Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 1
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, og Angela Merkel, leið-
togi kristilegra demókrata, gerðu
bæði tilkall til kanslaraembættisins í
gærkvöldi eftir mjög tvísýnar þing-
kosningar. Mikil óvissa ríkir um
hvers konar stjórn verður mynduð
eftir kosningarnar þar sem hvorug
meginfylkinganna fékk meirihluta
þingsæta.
Kristilegir demókratar (CDU) og
systurflokkur þeirra í Bæjaralandi,
CSU, fengu 35,2% atkvæða. Er þetta
ein versta útkoma flokksins í kosn-
ingum eftir síðari heimsstyrjöldina,
að sögn fréttastofunnar AFP.
Jafnaðarmenn (SPD) undir for-
ystu Schröders fengu tæpu prósenti
minna en kristilegir demókratar, eða
34,3%, samkvæmt tölum frá kjör-
stjórninni í gærkvöldi þegar talið
hafði verið í öllum kjördæmum nema
einu. Talningu atkvæða var frestað í
einu kjördæmanna, Dresden, til 2.
október.
Báðir flokkarnir fengu 38,5% fylgi
í síðustu kosningum.
Samkvæmt kjörtölunum í gær-
kvöldi fengu kristilegir demókratar
þremur þingsætum meira en jafnað-
armenn – 225 sæti á móti 222.
Mynda stærstu flokkarnir
samsteypustjórn?
Merkel vildi mynda stjórn með
frjálsum demókrötum sem komu á
óvart í kosningunum, fengu 9,8% at-
kvæðanna og 2,4 prósentustigum
meira en í síðustu þingkosningum.
Þótt þetta nægi ekki til að hægri-
flokkarnir geti myndað meirihluta-
stjórn gerði Merkel tilkall til kansl-
araembættisins.
Niðurstaða kosninganna gæti orð-
ið til þess að stærstu flokkarnir
tveir, kristilegir demókratar og jafn-
aðarmenn, þyrftu að mynda sam-
steypustjórn þótt Merkel hefði ekki
verið hrifin af þeim möguleika fyrir
kosningarnar.
Schröder lýsti því hins vegar yfir í
gærkvöldi að ekki kæmi til greina að
jafnaðarmenn gengju til stjórnar-
samstarfs við kristilega demókrata
ef Merkel yrði kanslari.
Biðlar til frjálsra demókrata
Schröder vonast til þess að frjálsir
demókratar gangi til liðs við jafnað-
armenn og græningja sem fengu
8,1% atkvæðanna.
Guido Westerwelle, leiðtogi
frjálsra demókrata, kvaðst hins veg-
ar ekki ætla að snúa baki við kristi-
legum demókrötum og mynda stjórn
með jafnaðarmönnum. Ef hægri-
flokkarnir fengju ekki meirihluta
yrðu frjálsir demókratar áfram í
stjórnarandstöðu.
Nýr vinstriflokkur, Die Linke –
undir forystu fyrrverandi kommún-
ista og Oskars Lafontaine, fyrrver-
andi formanns Jafnaðarmanna-
flokksins – fékk 8,7% atkvæðanna.
Leiðtogar stjórnarflokkanna tveggja
og nýja flokksins hafa allir lýst því
yfir að ekki komi til greina að þeir
myndi ríkisstjórn saman.
Merkel hafnaði líka samstarfi við
Lafontaine og kvaðst ætla að ræða
við „alla stjórnmálaflokkana nema
Die Linke“.
Kjörsóknin var 79,6%, örlítið meiri
en í síðustu þingkosningum árið
2002.
Mikil óvissa ríkir eftir
kosningar í Þýskalandi
Kristilegir demókratar og bandamenn þeirra náðu ekki þing-
meirihluta Schröder hafnar aðild að stjórn undir forystu Merkel
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Söguleg úrslit | 27
STOFNAÐ 1913 253. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Ert þú viðbúinn
... eða eru dagar þínir taldir?
22. og 23. sept.
Upplýsingar og skráning á www.si.is
Alltaf gaman
í vinnunni
Bækur eru áhugamál Ástu
í bókasafninu | Vesturland
Fasteignir | Nýjar íbúðir Húsvirkis við Baugakór Lykill að lífsgæðum
í Sandgerði Aðgangur húsfélaga að séreignum Íþróttir | Birgir Leif-
ur fékk átta fugla á lokahringnum Víkingar vilja halda Sigurði
Fasteignir og Íþróttir í dag
„NÚ vil ég fara í hús föður míns,“
voru síðustu orð Jóhannesar Páls
II páfa áður en hann lést 2. apríl,
að því er fram kom í skjölum sem
Páfagarður birti í gær.
Skjölin eru alls 220 blaðsíður
og er þar skýrt mjög nákvæm-
lega frá tveimur síðustu mán-
uðunum í ævi Jóhannesar Páls.
Er þetta í fyrsta skipti sem Páfa-
garður birtir svo nákvæma lýs-
ingu á síðustu stundum páfa,
enda hefur mikil leynd hvílt yfir
andláti allra páfa til þessa, að því
er fram kom á fréttavef BBC í
gær.
Skjölin verða seld sem viðauki
við opinbert tímarit Páfagarðs,
Acta Apostolicae Sedis.
Þegar Jóhannes Páll hafði
mælt síðustu orðin á móðurmáli
sínu, pólsku, var kveikt á kerti í
herbergi hans í samræmi við
pólska venju.
Síðustu orð páfa birt
Reuters
FORMAÐUR Skotvíss, Sigmar
B. Hauksson, segir það hafa
færst verulega í vöxt nú í
haust að veiðimenn greiði fyr-
ir leigu eða kaupi landspildur
undir rjúpnaveiði, líkt og lengi
hafi tíðkast með gæsaveiðina.
Dæmi séu um að veiðimenn
greiði allt að 200 þúsund krón-
ur fyrir aðgang að veiðilend-
um.
Auglýsing birtist í Morgun-
blaðinu í gær þar sem óskað er
eftir tilboðum í rjúpnaveiði í
landi Reykjahlíðar í Mývatns-
svæði, nánar tiltekið í Gæsa-
fjöll, Bóndhólshraun, Búrfells-
hraun og Skógarmannafjöll.
Sigmar segir að hér sé um
gríðarstórt og þekkt rjúpna-
veiðisvæði að ræða, sem skytt-
ur norðan heiða muni áreið-
anlega bjóða í. Sjaldgæft sé að
óskað sé eftir tilboðum en Sig-
mar fagnar því að þarna eigi
nú að friða Hágöng og heima-
land vestan Dalfjalls að Gæsa-
fjöllum.
200 þúsund hæsta verð
Að sögn Sigmars hafa veiði-
menn einkum greitt fyrir
landsvæði í nærsveitum
Reykjavíkur og Borgarfjörður
hafi verið vinsæll í því sam-
bandi.
Oftast sé um lágar fjár-
hæðir að ræða, einkum í gegn-
um kunningsskap landeigenda
og veiðimanna, en þó viti hann
dæmi þess að menn hafi greitt
allt frá 60 og upp í 200 þúsund
krónur fyrir eitt veiðitímabil.
Erfitt sé að meta hvort leigu-
verðið hafi verið að hækka.
Morgunblaðið/Sverrir
Leiga á
veiðilönd-
um færist
í vöxt
GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands (t.v.), og Ang-
ela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata, fagna úrslit-
um þingkosninganna í gær.
„Við höfum mjög skýrt umboð og ég tek það að mér af
öllu afli,“ sagði Merkel við stuðningsmenn sína í Berlín.
„Við þurfum núna að mynda trausta ríkisstjórn.“
Schröder fullyrti hins vegar að jafnaðarmenn hefðu
haldið velli í kosningunum. „Mér finnst að við höfum
fengið samþykki fyrir traustri stjórn næstu fjögur árin
undir forystu minni,“ sagði kanslarinn.
Reuters Reuters
Gera bæði tilkall til kanslaraembættisins