Morgunblaðið - 26.08.2005, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýningartímar sambíóunum
„The Island er
fyrirtaks afþreying.
Ekta popp og kók
sumarsmellur. “
-Þ.Þ. Fréttablaðið.
Frábær Bjölluskemmtun fyrir alla.
Hvað myndir þú gera ef þú kæmist að því að þú værir afrit af einhverjum öðrum?
ÁLFABAKKI
DUKES OF HAZZARD kl. 6 - 8.15 - 10.30
DUKES OF HAZZARD VIP kl. 3.30 - 8.15 - 10.30
RACING STRIPES m/ensku.tali. kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 3.50 - 6
SKELETON KEY kl. 6 - 8.15 - 10.30
DECK DOGZ kl. 8.15
HERBIE FULL... kl. 3.50 - 6
THE ISLAND kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ár
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! ... I !
DÝRLEGT GRÍN OG GAMAN OG FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA. DÝRIN TALA OG
ÞAÐ MEÐ STÆL. SEBRAHESTUR ER ÁKVEÐINN AÐ GERAST VEÐHLAUPAHESTUR
HVAÐ SEM TAUTAR.
Racing Stripes kl. 5.50 - 8 og 10
Head in the Clouds kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16
The Skeleton Key kl. 8 og 10.10 b.i. 16
Herbie Fully Loaded kl. 6
The Island kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16
Madagascar - enskt tal kl. 6
Batman Begins kl. 8 og 10.30 b.i. 12
SÝND MEÐ ENSKU TALI
Dramatísk, rómantísk og stórbrotin eðalmynd með Óskarsverðlaunahafanum, Charlize Theron og
spænsku blómarósinni, Penelope Cruz.
-dv-
S.U.S. XFM
flottur tryllir
-S.V. Mbl.
-dv-
S.U.S. XFM
flottur tryllir
-S.V. Mbl.
SVALASTA
HJÓLABRETTAMYND
ÁRSINS.
Kvikmyndir.is
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. RÁS 2
KVIKMYNDIN Head in the
Clouds fjallar í stuttu máli um Guy
(Stuart Townsend) sem stundar
nám við Cambridge-háskólann á
Englandi á millistríðsárunum. Eina
rigningarnóttina ryðst inn um
dyrnar á herbergi hans falleg
stúlka, Gilda Bessé (Charlize
Theron) að nafni. Stúlkan reynist
vera dóttir fransks aristókrata og
amerískrar konu og hefur Gilda orð
á sér fyrir að vera frjálslynd í ást-
armálum. Gilda og Guy fella fljót-
lega hugi saman en sambandinu
lýkur skyndilega þegar hún neyðist
til að flytja frá Englandi þegar hún
fær fregnir af andláti móður sinn-
ar. Mörgum árum síðar berst Guy
bréf þar sem Gilda býður honum
að hitta sig París en þar er hún rís-
andi kvikmyndastjarna. Af æv-
intýraþrá slær Guy til og flytur inn
til Gildu og spænskættaðrar fyr-
irsætu, Miu (Penelope Cruz) í Par-
ís. Um þetta leyti er borgarastyrj-
öldin á Spáni að ná hámarki. Guy
og Mia telja það sína skyldu að
halda til Spánar og berjast gegn
Franco og fasismanum. Gilda lætur
sig hins vegar stríðið litlu varða og
situr eftir í París.
Á Spáni liggja leiðir Guy og Miu
aftur saman og eitt kvöldið áður en
þau njóta ásta viðurkennir Mia að
hún hafi verið ástkona Gildu. Dag-
inn eftir lætur Mia lífið í spreng-
ingu.
Fleiri ár líða og síðari heims-
styrjöldin brestur á. Guy er sendur
sem njósnari til Parísar og finnur,
sér til mikillar furðu, Gildu í sömu
íbúð og áður en nú hefur hún tekið
saman við þýskan hermann. Þau
eiga saman ástarfund en nú reynir
á tryggð hennar við Guy eða þýska
hermanninn sem hefur fengið það
verkefni að koma Guy fyrir katt-
arnef.
Frumsýning | Head in the Clouds
Tveggja stríða mynd
Charlize Theron og Penelope Cruz í myndinni Head in the Clouds.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 40/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 50/100
New York Times 40/100
Variety 50/100 (allt skv. meta-
critic)
HVER bílaeltingaleikurinn rekur
annan í gamanmyndinni The Dukes
of Hazzard, sem gerð er eftir sam-
nefndum, vinsælum, bandarískum
sjónvarpsþáttum frá níunda ára-
tugnum. Geggjaðir grínistar af ungu
kynslóðinni eru í hlutverkum Luke
og Bo Duke, sem gera fátt annað en
að aka óvarlega, gera prakkarastrik,
selja landa og horfa á stelpur.
Johnny Knoxville, sem gerði garðinn
frægan með Jackass, og Seann
William Scott, sem lék Stifler í Am-
erican Pie, leika frændurna, sem
lenda oft í vandræðum saman.
Túlkun á glæsilegri frænku
þeirra, Daisy Duke, er í höndum
söngkonunnar Jessicu Simpson, sem
fer mikinn í stuttum stuttbuxum og
efnislitlum bolum. Brandarakarlinn
Jessie, enn annan frændann, leikur
kántrístjarnan Willie Nelson. Annar
gamall meistari er í áberandi hlut-
verki í myndinni, Burt Reynolds, en
hann leikur valdamikla illmennið
Boss Hogg.
Þar sem eltingaleikur er svo stór
þáttur í myndinni er ekki annað
hægt að segja en að appelsínugulur
kaggi Bo og Luke, sem þeir nefna
General Lee, sé í stóru hlutverki og
steli oft senunni.
Í myndinni komast Bo og Luke
margoft í kast við lögin, ásamt allri
Frumsýning | The Dukes of Hazzard
Bílaeltinga-
leikur og
stuttbuxur Johnny
Knoxville og
Seann Will-
iam Scott
eru sterkt
tvíeyki í
myndinni.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 33/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 40/100
New York Times 40/100
Variety 60/100 (allt skv. meta-
critic)
sinni fjölskyldu. Þeir reynast að lok-
um vera hinir ágætustu strákar, sem
gera sitt besta til að bjarga heima-
högunum, Hazzard County, frá illum
áformum Boss Hogg.
SÖGUHETJAN í Racing Stripes er
ungur sebrahestur sem ferðasirkus
skilur óvart eftir á ferðalagi og
bóndinn Nolan Walsh tekur heim
með sér. Þar tekur dóttir hans
Channing við litla sebrahestinum.
Walsh er fyrrum tamningarmaður
en hefur gefið þann starfa upp á
bátinn og hafið kyrrlátt líf með
Channing á býli þeirra í Kentucky.
Litli sebrahesturinn, sem Chann-
ing kallar Stripes, kynnist fljótt hin-
um dýrunum á bóndabænum, meðal
annarra smáhestinum Tucker og
geitinni Franny, sem er lífsreynd og
vís og passar upp á dýrafjölskyld-
una. Pelíkaninn Goose slæst senn í
hópinn, en hann kemur úr borginni
og er léttgeggjaður. Sporhundurinn
Lightening fylgist með lífinu á
bóndabænum með öðru
auganu á milli blunda.
Nærri bóndabænum
æfa hreinræktaðir
hlaupahestar fyrir
stærstu keppni kappreið-
anna, Kentucky-
kórónuna. Stripes dauð-
langar til að etja kappi við meist-
arana en gerir sér ekki grein fyrir
því að hann er ekki beinlínis hestur.
Channing langar líka að verða knapi
en faðir hennar vill ekki leyfa henni
að keppa í þessari hættulegu íþrótt.
Á endanum sannfærir hún hann þó
um að snúa aftur og þjálfa hana og
Stripes fyrir keppnina um Ken-
tucky-kórónuna.
Myndin er sýnd með bæði ensku
og íslensku tali. Hallgrímur Ólafs-
Frumsýning | Racing Stripes
Ekki beinlínis hestur
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 43/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 50/100
New York Times 50/100
Variety 70/100 (allt skv. meta-
critic)
son talar fyrir Stripes en meðal
annarra leikara eru Atli Rafn Sig-
urðarson og Þröstur Leó Gunn-
arsson.
Stripes dreymir um að taka þátt í kappreiðum.