 11/9 kl 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Lau 3/9 kl 20, Fö 9/9 kl 20, Lau 10/9 kl 20