Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 17
DAGLEGT LÍF | HEILSA
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Birkiaska
!"#$%&'()* +++,-.$-/-,%
Heitir & fallegir
Ofnar
Ofnlokar
Handklæðaofnar
Sérpantanir
www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is
Háteigisvegi 7
Sími: 511 1100
PRODERM
· Fyrir mjög þurra og viðkvæma húð.
· Lagar strax, þurrk, sviða og kláða.
· Berið á fætur til að minnka
líkur á sveppasýkingu.
· Engin fituáferð.
Fæst í apótekum
Skráð lækningavara · Vörn í 6 klst.
www.celsus.is
Fyrir þá sem stunda sundlaugar
Vörn gegn klórvatni
LYFSALAR í Danmörku vara
við ofnotkun nefúða í kjölfar
metsölu á þessu kvefmeðali.
Nefúði er notaður til að leysa
upp stíflu í nefgöngum en við
ofnotkun geta áhrifin orðið
þveröfug, úðinn getur stíflað
nefið.
Við kvef eykst slímhúðin í
nefgöngum en nefúðinn dregur
úr slímmyndun. Við ofnotkun
er hætt við að slímmyndun
aukist þannig að nefið stíflast
sem aftur kallar á nefúða til að
draga úr stíflunni. Neytandinn
lendir í vítahring sem gerir
hann háðan nefúðanum.
Í vefútgáfu Berlingske er
varað við því að nota nefúða
lengur en í tíu daga. Tals-
maður danskra lyfsala segir að
þótt nefúði sé ekki lyfseðils-
skyldur sé um að ræða lyf sem
eigi að nota með varkárni.
Engin skýring er á stórauk-
inni notkun nefúða í Dan-
mörku en sölutölur segja að
hver Dani noti nefúða í fimm
daga á ári.
Nefúði
getur
verið
varasamur
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Heilsa starfsfólksinser eitt af því sematvinnurekendur
þurfa að huga að. Nú hefur
færst í vöxt að starfsfólki er
greitt fyrir að hreyfa sig en
sannað hefur verið að hreyf-
ing er fyrirbyggjandi gegn
hvers kyns kvillum og
heilsuleysi. Á vef Aftenpost-
en er greint frá því að
finnska fyrirtækið Pekk-
inska borgar starfsfólkinu
eina evru fyrir hvern kíló-
metra sem það hleypur í
vinnutímanum og á hverjum
degi hleypur Pirjo Tilander
tíu kílómetra. Hún segist þó
ekki hlaupa peninganna
vegna, heldur sé gott að
geta nýtt dagsbirtuna til að
fara út að hlaupa en þurfa
ekki að gera það fyrir eða
eftir vinnu. Tilander getur
reiknað með um 200 þúsund
króna kaupauka á ári. Þeir
sem ekki reykja fá ársbónus
upp á sem samsvarar 13
þúsund krónum og sömu
upphæð fá þeir sem hlaupa í
maraþonhlaupi eða smakka
ekki áfengi í eitt ár. Hæsta
bónusinn fá þeir sem aldrei
eru fjarverandi vegna veik-
inda, um 40 þúsund íslensk-
ar krónur.
Ýmis fyrirtæki hvetja til líkams-
ræktar starfsfólksins, m.a. með
heilsustyrk eða aðstöðu til líkams-
ræktar. Bein umbun fyrir líkams-
rækt er þó sjaldgæfari. Í Göteborgs
Posten er greint frá fyrirtækinu
National Gummi í Halmstad þar
sem 180 manns starfa. Ef starfs-
mennirnir stunda reglulega líkams-
rækt fá þeir sem samsvarar um 7
þúsund íslenskum krónum í launa-
uppbót mánaðarlega. Einn starfs-
maðurinn segist hafa byrjað vegna
peninganna en síðan haldið áfram
vegna aukinnar vellíðan. 90% starfs-
manna nýta sér líkamsræktar-
aðstöðu fyrirtækisins og veikinda-
dögum hefur fækkað verulega.
Launauppbót
fyrir
líkamsrækt
HREYFING
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hæsta bónusinn fá þeir sem aldrei eru
fjarverandi vegna veikinda, um 40 þúsund
íslenskar krónur.