Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
DÆLUR
FYRIR FISKELDI
Sími 568 6625
UPPLÝSINGAR um aukna kostn-
aðarþátttöku sjúklinga sem hlytist
af vaxandi göngu- og dagdeildar-
starfsemi Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH) verða teknar
saman á næstunni auk þess sem at-
hugað verður hvað af þeim kostnaði
yrði endurkrefjanlegt hjá Trygg-
ingastofnun. Margrét S. Björns-
dóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í
stjórnarnefnd LSH, óskaði eftir
samantektinni.
Margrét segir það vera stefnu
spítalans að fækka legudögum og
auka þjónustu við sjúklinga á dag-
og göngudeildum.
„Ég er alveg sammála þessari
stefnu. Hins vegar þýðir þetta að
sjúklingar þurfa að greiða komu-
gjöld sem þeir þurfa ekki að greiða
ef þeir leggjast inn á sjúkrahúsið
yfir nótt og þetta leiðir líka til auk-
innar kostnaðarþátttöku þeirra í
lyfjum,“ segir Margrét. „Um leið og
við erum sammála þeirri stefnu að
færa þjónustuna á þetta form, þar
sem hún er ódýrari fyrir spítalann
og skattborgara, finnst mér nauð-
synlegt að fylgst sé með því hvaða
álögur eru settar á sjúklinga. Það
getur til dæmis verið að langveikir
sjúklingar sem jafnvel eru ekki
lengur í vinnu, séu að bera þarna
kostnað sem sé þeim erfiður. Það
voru fyrst og fremst þeir sjúklinga-
hópar sem ég hafði í huga og þetta
er mál sem spítalinn verður að láta
sig varða eða að minnsta kosti að
taka upplýsta ákvörðun um.“
Margrét segir það almenna
stefnu í rekstri sjúkrahúsa alls
staðar að fækka legudögum en ljóst
sé að þetta bitni helst á þeim sem
koma þurfi oftast. „Þeir þurfa líka
hugsanlega að nota dýr lyf sem
ekki eru greidd að fullu af Trygg-
ingastofnun,“ segir Margrét.
Engin stökkbreyting
fram undan
Jóhannes M. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri lækninga á LSH, tel-
ur ekki ástæðu til að áætla mikla
kostnaðaraukningu fyrir sjúklinga
vegna þessa. „Þetta er óhjákvæmi-
legt og það er nú til staðar ákveðið
öryggisnet,“ segir hann. „Menn fá
afsláttarkort þegar vissri hámarks-
greiðslu er náð.“
Jóhannes segir enga stökkbreyt-
ingu vera fram undan en þetta sé
ákveðin þróun og sífellt meira sé
gert án þess að leggja sjúklinga
inn.
„Það er mín skoðun að núverandi
fyrirkomulag feli í sér neikvæða
kostnaðarstýringu,“ segir hann.
„Allt sem er gert án innlagnar er
greiðsluskylt samkvæmt reglugerð
og í rauninni væri miklu eðlilegra
að það væru einhverjar samsvar-
andi greiðslur fyrir innlagnir á
sjúkrahús eða engin greiðsla fyrir
eitt eða neitt. Núverandi kerfi ýtir
frekar undir að hlutir séu gerðir
með innlögn en það er miklu dýrara
form.“
Vaxandi göngu- og dagdeildarstarfsemi á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
Athugað hvort kostnaður
sjúklinga muni aukast
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Margrét S.
Björnsdóttir
Jóhannes M.
Gunnarsson
„GÖNG á einhvern hátt, hvort sem er
í einum áfanga alveg í gegn til Hnífs-
dals eða í styttri einingum, er það
eina sem ég held að sé í stöðunni,“
segir Einar Pétursson, bæjarstjóri í
Bolungarvík, um leiðina milli Bolung-
arvíkur og Ísafjarðar eftir grjóthrun
sem varð í Óshlíð á laugardag, en al-
mannavarnanefnd Bolungarvíkur
fundar um málið í dag.
Geir Sigurðsson, rekstrarstjóri hjá
Vegagerðinni á Ísafirði, segir að á
stað sem heitir Skriður hafi tvisvar
komið grjóthrun á laugardag. Þetta
sé á sama stað og grjóthrun hafi orðið
um miðjan ágúst og aftur 24. ágúst
síðastliðinn. Fyrir ofan veginn eru
grjótnetsvarnir og segir Geir að þær
hafi tekið töluvert af smærri steinum
en magnið hafi verið svo mikið að
grjótið hafi ekki bara farið yfir varn-
irnar heldur líka skemmt þær, farið í
gegn, niður á veg og fram í sjó.
Aukið hrun
en engin slys ennþá
Grjóthrun í Óshlíðinni er algengt á
haustin en Geir segir að hrunið að
undanförnu hafi verið meira en und-
anfarin ár. Hvorki hafi samt orðið
slys á fólki né skemmdir á ökutækj-
um en smávægilegar skemmdir á
veginum.
Fyrir nokkrum misserum gaf
Vegagerðin út skýrslu um leiðir til
úrbóta í Óshlíð. Geir segir að þeir
kostir sem séu fyrir hendi séu tíund-
aðir í skýrslunni, meðal annars ýmsir
kostir varðandi jarðgöng, og aðeins
sé spurning um að velja og hafna,
hvað menn vilji fara í dýrar leiðir.
„Menn vita nákvæmlega hvað þarf að
gera og það er bara fjárveitingar-
valdsins að taka ákvörðun,“ segir
hann.
Boðað hefur verið til fundar í al-
mannavarnanefnd Bolungarvíkur í
dag til þess að fara yfir málið. Einar
Pétursson segir að grjóthrunið hafi
aukist og við því þurfi að bregðast.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Grjóthnullungar höfðu slitið varnargirðingu við veginn í Óshlíð eftir hrun úr hlíðinni á laugardaginn.
Almannavarnanefnd fjallar
um göng og grjóthrun í Óshlíð
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steg@mbl.is
KRISTINN Benediktsson ljósmyndari var á svæðinu
á laugardagskvöldið og segir að þá hafi verið mikið
af grjóthnullungum á veginum, yfir honum og í vír-
netum við veginn.
„Það var alveg greinilegt að þeir sem voru á veg-
inum höfðu tætt sig í gegn,“ segir Kristinn. „Það
eru járnstaurar þarna meðfram veginum og svo eru
vírnet á milli þeirra. Þetta er svona tveggja til
þriggja metra hátt en girðingin var í tætlum hér og
þar.“
Kristinn segist hafa heyrt hvernig hlíðin var á iði.
„Maður heyrði grjótmulninginn vera að skríða til í
hlíðinni og ég var bara snöggur að koma mér í
burtu,“ segir hann. „Það er örugglega ekki
skemmtileg tilfinning að búa við þetta frá degi til
dags.“
Heyrðist hvernig hlíðin var á iði
DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra
er ásamt embættismönnum kominn
til New York til að sitja allsherjar-
þing Sameinuðu
þjóðanna. Er
þetta síðasta emb-
ættisverk Davíðs
sem utanríkisráð-
herra á erlendum
vettvangi, áður en
hann lætur af því
starfi 27. septem-
ber næstkomandi
og Geir H. Haarde tekur við.
Davíð situr í dag samráðsfund ut-
anríkisráðherra Norðurlandanna og
á morgun snæðir hann ásamt öðrum
starfsbræðrum sínum innan NATO
og ESB hádegisverð í boði Condo-
leezzu Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Síðdegis á morgun
flytur Davíð ræðu á allsherjar-
þinginu.
Flytur
ræðu á alls-
herjarþingi
Davíð Oddsson
♦♦♦
SKIPTAR skoðanir eru um það innan
raða stjórnarandstöðuflokkanna
hvort Íslendingar eigi að halda fram-
boði sínu til streitu í Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna. Hins vegar er sam-
hljómur í gagnrýni stjórnarandstöð-
unnar á framgöngu ríkisstjórnar-
innar og mismunandi áherslur for-
ystumanna stjórnarflokkanna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, er fylgj-
andi því að Íslendingar sækist eftir
setu hjá alþjóðastofnunum og taki þar
þátt í ákvörðunum. Almennt hafi af-
staðan verið sú innan Samfylkingar-
innar að styðja framboðið, m.a. hafi
tillaga verið felld á landsfundi flokks-
ins árið 2003 um að Ísland ætti ekki
að styðja framboð Íslands. Ingibjörg
segir það vera mjög slæmt ef Íslend-
ingar hætti við framboðið á miðri leið.
Össur Skarphéðinsson, fv. formað-
ur Samfylkingarinnar, segist alltaf
hafa haft efasemdir um framboð Ís-
lands og þær hafi ekki minnkað eftir
að mismunandi áherslur komu fram
hjá forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra. Hann telur Ísland geta valdið
því að sitja í Öryggisráðinu en hvert
slíkt skref verði að vera mjög vel und-
irbúið. Ljóst sé að undirbúningur
framboðsins innan ríkisstjórnarinnar
einkennist af handarbakarvinnu.
Þverpólitískt mál
Haft var eftir Steingrími J. Sigfús-
syni, formanni Vinstri grænna, í
blaðinu um helgina að hann hefði ekki
lagst gegn framboði Íslands, þegar
það var kynnt. Sér hefði þó verið
brugðið að heyra um mikinn kostnað.
Ögmundur Jónasson, þingflokksfor-
maður Vinstri grænna, segist í Morg-
unblaðinu í dag hafa efasemdir um
framboðið. Málið sé þverpólitískt og
um það séu skiptar skoðanir innan
allra flokka. Þingflokkur VG hafi ekki
tekið formlega afstöðu til málsins en
hann kallar eftir ákvarðanatöku og
lýðræðislegri umræðu á Alþingi.
Skiptar
skoðanir
stjórnar-
andstöðu
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Öryggisráðið | 10–11