Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða nú allra síðustu sætin í beinu flugi til Sikileyjar á frábærum kjörum. Þetta er yndislegur tími á Sikiley, kjörinn til sólbaða og til að skoða þessa stórbrotnu eyju. Sikiley býður blöndu af því helsta sem ferðamenn óska sér. Menningarsaga, náttúrufegurð, fornminjar, fallegar byggingar, söfn, einstök matarmenning og mannlíf. Spennandi kynnisferðir í boði með íslenskum fararstjórum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Sikileyjar 29. september frá kr. 24.990 Aðeins 23 sæti laus Gisting frá kr. 4.980 Verð á mann pr. nótt (gist er 3 nætur á 3* hóteli í Palermo og 4 nætur á 4* hóteli í Giardino Naxos). Ath. bókunargjald vegna gistingar er ekki innifalið, kr. 2.000 á mann. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 24.990 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 29. sept. HINN níu ára gamli Anton Ívar Kristjánsson fer síðar í þessum mánuði ásamt foreldrum sínum til Boston í aðgerð á heila, en haustið 2003 fór hann út en þá var aðgerðinni frestað. Anton hefur þolað margt en fjögurra ára gam- all veiktist hann af heilavírus og hefur síðan glímt við mikil veikindi og þroskafrávik. „Þetta gerðist eins og hendi væri veifað en hann var mikill orkubolti,“ segir Jóna Hjördís Sigurðardóttir, mamma hans. „Þetta byrjaði með smá flensu og hækkandi hita. Einn daginn sofnaði hann fyrir framan sjónvarpið en þegar pabbi hans kom heim og vakti hann var hann mjög fjarrænn og datt svo út í fanginu á pabba sínum. Hann fékk krampa og fór í hjartastopp og það gerðist tvisvar á leiðinni á spítalann.“ Anton er mjög flogaveikur, er árásargjarn og lifir í öðrum heimi að sögn móður sinnar. „Hann er í raun í stöðugri gjörgæslu hjá okkur. Hann er mjög hvatvís og getur aldrei verið einn. Hann á það líka til að láta sig hverfa og gerir sér ekki grein fyrir því hvað er hættulegt,“ segir hún. „Síðan er afturför í þroska. Hann er í raun eins og hann sé fjög- urra ára ennþá.“ Orðheppinn húmoristi Anton á þrjú eldri systkini og það er líf og fjör á heimilinu þegar blaðamaður spjallar við fjölskylduna. Á meðan leikur Anton sér í fót- bolta með bróður sínum. „Hann er mjög virkur og vill helst djöflast á hjóli og hjólabrettum en hann má eiginlega ekki vera á þeim,“ segir Jóna og pabbi Antons, Kristján Finnbogi Ólafsson, bætir við að Anton sé líka mikill boltakarl. „Hann var í fótbolta- skóla áður en hann veiktist og er stór og sterk- ur. Læknar segja að það hafi bjargað honum. Annars hefði hann varla lifað veikindin af.“ Anton er líka húmoristi og á það til að vera orðheppinn. Hann er til dæmis duglegur að vara bróður sinn, sem er sjómaður, við hákörl- unum. Í fyrri ferðinni til Boston var hann síð- an einhverju sinni staddur á spítalanum og fannst honum hjúkrunarkonurnar eitthvað lengi að athafna sig. Hann sneri sér þá að einni þeirra og sagði: „Áfram með smjörið!“ Hjúkrunarkonurnar skyldu auðvitað ekkert en hlógu með fjölskyldunni. Anton hóf skólagöngu sína í sérdeild í Engi- dalsskóla en það gekk ekki upp og síðan hefur hann verið í Öskjuhlíðarskóla. „Hann er sóttur á morgnana og fer í skólann og viðveru. Svo er hann keyrður heim og hans dagur er í raun búinn og þá er bara horft á vídeó. Það er ekki um annað að velja,“ segir Jóna. Anton getur ekki farið út að leika sér og enginn kemur að spyrja eftir honum. „Þetta er ósköp einhæft líf,“ segir Jóna, en Anton fær þó eina viku í mánuði á sambýlinu Móaflöt. „Þá hvílir hann sig á okkur og við okkur á honum,“ segir Kristján. „Það er mjög góður staður og þar fær hann aðlögun utan heimilisins. Á sumrin fer hann svo í sumarbúðir á vegum Öskjuhlíðarskóla.“ „Fáum aldrei strákinn okkar aftur“ Þegar hætt var við að gera aðgerð á Antoni árið 2003 vildu læknar reyna að setja í hann rafskaut sem leiða upp í heila en þau hafa ekki gagnast Antoni. Ef aðgerðin gengur vel núna er vonast til að kramparnir minnki og að draga megi úr lyfjagjöf. Bæði Jóna og Kristján munu fara með til Boston og verða því án tekna í um þrjár til fimm vikur. Tryggingastofnun greiðir fyrir ferðina sjálfa og aðgerðina en augljóslega hafa veikindi og ferðir sem þessar mikil áhrif á fjárhag heimilisins. Jóna hefur til dæmis ekk- ert getað unnið síðan hann veiktist og stór hluti umönnunarbóta sem hún fær fer í að greiða fyrir viðveru Antons í skólanum sem fjölskyldan verður að nýta. Fjölskyldan gerir sér vonir um að eitthvað muni breytast gangi aðgerðin vel og að kannski fái Anton einhvern tímann að vera hann sjálfur og njóta þess að vera barn. „Við gerum okkur samt alveg grein fyrir því að við fáum aldrei strákinn okkar aftur,“ segir Krist- ján. Fjölskyldan segist hafa verið heppin og not- ið stuðnings úr ýmsum áttum. Staðan er hins vegar erfið og söfnunarreikningur var opn- aður. „Það er alveg nóg að þurfa að standa í þessu erfiða ferli þótt maður þurfi ekki líka að hafa áhyggjur af því að allt sé í mínus heima,“ segir Jóna. „Allt hjálpar og margt smátt gerir eitt stórt.“ Söfnunarreikningurinn er 0545-14- 602964 og kennitalan er 140753-3279. Níu ára drengur fer í aðgerð á heila í Boston „Vonandi fær hann að vera hann sjálfur og njóta þess að vera barn“ Morgunblaðið/Þorkell Antons og fjölskyldu hans bíður erfitt ferli, en hann heldur til Boston síðar í mánuðinum. Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is ÁTTA ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi Hafn- arfjarðarlögreglunnar um helgina. Þar af voru tveir handteknir eftir að hafa lent í umferðaróhöppum. Annar þeirra ók aftan á bíl og reyndi að forða sér af vettvangi, en lögregla náði að stöðva hann. Þá var einn hinna ölvuðu ökumanna stöðvaður á Reykjanesbraut seinni- partinn á laugardag eftir að hafa ekið þar á 126 km hraða, en leyfi- legur hámarkshraði er 90 km á klst. Í sömu ferð lögreglumanna voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á brautinni. Ók ann- ar þeirra á 155 km hraða og hinn á 139 km hraða á brautinni. Nokkuð var um útköll vegna ölv- unar í Hafnarfirði um helgina. Átta teknir fyrir ölvunarakstur í Hafnarfirði ÖLVAÐUR og æstur maður sem lög- reglan í Kópavogi handtók við veitinga- staðinn Players í Bæjarlind, rétt fyrir klukkan fjögur í fyrrinótt, sparkaði í and- lit lögregluþjóns með þeim afleiðingum að tönn í honum brotnaði. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð. Sparkaði í andlit lögreglumanns BÍL var ekið á tvo ljósastaura á Reykjanesbraut, rétt hjá bens- ínstöðinni Orkunni við Dalveg í Kópavogi, á ellefta tímanum í gær- morgun, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Kópavogi. Ökumaður, sem var einn í bíln- um, slapp ómeiddur. Hann er grun- aður um ölvun við akstur að sögn lögreglu. Bíll mannsins er mikið skemmdur og jafnvel ónýtur eftir atvikið og ljósastaurarnir brotnuðu báðir. Ók á tvo ljósastaura BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð- isflokksins leggja til að borgarstjórn Reykjavíkur samþykki að gerð verði myndastytta af Tómasi Guðmunds- syni og henni komið fyrir á áberandi stað í borginni. Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist hafa orðið sérstaklega var við það hjá eldri Reykvíkingum að það þurfi að sýna minningu Tómasar meiri virðingu en gert hefur verið, en Tómas hefur oft verið kallaður borg- arskáldið. Hann bendir á að á átt- unda áratugnum hafi borgaryfirvöld látið útbúa brjóstmynd af Tómasi sem var höfð í Austurstræti. Þar varð hún fyrir hnjaski, tekin niður og sett í geymslu. Árið 2000 var brjóst- myndinni komið fyrir að nýju í Borg- arbókasafni Reykjavíkur og þar hef- ur hún verið síðan. „Mér finnst Tómas vera það mikið skáld að það sé full ástæða að setja hann á stall við hliðina á okkar mestu listamönnum, og búa þá til styttu af honum og koma henni fyrir á áber- andi stað í borginni,“ segir Kjartan og nefnir í því sambandi Hljómskála- garðinn sem dæmi. „Miðað við þau yrkisefni sem hann sótti sér þá er augljóst að það verður einhvers stað- ar miðsvæðis í borginni.“ Fram kemur í greinargerð með tillögunni að Tómas sé eitt af ástsæl- ustu skáldum þjóðarinnar og verk hans lifa með Reykvíkingum og raunar landsmönnum öllum. Þá segir: „Í ljósi framlags Tóm- asar Guðmundssonar til menningar- lífs Reykjavíkur og þess heiðursess sem hann skipar í hugum borgarbúa, fer vel á því að gerð sé stytta af Tóm- asi og henni komið fyrir á áberandi stað í hjarta Reykjavíkur. Vel færi á því að slíkri styttu yrði valinn staður í Hljómskálagarðinum í námunda við stytturnar af Jónasi Hallgrímssyni og Bertel Thorvaldsen. Ýmsir aðrir staðir gætu þó komið til greina, t.d. á Landakotstúni, við gönguleiðir í Vesturbænum eða nálægt Reykja- víkurhöfn.“ Kjartan Magnússon Tómas Guðmundsson Leggja til að gerð verði stytta af Tóm- asi Guðmundssyni JÚLÍUS Vífill Ingvarsson, lögfræðingur og fv. borgarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosn- inganna í vor. Júlíus hafði nýlega tilkynnt að hann ætlaði að bjóða sig fram í efstu sætin í prófkjörinu, en hann var sem kunnugt er borgarfulltrúi flokksins á síðasta kjörtímabili. Áður hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi gefið kost á sér í annað sæt- ið og tveir sækjast eftir fyrsta sætinu, þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi og Gísli Marteinn Baldursson varaborgar- fulltrúi. Júlíus Vífill segir við Morgunblaðið að þessi ákvörðun hafi ekki komið sjálfkrafa. Hann hafi orðið var mikinn stuðning og hvatningu um að sækjast eftir fyrsta sæt- inu. Þann möguleika hafi hann íhugað vel og tekið sér góðan tíma. Niðurstaðan hafi verið annað sætið, ekki síst fyrir þá sök að samkvæmt skoðanakönnunum væri staða Sjálfstæðisflokksins í borgarmálunum sterk um þessar mundir. „Ég er þakklátur fyrir stuðning og hvatningu frá fólki. Ég vona að mín reynsla í borgarmálum, á sviði rekstrar og menningar og sem lögmaður, komi til með að nýtast okkur í baráttuni. Við sjálfstæðismenn göngum bjartsýnir til kosninganna,“ segir Júlíus Vífill. Spurður um helstu áherslumál segist hann vilja hleypa nýjum krafti í skipulags- gerð og samgönguframkvæmdir, standa vörð um gott og vandað grunnskóla- og leikskólanám en um leið koma nýjum hug- myndum þar að. Með því að nýta hag- kvæmni stærðarinnar í rekstri borgarinn- ar, og auka tekjur hennar, verði það eitt helsta stefnumál næsta kjörtímabíls að lækka útsvar í Reykjavík. Júlíus Vífill gefur kost á sér í annað sætið Júlíus Vífill Ingvarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.