Morgunblaðið - 26.08.2005, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Yellow dock
fyrir húðvandamál
hrukkunjóli
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn
á Akureyri
Helgamagrastræti/
Munkaþverárstræti
Víðimýri/Kringlumýri
Upplýsingar
í síma 461 1600
AKUREYRI
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
UNDANFARIN ár hefur Lands-
banki Íslands veitt tveimur nem-
endum Háskólans á Akureyri styrk
til framhaldsnáms í greinum sem
tengjast sjávarútvegi eða fjármála-
starfsemi eða til rannsóknarverk-
efnis á sömu sviðum. Hvor styrkur
er 500.000 krónur og eru þeir veittir
til nemenda sem brautskráðir eru frá
auðlindadeild og viðskiptadeild.
Styrkjunum var úthlutað í þriðja
sinn í vikunni en þá hlutu að þessu
sinni Dagný Björk Reynisdóttir og
Ríkarður Bergstað Ríkarðsson. Alls
bárust tíu styrkhæfar umsóknir.
Dagný Björk brautskráðist frá auð-
lindadeild sl. vor en Ríkarður braut-
skráðist frá viðskiptadeild vorið
2003, af stjórnunar- og fjármálasviði.
Dagný er að hefja framhaldsnám
við sömu deild í haust og mun leggja
áherslu á líftækni. Rannsókn-
arviðfangsefni hennar snýr að því að
nýta endurnýtanlegar orkuauðlindir
Íslands á umhverfisvænan máta til
líftækniframleiðslu. Verkefnið miðar
að því að nýta örverur og marg-
víslegar gastegundir sem finnast á
háhitasvæðum á Íslandi og tengja
þessa þætti við nýtingu jarðhita,
bæði á formi gufu og rafmagns til
framleiðslu verðmætra líftæknilegra
afurða.
Ríkarður hefur frá haustinu 2003
stundað nám við Handelshojskolen í
Århus og lýkur því á þessu ári. Loka-
ritgerð hans fjallar um alþjóðavæð-
ingarferli banka og fjármálafyr-
irtækja. Þar fjallar hann um hvernig
fyrirtæki í útrás velja sér erlenda
markaði til að starfa á og hvernig
þeir tengjast núverandi starfsemi á
heimamarkaði. Megináhersla er á
hvernig fyrirtæki auka smátt og
smátt tengsl sín á erlendum vett-
vangi og hvernig þau tengsl hafa
áhrif á stefnu og hraða alþjóðavæð-
ingarferlisins.
Landsbankinn styrkir
háskólanema
Morgunblaðið/Kristján
Styrkir Helgi Teitur Helgason, útibússtjóri Landsbankans, t.v., María
Árnadóttir, sem veitti styrk Ríkarðs sonar síns viðtöku, Dagný Björk Reyn-
isdóttir og Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA.
„ÞAÐ er nú heldur farið róast hér hjá okkur,“ sagði Ás-
geir Hreiðarsson, forstöðumaður tjaldsvæðanna að
Hömrum og við Þórunnarstræti, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Heldur kuldalegt var um að litast á tjald-
svæðunum og því lítið spennandi að vera í tjaldútilegu.
Hitastigið fór óþægilega nálægt frostmarkinu í fyrrinótt
og úrhellisrigning var á Akureyri í gær og slydda til
fjalla.
Ásgeir sagði að þeir fáu gestir, sem væru á tjaldsvæð-
unum, væru útlendingar og að þeim færi fækkandi. „Það
er lítið um að Íslendingar séu á ferðinni eftir að skólar
hefja starfsemi sína og tíðarfarið þessa dagana er heldur
ekkert spennandi.“ Ásgeir sagði að aðsókn á tjaldsvæðin
hefði verið þokkaleg í sumar en ekkert í líkingu við fyrra-
sumar. „Gestir í sumar eru 30–35% færri en í fyrrasumar
en þá jókst aðsóknin um 20–30% frá árinu áður. Gestum
hefur fjölgað árlega undanfarin ár en það er ljóst að nú
verður fækkun á milli ára.“
Útilífsmiðstöðin að Hömrum nýtur mikilla vinsælda og
þá ekki síst á meðal heimamanna á Akureyri og í dag og á
morgun eru hópar með skemmtidagskrá þar, þótt ekki sé
hægt að segja að veðurspáin næstu daga sé uppörvandi.
Kuldalegt á tjaldsvæðunum
Tjaldútilega Það var heldur kuldalegt um að litast á
tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti í gærmorgun, þegar
þetta hollenska par var að taka niður tjaldið sitt. Þau
kvörtuðu þó ekki, ætluðu að halda ferðalagi sínu áfram
og næsti viðkomustaður var Mývatn.
Morgunblaðið/Kristján
MIKIÐ annríki hefur verið í sjúkraflugi frá Akureyri
undanfarna daga og m.a. verið flogið til Svíþjóðar og
Grænlands. Síðastliðinn miðvikudag bárust fjórar
beiðnir um sjúkraflug, þar af þrjár á innan við klukku-
stund. Um var að ræða sjúkraflug til Grænlands til þess
að ná í veikan einstakling, flug á Vopnafjörð þar sem
hafði orðið slys og flug með sjúkling í aðgerð frá Ak-
ureyri til Reykjavíkur. Allar þessar vélar voru komnar
í loftið innan klukkutíma frá því beiðni um fyrsta flugið
barst.
Fjórða flugið þann daginn var flutningur á sjúklingi
frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Í þessar fjórar ferðir
voru notaðar þrjár vélar og að þeim komu átta flug-
menn, fimm neyðarflutningamenn Slökkviliðs Ak-
ureyrar og læknir frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði
Akureyrar er aðeins er til búnaður fyrir tvær sjúkra-
flugvélar á Akureyri og þurfti því að taka búnað úr ein-
um sjúkrabíl slökkviliðsins í þriðja flugið á miðviku-
dag.
Sjúkraflug frá Akureyri á árinu eru orðin 201, með
208 sjúklinga en allt árið í fyrra var farið í 301 sjúkra-
flug. Í þessar ferðir hafa verið notaðar vélar frá Flug-
félagi Íslands en félagið hefur sinnt sjúkraflugi frá Ak-
ureyri undanfarin ár.
Annríki í sjúkraflugi
Sjúkraflug Theodór Skúli Sigurðsson, læknir á FSA, í
sjúkraflugi á Grænlandi sl. vetur.
ekki heildarflatamál, en í birtu
flatarmáli sé ekki reiknað með
sameign, sem sé gjarnan 16–18%
flatarmáls í fjölbýlishúsum. Auk
þess sé byggingarkostnaður lágt
metinn í skýrslunni, og engin
dæmi séu um að réttur til bygg-
ingar bílakjallara sé metinn sér-
staklega við sölu.
„Hugsunin í skýrslunni er frá-
leit. Tiltölulega skýrar upplýsingar
eru til um sölu byggingarréttar á
þessum tíma. Markaðstölur liggja
fyrir og eru um 50% lægri en kaup
borgarinnar á Stjörnubíósreitnum,
eins og fram kemur í skýrslu borg-
arráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, sem lögð var fyrir borgarráð í
janúar 2005,“ segir í greinargerð
með bókun sjálfstæðismanna.
Ámælisverð bókun
Stefán Jón Hafsteinsson, for-
maður borgarráðs, segir að bókun
SKÝRSLA innri endurskoðunar
Reykjavíkurborgar um kaup á svo-
kölluðum Stjörnubíósreit byggðist
á röngum forsendum og kemst því
að rangri niðurstöðu, að mati borg-
arstjórnarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokks. Miðað við réttar for-
sendur var kaupverðið 68–73
milljónum króna yfir eðlilegu verði
á þeim tíma sem kaupin voru gerð.
Innri endurskoðun komst í
skýrslu sinni að þeirri niðurstöðu
að verðið sem Reykjavíkurborg
greiddi fyrir reitinn hafi verið við-
unandi. Í skýrslunni gætir hins
vegar ónákvæmni að mati sjálf-
stæðismanna, og hugtökum þar
ruglað saman.
„Vinnubrögð innri endurskoð-
unar eru óvönduð og sýna ekki
þekkingu á viðfangsefninu. Það er
alvarlegt fyrir borgarfulltrúa og
borgarbúa almennt ef ekki er unnt
að treysta á hlutlausa og nákvæma
niðurstöðu innri endurskoðunar.
Þess er krafist að skýrslan verði
dregin til baka og leiðrétt, og lögð
fyrir borgarráð að nýju á næsta
fundi borgarráðs,“ segir í tilkynn-
ingu frá sjálfstæðismönnum vegna
málsins.
Reiknað með röngum
fermetrafjölda
Meðal þess sem fundið er að
skýrslunni er að notað hafi verið
meðalverð fasteigna árið 2003, sem
sé 12–13% hærra en verðið í júlí
2002, þegar kaupin fóru fram.
Einnig sé notast við rangan fer-
metrafjölda, þ.e. birt flatarmál
sjálfstæðismanna um Stjörnubíós-
reitinn hafi komið sér verulega á
óvart. Afar óvenjulegt sé að sjá
jafn harða gagnrýni kjörinna full-
trúa á borgarstofnun, líkt og gert
sé nú varðandi skýrslu innri end-
urskoðunar Reykjavíkurborgar.
„Okkur var talsvert brugðið.
Þau [borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins] unnu sitt álit á skýrsl-
unni án þess að bera það undir
innri endurskoðun. Mér finnst
bókunin mjög ámælisverð miðað
við að þarna er borgarstofnun að
störfum, sem alls ekki er hafin yfir
gagnrýni, en þarf að njóta mikils
trausts. Fullkomnu vantrausti er
lýst á hana án þess að sú efnislega
gagnrýni sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur á skýrslu innri endur-
skoðunar hafi verið borin undir
hana til andmæla. Það finnst mér í
hæsta máta ámælisvert,“ segir
Stefán Jón.
Kaupverð 68–73 milljón-
um yfir eðlilegu verði
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Bygging Framkvæmdir eru í fullum gangi á svonefndum Stjörnubíósreit.
Sjálfstæðismenn efast um forsendur skýrslu um Stjörnubíósreit
Eftir Brján Jónasson og
Björn Jóhann Björnsson
ÍR 100 ára | Unnið er hörðum
höndum að því að rita 100 ára sögu
Íþróttafélags Reykjavíkur, en félagið
mun fagna 100 ára afmælinu 11. mars
2007. Ritnefnd bókarinnar safnar nú
myndum og öðrum fróðleik úr starfi
ÍR í gegnum tíðina, og biður álla sem
eiga eitthvað áhugavert að koma því í
ÍR-heimilið til Þorbergs Eysteins-
sonar með viðeigandi upplýsingum.
Seltjarnarnes | Verktaki á vegum
Orkuveitu Reykjavíkur hefur nú
hafist handa við að leggja ljósleið-
ara inn á fyrstu heimilin á Sel-
tjarnarnesi. Verkefnið hafði áður
tafist vegna þess að þau tilboð
sem OR bárust í lagningu ljósleið-
arans voru hærri en reiknað hafði
verið með. Samningar náðust við
verktaka um að hefja verkið á Sel-
tjarnarnesi og er hann innan
kostnaðaráætlunar.
Ljósleiðarar
lagðir