Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 42
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞAÐ ER ILLS VITI AÐ VERA ELTUR AF SKRÝTNUM HUNDI ÞAÐ ER LÍKA ILLS VITI AÐ HEYRA HUND ÝLFRA GAT NÚ VERIÐ ÉG ER FÓRNARLAMB ÁSTARINNAR SNIFF! ÞAÐ ER ERFITT AÐ GRÍPA BOLTANN ÞEGAR AUGUN ERU FULL AF TÁRUM ÞAÐ ER ENGINN Í LIÐINU OKKAR SEM GETUR GRIPIÐ BOLTA ÁN ÞESS AÐ AUGU ÞEIRRA FYLLIST AF TÁRUM EKKI BÚAST VIÐ MIKLU AF MÉR Í DAG... ÉG ÞARF EKKERT FYLGI TIL ÞESS AÐ VERA PABBI ÞINN. PABBAR ERU EKKI KOSNIR ÞANNIG AÐ ÞÚ GETUR GERT HVAÐ SEM ÞÚ VILT ÁN ÞESS AÐ MISSA VÖLD? JÁ! ÞÁ VERÐ ÉG BARA AÐ GERA UPPREISN EÐA FARA Í ÚTLEGÐ MÉR LÍST EKKERT Á ÞESSAR SAM- RÆÐUR ÉG VEIT AÐ VÍSINDAMENN ERU BRÁÐGÁFAÐIR, EN ÞAÐ ER EITT SEM ÉG SKIL EKKI. HVAÐ ER ÞAÐ? HVERNIG GETA ÞEIR SAGT AÐ JÖRÐIN SÉ HNÖTTÓTT? FYRIRGEFÐU, VILDIRÐU LÁTA HLEYPA ÞÉR ÚT KÆRI KVIÐDÓMUR, Í DAG MUNUM VIÐ TAKA FYRIR MÁL ÞAR SEM UNGFRÚ ÍRIS RAG- NARSDÓTTIR HEFUR STEFNT LEIGUSALA SÍNUM ÉG ÆTLA AÐ BIÐJA YKKUR AÐ MYNDA YKKUR ENGAR SKOÐANIR FYRR EN ÖLLUM MÁLFLUTNINGI ER LOKIÐ ÞAÐ ERU ENGAR LÍKUR Á ÞVÍ AÐ HÚN SÉ AÐ SKÁLDA ÞETTA SNIFF! GÆTIRÐU RÉTT MÉR VASAKLÚT HEYRIRÐU ÞETTA PARKER. ÉG VIL FÁ FLEIRI MYNDIR! ... OG EKKI BÚAST VIÐ ÞVÍ AÐ ÉG BORGI AUKALEGA FYRIR ÞÆR KÓNGULÓAR- MAÐURINN VIRÐIST LÍKA VERA Á LEIÐINNI Á STAÐINN ÞESSU TRÚI ÉG. ÆTLI HANN SÉ EKKI AÐ LEGGJA MAFÍUNNI LIÐ ... SKOT- BARDAGINN Á SÉR STAÐ FYRIR UTAN BÁNKANN VIÐ MANHATTAN HANN ÞEKKIR ÞIG OF VEL TIL AÐ GERA ÞAÐ PABBI, FYLGI ÞITT ER AÐ MINNKA Dagbók Í dag er mánudagur 19. september, 262. dagur ársins 2005 Víkverji minnistþess þegar farið var að tala um „nýja miðbæinn“. Þá bjó Víkverji í útjaðri þess svæðis, og hafði oft unað sér við að skoða fuglalífið í Kringlu- mýrinni og fylgjast með melunum þar taka lit árstíðanna. Samgönguæð svæð- isins var hitaveitu- stokkurinn, sem bar mann hvort sem mað- ur vildi, inn að Elliða- ám, eða upp í Öskju- hlíð. Svo kom nýi miðbærinn – fyrirheitna landið sem átti að leysa af hólmi lúinn og gam- aldags Laugaveg og verða vett- vangur fagurs mannlífs og viðskipta. Frómt frá sagt hefur Víkverja aldrei fundist nýi miðbærinn rísa undir nafni. Í Kringlunni voru reist viðskiptamusteri, en í Leitunum þessar dæmigerðu íslensku vísi- tölublokkir, útvarpshús, tveir skólar, sjoppa, læknamiðstöð og rauða- krosshús. Þetta hverfi hefur ekki beinlínis sjarma, og kannski er það einmitt þess vegna sem það dregur ekki að sér það iðandi mannlíf sem vonir stóðu til. Það er kannski ekki sanngjarnt að segja að ekkert mann- líf þrífist í hverfinu, því vissulega eru húsin full af fólki. Einhverra hluta vegna virðist það fólk þó ekki hafa áhuga á að njóta þess að vera á göt- um úti í nýja miðbænum. Þær eru reyndar svo skelfileg- ar, eins og Listabraut- in klúðurslega, að það er snöggtum skárra að halda sig inni við. Nú stendur til að reisa nýjan nýja miðbæ í Vatnsmýrinni. Víkverji vonar heitt og innilega að þeir sem að honum standa skoði nýja miðbæinn vel til þess að sjá hvernig nýr miðbær á ekki að vera. Í útlöndum – eins og reyndin er hér með Laugaveginn og Kvosina – þá eru það einmitt gömlu miðbæirnir sem þríf- ast best. Það er lærdómur númer eitt. Er ekki hægt að smíða nýjan miðbæ með hliðsjón af því hvað það er sem gerir gömlu miðbæina út um allan heim svona góða? Í þeim eru ekki svona hús hér og hinsegin hús þar. Í þeim er byggðin samfelld – hús við hús, í borgaralegu bróðerni; góðar gangstéttir, litlar búðir, torg, bekkir, kaffihús, gróður, stræt- isvagnar, lítil veitingahús, blaða- standar, leigubílar, krakkar, gam- almenni, kerlingar og karlar – og helst allt í einni kös. Engin moll, engin stór iðnfyrirtæki, engar risa- byggingar – bara hús sem eru nægi- lega elskuleg til þess að í þeim þríf- ist fólk á efri hæðum og viðskipti á götuhæð. Þetta munstur er það sem gerir góða miðbæi góða, einfalt, en virkar. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is           Hong Kong | Kona gengur inn í skúlptúrinn Léttleika ljóssins II, eftir Loft- arkitektana á sýningu í Hong Kong um helgina. Þegar komið er inn í verkið blasir við stórbrotið spil ljóss og lita, sem lista- mennirnir segja skapað í anda fegurðar náttúrulegra forma og íslamsks arki- tektúrs. Reuters Í bláum skugga MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar. (Róm. 15, 7.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.