Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 73
MYNDIN Deuce Bigalow í Evrópu
skipar sér örugglega í sæti á listan-
um yfir 10 verstu myndir sem ég hef
séð um ævina. Hún er ekki aðeins
vond í þeim skilningi að vera ódýr,
illa gerð, ömurlega leikin og byggð á
handriti sem komst aldrei lengra en
að verða fyrsta uppkast – heldur eru
hún líka grimm og andstyggileg á
þröngsýnan hátt. Deuce Bigalow í
Evrópu er framhald gamanmyndar
sem af einhverjum óskiljanlegum
ástæðum varð vinsæl fyrir rúmum
tveimur árum. Þar segir af aðalsögu-
hetjunni Deuce Bigalow (Rob
Schneider), karlhóru með hjarta úr
gulli sem nær, þrátt fyrir að mörgu
leyti óheppilegt útlit sitt og vafasam-
an starfsferil, að sigra hjarta ljós-
hærðrar fegurðardísar. Þetta reyn-
ist vera megininntak söguþráðarins í
báðum tilfellum, en í framhalds-
myndinni fréttum við af því að feg-
urðardísin, sem féll fyrir Deuce í
fyrri myndinni, var étin af hákarli í
brúðkaupsferð þeirra hjóna. Deuce
er nú orðinn einhleypur á ný og
þiggur boð gamla hórmangarans
síns um að koma til Hollands að
freista gæfunnar. Þar gengur morð-
ingi laus sem herjar á karlhórur og
kemst Deuce á spor hans eftir að
hann kynnist gullfallegri ljósku.
Myndirnar um Deuce Bigalow eru
gerðar í anda gamanmyndabylgju
sem fylgdi í kjölfar mynda á borð við
There’s Something About Mary og
gengur út á húmor sem ögrar póli-
tískri rétthugsun í bland við úr-
gangs- og neðanmittishúmor. Aðall
fyrrnefndrar myndar Farrelly-
bræðra um Maríu var hvernig þeim
tókst að feta hárfínt jafnvægi milli
þess að hlæja að og viðurkenna það
sem er öðruvísi, vandræðalegt eða
bannað að tala um í daglegu lífi.
Þessi tegund af húmor getur hins
vegar hæglega snúist í höndunum á
mönnum, ekki síst þegar hæfileik-
ann skortir til að gæða hann hæfi-
legum skilningi á litrófi mannlegrar
tilveru.
Þetta hæfileikaleysi einkennir
einmitt gerð Deuce Bigalow-
myndanna, ekki síst framhalds-
myndarinnar, þar sem seilst er eins
langt og hægt er (eiginlega út í hafs-
auga) til að finna upp á ögrandi gam-
anatriðum sem hverfast um fötlun
eða samfélagslega skilgreindan af-
brigðileika að einhverju tagi. Í stað
þess að nota kómedíuna til þess að
draga siðferði og fordóma sam-
félagsins í efa er gengið í lið með
þessum sömu fordómum og eftir sit-
ur ekkert annað en illkvittnislegt
grín sem er almennt misheppnað í
þokkabót. Þannig er aðalsöguhetjan
sett fram sem dæmigerður heimal-
inn Bandaríkjamaður, sem veit álíka
mikið um Evrópu og hann veit um
fjarlæg stjörnukerfi. En myndin
lætur sér ekki nægja að gera grín að
þeirri týpu, því í raun virðist hand-
ritið í heild skrifað með slíka áhorf-
endur í huga. Hin „framandi“ menn-
ing Hollands er útskýrð með stórum
stöfum, og sýn myndarinnar á Evr-
ópu og evrópskar konur er fyrir vik-
ið lituð fáfræði og þröngsýni.
Þó svo að Deuce Bigalow í Evrópu
gefi sig út fyrir að vera helgibrjótur
sem ögrar kröfum um pólitíska rétt-
hugsun og tabúum varðandi kynlíf,
karlmennsku og kvenleika er enginn
raunveruleg hugsun á bak við þá af-
stöðu. Hún er aðeins yfirskin þess að
tjá mann- og þá einkum kvenfyrir-
litningu og gera hana að féþúfu í of-
urauglýstri gamanmynd.
Nóg komið
af Deuce
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn
og Borgarbíó
Leikstjórn: Mike Bigelow. Aðalhlutverk:
Rob Schneider, Eddie Griffin og Norm
Macdonald. Bandaríkin, 83 mín.
Deuce Bigalow í Evrópu (Deuce Bigalow:
European Gigolo) Deuce Bigalow í Evrópu er ein af tíu verstu myndum sem gagnrýnandi hefur séð og segir í dómi að hún sé ódýr,
illa gerð, ömurlega leikin, með lélegt handrit, grimm og andstyggileg.
Heiða Jóhannsdóttir
S.V. / Mbl.
KRINGLAN
Búið ykkur undir bragðbestu skemmtun ársins.
Kalli og sælgætisgerðin
TOPP5.IS
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
H.J. / Mbl.
Ó.H.T. / RÁS 2
DV
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
I Í
I I
DISNEY
ÁLFABAKKI
JOHNNY DEEP
Sýningartímar sambíóunum
THE CAVE kl. 6.15 - 8.20 - 10.40 B.i. 16 ára.
THE CAVE VIP kl. 10.40
SKY HIGH kl. 1.40 - 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30
HERBIE FULLY LOADED kl. 1.40 - 3.50
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 2 - 4
DUKES OF HAZZARD kl. 8.20 - 10.30
CHARLIE AND THE kl. 1.15 - 3.30 - 6 - 8.20 - 10.30
CHARLIE AND THE VIP kl. 1.15 - 3.30 - 6 - 8.20
STRÁKARNIR OKKAR kl. 6 - 8 - 10.10 B.i. 14 ára.
RACING STRIPES m/ensku.tali. kl. 6
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 1.50 - 4
CHARLIE AND THE kl. 12 - 2.15 4.30 - 6.45 - 8.15 - 10.30
SKY HIGH kl. 12 - 2.05 - 4.10 - 6.15 - 8.20 - 10.30
STRÁKARNIR OKKAR kl. 9 - 11 B.i. 14 ára.
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 12 - 2.05 - 4.10 - 6.15
LANG VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
Frábær leikin ævintýramynd
frá Disney hlaðin ótrúlegum
flottum tæknibrellum í anda
“The Incredibles”
Fráb r leikin vintýra ynd
frá isney hlaðin ótrúlegu
flottu t knibrellu í anda
“ he Incredibles”
Með hinum eina sanna Johnny Depp (“Pirates of
the Caribbean”) og frá snillingnum Tim Burton
kemur súkkulaðiskemmtun ársins.