Morgunblaðið - 26.08.2005, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurjón Jó-hannsson fædd-
ist á Brúarlandi í
Mosfellssveit 12.
ágúst 1933. Hann
lést á Landspítalan-
um 18. ágúst síðast-
liðinn. Foreldar
hans voru Jóhann
Sigurjónsson, bók-
haldari í Reykjavík,
f. 4. mars 1911, d.
31. des. 1956 og
Guðrún Magnús-
dóttir, símstöðvar-
stjóri á Brúarlandi
(Varmá) í Mosfellssveit, f. 6. apríl
1913, d. 8. ágúst 2000. Systkin Sig-
urjóns eru Jón Magnús, f. 1935,
Margrét Helga, f. 1940, og Matt-
hildur, f. 1942. Systkini samfeðra
eru Helgi, f. 1956, d. 1956, og Jó-
hanna Á. H., f. 1957.
Sigurjón kvæntist hinn 4. júní
1960 Ernu Þorleifsdóttur, fyrrum
félagsráðgjafa, f. 9. apríl 1939, d.
7. mars 1994. Foreldrar hennar
voru Þorleifur Guðmundsson
framkvæmdastjóri og Guðrún
Bergsdóttir húsfreyja. Börn Sig-
urjóns og Ernu eru: 1) Jóhann, f.
8. nóvember 1960. Sonur hans er
Aron, f. 1994. 2) Þórgunnur, f. 8.
maí 1963, í sambúð með Marvin E.
Wallace. Dóttir hennar er Erna
Sif Óskarsdóttir, f. 1983. Eitt
barnabarn, Aníta Björt, f. 2002. 3)
Katrín, f. 24. ágúst 1964. Sonur
hennar er Davíð Þór
Katrínarson, f.
1993. 4) Anna Guð-
rún, f. 25. júní 1968.
Sonur hennar er
Freyr Vilmundar-
son, f. 2003.
Eftirlifandi sam-
býliskona Sigurjóns
er Ingibjörg Þórar-
insdóttir, f. 25.
ágúst 1933, fyrrum
skólastjóri Hús-
mæðraskóla
Reykjavíkur.
Sigurjón lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1953. Hann stund-
aði nám í viðskiptafræði við Há-
skóla Íslands á árunum 1953-1956
en lauk ekki námi heldur sneri sér
að blaðamennsku sem átti þá hug
hans allan. Fram til ársins 1978
starfaði Sigurjón aðallega sem
blaðamaður en þá flutti fjölskyld-
an til Noregs og þar var hann
lektor við Blaðamannaháskólann í
Ósló til ársins 1982. Eftir heim-
komu var hann við ýmis störf til
ársins 1987 en þá hóf hann
kennslu við fjölmiðlabraut í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti og
starfaði þar þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir árið
2003.
Útför Sigurjóns verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
Ég kynntist Sigurjóni þegar hann
var á ungum aldri, því að ég var náinn
vinur Ásmundar föðurbróður hans
frá árum náms og starfa í Kaup-
mannahöfn. Ég minnist þess hve mér
þótti Sigurjón tiltakanlega fallegur
og ljúfur piltur. Síðan vissum við
ávallt hvor af öðrum, en kynni okkar
voru stopul uns hann hóf fyrir nokkr-
um árum sambýli með Ingibjörgu
Þórarinsdóttur, kennara og skóla-
stjóra, sem var og er náinn vinur okk-
ar Sigríðar konu minnar. Þau Ingi-
björg voru bekkjarsystkin frá
Menntaskólanum á Akureyri. Nú
höfðu þau bæði misst maka sína, en
börnin voru komin vel á legg þegar
þau brugðu á það heillaráð að taka
saman og búa sér fagurt heimili
hérna í Vesturbænum.
Með sanni má segja að með þeim
hafi verið jafnræði um gáfur og
glæsileika. Ingibjörg var ásamt okk-
ur hjónunum meðlimur í litlum gam-
algrónum vinahópi fólks sem kemur
saman öðru hvoru til skrafs og
skemmtunar; og nú bættist Sigurjón
í þennan kærleiksflokk sem mikill au-
fúsufélagi. Oftast tókum við Sigurjón
þátt í hinum almenna fagnaði, en
stundum fengum við færi á að draga
okkur til hlés og ræddum tveir saman
um margvísleg hugðarefni okkar.
Það var í senn fróðlegt og fjarska
notalegt að sitja við hlið hans og ræða
við hann. Hann var hæglátur og hóg-
vær, skipulegur í framsetningu og
umtalsgóður um alla menn. Hann
hafði verið blaðamaður og ritstjóri
um áratuga skeið og kunni frá mörgu
að segja af þeim vettvangi. Nokkur
ár dvaldist hann í Noregi, tengdist
þeim frændaheimi traustum böndum
og lærði margt af Norðmönnum – og
þeir af honum, því að hann var um
skeið lektor við blaðamannaháskól-
ann í Ósló. Á síðari árum vann hann
mjög að söfnun heimilda um ýmsa
þætti í íslenskri blaðaútgáfu sem lítt
hafa verið kannaðir til þessa. Ekki
veit ég gjörla hvar það verk var á vegi
statt við fráfall hans, en ég vona að
það hafi verið komið svo vel áleiðis að
það verði gefið út á prent, eða að
minnsta kosti einhverjir mikilvægir
hlutar þess.
Ég veit að ég mæli fyrir munn okk-
ar allra í litla vinafélaginu okkar þeg-
ar ég lýsi sárum söknuði eftir góðan
dreng og hugljúfan vin. Öll sendum
við Ingibjörgu og börnunum þeirra
beggja hjartanlegar samúðarkveðj-
ur.
Jónas Kristjánsson.
Genginn er góður vinur, Sigurjón
Jóhannsson, sem í mínum huga var
og er Diddó og ekki annað. Hvernig
gælunafnið kom til veit ég ekki né
man ég okkar fyrstu kynni; hann var
einfaldlega hluti af stórfjölskyldunni
á Brúarlandi í Mosfellssveit sem mér,
og fleirum sem fetuðu þar fyrstu
sporin á menntabrautinni, var fram-
an af ekki almennilega ljóst hvar end-
aði og hvar byrjaði. Það gerði heldur
ekkert til því hlýjan og hispursleysið
geislaði af öllu þessu fólki og manna-
munur ekki gerður, hvorki með tilliti
til stéttar né aldurs.
Diddó var 5 árum eldri en ég en
það er aðeins tala á blaði. Hann ákvað
strax að ég væri jafningi. Að mínu viti
lýsir það Diddó mjög vel. Hann kom
framan að hlutunum og gekk út frá
því góða á meðan nokkur kostur var.
Létt lund var honum eðlislæg og enn
hlýnar mér um hjarta þegar ég heyri
kumrandi og kitlandi hláturinn sem
oft kom áður en aðrir viðstaddir
höfðu komið auga á hið broslega á líð-
andi stund.
Vegna miseldris vorum við ekki
skólafélagar á Brúarlandi. En tilver-
an hagaði því svo að við urðum báðir
blaðamenn. Keppinautar til að byrja
með, hann á Þjóðviljanum en ég á
Tímanum, en það breyttist árið 1962
þegar Hilmar A. Kristjánsson gerði
tilraun með að gefa út nýtt síðdeg-
isblað, Mynd, og safnaði þangað liði
af blöðunum sem fyrir voru. Þar urð-
um við Diddó samherjar og þar var
stofnað til vináttu sem ekki rofnaði
síðan, þó við yrðum aftur keppinaut-
ar meðan hann var á Fálkanum en ég
á Vikunni. Við áttum líka eftir að
verða samherjar á ný og gott er að
minnast ferðar sem við fórum saman
til Óslóar fyrir Vikuna eftir að ég var
orðinn ritstjóri þar öðru sinni.
Um skeið hvarf Diddó til Noregs
en ég upp í Borgarfjörð, hvort
tveggja álíka langt í tíma frá höfuð-
borgarsvæðinu. En alltaf var sem við
hefðum hist síðast í morgun þegar
fundum bar saman. Síðast hittumst
við í Þjóðarbókhlöðunni þar sem hvor
var að sinna sínum hugðarefnum og
endaði með því að bókavörðurinn bað
okkur góðfúslega að hypja okkur að
minnsta kosti fram á gang með sam-
ræðurnar.
Diddó kom víða við um dagana og
lagði gjörva hönd á margt. Nú er
hann enn horfinn til nýrra heim-
kynna og verka. Þangað fylgir hon-
um þökk fyrir velvild og vináttu alla
tíð.
Sigurður Hreiðar.
Þegar góðir vinir og félagar falla
frá er fyrsta tilfinningin oft söknuð-
ur. Það var einmitt söknuður sem
mér var efst í huga þegar ég heyrði
um andlát Sigurjóns Jóhannssonar.
Síðan reikaði hugurinn að öllu því
sem við gerðum saman um nokkurt
árabil. Ég átti því láni að fagna að
vinna að ýmsum verkefnum með hon-
um og kynnast honum sem blaða-
manni og félaga. Það var bæði dýr-
mæt og skemmtileg reynsla. Alltaf
síðan þegar ég hef hitt hann á förnum
vegi eða við hist við ýmis tækifæri
minnist ég þess hve þetta tímabil í lífi
okkar var gefandi.
Kynni mín af Sigurjóni hófust þeg-
ar hann var ritstjóri Vinnunnar hjá
Alþýðusambandi Íslands og ég
fræðslufulltrúi MFA. Sigurjón hafði
mikla reynslu af blaðamennsku og
það var reyndar sameiginlegt áhuga-
mál okkar á þeim tíma og alla tíð var
það áhugaefni hans og lífsstarf.
Á þessum tíma, þ.e. á níunda ára-
tug síðustu aldar, var allt fræðslu-
starf innan verkalýðshreyfingarinnar
í mikilli endursköpun og mótun innan
MFA og Alþýðusambandsins. Á
námskeiðum hjá Félagsmálaskóla
Alþýðu var ákveðið að flétta inn í nám
fyrir launafólk kennslu í fjölmiðlun,
framkomu í sjónvarpi, ritun blaða-
greina og fleira sem tengist þekkingu
á sviði fjölmiðla. Í þessu efni leituðum
við til fagmanna á öllum sviðum og
þar reyndist Sigurjón Jóhannsson
haukur í horni. Hann hafði yfirgrips-
mikla þekkingu á blaðamennsku síð-
ustu áratuga. Hann bjó út námskeið
þar sem hann sýndi þróun blaða-
mennskunnar, sýndi hvernig myndir,
fyrirsagnir og hönnun blaða breytt-
ust í tímans rás, nýjungar urðu til og
tæknibreytingar mótuðu stöðugt
störf blaða- og fréttamanna. Hann
hafði unnið á ýmsum dagblöðum og
tímaritum og gat miðlað okkur hinum
af skemmtilegri og dýrmætri reynslu
sinni. Síðar þegar Tómstundaskólinn
setti upp viðamikið námskeið í fjöl-
miðlun var hann einn af helstu hug-
myndasmiðum þess og umsjónar-
maður.
Sigurjón var hlýr og þægilegur
kennari sem hafði ætíð tilfinningu
fyrir fólkinu í kringum sig. Ég held
að þetta hafi einkennt hann alla tíð.
Þegar hann fjallaði um áhugamál sitt
þá duldist engum að þar fór maður
sem tók starf sitt alvarlega og reyndi
af fremsta megni að miðla því besta
sem hann hafði sjálfur lært af langri
reynslu. Ég átti þess síðar kost að
fara með Sigurjóni og Gylfa Má Guð-
jónssyni til Murikka í Finnlandi þar
sem við dvöldum saman í Norræna
MFA-skólanum í vikutíma. Þar sá ég
hve hæfileikar Sigurjóns nutu sín
þegar hann sýndi ljósmyndir sem
hann hafði sjálfur tekið, dramatískar
og fullar lífi en um leið blandaðar
mannlegum harmleik þegar byggðin
í Vestmannaeyjum fór undir hraun í
janúar 1973. Þarna kynntist ég
manninum Sigurjóni Jóhannssyni,
lífsstíl hans, húmor og hæfileikum.
Þarna skildi ég til fulls hve auðvelt
hann átti með að afla sér trausts og
vinsælda hvar sem hann fór. Hvort
sem hann kenndi blaðamennsku í
Blaðamannaskólanum í Osló, hjá Fé-
lagsmálaskóla Alþýðu eða Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti var
þarna sami gamli, góði drengurinn á
ferð að miðla öðrum af reynslu sinni
og þekkingu. Í hvert sinn sem við
hittumst eftir þessa skemmtilegu
ferð til Finnlands voru alltaf tilefni til
að rifja upp ýmis atvik sem kölluðu
fram dillandi hlátur hans og kankvíst
bros.
Eftir þetta áttum við Sigurjón eftir
að vinna ýmis verk saman, sérstak-
lega að ýmsum ritum sem voru unnin
í tilefni að stórafmælum stéttarfélaga
og sambanda innan ASÍ. Þetta voru
skemmtileg verkefni. Sigurjón var
ætíð frumlegur og fundvís á efni, en
við hlið sér hafði hann oft allt of óþol-
inmóðan samverkamann. Það lá
nefnilega ekki alltaf mikið á hjá Sig-
urjóni. Hann hafði alltaf nógan tíma.
Í þessum verkefnum unnum við sam-
an sem einn maður þó ólíkir værum
að mörgu leyti.
Það er ekki svo langt síðan Sig-
urjón kom til okkar á skrifstofu Efl-
ingar – stéttarfélags og bauð fram
nýjar hugmyndir að efni fyrir Frétta-
blað Eflingar. Hann hafði fylgst með
blaði félagsins og vildi gjarnan leggja
okkur lið. Ekki ólíkt Sigurjóni. Við
fengum þarna kærkomið tækifæri til
að endurnýja samstarfið.
Ég vil að leiðarlokum þakka fyrir
góða samfylgd, allt það sem Sigurjón
Jóhannsson miðlaði mér og ekki síð-
ur hvernig alúð hann sýndi allri
kennslu og tilsögn á þeim tíma sem
við störfuðum saman. Fjölskyldu Sig-
urjóns votta ég samúð mína.
Þráinn Hallgrímsson.
Snemma á starfsferli Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti var tekin um það
ákvörðun í stjórn skólans að hleypa
af stokkunum sérstakri fjölmiðla-
braut, þar sem leitast yrði við að
tengja saman almennt framhalds-
skólanám og ýmsar sérgreinar fjöl-
miðlunar svo sem íslenskt mál, ljós-
myndun, tölvuvinnslu o.fl. Auglýst
var eftir manni til að veita forstöðu
slíkri námsbraut og bárust nokkrar
umsóknir, þar á meðal umsókn frá
Sigurjóni Jóhannssyni. Sigurjón var
á þeim tíma vel kunnur sem fjöl-
miðlamaður, bæði sem blaðamaður
og félagi í stjórnum hagsmunasam-
taka auk þess sem nokkra athygli
hafði vakið að hann hafði verið í fram-
haldsnámi við norskan blaðamanna-
skóla og sent útvarpi og blöðum
áhugaverða fréttapistla frá Noregi.
Er ekki að orðlengja það, að Sig-
urjón var ráðinn til að veita fjölmiðla-
brautinni forstöðu. Kom fljótt í ljós,
að þar var réttur maður á réttum
stað. Tekið var af fagmennsku og
mikilli kunnáttu á öllum þeim málum
sem upp komu og leið ekki á löngu
uns brautin var komin í fastan farveg
við sívaxandi aðsókn. Aðsóknin varð
reyndar svo mikil að innan nokkurra
missera þurfti að ráða annan fjöl-
miðlamann að brautinni. Varð þá fyr-
ir valinu ungur fjölmiðlafræðingur,
sem m.a. var fyrrum FB-nemandi,
Magnús Ingvason. Með ráðningu
Magnúsar hófst mikilsháttar sam-
starf þeirra Sigurjóns um fjölmiðla-
brautina sem innan tíðar var komin í
fremstu röð sinnar tegundar á land-
inu og til mikils sóma fyrir þá félaga
báða og þá ekki síður Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti sem stofnun.
Mjög reynir á hæfileika manna til
samstarfs undir kringumstæðum
sem þessum. Sumir leiðast inn á þá
braut að setja sig á háan hest gagn-
vart yngri vinnufélögum, en slíku var
ekki til að dreifa þar sem Sigurjón
Jóhannsson var. Einkar þjált geðslag
naut sín til fulls í slíku samstarfi.
Sjálfur var hann sífrjór í hugsun,
ætíð að leita fyrir sér með góðar
lausnir og þá ekki síður að laða fram
það besta hjá samstarfsmönnum og
nemendum, en hvort tveggja tókst
Sigurjóni sérstaklega vel. Þá er að
geta þess, að starfið í fjölmiðlabraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti náði
langt út fyrir veggi skólans. Dæmi
um slíkt er fyrirferðarmikil þátttaka
brautarinnar í útgáfu Breiðholtstíð-
inda og hvernig þeir starfsmenn og
stjórnendur brautarinnar hafa tengt
saman yngri og eldri nemendur, og
þar með talda löngu útskrifaða, með
félagslegum hætti; heimsóknum, fyr-
irlestrum og fundahöldum. Má full-
yrða að vinnubrögð af því tagi eru til
marks um framúrskarandi skóla-
starf, lýðræðisleg vinnubrögð og
samþættingu atvinnulífs og skóla.
Með hliðsjón af framanskráðu má
sjá, að Sigurjón Jóhannsson var
skólamaður af bestu gerð. Einn af
þeim sem telja má til hornsteina í far-
sælu skólastarfi.
Á kennarastofunni var Sigurjón
líka góður félagi. Í frímínútum sat
hann oftast við „gáfumannaborðið“
svokallaða, ætíð stilltur vel og yfir-
vegaður, ýmist alvörugefinn eða
glettinn eftir málsatvikum eða kring-
umstæðum, sífellt reiðubúinn til þátt-
töku í daglegri umræðu og ætíð að
leggja gott til mála, en það var eitt
megineinkenni hans. Það var nota-
legt að hafa hann að borðfélaga eða
sem sessunaut og verður þar nú
skarð fyrir skildi.
Sigurjón Jóhannsson var hvers
manns hugljúfi. Langt út yfir gröf og
dauða mun áhrifa hans gæta; prúð-
mannleg framkoma hans og persónu-
leg reisn, yfirveguð stilling og já-
kvætt viðmót, framúrskarandi
þekking ásamt hjartans auðmýkt og
lítillæti, vinsemd hans og hlýja. Allt
eru þetta eiginleikar sem umvefja
samferðamennina.
Sigurjóns verður sárt saknað,
mjög sárt, en söknuðinum fylgir
einnig gleði, gleði yfir að hafa fengið
að kynnast svo góðum dreng. Þökk
fyrir það.
Samúðarkveðjur til aðstandenda
Þorkell St. Ellertsson.
Það er með miklum trega sem ég
og samstarfsmenn mínir við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti kveðjum
kæran og traustan vin, Sigurjón Jó-
hannsson framhaldsskólakennara.
Sigurjón hóf störf við FB árið 1987.
Þar veitti hann fjölmiðlabraut skól-
ans forstöðu og undir hans hand-
leiðslu óx hún og dafnaði jafnt og
þétt. Sigurjón hafði ríkan metnað
fyrir hönd skólans og nemenda.
Hann var sífellt að leita leiða til að
gera skólann og brautina sem besta
og var frumkvöðull á ýmsum sviðum.
Reynslu sína frá fjölmörgum dag-
blöðum og tímaritum sem og
kennslustörfum við blaðamannahá-
skólann í Osló í Noregi nýtti hann vel
og nemendum var ljóst að þar talaði
maður með mikla reynslu.
Væntumþykja Sigurjóns gagnvart
nemendum skein alltaf í gegn og þeir
fundu sterklega fyrir því. Hann var
alla tíð sérlega vinsæll og virtur
kennari og lögðu nemendurnir sig
fram við að vinna vel undir hans leið-
sögn. Hann gerði ríkar kröfur um
fagleg og metnaðarfull vinnubrögð
og stoltastur var hann þegar hann
tók við góðu og vel unnu verkefni.
Sigurjón hafði tröllatrú á ung-
dómnum og lét það óspart í ljós.
Hann gaf nemendum kost á tölu-
verðu frjálsræði og þeir vissu að það
var vandmeðfarið.
Sigurjón lét af kennslustörfum fyr-
ir aldurs sakir árið 2003 og hugðist
setjast í helgan stein, þá rétt tæplega
sjötugur að aldri. FB mátti þó illa við
að missa jafn góðan og hæfan starfs-
mann og var hann beðinn um að
koma aftur til starfa við hin ýmsu
verkefni fyrir skólann. Þau verk
leysti hann jafn vel og venjulega.
Veikindi Sigurjóns bar brátt að.
Þegar starfsmenn kvöddust sl. vor
var hann jafn hress og venjulega og
fullur tilhlökkunar að takast á við
næstu verkefni sem m.a. voru fólgin í
því að hafa umsjón með 30 ára afmæl-
isriti skólans nú í október. Skjótt
skipast veður í lofti og nú aðeins
tveimur mánuðum síðar er hann all-
ur.
Við sendum fjölskyldu hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Megi
minning Sigurjóns Jóhannssonar lifa.
F.h. starfsfólks Fjölbrautaskólans
í Breiðholti
Magnús Ingvason.
SIGURJÓN
JÓHANNSSON
Fleiri minningargreinar um Sig-
urjón Jóhannsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Davíð Logi Sigurðs-
son; Þorgrímur Gestsson.
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is