Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Kabúl. AFP. | Embættismenn í Afgan- istan sögðust í gær vera ánægðir með kjörsóknina í þingkosningum, sem fram fóru í gær, og sögðu að fólk hefði flykkst á kjörstaði þrátt fyrir nokkrar sprengju- og skotárásir sem kostuðu tíu manns lífið. Óháðir eft- irlitsmenn sögðu hins vegar að kjör- sóknin hefði verið minni en vonast var eftir. Voru þetta fyrstu þingkosningarn- ar í landinu í rúm 35 ár. Það sem af er árinu hafa yfir þús- und manns beðið bana í árásum og átökum sem tengjast uppreisnar- mönnum úr röðum talibana. Einn þeirra sem biðu bana í gær var óbreyttur borgari sem lést í loft- árás Bandaríkjahers, að sögn emb- ættismanna. Franskur hermaður féll einnig í sprengjuárás í námunda við landamæri Pakistans og er þetta í fyrsta skipti sem franskur hermaður liggur í valnum í Afganistan. Þá var gerð flugskeytaárás á birgða- geymslu á vegum Sameinuðu þjóð- anna í úthverfi Kabúl og særðist starfsmaður samtakanna lítillega í þeirri árás. Tímabili „stríðs og eymdar“ að ljúka Um 12,5 milljónir manna eru á kjörskrá og kjörstaðir voru um 26.000 talsins. „Síðast þegar þingkosningar voru haldnar var ég ekki einu sinni fædd,“ sagði Fahima Sabir, 31 árs kennslu- kona í Kabúl. „Þetta er það sem okk- ur hefur dreymt um í áratugi.“ Hamid Karzai, forseti Afganist- ans, sem sigraði í fyrstu forsetakosn- ingunum í landinu sem fram fóru fyrir tæpu ári, sagði þingkosning- arnar sýna að Afganar væru að binda enda á „30 ára tímabil stríðs, hernaðaríhlutunar og eymdar“. Forsetinn fagnaði sérstaklega mikilli kjörsókn meðal kvenna í mörgum héruðum. Búist er við að úrslit kosninganna liggi fyrir seint í október. Alls voru um 5.800 manns í fram- boði. Kosið var um 249 þingsæti og þar af eru minnst 68 ætluð konum. Um 100.000 her- og lögreglumenn tóku þátt í öryggisgæslunni vegna kosninganna. Þeir nutu stuðnings 20.000 erlendra hermanna og 10.500 friðargæsluliða á vegum NATO. Afganar kjósa til þings í fyrsta skipti í 35 ár Kjörsóknin virtist minni en vonast var eftir Reuters Afganar bíða á kjörstað í grennd við Kabúl í gær þegar kosið var til þings Afganistans í fyrsta skipti í rúm 30 ár. Teheran. AFP. | Mahm- oud Ahmadinejad, for- seti Írans, gaf til kynna í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á laugardag að Íranar myndu ekki verða við kröfum vestrænna ríkja í deilunni um kjarn- orkuáætlun Írans þrátt fyrir hótanir um refsi- aðgerðir. Hann sagði að Íranar ættu „afdráttar- lausan rétt“ á því að framleiða kjarnorku og gagnrýndi harðlega stefnu bandarískra stjórnvalda í málinu. Ahmadinejad sagði meðal annars að í heim- inum viðgengist „kjarnorku-aðskiln- aðarstefna“ og Bandaríkin væru sjálf sek um útbreiðslu kjarnavopna. Pútín andvígur refsiaðgerðum Stjórn Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar (IAEA) kemur saman í Vín í dag til að ræða tillögu, sem Bandaríkin og Evrópusambandið styðja, um að málinu verði vísað til ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna til að ræða hugsanlegar refsiað- gerðir gegn Íran. Jack Straw, utanrík- isráðherra Bretlands, sagði að ummæli ír- anska forsetans á alls- herjarþinginu væru „ekki gagnleg“ og yllu vonbrigðum í ljósi ný- legra viðræðna við Ír- ana um kjarnorkumál. Ráðherrann bætti við að málið yrði ekki leyst með hernaði. Íranar samþykktu í nóvember í fyrra að hætta auðgun úrans. Breska utanríkisráðu- neytið sagði að ekkert í ræðu Ahmad- inejad benti til þess að Íranar vildu efna það samkomulag. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að Ír- anar væru „nógu samstarfsfúsir“ við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina. Hann varaði við því að refsiaðgerðir af hálfu Sameinuðu þjóðanna myndu valda „nýjum vandamálum“. Ræða Íransfor- seta sögð valda vonbrigðum Mahmoud Ahmadin- ejad, forseti Írans, ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, telur að umfjöllun breska ríkisútvarpsins, BBC, um fellibylinn Katrínu hafi einkennst af hatri í garð Bandaríkjanna. Fjölmiðlajöfurinn Rupert Mur- doch hélt þessu fram í ræðu í Bandaríkjunum á laugardag. Breska forsætisráðuneytið hef- ur ekki brugðist við ræðu Murdoch, að sögn BBC í gær. Murdoch kvað Blair hafa sagt sér í einkasamtali að umfjöllun BBC World um hamfarirnar vest- an hafs væri „full af Bandaríkja- hatri og það hlakkaði í þeim yfir óförum Banda- ríkjamanna“. BBC kvaðst hafa einsett sér að vera með ít- arlegan, ná- kvæman og hlutlausan fréttaflutning og sagði að ekki hefði borist kvörtun frá Tony Blair. Murdoch er eigandi blaðanna The Sun, The Times og News of the World, auk þess sem hann á Sky-sjónvarpsstöðvarnar. Sagður saka BBC um Bandaríkjahatur Rupert Murdoch Sacramento. AP. | Arnold Schwarz- enegger, ríkisstjóri Kaliforníu, hef- ur undirritað lög sem kveða á um bann við ruslfæði í almennum fram- haldsskólum. „Við ætlum að tortíma offituböl- inu í Kaliforníu í eitt skipti fyrir öll,“ sagði Schwarzenegger á föstu- dag og lýsti offitu sem faraldri í sambandsríkinu. Samkvæmt nýju lögunum verða gosdrykkir bannaðir í almennum framhaldsskólum Kaliforníu, en slíkt bann gildir nú þegar í grunn- skólum ríkisins. Lögin takmarka ennfremur fitu- og sykurinnihald matvæla sem seld eru í framhalds- skólunum, meðal annars skyndibita í sjálfsölum. Lögin taka gildi í júlí 2007. Schwarzenegger undirritaði einnig lög um fjárveitingu að and- virði 18 milljóna dollara, 1,1 millj- arðs króna, til að gera skólum kleift að bjóða nemendum meira af ávöxt- um og grænmeti. Schwarzenegger tilkynnti um helgina að hann gæfi kost á sér til endurkjörs í kosningum á næsta ári. Reuters Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, með stuðningsmönnum sínum er hann tilkynnti að hann hygðist gefa kost á sér til endurkjörs. Bannar ruslfæði í skólum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.