Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÚR VERINU
HÓPUR opinberra stofnana á
sviði náttúruverndar og þró-
unarmála hefur hafið herferð
til þess að koma í veg fyrir of-
veiði á heimsvísu. Herferðin
tekur til samantektar á lista
yfir ólögleg fiskiskip, stuðn-
ings við sjálfbært fiskeldi og
aðstoðar við að verja vernd-
arsvæði á höfunum. Hún gæti
einnig náð til þess að draga úr
ólöglegum veiðum evrópskra
skipa í landhelgi Afríkuríkja.
Frá þessu var greint á
fréttavef breska ríkisútvarps-
ins, BBC. Þar segir að engar
áreiðanlegar upplýsingar
liggi fyrir um hve umsvifa-
miklar ólöglegar veiðar séu,
né heldur hve miklum skaða
þær valdi á lífríki hafanna.
Það sé hins vegar um það al-
menn samstaða meðal ríkis-
stjórna heimsins að ólöglegar
veiðar séu mjög alvarlegt við-
fangsefni og vegna þess hafi
Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
FAO, tekið upp alþjóðlega
baráttu til að koma í veg fyrir
og uppræta ólöglegar veiðar.
Ofveiða allt sem
þeir komast í
Herferðin hefur hlotið
nafnið „Profish“ og lykill að
því markmiðin náist er að afla
upplýsinga. „Það hefur verið
lögð mikil vinna í það undan-
farin ár að hafa uppi á þeim
sem stunda ólöglegar veiðar.
Þó stór skip veki mikla at-
hygli er það staðreynd að
minni fleytur á heimaslóð
valda ómetanlegum skaða á
lífríkinu með því að eyðileggja
kóralrif, hrygningarslóðir og
fleira. Í raun ofveiða þessir
bátar alla fiskistofna sem þeir
komast í,“segir Warren Ev-
ans, framkvæmdastjóri um-
hverfismála hjá Alþjóðabank-
anum.
Gerð listans yfir ólögleg
fiskiskip verður í höndum the
World Conservation Union,
Verndarsamtaka veraldarinn-
ar, sem hrinda herferðinni af
stað ásamt Alþjóðabankan-
um, FAO og fleiri slíkum
stofnunum með fjárframlög-
um að upphæð um 64 millj-
ónir króna frá Íslandi, Frakk-
landi, Noregi, Finnlandi og
Alþjóðabankanum. Einnig
verða teknar saman leiðbein-
ingar um það hvernig eigi að
stunda fiskveiðar á sjálfbær-
an og arðbæran hátt, auk
þess sem ætlunin er að meta
fjárhagslegt tap af því fyrir
þróunarríkin að stjórna ekki
fiskveiðum á sjálfbæran hátt.
Fiskur er mikilvæg fæða á
mörgum svæðum í Afríku og í
öðrum þróunarlöndum, því úr
honum fást prótín og ýmis
nauðsynleg bætiefni eins og
zink, kalsíum og A-vítamín.
Fiskur fyrir alla
Herferðin var kynnt á ráð-
stefnunni Fiskur fyrir alla,
sem er haldin í Nígeríu. Þar
kom fram að gengið er um of
á fiskistofna við Afríku og
leiði það til minna framboðs á
fiski. Til að halda framboði og
neyslu áfram á sama stigi og
nú þarf að auka fiskeldi um
20%.
Ýmsir hópar náttúruvernd-
ar og þróunarmála hafa af því
áhyggjur hve mikið af fiski
skip frá þróuðu löndunum,
sérstaklega Evrópusamband-
inu, taki með löglegum hætti í
landhelgi Afríkuríkja. Sem
dæmi um það hefur afli ESB
við Vestur-Afríku tuttugu-
faldast á árunum frá 1950 til
2001 samfara vaxandi ríkis-
styrkjum frá evrópskum
stjórnvöldum.
Warren Evans segir að
herferðin kunni að ná til
þessa, svo geti verið að Evr-
ópuþjóðirnar verði að endur-
skoða hina opinberu styrki.
Gert er ráð fyrir að vinna við
Profish fari að skila árangri
innan þriggja ára, þar með
talinn listinn yfir ólögleg
fiskiskip.
Skera upp herör gegn ólöglegum veiðum
Reuters
Erlent fiskiskip innan lögsögu Máritaníu. Í forgrunni er flak
annars erlends fiskiskips, en á það hefur verið ritað: Þjófar,
nauðgið og farið.
Opinberar stofnanir og
þjóðlönd ætla sér að stöðva
sjóræningjaveiðar
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði um 0,1% í gær í
4.537 stig. Viðskipti dagsins námu
um tveimur milljörðum kóna, þar af
voru viðskipti með hlutabréf fyrir
tæpa 1,6 milljarða króna. Mest við-
skipti voru með bréf í Kaupþingi
banka eða fyrir 397 milljónir króna.
Gengi bréfa í Símanum hækkaði
mest eða um 5% en bréf í SÍF lækk-
uðu mest eða um 0,8%.
Gengi bréfa Símans
hækkaði um 5%
● GREINING Íslandsbanka telur
sennilegt að Seðlabankinn muni
hækka stýrivexti sína um 0,5 pró-
sent 29. september, en þá verða
vextir bankans komnir í 10% og úti-
lokar hún ekki að þeir fari í 11% ef
verðbólgan stefni á 5%. Í spá
greiningar bankans um stýrivexti
og gengi krónunnar segir að verð-
bólga hafi aukist mikið síðustu tvo
mánuði og útlit sé fyrir að bankinn
missi hana aftur út fyrir efri þol-
mörk peningastefnunnar (4%) í
september. Þar segir einnig að fari
gengi krónunnar lækkandi á næst-
unni megi búast við aukinni verð-
bólgu.
Spá hækkun stýri-
vaxta í september
● EIN AF elstu fyrirtækjamiðlunum
Danmerkur, Dahl-Sørensen & Partn-
ers, telur mikla möguleika felast í því
að aðstoða Íslendinga við að festa
kaup á dönskum fyrirtækjum og hef-
ur undirritað samstarfssamning við
nýstofnað íslenskt ráðgjafarfyr-
irtæki, Firma Consulting, um sam-
vinnu fyrirtækjanna á þessum mark-
aði. Er sagt frá þessu í danska
blaðinu Erhvervsbladet en þar er haft
eftir Thomas Bjerregaard, stjórn-
arformanni DS&P, að áhugi ís-
lenskra fyrirtækja beinist ekki að-
eins að stórfyrirtækjum eins og
Magasin og Sterling, heldur vilji þau
gjarnan kaupa millistór til stór fyr-
irtæki í Danmörku og stækka þar
með rekstur sinn.
Dönsk og íslensk
miðlun í samstarf
!"#
!$
% &'
( "&' )&
*)&
+, &# &
+#&
$&' )& ( "&'
-."
/(!
/0 !1 . &#)&
2
! 0 ( "&'
%0 1&
3
."&'
$45& 16 && -
! &
78.1
9# 1
:;! "&
:.".0
<=## � &
> && " &
! ."' ?=11 $&' 40 ( "&'
/" @"# /"&'
<5 5
!"
#$
3A?B
/4
.
C
C
C
C
C
C
C
C
C
.= &#
= .
C C
C
C C
C
C
C
C
C
C C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
D C EF
C
C
D C EF
C
C
D
EF
C
C
C
C
D EF
D C EF
C
C
C
C
C
C
C
C
C
D EF
C
C
C
C
D EF
C
C
C
%. "'
'# &
< ") 4 " '# G
+ /"
C
C
C
C
C
C
C
C
C
> 4 ,H
<% I #&" !1"'
C
C
C
C
C
C
C
C
C
<%C >.#& = 0 1 0#&& @"#
<%C >.#& = # & &#
<%C != # 0&
BAUGUR hefur verið orðaður við
enn eina yfirtökuna á breskum
smásölumarkaði. Breska te- og
kaffifyrirtækið Whittard of Chelsea
lýsti því yfir nýlega að viðræður
stæðu yfir um hugsanlega yfirtöku
á því. Í fyrradag kom svo yfirlýsing
frá fyrirtækinu þess efnis að í kjöl-
far sprengjuárásanna á London
fyrr í sumar hefði sala á vörum
Whittards dregist saman og hugs-
anlegur kaupandi dregið sig úr við-
ræðunum.
Í frétt breska blaðsins Guardian
segir að markaðurinn hafi tekið yf-
irlýsingu Whittards illa og að bréf
félagsins hefðu fallið í verði um sem
nemur 13%.
Verslanir Whittards í London
hafa orðið sérstaklega illa úti að
sögn fyrirtækisins því þær reiða sig
mjög á ferðamannaverslunina sem
hefur dregist saman eftir sprengju-
árásirnar. Fyrirtækið hefur sagt að
þrátt fyrir að viðræður við hugs-
anlegan kaupanda hefðu siglt í
strand væru aðrir áhugasamir um
fyrirtækið. The Guardian segir að
meðal þeirra væru Weston fjöl-
skyldan, Lindt súkkulaðiframleið-
andinn og Baugur Group.
Baugur orðaður
við Whittard
HAGNAÐUR af rekstri Bakkavarar
Group eftir skatta á fyrri helmingi
ársins nam 11,9 milljónum punda eða
liðlega 1,4 milljörðum króna á móti
5,3 milljónum punda á sama tímabili
í fyrra. Rekstur Geest er tekinn að
fullu inn í samstæðu félagsins frá og
með 1. maí. Frá 1. janúar til 30. apríl
gætti áhrifa Geest aftur á móti sem
hlutdeildarfélags í rekstri Bakkavar-
ar Group. Arðsemi eigin fjár var
25,5% samanborið við 14% fyrstu sex
mánuðina í fyrra en eiginfjárhlutfall
Bakkavarar Group lækkaði úr 37,1%
í 11,1%. Hagnaður á hverja krónu
nafnverðs var 1,1 á tímabilinu á móti
0,5 á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBIDTA) nam 3,6 millj-
örðum króna á móti 1,4 milljarði á
sama tímabili í fyrra. Hlutfall
EBIDTA af rekstrartekjum var
13,5% á móti 16,5% í fyrra. Hand-
bært fé frá rekstri fyrir skatta og
vexti var þrír milljarðar á móti 1,3
milljörðum á sama tímabili í fyrra.
Stakkaskipti í starfseminni
Í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands er haft eftir Lýð Guðmunds-
syni, forstjóra Bakkavarar Group, að
félagið hafi skilað góðri afkomu á
tímabilinu og að hagnaður félagsins
sé sá mesti frá upphafi. „Félagið
gekk frá stærstu fyrirtækjakaupum
í sögu þess með kaupunum á Geest í
maí og tekur starfsemi Bakkavarar
Group miklum stakkaskiptum með
yfirtökunni. Barclays, sem sölu-
tryggði lánsfjármögnun kaupanna,
lauk fjármögnun sambankaláns.
Samrunaferlið gengur samkvæmt
áætlun og gerum við ráð fyrir að
rekstur félagsins muni standa undir
væntingum okkar fyrir árið í heild,“
segir Lýður.
Sölutekjur Bakkavarar á fyrri
helmingi ársins námu 26,4 milljörð-
um króna á móti 8,2 milljörðum
króna á sama tímabili í fyrra og juk-
ust um 221%. Pro-forma sala, sem er
heildarsala Bakkavarar Group og
Geest, fyrstu sex mánuði ársins nam
57,2 milljörðum króna (489,5 millj-
ónum punda) samanborið við 54,5
milljarða króna (466,7 milljónir
punda) á sama tímabili í fyrra sem
jafngildir 4,9% vexti. Í tilkynningu
til Kauphallarinnar er tekið fram að
greinarmunur sé gerður á fjárfest-
ingum í eignum, sem eru hluti af pro-
forma söluaukningu félagsins, og yf-
irtökum fyrirtækja, sem teljist til
ytri vaxtar og eru því ekki meðtalin.
Árið 2004 teljist yfirtaka Geest á
Anglia Crown eina yfirtaka samein-
aðs félags. Að Anglia Crown undan-
skildu er pro-forma innri vöxtur fé-
lagsins 3,6% á tímabilinu.
Heildareignir Bakkavarar Group í
lok tímabilsins námu 121,1 milljarði
króna í stað 31,8 milljarða um síð-
ustu áramót. Veltufjármunir jukust
um 27,6 milljarða króna í 34 millj-
arða og veltufjárhlutfall var 1,1 en
var 2,8 í árslok 2004 en aukning
veltufjármuna er vegna áhrifa af yf-
irtökunni á Geest.
Samrunaferli
gengur sam-
kvæmt áætlun
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samruninn á áætlun Stofnendurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir.
Bakkavör Group með 1,4 milljarða
hagnað á fyrri helmingi ársins
7 'J
/K: E
E
!</?
LM
E
E
AA 9-M
E
E
+!M
7 .
E
E
3A?M LN *&.
E
E