Morgunblaðið - 26.08.2005, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Stefán Gunnars-son fæddist í
Árnabæ á Akranesi
5. mars 1912. Hann
lést á dvalarheim-
ilinu Höfða 17.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Gunnar Gunnars-
son, f. 16.10. 1866, d.
2.9. 1947, og Jó-
hanna Kristín Böðv-
arsdóttir, f. 18.4.
1882, d. 7.9. 1950.
Systkini Stefáns
voru Guðmundur, f.
1902, Gunnar, f. 1904, og Jónína,
tvíburasystir Stefáns, f. 1912. Þau
eru öll látin.
Stefán kvæntist 6. október 1937
Ólínu Ingveldi Jónsdóttur hús-
freyju, f. 27.3. 1910, d. 16.12. 2004.
Foreldrar hennar voru Jón Ólafs-
son bóndi á Kaðalstöðum og Guð-
rún Kristjánsdóttir verkakona.
Börn Stefáns og Ólínu eru: 1)
Gunnar Kaprasíus, f. 21.8. 1940, d.
4.7. 1997, maki Sigurbjörg Krist-
jánsdóttir, f. 11.12. 1938. Þeirra
dætur eru: a) Ásta Björk, maki
Guðmundur Sigurbjörnsson og
eiga þau þrjár dætur. b) Ólína
Ingibjörg, maki Garðar Jónsson,
þau eiga fjögur börn. c) Klara
Berglind, maki Bergsteinn Egils-
son, þau eiga þrjú börn. 2) Ármann
Árni, f. 3.10. 1942. Börn hans eru:
a) Árný Ólína, f. 29.10. 1963, d.
10.11. 2000, maki Freysteinn
Barkarsson, þau eignuðust eina
dóttur. Móðir Árnýjar er Ingunn
Ástvaldsdóttir, f. 18.6. 1943. b)
Kristín Helga, f. 23.5. 1964, maki
Brynjólfur Ottesen, þau eiga þrjú
börn og eitt barnabarn. c) Stefán
Gunnar, f. 20.2. 1966, maki Guð-
finna Indriðadóttir, þau eiga þrjú
börn. d) Indriði Björn, f. 10.4.
1971, hann á tvö börn. e) Ármann
Rúnar, f. 11.10. 1972,
hann á þrjú börn. f)
Ólafur Bjarni, 29.12.
1976, maki Kristín
Ragnarsdóttir, þau
eiga tvo syni. Móðir
þeirra er fyrri kona
Ármanns, Símonía
Ellen Þórarinsdóttir,
f. 21.4. 1947. Seinni
kona Ármanns er
Ingibjörg Valdimars-
dóttir, f. 16.2. 1945.
Hún á þrjú börn. 3)
Svandís Guðrún, f.
28.9. 1946, maki Jón
Sigurðsson, f. 3.10. 1948, þau
skildu. 4) Jóhanna Gunnhildur, f.
17.4. 1948, maki Sigfús Eiríksson,
f. 7.5. 1946, þau skildu. Börn
þeirra eru: a) Eiríkur Svanur, f.
12.1. 1967, maki Sandra Jónasdótt-
ir, þau eiga tvo syni. b) Guðrún
Erla, f. 8.9. 1973, maki Vilmundur
Theódórsson, þau eiga tvo syni. c)
Þröstur Freyr, f. 25.5. 1976, maki
Maríanna Másdóttir, þau eiga eina
dóttur.
Stefán ólst upp í Innri-Akranes-
hreppi, lengst af í Galtavík og á
Tyrfingsstöðum. Stefán og Ólína
hófu búskap árið 1936 á Akranesi.
Stefán stundaði lengi sjóvinnu-
störf á Akranesi en árið 1941
keyptu þau hjónin jörðina Skipa-
nes í Leirár- og Melasveit og
stunduðu þar búskap til 1975. Stef-
án var starfsmaður Hvals hf. frá
1970 til ársins 1989 en þá hætti
hann störfum að mestu leyti. Stef-
án og Ólína fluttu aftur til Akra-
ness 1975, þau bjuggu fyrst á Vest-
urgötu 125 en frá 1982 bjuggu þau
á Höfðagrund 2. Síðustu æviár sín
dvaldi Stefán á Dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi.
Stefán Gunnarsson verður jarð-
sunginn frá Akraneskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku pabbi minn. Nú er þínum
starfsferli lokið á meðal okkar. Já,
stutt var á milli ykkar mömmu, hún
var svo sem búin að segja að þannig
yrði. Þú barst mikla umhyggju fyrir
þínum börnum og þinni fjölskyldu.
Vildir alltaf vita nákvæmlega um alla
og einnig hversu margar ær voru
bornar í sveitinni og hvort ekki væru
komin mislit lömb. Einnig fylgdistu
vel með heyskapnum og vildir vita
hvaða tún væri búið að slá.
Þegar ég kom til vinnu eftir frídaga
vissir þú alltaf nákvæmlega um hvað
við töluðum síðast. Þú varst einstak-
lega mikið prúðmenni, skiptir varla
skapi.
Eitt skipti var það þó sem ég mun
ekki gleyma. Þú baðst mig um að ná í
kýrnar en ég sagði að það væri ekki
minn dagur. Þú fórst þá sjálfur af stað
að ná í þær. Mér fannst þetta svo leið-
inlegt að ég labbaði af stað á eftir þér
og þá varð allt gott á milli okkar aftur.
Fyrir hönd mömmu og pabba vil ég
þakka öllum sem aðstoðuðu þau síð-
ustu árin og einnig hlýjan hug til mín.
Minning þeirra lifir með okkur öll-
um.
Hafið þökk fyrir allt.
Ykkar dóttir,
Svandís Stefánsdóttir.
Elsku hjartans afi minn. Nú hefur
þú fengið hvíldina, hvíldina sem þú
varst búinn að bíða svo eftir. Þar með
er sá hjartahlýjasti maður sem ég hef
komist í kynni við búinn að kveðja
okkur hér á jörðu niðri. Í minning-
argrein sem ég skrifaði um ömmu í
desember sl. sagðist ég vera viss um
að þegar þinn tími til að kveðja kæmi
myndi hún taka á móti þér opnum
örmum. Ég er ekki í nokkrum vafa
um að hún hefur gert það og jafnvel
skammast aðeins í þér fyrir að hafa
látið sig bíða eftir þér. Oft þegar
amma var eitthvað að ,,aga þig til“
kom á þig þetta yndislega bros sem
þakti allt andlitið og svo hrististu af
hlátri og þá heyrðist ennþá meira í
ömmu. Minningarnar um ykkur eru
dýrlegar og þið voruð ansi skondin
hjón.
Á ferðalagi þínu í gegnum lífið
gekkst þú í gegnum súrt og sætt. Þið
amma misstuð eldri son ykkar, Gunn-
ar Kaprasíus, á besta aldri og svo
máttuð þið horfa á eftir barnabarni
ykkar, Árnýju Ólínu. Þá þótti þér svo
ósanngjarnt að fyrst að einhver þurfti
að kveðja, af hverju þú gamalmennið
fékkst ekki að fara í stað hennar,
ungrar konu. Tóku þessi áföll mikið á
ykkur sem og okkur öll í fjölskyld-
unni. Svo misstir þú lífsförunaut þinn,
hana ömmu, í desember sl. Þú sagðir
mér eitt sinn að þú vildir fá að fara á
undan henni en svo varð ekki, en nú
hafið þið fundið hvort annað á ný.
Ef maður leyfir sér að hugsa barns-
lega þá sé ég fyrir mér að amma hefur
tekið á móti þér með vel sykruðu kaffi
og pönnsum og boðið Gunnari Kapra
og Öddu frænku líka. Þá hafa orðið al-
vöru fagnaðarfundir á himnum. En
auðvitað upplifðir þú gleði líka. Þú
áttir stóran hóp afkomenda sem þér
þótti svo undur vænt um. Alltaf
varstu jafn glaður þegar maður lét sjá
sig hjá þér og ósjaldan var laumað
súkkulaðimola í litla sem stóra
munna. Okkur þótti nammi og sykur
svo góður. Þann dag sem ég fékk það
staðfest að ég ætti von á barni, ramb-
aði ég inn á Höfða til þín og sagði þér
fréttirnar. Mikil ósköp varstu glaður
og það að þarna væri fyrsta langa-
langafabarnið þitt á leiðinni var ekki
leiðinlegt og ekki var verra eins og þú
sagðir sjálfur að þá var fyrsta lang-
afabarnið þitt að verða mamma. Þeg-
ar litli sólargeislinn minn leit dagsins
ljós hlaut hún nafnið Árný Stefanía.
Þú varst svo glaður að fá aðra Árnýju
og ekki skemmdi fyrir að hún hlaut
nafnið frá þér, Stefanía, sagðirðu. En
nú er Árný Stefanía þriggja ára og
skilur ekki upp né niður í heiminum
þessa dagana. Spurningarnar sem
koma um látið fólk, tilgang kirkju-
garðs, hvert maður fer þegar maður
deyr, Guð o.fl. Sjálf verð ég oft orð-
laus þegar barnið byrjar en reyni nú
samt að svara henni eftir bestu getu.
Eitt eigið þið Árný Stefanía sam-
eiginlegt eins og svo margt annað en
það er áhugi ykkar á sveitinni. Þú
varst bóndi af lífi og sál og vildir alltaf
fá að fylgjast með og þurftir sko að fá
fréttir úr sveitinni reglulega. Hvernig
sláttur gengi, eða smalamennskan,
hvað væri margt fé á húsi, mörg hross
á járnum og hvað væri margt borið.
Þetta eru spurningar sem ég á eftir að
sakna.
Elsku afi, þú varst alltaf svo hress
og skemmtilegur, þótt farið væri að
draga af þér á síðustu árum. Manni
leið alltaf svo vel hjá þér, hvort sem
það var bara í spjalli um lífið og til-
veruna, í fjölskylduferðunum ykkar
ömmu, í sveitinni, þegar ég var að
skrifa fyrir þig jólakort og bara hvar
sem var. Þú umvafðir mann ást og
umhyggju, gast skemmt manni enda-
laust með þessum dásamlega húmor
sem þú hafðir. Svo fékkstu þér bara í
vörina og hrákadallurinn á sínum stað
við rúmið. Minningarnar um þig
hverfa aldrei úr hjarta mínu.
Elsku afi, nú skilja leiðir okkar í
bili, en ég veit að þú fórst sáttur og
fullsaddur af lífinu.
Guð geymi þig, afi minn.
Þín langafastelpa,
Sigurbjörg Ottesen.
Rétt áður en keyrt er niður í Hval-
fjarðargöngin norðanmegin standa
litlar húsarústir. Húshliðin sem snýr
suður er fallin niður en eftir standa
hinar þrjár og þakið. Þetta eru Tyrf-
ingsstaðir, síðasta æskuheimili Stef-
áns afa míns sem hér er minnst. Frá
Tyrfingsstöðum flutti afi að heiman
og stofnaði sitt eigið heimili með
Ólínu ömmu. Þau leigðu fyrst í risinu í
Norðtungu, nú Suðurgötu 88, og þar
fæddist elsta barn þeirra, pabbi minn,
árið 1940. Afi var þá á síldveiðum á
Siglufirði en heyrði tilkynningu um
fæðingu sonar síns í útvarpinu. Orðið
feðraorlof var ekki einu sinni til í
tungumálinu.
Vorið eftir keyptu afi og amma
jörðina Skipanes. Þar bjuggu þau í
tæp 35 ár og ólu upp börnin sín fjögur.
Mínar fyrstu minningar um ömmu og
afa eru úr Skipanesi, amma að skurka
í eldhúsinu og afi úti að vinna.
Eftir að hvalveiðar hófust fór afi að
vinna í hvalstöðinni. Á sunnudögum
fórum við systurnar í okkar fínasta
púss, settumst upp í litla fólksvagn-
inn, og fórum með foreldrum okkar í
bíltúr inn í hvalstöð. Oft lét afi vita ef
von var á hvalbátunum svo við gætum
fylgst með þegar þessar ógnarstóru
skepnur voru dregnar á land. Á plan-
inu í hvalstöðinni ríkti ótrúleg
stemmning. Þar var oft margt um
manninn, hróp og köll, ískur í tog-
vírum og auðvitað lyktin alveg
ógleymanleg. Þarna var afi í essinu
sínu, stór og sterkbyggður og þrátt
fyrir að vera farin að eldast gaf hann
yngri mönnum ekkert eftir hvað
vinnusemi snerti. Í hvalstöðinni vann
afi þar til hvalveiðum var hætt og
stöðinni lokað, hann var þá að nálgast
áttrætt.
Þegar afi hætti störfum á almenn-
um vinnumarkaði má segja að hann
hafi tileinkað sér nýjan starfsvett-
vang. Hann lét nefnilega ekki sitt eftir
liggja við heimilisstörfin. Og þó fæstir
karlmenn af hans kynslóð kæmu ná-
lægt heimilisstörfum gerði afi það
með miklum sóma. Hann þvoði upp,
skúraði og undir nákvæmri leiðsögn
ömmu straujaði hann alveg listavel.
Afi hélt alltaf andlegri heilsu, hann
fylgdist vel með öllu sínu fólki og var
umhugað um að allir væru við góða
heilsu. Sjálfur var hann orðinn fóta-
lúinn og hjartað farið að þreytast.
Með virðingu og þökk kveð ég afa
minn. Hann var hógvær, lítillátur og
traustur sem klettur.
Hafðu hjartans þökk fyrir allt.
Ólína Ingibjörg.
Nú er hann Stefán vinur minn frá
Skipanesi farinn yfir móðuna miklu.
Ekki lét hann Ólínu sína bíða lengi
eftir sér, hún dó rétt fyrir jól í fyrra og
hann nú á síðsumardögum. Þessara
vina minna er sárt saknað. Ég minnist
oft stundanna sem ég átti sem strák-
ur í Skipanesi enda var Stefán maður
sem ég bar ótakmarkaða virðingu fyr-
ir og varð mikill félagi minn um leið
og ég kom að Skipanesi níu ára gam-
all, fyrir um 45 árum. Þar tókst ótrú-
leg vinátta milli drengs og manns á
miðjum aldri, og engum hef ég kynnst
sem gengið hefur með slíkum hætti
inn í hjartað á mér og situr þar eins
djúpt. Ég á bara góðar og fallegar
minningar um Stefán, sem var ein-
STEFÁN
GUNNARSSON
Frænka okkar,
BJÖRG SÍMONARDÓTTIR,
áður til heimilis á Víðimel 53,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn
22. ágúst.
Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 29. ágúst kl. 15.00.
Fyrir hönd ættingja,
Bernótus Kristjánsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SNJÓLAUG MAGNEA BJARNADÓTTIR,
Þelamörk 54,
Hveragerði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
sunnudaginn 21. ágúst, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag, föstudaginn 26. ágúst,
kl. 11.00.
Magnús Kr. Guðmundsson, Guðrún Reynisdóttir,
Gyða Ó. Guðmundsdóttir, Kolbeinn Kristinsson,
Bjarni R. Guðmundsson, Brynja Sveinsdóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, Lars D. Nielsen,
Sveinn H. Guðmundsson, Erna Þórðardóttir,
Hildur Rebekka Guðmundsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Móðir okkar,
GUÐRÚN JÓNA DAGBJARTSDÓTTIR,
Brekku,
Núpasveit,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að
morgni þriðjudagsins 23. ágúst.
Útförin fer fram frá Snartastaðakirkju laugar-
daginn 27. ágúst klukkan 13.30.
Inga Þórhildur Ingimundardóttir, Baldvin H. Sigurðsson,
Jón Ingimundarson, Björg Guðmundsdóttir,
Rafn Ingimundarson, Elín Alma Artúrsdóttir,
Magnús Ingimundarson, Stefanía Gísladóttir,
Guðmundur Ingimundarson, Unnur Benediktsdóttir,
Dagbjartur Bogi Ingimundarson,
Guðbjörg Ingimundardóttir, Páll Sveinsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐBJÖRG OLSEN,
dvalarheimilinu Grund,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 24. ágúst.
Hildur Jóhannsdóttir,
Jón B. Skúlason,
Dóra Skúladóttir,
Sigríður Skúladóttir,
Unnur Skúladóttir,
Elínborg Skúladóttir,
Daníel H. Skúlason,
makar, barnabörn
og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
BRYNDÍS INGVARSDÓTTIR,
Sólvangi,
Hafnarfirði,
áður Móabarði 22b,
Hafnarfirði,
lést að morgni fimmtudagsins 25. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Rúnar Guðmundsson,
Valgerður Guðmundsdóttir, Hjálmar Árnason,
Guðmundur Rúnar Guðmundsson, Vilborg Sverrisdóttir,
Ingvar Guðmundsson, Rut Brynjarsdóttir
og barnabörn.