Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 18

Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 18
Mývatnssveit | Hann var ánægður þessi myndatökumað- ur þó regnið og fossúðinn gerðu honum myndatökurnar ekki auðveldar í gljúfrinu við Detti- foss. Ágæt lausn var að hafa með sér regnhlíf til að skýla vélinni. En það má gleðjast yfir ýmsu þar um þessar mundir. Búið er að setja upp vatnssalerni við bílastæðin og alvöruvegagerð fer væntanlega í gang næsta vor. Mjög mikið rennsli hefur verið í Jökulsá í allt sumar og fossinn því tilkomumikill. Stöðugur straumur ferðafólks hefur verið að fossinum í sumar og ekkert lát orðið þar á. Morgunblaðið/BFH Í rigningu við Dettifoss Fossaglens Akureyri | Höfuðborgin | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Landsbankadagur Gróttu | Næstkom- andi laugardag, 27. ágúst, verður mikið um að vera hjá knattspyrnudeild Gróttu á Sel- tjarnarnesi. Sumarstarfinu lýkur með Landsbankadegi Gróttu, sem er árleg uppskeruhátíð sumarsins, og er hann hald- inn í góðu samstarfi við Landsbanka Ís- lands á Valhúsahæð. Sú hefð hefur skapast að KR kemur í heimsókn til Gróttu þennan dag. Leika öll lið Gróttu frá 3. flokki til 7. flokks við lið KR í sömu flokkum. Fyrstu leikir hefjast kl. 9.30 og síðasta leik Gróttu og KR lýkur um kl. 13.30. Þá tekur við skemmtidagskrá þar sem hljómsveitinBertel, kemur fram. Kl. 14 hefst leikur meistaraflokka Gróttu og Hattar frá Egilsstöðum. Er þetta fyrri leikur liðanna um sæti í 2. deild á næsta ári. Um kvöldið verður síðan árlegt Stuð- mannaball haldið í Félagsheimili Seltjarn- arness. Þangað hafa Seltirningar og nær- sveitarmenn fjölmennt undanfarin ár og skemmt sér vel.    Tvö golfmót á Patreksfirði | Það verður nóg að gera hjá kylfingum á Patreksfirði um helgina, en tvö mót eru á dagskrá Golf- klúbbs Patreksfjarðar á Vesturbotnsvelli. Á laugardaginn verður haldið opið mót sem kennt er við spænska saltfiskkaupandann Alfonso Romero SA., sem hefur styrkt mót- ið undanfarin 3 ár. Spilað er eftir punkta- fyrirkomulagi í karla- og kvennaflokki. Á sunnudag fer síðan fram kvennamót Gámaþjónustu Vestfjarða og Vest- urbyggðar, en þar spila eingöngu konur eins og nafnið gefur til kynna. Kvennamót þetta flyst á milli klúbba á Vestfjörðum og verður spilað í Bolungarvík að ári. For- ráðamenn GP vonast eftir sem flestum kylf- ingum á Vestfjörðum á bæði mótin og vilja sérstaklega hvetja konur frá norðurfjörð- unum til að mæta á kvennamótið.    Ormar, gull og græðgi | Í tilefni af af- mæli Lagarfljótsbrúarinnar stendur nú yfir samsýning útskriftanemenda vorið 2005 úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Þeir sem sýna eru Harpa Rún Ólafsdóttir, María Kjartansdóttir og Sandra Mjöll Jónsdóttir. Sýningin heitir „Ormar, gull og græðgi“ og er tvískipt, annars vegar 8 kassar með inn- setningu sem eru á Lagarfljótsbrúnni og hins vegar ljósmyndir sem sýna hluta úr myndunum sem eru í kössunum. Mynd- irnar eru festar á 25 ljósastaura sem voru málaðir hvítir af tilefni sýningarinnar. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Rúnar Kristjánssoná Skagaströndyrkir um kveð- skaparmál: Yrking hver með rómhæð rísi rétt og eigi valinn stað. Andagiftin ljúfa lýsi leiðina um Braga hlað. Víxl og lyppur leggja í dróma listamál á allan hátt. Þá fær ekkert hátt að hljóma, höldum reglu í fullri sátt. Stundum birtast lýtaliðir, lágt er þeirra gengi skráð. Hrynbrjótar og hrönglasmiðir hrista úr vísum alla dáð. Lyftum merki Braga á borði, bætum okkar stuðlaferð. Verði í hverju vísuorði viðleitni af þeirri gerð. Sigrún Fannland frá Sauðárkróki orti á sínum tíma um kveðskapinn: Finnst mér alltaf létta lund og leiða af götu amann verði ein á vökustund vísa barin saman. Af kveðskap pebl@mbl.is Ísafjörður | Bæjaryfirvöld á Ísafirði tóku í vetur eldhúsmál sveitarfélagsins til gagn- gerrar endurskoðunar í því skyni meðal annars að bæta mataræði barna í sveitarfé- laginu. Rannsóknir sýna að allt að 30% barna hérlendis eru með of háan þyngd- arstuðul og sjúkdómar sem tengjast óheil- brigðum matarvenjum verða sífellt algeng- ari. Full ástæða er því til þess að hafa áhyggjur af mataræði íslenskra barna og þar eru ísfirsk börn engin undantekning. Eftir ítarlegar umræður um úrræði í fæðismálum skólabarna á Ísafirði var ákveðið var að útbúa fullkomið framleiðslu- eldhús í Grunnskóla Ísafjarðar sem yrði svo leigt einkaaðilum er sæju um rekstur þess samkvæmt kröfum sveitarfélagsins. Nemendur taki þátt Í útboði um rekstur eldhússins skiluðu SKG veitingar ehf. inn hagkvæmasta til- boðinu í rekstur eldhússins en tilboð Jó- hanns Ólafssonar ehf. í búnað og tæki reyndist hagkvæmast. Byrjað verður að selja kaldar máltíðir þegar frá mánaðar- mótum en í seinni hluta september hefst reksturinn fyrir alvöru og verða þá heitar veitingar í boði. Sú nýjung verður tekin upp að gert er ráð fyrir því að nemendur gangi sjálfir frá óhreinum borðbúnaði beint í uppþvottinn. Þeir munu einnig skammta sér matinn sjálfir að undanskildum aðalréttinum, sem starfsmaður skammtar. Þannig er ætlunin að gera nemendurna sjálfa virka þátttak- endur í máltíðinni og einnig að þeir læri að taka sér réttar skammtastærðir út frá við- miðunarskömmtum. Nýtt mötu- neyti í GÍ Reykjavík | Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík lýsir áhyggjum sínum vegna þess ástands sem skapast hefur í frístunda- heimilum og leikskólum borgarinnar vegna manneklu. Í ályktun stjórnarinnar segir að það sé mikilvægt markmið að bjóða öllum börnum frá 18 mánaða aldri öruggt pláss á leikskóla og 6–9 ára börnum upp á faglegt starf í frítímum sem viðbót við hefðbundinn skóladag. Sérstaklega beri að fagna þeim metnaði sem ÍTR setur sér í þessu efni. Stjórn VG skorar á borgaryfirvöld að meta í verki uppeldis- og umönnunarstörf og að þau bregðist við nú þegar til að tryggja að starfsfólk fáist til þessara starfa. Áhyggjur af manneklu ♦♦♦             Náttúran hefur núhafið undirbún-ing sinn fyrir haustið og veturinn í Al- viðru við Sogið undir Ing- ólfsfjalli. Á þessum tíma gerist margt spennandi sem bæði gaman og fróð- legt er að fylgjast með og býður fræðslusetur Land- verndar í Alviðru í Ölfusi grunnskólanemum í því tilefni upp á dagskrána „Náttúran í haust- skrúða“. Dagskráin er í boði frá 23. ágúst til 31. október og eru nokkrir dagar eftir óbókaðir. Sogið er fullt af lífi árið um kring og því býður Al- viðra upp á verkefni um „lífið í vatninu“. Þessi dagskrá stendur til boða allt skólaárið. Náttúruskoðun og úti- vist er jafnan efst á baugi í Alviðru. Þar mæta skólabekkir með kenn- urum sínum og njóta leið- sagnar staðarráðsmanns um náttúru svæðisins. Á staðnum er kennslustofa og matsalur og einnig svefnloft fyrir þá sem vilja gista. Nemendur taka virkan þátt í dag- skránni og markmiðið er að þeir hafi bæði gagn og gaman af dvölinni. Mark- mið starfseminnar er að auðvelda grunnskólunum að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra í aðalnámskrá. Reynslan sýnir að vel heppnuð úti- kennsla er árangursrík leið til að ná markmiðum námskrárinnar. Náttúru- skóli Land- verndar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.