Morgunblaðið - 19.09.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 19.09.2005, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GH -S N 05 08 00 2 Munið nýja stórglæsilega vörulistann okkar sem sýnir á yfir 500 síðum hið mikla úrval raflagnaefnis og lýsingarbúnaðar sem við höfum á boðstólum. Komið í heimsókn og fáið eintak. ÓÁNÆGJA kom upp með vinnubrögð við stjórnarkjör á landsþingi framsóknarkvenna, sem haldið var á Ísafirði um helgina, hinu tólfta í röðinni. Elsa B. Friðfinnsdóttir, fv. aðstoðar- maður heilbrigðisráðherra, sté í pontu og lýsti því yfir að vegna óánægju sinnar með vinnu- brögðin myndi hún ekki neyta atkvæðisréttar síns í stjórnarkjörinu. „Ég mat það svo að talsverð smölun hefði átt sér stað. Stór hópur ungra kvenna, aðallega Freyjukonur úr Kópavogi að mér skilst, kom með seinni vélinni í gær [á laugardag] að því er virtist eingöngu til að taka þátt í kosningunum. Þetta mat mitt var staðfest eftir þingið af fráfar- andi formanni [Unu Maríu Óskarsdóttur], sem sagði að stjórnarmenn hefðu fengið vinkonur sínar og dætur til að mæta og tryggja stjórn- arsetuna. Ég hef ekkert út á þessa einstaklinga að setja, heldur kann ég ekki við þetta vinnulag og ákvað því að kjósa ekki,“ sagði Elsa við Morgunblaðið í gær. Hún sagðist telja að fleiri en hún hefðu af þessum sökum ekki greitt atkvæði í stjórnar- kjörinu, miðað við kosningaþátttöku og mæt- ingu á landsþingið. Um 90 konur voru á þinginu en um 70 greiddu atkvæði í stjórnarkjörinu. Vísa gagnrýninni á bug Spurð um þessa gagnrýni Elsu vísaði Una María Óskarsdóttir henni á bug. Á laugardeg- inum hefðu ungar framsóknarkonur komið með flugi, sem ekki hefðu komist fyrr, m.a. dóttir sín og vinkona hennar. Einnig hefðu komið konur frá Ísafirði og nærsveitum. Engin smölun hefði átt sér stað og það væri eðlilegt að þeir sem væru í stjórnarkjöri reyndu að afla sér fylgis. Bryndís Bjarnarson úr Mosfellsbæ var kjörin formaður í stað Unu Maríu, sem gaf ekki kost á sér áfram, en Bryndís hafði áður verið varaformaður. Auk Bryndísar voru kjörn- ar í nýja stjórn þær Gerður Jónsdóttir, Akureyri, Inga S. Ólafsdóttir, Ísafirði, Kolbrún Ólafsdóttir, Reykjavík, og Mar- grét Þórðardóttir úr Kópavogi. Líkt og Una María vísar Bryndís gagn- rýni Elsu á bug. Ekkert óeðlilegt hafi ver- ið í gangi. Bryndís segir það eðlilegt í stjórnmálastarfi að fleiri mæti á landsþing þegar kjósa ætti nýja forystu. Þannig hefðu ungar framsóknarkonur mætt vel til að styðja sinn fulltrúa í kjöri. Bryndís telur að Elsa hafi ekki kynnt sér málið nægilega vel og greinilega ekki þekkt til kvennanna á fundinum. Þær hefðu ekki eingöngu verið úr Kópavogi heldur af öllu landinu. Hún segir þingfulltrúa ýmist hafa komið með einkabílum, rútu eða flugvél og síðdegis á laug- ardag hefðu tíu konur komið að sunnan og náð að taka þátt í um helmingi þingstarfsins. Þær hafi því ekki eingöngu komið til að kjósa nýja stjórn. Bryndís harmar ummæli Elsu á landsþinginu og viðbrögð hennar í framhaldinu. Mikil sam- staða hafi verið á þinginu og málefnavinna verið góð. Framsóknarkonur eigi ekki skilið að fá nei- kvæða umræðu um annars vel heppnað lands- þing. Elsa B. Friðfinnsdóttir ósátt við stjórnarkjör á landsþingi framsóknarkvenna Telur smölun hafa átt sér stað á landsþinginu Bryndís Bjarnarson Una María Óskarsdóttir Elsa B. Friðfinnsdóttir Nýkjörinn formaður vísar gagnrýni á bug Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is SKÓLASVEIT Laugalækjarskóla varð í gær Norður- landameistari grunnskóla í skák, en mótið var haldið í Árósum í Danmörku. Sveitin lauk keppni með 14 vinn- inga af 20 mögulegum, og var búin að tryggja sér sigur fyrir lokaumferðina. Í öðru sæti var lið Noregs sem hlaut 11,5 vinninga. Á sama tíma og á sama stað fór fram Norðurlandamót framhaldsskólasveita. Þar keppti lið Menntaskólans í Hamrahlíð og lenti það í öðru sæti með 9,5 vinninga. Efstir urðu hins vegar Norðmenn með 11 vinninga. Torfi Leósson, liðsstjóri og þjálfari Laugalækjarskóla, segir strákana vera afar metnaðarfulla en hann hefur unnið með þeim sl. fjögur ár. „Við kunnum ekki alltaf mest í fræðunum en við gefumst aldrei upp. Mínir strák- ar voru alltaf síðastir til að klára skákirnar. Þá sneru þeir oft töpuðum skákum jafnvel í sigur á meðan hinir fóru stundum á taugum. Þeir voru orðnir svo leiðir á að tefla við þessa Íslendinga sem ekkert gáfu eftir,“ segir Torfi og bætir því við að skákirnar gátu verið allt að fimm tíma langar. Aðspurður sagði hann alla vera kampakáta með sig- urinn enda erfitt mót að baki sem stóð frá föstudegi til sunnudags. Laugalækjarskóli Norðurlandameistari í skák Kunnum ekki alltaf mest í fræð- unum en við gefumst aldrei upp NEYÐARLÍNUNNI barst síðdegis á laug- ardag beiðni um aðstoð við að ná í gangna- mann sem hrasaði og meiddist í baki hátt uppi í fjalli í Skáladal á Ingjaldssandi. Björgunarsveitin Dýri á Þingeyri fór á staðinn sem og sjúkrabíll frá Þingeyri. Einn- ig var Björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri fengin til aðstoðar. Vel gekk að ná manninum niður úr fjallinu miðað við aðstæður og var hann kominn í sjúkrabílinn um kl. 19.30. Hann var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynn- ingar. Gangnamanni bjargað úr fjallshlíð STARFSMENN Sím- ans ösluðu nú fyrir helgi yfir Tungufljót í Skaftártungu og mældu dýptina í ánni yfir ljósleiðara sem liggur þar grafinn í sandinn. Skammt fyrir neðan slær Ása- Eldvatn saman við fljótið og úr verður Kúðafljót. Þarna slæm- ir fljótið sér um miklar sandeyrar og full ástæða fyrir starfs- mennina að fara var- lega, enda bundu þeir sig saman þar sem þeir fetuðu sig yfir kvísl- arnar og sögðu vatns- dýptina í talstöðina en félagi þeirra sat í landi, hlýddi á og færði töl- urnar jafnóðum á blað. Dýpið mælt í Tungu- fljóti Morgunblaðið/Einar Falur ALÞINGI Íslendinga kemur saman að nýju laugardaginn 1. október nk. Gert er ráð fyrir því að Sólveig Pétursdóttir alþingismaður taki þá við sem forseti Alþingis í stað Hall- dórs Blöndal. Halldór var fyrst kjörinn for- seti þingsins vorið 1999. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra flyt- ur stefnuræðu sína þriðjudagskvöldið 4. októ- ber, en daginn áður verður fjárlaga- frumvarpinu útbýtt. Fyrsta umræða um það hefst fimmtudaginn 6. október. Nokkrar breytingar hafa orðið á þing- mannaliðinu frá því þingi var frestað í vor. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, tók sæti Bryndísar Hlöðversdóttur, hinn 1. ágúst sl., þegar sú síðarnefnda sagði af sér þing- mennsku. Valdimar L. Friðriksson, þingmað- ur Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, tók sæti Guðmundar Árna Stefánssonar, hinn 1. september sl., þegar sá síðarnefndi sagði af sér þingmennsku. Þá er gert ráð fyrir því að Ásta Möller, varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík norður, taki sæti Davíðs Oddssonar um næstu mánaðamót, en Davíð hefur eins og kunnugt er lýst því yfir að hann muni lok mánaðarins hætta afskiptum af stjórnmálum. Eftir þessar breytingar er hlut- ur kvenna á þingi orðinn rúmlega 33%. Endurbótum á húsnæði Alþingis verður lokið þegar þing kemur saman að nýju um mánaðamótin, að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis. Endurbæturnar hófust í fyrra en í sumar voru gerðar lagfær- ingar á fyrstu og þriðju hæð hússins. Þing kemur saman annan laugardag BORIÐ hefur á kvörtunum frá íbúum í Graf- arvogi vegna of mikillar fjarlægðar frá næstu strætisvagnabiðstöðvum við Egilshöll. Tvær strætisvagnaleiðir ganga að Egilshöll, annars vegar leið 24 og hins vegar leið 16. Samkvæmt upplýsingum Strætó bs. stansar leið 24 um 150 metra frá Egilshöll og leið 24 um 200 metra frá húsinu. Það er viðurkennt af hálfu Strætó að þetta geti verið í lengra lagi þegar veður eru leiðinleg en á hitt beri að líta að öryggis- sjónarmið réðu för í þessum efnum. Þannig stansi leið 24 beint við undirgöng við Víkurveg og það hindri farþega í að ganga yfir götuna, með tilheyrandi slysahættu á þungri og hraðri umferðargötunni. Væri biðstöðin færð nær Egilshöll þyrfti að gera umfangs- miklar ráðstafanir til hindra að farþegar færu yfir götuna í stað þess að nota undirgöngin. Biðstöðvar þykja of langt frá Egilshöll

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.