Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 22

Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Aðalatriðið þegar tekið er áeinelti í skólum er að fánemendur til að segja fráhvers vegna þeim líður illa, segir Þorlákur H. Helgason framkvæmdastjóri Olweusarverk- efnisins á Íslandi. Um 75 grunn- skólar taka þátt í verkefninu sem byggir á samvinnu allra starfs- manna skólanna, nemenda og for- eldra. En hvað er einelti? Einn eða fleiri gerendur Einelti er þegar einstaklingur verður ítrekað fyrir neikvæðu og óþægilegu áreiti, eins eða fleiri ein- staklinga, sem viðkomandi á erfitt með að verjast. Einelti geta verið högg, spörk eða blótsyrði, niðurlægjandi eða háðslegar athugasemdir og hótanir. Einelti er einnig síendurtekin stríðni þrátt fyrir að sá sem fyrir henni verður hafi sýnt að sér mis- líki. Óbeint einelti getur líka verið jafn slæmt en það á við þegar einn er útilokaður frá hópnum og verður fyrir illu umtali og aðrir koma í veg fyrir að hann eignist vini. Þolendum eineltis má skipta í tvo hópa og eiga þeir eitt eða fleiri sameiginleg einkenni. Aðgerðalausir eða undirgefnir þolendur  Hlédrægir, varkárir, viðkvæmir og eiga stutt í tárin.  Óöruggir, með takmarkað sjálfs- traust og neikvæða sjálfsmynd.  Strákar í þessum hóp eru ekki líkamlegir jafnokar félaganna – sérstaklega ekki gerenda – og þeim finnst ekki gaman að slást.  Eiga fáa eða enga vini.  Eru hræddir við að detta og meiða sig.  Eiga oft auðveldara með að um- gangast fullorðna en jafnaldra. Ögrandi þolendur  Geta verið skapbráðir og reynt að svara fyrir sig ef ráðist er á þá, en verður yfirleitt lítið ágengt.  Eru oft eirðarlausir, klunnalegir, óþroskaðir, reikulir og almennt litið á þá sem erfiða.  Suma má líta á sem ofvirka, þ.e. eru órólegir, eirðarlausir, eiga erf- itt með að einbeita sér o.s.frv.  Framkoma þeirra fer í taug- arnar á fullorðnu fólki, t.d. kenn- urum.  Reyna stundum að leggja veik- burðari nemendur í einelti. Erfitt fyrir foreldrana „Þá eru það gerendurnir,“ segir Þorlákur. „Það er oft afar erfitt fyrir foreldrana að kyngja því að þeirra barn sé hugsanlega gerand- inn, sá sem er að leggja annað barn í einelti. Þetta eru oft fé- lagslega sterkar manneskjur þó að hegðunin sé andfélagsleg en ein goðsögnin hefur verið sú að ger- andinn eigi líka erfitt og að hann hafi líka átt erfiða æsku. Öllu er grautað saman og farið að efla hann og gera að ennþá sterkari geranda. Til dæmis eru það stelp- ur, sem enginn tekur eftir, sem eru gerendur. Þeim gengur vel í skóla og allt er eins og það á að vera en þær eru sterkar og geta verið ger- endur. Þær halda hópnum í kring um sig og í okkar rannsóknum þá er eitt erfiðasta eineltið útilokun, en það er aðferð sem stelpur beita gjarnan. Bjóða kannski öllum í af- mælið nema einni og enginn tekur eftir því að henni er ekki boðið. Annað einkenni hjá stelpum er að þær leggja eingöngu aðrar jafn- aldra stelpur í einelti en strákar leggja yngri og eldri stráka í einelti og bæði stráka og stelpur.“ „Eitt af einkennum þess sem verður fyrir einelti er að hann fer krókaleiðir í skólann til að forðast gerandann og mætir of seint í kennslustund og hann er oft að biðja um klósettleyfi í tímum, en kannanir sýna að þolendur verða fyrir áreiti á salerninu og geta aldrei farið á klósettið í frímín- útum,“ segir Þorlákur. „Ég segi kennurunum að krakkarnir sem eigi erfitt séu oft þeir sem þeim finnast leiðinlegir.“ Þorlákur segir að til þess að ná árangri í baráttunni gegn einelti sé nauðsynlegt að allir skólastarfs- menn og foreldrar standi saman að Olweusarverkefninu. „Einelti á sér stað hvar sem er og ef ekki er tek- ið á því verða þeir sem fyrir því verða þunglyndir og kvíðnir og ef gerandinn er ekki stöðvaður er stór hætta á að hann haldi áfram með sama hætti í vinnu að lokinni skóla- göngu.“  SKÓLAR | Foreldrar og skólastarfsmenn þurfa að standa saman gegn einelti í skólum Erfitt að vera foreldri geranda Eftir Kristínu Gunnarsdóttur krgu@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Að verða fyrir einelti er erfið lífsreynsla, sem getur fylgt þeim alla ævi sem fyrir verður. % & "    > )# 0=&  4 . &."  50 ' ( )& ( O 1 " 05  . &." & # . ,  *&" !  +" (   ?   , &' .& . 05 ,    + $  & ( /= . &."  .& . .   , &' -      +"   &  & ( ? 0,= . &." & .& = , . 8& ".# / " ( /@  #.  .&    @ .  /   &  &(  ? 06 . &." & #  &&  H&;&& 5  1 " P .& #.  , . 0&(  ? 06 . &." & # 1 " . .=&   1 " ,"&' Viðhorf nemenda til eineltis geta verið allt frá því að vera jákvæð og til þess að taka skýra afstöðu gegn einelti. Einkenni gerenda  Viðhorf til ofbeldis jákvæð- ara en nemenda almennt.  Hafa mikla þörf fyrir að ráðskast með aðra og valta yfir þá, að upphefja sig með valdi og hótunum til að fá vilja sínum framgengt.  Strákar eru oft líkamlega sterkari en félagarnir, eink- um þolendur eineltisins.  Eru oft skapbráðir, fljótfær- ir og hafa litla þolinmæði gagnvart hindrunum og frestunum. Fyllast örvænt- ingu.  Eiga erfitt með að fara að reglum.  Virðast töff og sýna þolend- um eineltis litla samúð.  Sýna fullorðnum oft ágengni, bæði kennurum og foreldr- um.  Geta kjaftað sig út úr erfið- um aðstæðum. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali www.olweus.is Hvernig heilsast? Glæsilegur blaðauki um heilsu og hollan lífsstíl fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 3. september Meðal efnis er líkamsrækt, heilsufæði, jógaiðkun, betri svefn, sykurlaust mataræði, leiðir til að hætta að reykja, mikilvægi slökunar og margt fleira. Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 12 miðvikudaginn 31. ágúst Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.