Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Á
tta sýningar verða á
fjölunum hjá Leikfélagi
Akureyrar í vetur, þar
á meðal rokksöngleik-
urinn Litla hryllings-
búðin – sem verður viðamesta verk-
efni vetrarins – gamanleikurinn
Fullkomið brúð-
kaup og nýtt
rússneskt verk,
Maríubjallan,
sem sýnt verður í
nýju leikrými
LA, Húsinu.
Leikárið ein-
kennist af fjöl-
breytni að sögn
Magnúsar Geirs
Þórðarsonar leik-
hússtjóra sem stefnir á að laða enn
fleiri áhorfendur á sýningar en á
síðasta vetri. Aðsókn síðastliðinn
vetur var ein sú mesta í sögu leik-
hússins og sala árskorta margfald-
aðist, ekki síst á meðal ungs fólks.
50. leikár Þráins!
Fjórir nýir leikarar eru fastráðnir
hjá LA í vetur; Álfrún Örnólfs-
dóttir, Esther Thalia Casey, Guðjón
Davíð Karlsson og Jóhannes Hauk-
ur Jóhannesson.
„Þetta er glæsilegur hópur sem
við erum afar stolt af, enda hvert
öðru hæfileikaríkara. Stefna LA er
að fá til liðs við okkur unga leikara
sem eru að stíga sín fyrstu skref og
eru að springa af metnaði; leikara
sem fá bitastæð hlutverk, vinna
mikið og leggja allt í listina meðan
þeir eru hér. Við erum þarna með
slíka unga leikara sem slást í hópinn
með Þráni Karlssyni sem er að
hefja sitt 50. leikár!“ sagði Magnús
Geir við Morgunblaðið.
Fastráðnir leikarar eru sem sagt
fimm hjá LA nú. „Guðjón og Jó-
hannes voru báðir að útskrifast en
eru engu að síður reyndir; hafa ver-
ið með í nokkrum söngleikjum síð-
ustu ár og leikið frá blautu barns-
beini,“ segir leikhússtjórinn. Þær
Álfrún og Esther Thalia eru ungar
að árum en hafa verið áberandi í ís-
lensku leikhúsi síðustu ár.
Fjórmenningarnir eru ráðnir til
LA í eitt ár „í beinu framhaldi af
stefnubreytingu og uppstokkun sem
átti sér stað fyrir síðasta leikár,
þegar ákveðið var að ráða fastan
hóp að félaginu eitt ár í senn og
blanda saman við vel valda laus-
ráðna leikara.“ Að ári verða svo enn
nýir leikarar hjá félaginu, en með
þessu móti vill Magnús Geir bjóða
leikhúsgestum upp á fjölbreytni og
nýtt blóð á hverju ári.
Gaman og alvara
Hann segir hið nýja fyrirkomulag
hafa mælst vel fyrir. „Við fengum
mjög jákvæð viðbrögð við leikárinu
í heild, ekki síst á einmitt þetta, að
fleiri komu að starfinu en áður og
svo verður áfram, enda bjóðum við
upp á sýningar í vetur í samstarfi
við Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið,
Íslensku óperuna og frjálsan leik-
hóp. Það sem við bjóðum upp á í
vetur er kraftmikið leikhús fyrir
áhorfendur.“
Fyrsta sýning vetrarins verður
Pakkið á móti í leikstjórn Agnars
Jóns Egilssonar. Verkið var frum-
sýnt í vor og verður tekið upp að
nýju nú í september. „Verkið vakti
mikla athygli á sínum tíma og
manni fannst það standa nærri
fréttum líðandi stundar, en eftir
sprengjuárásirnar í London 7. júlí
hefur það færst enn nær okkur.
Fólk stendur upp frá sjónvarps-
fréttunum og fer inn í leikhús og
þar heldur sama umfjöllunin áfram
en að sjálfsögðu undir allt öðrum
formerkjum. Áhorfandinn sér þessi
mál þannig frá öðru sjónarhorni en
hann er vanur. Þetta er merkilegt
verk sem hlotið hefur fjölda verð-
launa en verður enn merkilegra nú
en áður, að mínu mati, vegna sam-
hengis hlutanna,“ segir leik-
hússtjórinn. „Að lesa viðtal við
frænda unga mannsins sem
sprengdi strætisvagn í London er
eins og að hlusta á lýsingu á aðal-
persónunni í verkinu.“
Hann tekur annað dæmi: Morð
lögreglu á saklausum vegfaranda í
London á dögunum speglar atburði
í leikritinu á skuggalegan hátt!
„Þetta er verk fyrir fólk sem vill
láta hreyfa við sér og spyrja krefj-
andi spurninga. Grunntónninn er
svartur en samt er mikill húmor í
verkinu.“
Önnur sýning LA á leikárinu
verður gamanleikurinn Fullkomið
brúðkaup eftir Robin Hawdon í
leikstjórn Magnúsar Geirs, þar sem
aldeilis kveður við annan tón. „Þetta
er drepfyndið verk þar sem er að
finna öll element farsans; margar
hurðir, misskilning, ást, framhjá-
hald, mann á nærbuxunum og allt í
steik! Þetta er nýtt verk, hraðinn
ótrúlegur þannig að áhorfendur
mega varla blikka án þess að missa
af einhverju...“ Verkið er breskt og
Magnús Geir segir það í svipuðum
anda og rómantísku gamanmynd-
irnar Four Weddings and a Funer-
al, Notting Hill, About a Boy og
Love Actually. „Höfundur leikrits-
ins er sá hinn sami og skrifaði leik-
gerðina að Sex í sveit, vinsælustu
sýningu sem sett hefur verið upp í
Borgarleikhúsinu.“
Hryllingsbúð og Maríubjalla
Viðamesta sýning vetrarins hjá
LA verður söngleikurinn Litla
hryllingsbúðin, sem Magnús Geir
leikstýrir einnig sjálfur. „Þetta er
frekar nýr söngleikur, 25 ára, en er
orðinn algjörlega sígildur. Það eru
ekki margir rokksöngleikir settir
upp aftur og aftur en þetta er einn
þeirra. Tónlistin er grípandi og
rokkuð, í verkinu eru ótrúlega skýr-
ar og litríkar persónur sem okkur
er ekki sama um og sagan er
skemmtileg. Umfjöllunarefnið á líka
vel við í dag enda vilja margir
meina að græðgisvæðing hafi átt
sér stað í þjóðfélaginu. “
Magnús Geir segir þetta stórsýn-
ingu vetrarins. „Það verður ekkert
til sparað og mikið lagt í uppsetn-
inguna. Í sýningunni verður stór
hópur leikara, tónlistarmanna og
dansara. Það verður gaman að sjá
rokkmúsík lyfta þakinu af gamla
Samkomuhúsinu; söngleikir eru
sprottnir af gömlum B-myndum
sem maður getur ímyndað sér að
hafi verið sýndar í þessu húsi. Ég
held því að sýningin muni falla vel
inn í húsið.“
Sýningin Ólíver! dró að fjölda ut-
anbæjarmanna síðastliðinn vetur og
Magnús Geir gerir sér vonir um að
Litla hryllingsbúðin hafi sams kon-
ar aðdráttarafl. „Við gerum okkur
vonir um að fólk flykkist í leik-
húsferðir norður yfir heiðar. Verkið
er að sumu leyti svipað og Ólíver!,
líka verk fyrir alla fjölskylduna,
þótt tónlistin sé vissulega allt öðru-
vísi.“
Magnús vill ekki upplýsa hverjir
fara með aðalhlutverk í Litlu hryll-
ingsbúðinni enda ekki búið að
ganga endanlega frá öllum ráðn-
ingum. „Ég get þó fullyrt að leik-
arahópurinn verður glæsilegur.“
Rússneska leikritið Maríubjallan
verður svo frumsýnt í mars, í nýju
rými Leikfélagsins, Húsinu við
Hafnarstræti, sem margir muna
eftir sem Dynheimum. Frístundaað-
staða unglinga flyst nú annað og LA
fær húsið til umráða.
„Þetta er nýlegt verk sem ég kol-
féll fyrir þegar ég las það fyrst fyrir
einu og hálfu ári þegar það var
frumsýnt í London og við tryggðum
okkur sýningarréttinn fljótlega,“
segir Magnús Geir.
Verkið er, að sögn Magnúsar,
mjög átakamikið og lýsir lífi fólks
sem býr í hörðum heimi. „Innan
þessa harða heims leynist samt sem
áður allt litróf tilfinninganna, og í
verkinu er heilmikil von og ást.
Þetta er saga af ungu fólki, sögð af
ungu fólki, höfundurinn er ungur og
leikstjórinn líka.“ Sá er Jón Páll
Eyjólfsson „og ég er sannfærður
um að hann á eftir að gera frábæra
hluti með þetta verk. Hann var til-
nefndur til menningarverðlauna DV
í fyrravetur og gagnrýnandi Morg-
unblaðsins sagði hann mann ársins í
íslensku leikhúsi. Hann er að mínu
mati einn mest spennandi leikstjóri
sem komið hefur fram hér í mörg
ár.“
Höfundur verksins, Vassily Sig-
arev, er af kynslóð ungra leikskálda
frá Rússlandi sem vakið hafa mikla
athygli hin síðari ár. „Þetta er nýj-
asta verk hans og það besta að mínu
mati,“ segir Magnús Geir, en annað
verk Sigarevs, Svört mjólk, var sýnt
í Þjóðleikhúsinu. „Maríubjallan sver
sig í ætt við leikritið Kæra Jelena,
sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu á sín-
um tíma, Stjörnur á morgunhimni
og Fegurðardrottningin frá Línakri
sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi
fyrir nokkrum árum. Þetta er leik-
rit sem snertir okkur í hjartastað og
fær okkur til að standa á öndinni.“
Maríubjallan er samstarfsverk-
efni LA og leiklistardeildar Listahá-
skólans. „Þaðan koma tveir leiklist-
arnemar sem útskrifast í vor og
verða í leikarahópnum. Þá kynnum
við því tvo glænýja leikara sem
spennandi verður að fylgjast með.“
Þrjár gestasýningar
Þá er ónefnd sýningin Ausa
Steinberg eftir Lee Hall í leikstjórn
Maríu Reyndal. „Þetta er falleg og
vönduð leikhúsperla sem vakti
mikla hrifningu þegar hún var sýnd
á Akureyri og í Reykjavík í fyrra-
vetur,“ segir Magnús Geir. Ilmur
Kristjánsdóttir var tilnefnd til ís-
lensku leiklistarverðlaunanna,
Grímunnar, fyrir frammistöðu sína í
verkinu. Fáeinar sýningar verða á
verkinu á Akureyri í janúar. Boðið
verður upp á þrjár gestasýningar
hjá LA í vetur. Í fyrsta lagi Belg-
íska Kongó eftir Braga Ólafsson í
leikstjórn Stefáns Jónssonar, þar
sem Eggert Þorleifsson fer á kost-
um. Hann hlaut einmitt Grímuna
fyrir hlutverk gamallar konu í leik-
ritinu. Verkið verður sýnt 30. sept-
ember og 1. október. Í nóvember
verður sett saman dagskrá úr sýn-
ingunni Edith Piaf eftir Sigurð
Pálsson í leikstjórn Hilmars Jóns-
sonar. Brynhildur Guðjónsdóttir
túlkar Piaf.
Í desember verður svo leikhóp-
urinn Á senunni á ferðinni með Æv-
intýrið um Augastein eftir Felix
Bergsson í leikstjórn Kolbrúnar
Halldórsdóttur. „Desember er yf-
irleitt dauður leikhústími, en nú er
til valið að fjölskyldur komi saman í
aðdraganda jólanna til þess að sjá
þetta fallega ævintýri sem fjallar
um það hvernig gömlu, hrekkjóttu
jólasveinarnir urðu að þeim gjaf-
mildu öðlingum í rauðu búningunum
sem þeir eru í dag.“
Kraftur
Verkefni vetrarins eru öll nýleg.
„Við viljum vera með kraftmikið
fólk og sýna nútímaverk. Leiksýn-
ingar okkar eiga að hreyfa við fólki;
fá það til að hlæja og gráta. Kjarn-
inn í starfsemi okkar í vetur eru
glæsilegar eigin sýningar og mjög
góðar gestasýningar,“ segir Magn-
ús Geir.
Hann segir aðsókn sjaldan hafa
verið meiri hjá LA en á síðasta leik-
ári „en stór hluti aukningarinnar er
til kominn vegna viðleitni leikhúss-
ins til að laða að áhorfendur, ekki
síst yngri kynslóðina. Ungu fólki
býðst í vetur, eins og í fyrra, að
kaupa áskriftarkort á hálfvirði í
boði Landsbanka Íslands. Þannig
geta þeir sem eru 25 ára og yngri
eignast fast sæti í allan vetur á bíó-
verði en öðrum bjóðast auðvitað
einnig áskriftarkort á góðum kjör-
um.“
Magnús Geir segir það stórt
menningarpólitískt mál að gefa
ungu fólki kost á því að koma í leik-
hús á verði sem það ræður við. „Það
var ánægjulegt hve margt ungt fólk
kom í leikhúsið í fyrravetur og ekki
bara á „unglingasýningu“ heldur
nokkrum sinnum yfir veturinn og
kynntist þannig ólíkum verkum.“
Sýningafyrirkomulag verður það
sama og síðasta vetur; það byggist á
því að hvert verk er sýnt oft með
stuttu millibili í stuttan tíma. „Þá er
aðeins eitt verk á fjölunum í einu en
það hefur fjölda kosta í för með sér,
bæði í listrænu og rekstrarlegu til-
liti.“
Margvísleg starfsemi
LA tók á síðasta ári upp samstarf
við grunnskólana á Akureyri um
valgreinakennslu í leiklist fyrir
nemendur í 8. og 9. bekk. „Tilraunin
heppnaðist afar vel og verður fram-
hald á í vetur. Nemendur koma
vikulega í heilt misseri og kynnast
lífinu í leikhúsinu,“ sagði Magnús
Geir og upplýsti ennfremur að einn-
ig verði staðið fyrir opnum leiklist-
arnámskeiðum og völdum árgöng-
um boðið í heimsókn í leikhúsið.
Í vetur verður líka efnt til leik-
lestra á nýjum leikritum. „Mark-
miðið er að kynna áhorfendum ný
leikrit en einnig að „prufukeyra“
leikrit sem leikhúsið er með til
skoðunar fyrir næsta vetur.“ Áhorf-
endur verða hvattir til þess að segja
skoðun sína og hafa þannig áhrif á
verkefnaval félagsins fyrir komandi
misseri.
Meðal verk sem stendur til að
lesa er nýtt verk eftir Sigtrygg
Magnason og Hr. Kolpert eftir Dav-
id Gieselmann.
LA er eina atvinnuleikhúsið utan
höfuðborgarsvæðisins. Það er rekið
með stuðningi Akureyrarbæjar á
grunni samstarfssamnings við ríkið
um reynslusveitarfélag. „Með því
fjármagni og samstarfi okkar við
fjölda fyrirtækja – sem ég kalla
máttarstólpa – tekst okkur að bjóða
upp á jafn glæsilega dagskrá og
raun ber vitni,“ segir Magnús Geir
Þórðarson.
„Leikhús fyrir áhorfendur“
Morgunblaðið/Kristján
Söngleikurinn Óliver! vakti lukku á sviðinu hjá LA í fyrravetur. Magnús Geir vonar að Litla hryllingsbúðin geri
slíkt hið sama. Á myndinni eru Gunnar Örn Stephensen og Ólafur Egill Egilsson í hlutverkum Ólivers og Fagíns.
skapti@mbl.is
Starf Leikfélags
Akureyrar einkennist
af fjölbreytni í vetur,
að sögn leikhús-
stjórans. Skapti
Hallgrímsson ræddi
við Magnús Geir
Þórðarson um vetrar-
starfið framundan.
Magnús Geir
Þórðarson
Leikhús | Litla hryllingsbúðin er viðamesta verkefni LA í vetur en átta sýningar verða á fjölunum